Fleiri fréttir Áskorunin hljóðar upp á óbreytt ástand Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi segir að áskorun sem samþykkt var á fjölmennum fundi í Salnum í gærkvöldi hafi komið sér afskaplega mikið á óvart. Að hans mati hljóðar áskorunin upp á að gera einfaldlega ekki neitt á svæðinu. Hann segir að samtökum um betri byggð á Kársnesi sé greinilega einnig sama um hvort hægt sé að halda störfum í bæjarfélaginu. Hún hljómar upp á að gera ekki neitt. 16.8.2007 20:02 Hiti í íbúum Kársness Mikill hiti var á fjölmennum íbúafundi í Salnum í Kópavogi í gærkvöldi þar sem tekist var á um framtíðaruppbyggingu á Kársnesi. Bæjarstjórinn kallaði gagnrýnina nánast óvægna, en sagðist tilbúinn að skoða kröfur íbúanna. Þeir krefjast þess að upplýsingar sem bærinn afhendir varðandi skipulagið séu réttar og skora á bæinn að falla frá núverandi áformum. 16.8.2007 18:45 Eiginmaðurinn fluttur 214 km í burtu Tæplega sjötug kona í Hveragerði þarf að keyra í heila fimm klukkutíma þegar hún heimsækir mann sinn á sjúkrahúsi á Kirkjubæjarklaustri. Plássleysi á sjúkrahúsinu á Selfossi er um að kenna, en lækningarforstjóri segir um neyðarúrræði að ræða. 16.8.2007 18:45 Aðstöðuleysi og lágir launataxtar helstu skýringar biðlista Tryggingastofnun vísar því alfarið á bug að kjaradeila milli svæfingarlækna og stofnunarinnar valdi því að eitthundrað börn bíði eftir að komast í svæfingu vegna tannviðgerða. Svæfingarlæknir segir aðstöðuleysi og lága launataxta helstu skýringar á biðlistum. 16.8.2007 18:44 Erfitt að finna einn ábyrgan Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir að erfitt geti reynst að finna einhvern einn sem bera eigi ábyrgð á Grímseyjarferjumálinu, en greinilega hafi margt farið úrskeiðis. Hann telur að heimild hafi verið í lögum fyrir öllum fjárveitingum til ferjunnar. 16.8.2007 18:30 Tugir milljóna í tónleika Forsvarsmenn Kaupþings segjast frekar vilja halda tónleika fyrir alla þjóðina en nota féð og umbuna viðskiptavinum sína til dæmis með lækkun þjónustugjalda. Ekki fæst uppgefið hve mikið fyrirhugaðir afmælistónleikar Kaupþings koma til með að kosta, en ljóst er að kostnaðurinn hlaupi á tugum milljóna. 16.8.2007 18:30 Dýrara að leggja einkabílnum en einkaþotunni Aðeins kostar um fimmtán til átján hundruð krónur að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli í þrjátíu klukkustundir. Ef aðeins er stoppað í sex tíma kostar ekkert að leggja á flugvellilnum. Bifreiðaeigendur þurfa hins vegar að greiða fyrir hverja mínútu sem þeir leggja bílum sínum í miðborginni. 16.8.2007 18:30 Biðlistum á BUGL vonandi eytt fljótlega Yfirlæknir á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans vonar búið verði að eyða biðlistum við deildina fyrir næsta vor, en stjórnvöld hafa ákveðið að veita hundrað og fimmtíu milljónum aukalega til deildarinnar. Hátt í tvöhundruð börn og unglingar eru á biðlista. 16.8.2007 18:30 Minnst 500 látnir Minnst 500 manns týndu lífi og 1500 slösuðust í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Upptök skjálftans eru í Kyrrahafinu, suð-austur af höfuðborginni Líma. Flestir hinna látnu bjuggu í strandhéraðinu Ica. 16.8.2007 18:30 Frestur til að gera athugasemdir við skipulag á Kársnesi framlengdur Frestur til að skila inn athugasemdum varðandi skipulag á hafnarsvæðinu á Kársnesi í Kópavogi hefur verið framlengdur til mánudagsins 3. september næstkomandi. Fresturinn átti upphaflega að renna út 21. ágúst næstkomandi en í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að bæjarráð hafi ákveðið að fara að tillögu Gunnars Birgissonar bæjarstjóra og framlengja frestinn. 16.8.2007 17:54 Sturla þvær hendur sínar í Grímseyjarferjumálinu Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og fyrrverandi samgönguráðherra, segist aldrei hafa gefið fyrirmæli sem leiddu til þess að kostnaður við Grímseyjarferju fór langt út fyrir áætlun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sturlu. Hann tekur undir yfirlýsingu samgönguráðuneytisins að líta verði á málið alvarlegum augum. 16.8.2007 17:01 Skiptar skoðanir um styttingu afgreiðslutíma veitingahúsa Skiptar skoðanir eru meðal veitingahúsamanna í miðbæ Reykjavíkur um ágæti þess að stytta afgreiðslutíma veitingahúsa. Allir eru þó sammála um að lögreglan þurfi að vera sýnilegri. Borgarráð Reykjavíkurborgar ákvað í morgun að endurskoða útgáfufjölda vínveitingaleyfa og afgreiðslutíma skemmtistaða. 16.8.2007 16:15 Engan bjór í Austurstræti Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, vill samhent átak til að bæta ástandið í miðbænum. Hann er ánægður með fund borgaryfirvalda og lögreglunnar í morgun. Hann ætlar að funda með veitingahúsaeigendum í næstu viku. Björn Ingi vill að Vínbúðin í Austurstræti hætti að selja bjór í stykkjatali. Borgarstjóri tekur undir orð Björns Inga. 16.8.2007 16:03 Þrír greinst með berklasmit á árinu Þrír einstaklingar hafa greinst með berkla á íslandi það sem af er árinu. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum sem nýlega voru gefin út á vef landlæknisembættisins. Í tveimur tilvikum þótti ástæða til að gangast fyrir allumfangsmikilli rannsókn til að rekja hugsanlegt smit. 16.8.2007 14:56 Trylltur á traktor Þýskur bóndi tók því illa þegar lögreglumenn stöðvuðu hann þar sem hann var að aka á þjóðvegi á traktor sínum. Bóndinn hafði ekki tilskilin ökuréttindi og hafði fengið margar viðvaranir. Nú þótti laganna vörðum nóg komið og skipuðu honum út úr traktornum. Bóndinn hélt nú ekki. Hann gaf í botn og þrusaði skrímslinu á næsta lögreglubíl. Framan á traktornum var vígalegur gaddalyftari. 16.8.2007 14:49 Íslenskir ráðherrar axla sjaldan ábyrgð Aðeins tvisvar frá stofnun lýðveldisins árið 1944 hefur það gerst að íslenskur ráðherra hefur sagt af sér í kjölfar gagnrýni. Á sama tíma þykja smámál á borð við ógreidd afnotagjöld af sjónvarpi vera nægt tilefni til afsagnar ráðherra í nágrannaríkjum okkar. Stjórnmálafræðingur telur að ráðherraábyrgð í íslenskum lögum sé ekki nægjanlega skýr og lítil hefð sé fyrir því að menn segi af sér. 16.8.2007 14:37 Fjölskyldum danskra hermanna hótað Íraskir hryðjuverkamenn hafa hlerað símtöl danskra hermanna við fjölskyldur sínar. Þeir hafa svo hringt í fjölskyldurnar og hótað þeim öllu illu, að sögn vefmiðilsins avisen.dk. Danskur sérfræðingur í sálfræðihernaði segir þetta hafa ótrúlega lamandi áhrif á hermennina. Varnarmálaráðuneytið vil ekki upplýsa um umfang þessara hótana. 16.8.2007 14:30 Enn óvissa með Endeavour Bandaríska geimferðastofnunin frestaði í gær fjórðu geimgöngu áhafnar geimferjunnar Endeavour vegna óvissu um hvort gera þyrfti við rifu á hitahlíf ferjunnar. Geimgangan átti að fara fram á morgun og fól í sér ýmiss önnur verkefni en mögulega viðgerð á geimferjunni. Göngunni hefur verið frestað fram á laugardag. 16.8.2007 14:29 Biðlistum á BUGL útrýmt Hundrað og fimmtíu milljónum króna verður varið á næstu átján mánuðum í að stórauka þjónustu við börn og ungmenni með hegðunar- og geðraskanir. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra kynnti áherslur sínar í geðheilbrigðismálum barna á blaðamannafundi á BUGL í dag. 16.8.2007 14:25 Stjórnlausir skógareldar í úthverfum Aþenu Gríðarlegir skógareldar hafa borist í úthverfi Aþenu, höfuðborgar Grikklands. Þrjátíu metra háar eldsúlur hafa þegar brennt tugi húsa til kaldra kola. Sjóðheitir stormsveitir koma í veg fyrir að hægt sé að nota flugvélar við slökkvistarfið. Slökkviliðsmenn á jörðu niðri ráða ekkert við ástandið. Gríska veðurstofan segir að vindinn muni ekki lægja fyrr en seint í kvöld. 16.8.2007 14:22 Gengishrunið kostaði neytendur 13 milljarða á einum mánuði 16.8.2007 13:32 Ræningjar í djúpum Frú Chen sem býr í borginni Laoheku í Kína var að koma frá því að taka út peninga í bankanum sínum þegar tveir menn á skellinöðru renndu upp að henni. Þeir rifu af henni böggulinn sem hún hélt á undir hendinni. 16.8.2007 13:16 Slökkviliðið kallað að Langholtsvegi Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað að Langholtsvegi klukkan níu í morgun vegna reyks í húsi þar. Þegar málið var rannsakað kom í ljós að reykinn lagði frá potti á eldavél og engin hætta var á ferðum. Nokkurn tíma tókst að reykræsta íbúðina en ekki urðu miklar skemmdir á íbúðinni. 16.8.2007 12:57 Anna Kristín formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs Umhverfisráðherra hefur skipað stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs til næstu fjögurra ára og verður Anna Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarkona umhverfisráðherra, formaður stjórnarinnar. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu er gert ráð fyrir að þjóðgarðurinn verði formlega stofnaður snemma á næsta ári. 16.8.2007 12:44 Andláts Elvis minnst Aðdáendur Elvis Presley minnast þess í dag að þrjátíu ár eru frá því rokkkóngurinn safnaðist til feðra sinna. Í dag verða minningartónleikar haldnir um Presley við heimili hans, Graceland. Búist er við mörg þúsund manns. 16.8.2007 12:13 Vonast eftir að viðræður hefjist í september Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti í gær að breyta skipulagi í sveitarfélaginu þannig að olíuhreinsistöð geti risið í landi Hvestu í Arnarfirði. Viðræður milli aðstandenda stöðvarinnar og landeigenda eru þó ekki hafnar en bæjarstjórinn í Vestuggð vonar að ef allt gangi að óskum verði hægt að hefja byggingu stöðvarinnar næsta vor. 16.8.2007 12:08 Útgáfufjöldi vínveitingaleyfa og afgreiðslutími skemmtistaða endurskoðaðir Útgáfufjöldi vínveitingaleyfa og afgreiðslutími skemmtistaða í miðborg Reykjavíkur verða endurskoðaðir á næstu vikum til að sporna gegn vandanum í miðbænum um helgar. Auk þess verður löggæsla að öllum líkindum hert og eftirlitsmyndavélum fjölgað. 16.8.2007 12:08 Taugatitringur á mörkuðum Hlutabréfamarkaðir í Asíu og Evrópu hafa hrunið frá því þeir voru opnaðir í morgun. Áframhaldandi óvissu vegna samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði er þar um að kenna. Krónan hefur fallið um 12% á einum mánuði og veiktist um 2% í morgun. Úrvalsvísitalan lækkaði þá um rúm 4%. 16.8.2007 12:05 Verbúðarstemning á gamla varnarsvæðinu Fyrstu íbúarnir fluttu inn í námsmannaíbúðir á Keflavíkurflugvelli í gær. Strax í haust verður um 700 manna bæjarfélag komið í fulla starfsemi og er stefnt að því að íbúafjöldi tvöfaldist á næsta ári. Um 300 íbúðum var úthlutað í gamla varnarsvæðinu og var eftirspurnin mikil. Um helmingur íbúa sótti lyklana sína á skrifstofu Keilis í gær. 16.8.2007 12:02 Óttast að 330 hafi týnt lífi Óttast að rúmlega 300 manns hafi týnt lífi í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Björgunarmenn reyna nú hvað þeir geta til að leita eftirlifenda í rústum húsa. 16.8.2007 11:51 Bæjarstjóri segir gagnrýni Kársnesbúa óvægna Íbúar á Kársnesi í Kópavogi voru ómyrkir í máli í gærkvöldi á fjölmennum fundi með bæjarstjóra um fyrirhuguð byggingaráform á nesinu. Íbúarnir skora á bæjaryfirvöld að falla frá áformunum og koma til móts við vilja íbúa með framtíðaruppbyggingu á svæðinu. Bæjarstjórinn segir gagnrýni íbúanna jaðra við að vera óvægna, en að hann sé tilbúinn að skoða kröfur þeirra. 16.8.2007 11:42 Best rekna ríkisstofnunin stolt af árangrinum 16.8.2007 11:38 Vaxtastefna Seðlabankans vanmáttugt tæki Nauðsynlegt er að endurskoða verðbólgumarkmið Seðlabankans að mati Samtaka atvinnulífsins. Samtökin hafa nú sent forsætisráðherra bréf þar sem þau ítreka áhyggjur sínar af afleiðingum peningamálastefnu Seðlabankans. Telja þau ljóst að aðgerðir bankans hingað til hafi haft skaðleg áhrif á atvinnulífið og þjóðarbúið í heild. 16.8.2007 11:36 Tjón þegar vatnsleiðsla sprakk Slökkviliðið á Suðurnesjum var kallað að húsi við Faxabraut í Keflavík þegar vatnsleiðsla sprakk þar fyrir stundu. Að sögn lögreglunnar rifnaði malbik upp á stórum kafla í götunni og mikið vatn flæddi. Svo virðist sem að minnsta kosti eitt hús hafi orðið fyrir talsverðum skemmdum. Lögreglan segir að enn sé unnið að því að bjarga verðmætum frá vatnstjóni. 16.8.2007 11:35 Vill búa til súpu úr flökkuhundum Flökkuhundar eru mikið vandamál í Nýju Delí á Indlandi. Þeir eru þar í tugþúsunda tali. Ýmislegt hefur verið reynt til þess að fækka þeim, en það hefur lítinn árangur borið. Borgarfulltrúi í borginni lagði í gær fram tillögu um að vandinn yrði lestur með því að fanga hundana og senda þá til Kóreu, þar sem hundakjöt er talið mikið lostæti. 16.8.2007 11:35 Höfuðstöðvar Kaupþings áfram á Íslandi Þrátt fyrir að aðeins 15 prósent af starfsemi Kaupþings fari fram hér á landi ætlar bankinn ekki að flytja höfuðstöðvar sínar segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri bankans. Hans segir mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að hér sé öflug fjármálastarfssemi. 16.8.2007 11:25 Teknir með dóp við Skaftahlíð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo menn við Skaftahlíð í morgun og eru þeir grunaðir um að hafa keyrt undir áhrifum fíkniefna og að hafa haft fíkniefni undir höndum. Lögreglan segir að rannsókn málsins sé á byrjunarstigi og vildi ekki gefa upplýsingar um framgang þess. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglu. 16.8.2007 11:22 Ég er á lausu Hringur sem gefur til kynna að þú sért á lausu virðist vera að fara sigurför um heiminn. Hringinn geta borið bæði karlmenn og konur. Hann hefur nú selst í yfir 130 þúsund eintökum og framleiðandinn er að hefja mikla auglýsingaherferð. Hann er nýkominn úr kynningarferð til Kína, þar sem viðtökurnar voru mjög góðar, að hans sögn. 16.8.2007 11:17 Eldflaug skotið á sænska farþegaflugvél Eldflaug var skotið á sænska farþegaflugvél sem var í flugtaki frá Norður-Írak í síðustu viku. Eldflaugin sprakk rétt fyrir framan vélina, en ekki urðu á henni neinar skemmdir. Vélin var frá flugfélaginu Nordic Airways og um borð voru 137 farþegar og áhöfn. 16.8.2007 11:01 Tryggingafélögin hagnast um tæpa 20 milljarða króna Samanlagður hagnaður tryggingafélaganna eftir skatt nam 19,5 milljörðum króna á síðasta ári og dróst saman um 700 milljónir króna milli ára. Langstærsti hluti hagnaðarins stafar af fjármálarekstri en þá batnaði afkoma af skaðatryggingarekstri meðal annar vegna hækkun iðgjalda. Rekstur lögboðinna ökutækjatrygginga skilaði hagnaði upp á einn milljarð króna. 16.8.2007 10:40 Ráðuneyti telja ómögulegt að refsa ríkisforstjórum Í skýrslu Ríkisendurskoðunnar um framkvæmd fjárlaga á síðasta ári kemur fram að viðmælendur Ríkisendurskoðunnar í einstökum ráðuneytum hafi borið því við að réttarstaða starfsmanna ríkisins sé það sterk að í reynd sé nær ógjörningur að ná fram áminningu fari viðkomandi stofnun framúr fjárlögum. Gunnar Svavarsson formaður fjárlaganefndar segir að þótt ferlið sé flókið og erfitt muni nefndin leggja aukinn þunga á að áminningar verði veittar ef ástæða er til. 16.8.2007 10:17 Komdu þér út kerling Dyraverðir á lúxushóteli í Cancún í Mexíkó brugðust skjótt við þegar indíánakona í litríkum klæðum gekk inn í hótelið þeirra. "Enga götusölu hér," sögðu þeir. Þeir tóku konuna föstum tökum og ætluðu að henda henni út. Sem betur fór var í anddyrinu fólk sem þekkti Rigobertu Menchu, friðarverðlaunahafa Nóbels og frambjóðanda í forsetakosningum í Gvatemala. 16.8.2007 10:15 Hart tekið á unglingadrykkju á Menningarnótt Viðbragðsaðilar eins og slökkvilið, lögregla og björgunarsveitir hafa töluverðan viðbúnað vegna Menningarnætur og verður tekið sérstaklega hart á unglingadrykkju. 16.8.2007 10:06 Aron Pálmi fær ekki einkaflug eins og Fischer Aron Pálmi Ágústsson verður látinn laus á laugardaginn eftir 10 ára refsivist í Texas. Hann mun ekki fá einkaflug heim og mun ferðast á almennu farrými með Icelandair. 16.8.2007 10:04 Blóðið ekki úr Madeleine litlu Blóðið sem fannst í herberginu þar sem Madeleine McCann var rænt í Portúgal, reyndist ekki vera úr henni. DNA rannsókn í Bretlandi hefur leitt þetta í ljós að sögn Sky fréttastofunnar. Blóðið er sagt vera úr karlmanni. 16.8.2007 09:54 Sjá næstu 50 fréttir
Áskorunin hljóðar upp á óbreytt ástand Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi segir að áskorun sem samþykkt var á fjölmennum fundi í Salnum í gærkvöldi hafi komið sér afskaplega mikið á óvart. Að hans mati hljóðar áskorunin upp á að gera einfaldlega ekki neitt á svæðinu. Hann segir að samtökum um betri byggð á Kársnesi sé greinilega einnig sama um hvort hægt sé að halda störfum í bæjarfélaginu. Hún hljómar upp á að gera ekki neitt. 16.8.2007 20:02
Hiti í íbúum Kársness Mikill hiti var á fjölmennum íbúafundi í Salnum í Kópavogi í gærkvöldi þar sem tekist var á um framtíðaruppbyggingu á Kársnesi. Bæjarstjórinn kallaði gagnrýnina nánast óvægna, en sagðist tilbúinn að skoða kröfur íbúanna. Þeir krefjast þess að upplýsingar sem bærinn afhendir varðandi skipulagið séu réttar og skora á bæinn að falla frá núverandi áformum. 16.8.2007 18:45
Eiginmaðurinn fluttur 214 km í burtu Tæplega sjötug kona í Hveragerði þarf að keyra í heila fimm klukkutíma þegar hún heimsækir mann sinn á sjúkrahúsi á Kirkjubæjarklaustri. Plássleysi á sjúkrahúsinu á Selfossi er um að kenna, en lækningarforstjóri segir um neyðarúrræði að ræða. 16.8.2007 18:45
Aðstöðuleysi og lágir launataxtar helstu skýringar biðlista Tryggingastofnun vísar því alfarið á bug að kjaradeila milli svæfingarlækna og stofnunarinnar valdi því að eitthundrað börn bíði eftir að komast í svæfingu vegna tannviðgerða. Svæfingarlæknir segir aðstöðuleysi og lága launataxta helstu skýringar á biðlistum. 16.8.2007 18:44
Erfitt að finna einn ábyrgan Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir að erfitt geti reynst að finna einhvern einn sem bera eigi ábyrgð á Grímseyjarferjumálinu, en greinilega hafi margt farið úrskeiðis. Hann telur að heimild hafi verið í lögum fyrir öllum fjárveitingum til ferjunnar. 16.8.2007 18:30
Tugir milljóna í tónleika Forsvarsmenn Kaupþings segjast frekar vilja halda tónleika fyrir alla þjóðina en nota féð og umbuna viðskiptavinum sína til dæmis með lækkun þjónustugjalda. Ekki fæst uppgefið hve mikið fyrirhugaðir afmælistónleikar Kaupþings koma til með að kosta, en ljóst er að kostnaðurinn hlaupi á tugum milljóna. 16.8.2007 18:30
Dýrara að leggja einkabílnum en einkaþotunni Aðeins kostar um fimmtán til átján hundruð krónur að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli í þrjátíu klukkustundir. Ef aðeins er stoppað í sex tíma kostar ekkert að leggja á flugvellilnum. Bifreiðaeigendur þurfa hins vegar að greiða fyrir hverja mínútu sem þeir leggja bílum sínum í miðborginni. 16.8.2007 18:30
Biðlistum á BUGL vonandi eytt fljótlega Yfirlæknir á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans vonar búið verði að eyða biðlistum við deildina fyrir næsta vor, en stjórnvöld hafa ákveðið að veita hundrað og fimmtíu milljónum aukalega til deildarinnar. Hátt í tvöhundruð börn og unglingar eru á biðlista. 16.8.2007 18:30
Minnst 500 látnir Minnst 500 manns týndu lífi og 1500 slösuðust í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Upptök skjálftans eru í Kyrrahafinu, suð-austur af höfuðborginni Líma. Flestir hinna látnu bjuggu í strandhéraðinu Ica. 16.8.2007 18:30
Frestur til að gera athugasemdir við skipulag á Kársnesi framlengdur Frestur til að skila inn athugasemdum varðandi skipulag á hafnarsvæðinu á Kársnesi í Kópavogi hefur verið framlengdur til mánudagsins 3. september næstkomandi. Fresturinn átti upphaflega að renna út 21. ágúst næstkomandi en í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að bæjarráð hafi ákveðið að fara að tillögu Gunnars Birgissonar bæjarstjóra og framlengja frestinn. 16.8.2007 17:54
Sturla þvær hendur sínar í Grímseyjarferjumálinu Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og fyrrverandi samgönguráðherra, segist aldrei hafa gefið fyrirmæli sem leiddu til þess að kostnaður við Grímseyjarferju fór langt út fyrir áætlun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sturlu. Hann tekur undir yfirlýsingu samgönguráðuneytisins að líta verði á málið alvarlegum augum. 16.8.2007 17:01
Skiptar skoðanir um styttingu afgreiðslutíma veitingahúsa Skiptar skoðanir eru meðal veitingahúsamanna í miðbæ Reykjavíkur um ágæti þess að stytta afgreiðslutíma veitingahúsa. Allir eru þó sammála um að lögreglan þurfi að vera sýnilegri. Borgarráð Reykjavíkurborgar ákvað í morgun að endurskoða útgáfufjölda vínveitingaleyfa og afgreiðslutíma skemmtistaða. 16.8.2007 16:15
Engan bjór í Austurstræti Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, vill samhent átak til að bæta ástandið í miðbænum. Hann er ánægður með fund borgaryfirvalda og lögreglunnar í morgun. Hann ætlar að funda með veitingahúsaeigendum í næstu viku. Björn Ingi vill að Vínbúðin í Austurstræti hætti að selja bjór í stykkjatali. Borgarstjóri tekur undir orð Björns Inga. 16.8.2007 16:03
Þrír greinst með berklasmit á árinu Þrír einstaklingar hafa greinst með berkla á íslandi það sem af er árinu. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum sem nýlega voru gefin út á vef landlæknisembættisins. Í tveimur tilvikum þótti ástæða til að gangast fyrir allumfangsmikilli rannsókn til að rekja hugsanlegt smit. 16.8.2007 14:56
Trylltur á traktor Þýskur bóndi tók því illa þegar lögreglumenn stöðvuðu hann þar sem hann var að aka á þjóðvegi á traktor sínum. Bóndinn hafði ekki tilskilin ökuréttindi og hafði fengið margar viðvaranir. Nú þótti laganna vörðum nóg komið og skipuðu honum út úr traktornum. Bóndinn hélt nú ekki. Hann gaf í botn og þrusaði skrímslinu á næsta lögreglubíl. Framan á traktornum var vígalegur gaddalyftari. 16.8.2007 14:49
Íslenskir ráðherrar axla sjaldan ábyrgð Aðeins tvisvar frá stofnun lýðveldisins árið 1944 hefur það gerst að íslenskur ráðherra hefur sagt af sér í kjölfar gagnrýni. Á sama tíma þykja smámál á borð við ógreidd afnotagjöld af sjónvarpi vera nægt tilefni til afsagnar ráðherra í nágrannaríkjum okkar. Stjórnmálafræðingur telur að ráðherraábyrgð í íslenskum lögum sé ekki nægjanlega skýr og lítil hefð sé fyrir því að menn segi af sér. 16.8.2007 14:37
Fjölskyldum danskra hermanna hótað Íraskir hryðjuverkamenn hafa hlerað símtöl danskra hermanna við fjölskyldur sínar. Þeir hafa svo hringt í fjölskyldurnar og hótað þeim öllu illu, að sögn vefmiðilsins avisen.dk. Danskur sérfræðingur í sálfræðihernaði segir þetta hafa ótrúlega lamandi áhrif á hermennina. Varnarmálaráðuneytið vil ekki upplýsa um umfang þessara hótana. 16.8.2007 14:30
Enn óvissa með Endeavour Bandaríska geimferðastofnunin frestaði í gær fjórðu geimgöngu áhafnar geimferjunnar Endeavour vegna óvissu um hvort gera þyrfti við rifu á hitahlíf ferjunnar. Geimgangan átti að fara fram á morgun og fól í sér ýmiss önnur verkefni en mögulega viðgerð á geimferjunni. Göngunni hefur verið frestað fram á laugardag. 16.8.2007 14:29
Biðlistum á BUGL útrýmt Hundrað og fimmtíu milljónum króna verður varið á næstu átján mánuðum í að stórauka þjónustu við börn og ungmenni með hegðunar- og geðraskanir. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra kynnti áherslur sínar í geðheilbrigðismálum barna á blaðamannafundi á BUGL í dag. 16.8.2007 14:25
Stjórnlausir skógareldar í úthverfum Aþenu Gríðarlegir skógareldar hafa borist í úthverfi Aþenu, höfuðborgar Grikklands. Þrjátíu metra háar eldsúlur hafa þegar brennt tugi húsa til kaldra kola. Sjóðheitir stormsveitir koma í veg fyrir að hægt sé að nota flugvélar við slökkvistarfið. Slökkviliðsmenn á jörðu niðri ráða ekkert við ástandið. Gríska veðurstofan segir að vindinn muni ekki lægja fyrr en seint í kvöld. 16.8.2007 14:22
Ræningjar í djúpum Frú Chen sem býr í borginni Laoheku í Kína var að koma frá því að taka út peninga í bankanum sínum þegar tveir menn á skellinöðru renndu upp að henni. Þeir rifu af henni böggulinn sem hún hélt á undir hendinni. 16.8.2007 13:16
Slökkviliðið kallað að Langholtsvegi Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað að Langholtsvegi klukkan níu í morgun vegna reyks í húsi þar. Þegar málið var rannsakað kom í ljós að reykinn lagði frá potti á eldavél og engin hætta var á ferðum. Nokkurn tíma tókst að reykræsta íbúðina en ekki urðu miklar skemmdir á íbúðinni. 16.8.2007 12:57
Anna Kristín formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs Umhverfisráðherra hefur skipað stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs til næstu fjögurra ára og verður Anna Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarkona umhverfisráðherra, formaður stjórnarinnar. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu er gert ráð fyrir að þjóðgarðurinn verði formlega stofnaður snemma á næsta ári. 16.8.2007 12:44
Andláts Elvis minnst Aðdáendur Elvis Presley minnast þess í dag að þrjátíu ár eru frá því rokkkóngurinn safnaðist til feðra sinna. Í dag verða minningartónleikar haldnir um Presley við heimili hans, Graceland. Búist er við mörg þúsund manns. 16.8.2007 12:13
Vonast eftir að viðræður hefjist í september Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti í gær að breyta skipulagi í sveitarfélaginu þannig að olíuhreinsistöð geti risið í landi Hvestu í Arnarfirði. Viðræður milli aðstandenda stöðvarinnar og landeigenda eru þó ekki hafnar en bæjarstjórinn í Vestuggð vonar að ef allt gangi að óskum verði hægt að hefja byggingu stöðvarinnar næsta vor. 16.8.2007 12:08
Útgáfufjöldi vínveitingaleyfa og afgreiðslutími skemmtistaða endurskoðaðir Útgáfufjöldi vínveitingaleyfa og afgreiðslutími skemmtistaða í miðborg Reykjavíkur verða endurskoðaðir á næstu vikum til að sporna gegn vandanum í miðbænum um helgar. Auk þess verður löggæsla að öllum líkindum hert og eftirlitsmyndavélum fjölgað. 16.8.2007 12:08
Taugatitringur á mörkuðum Hlutabréfamarkaðir í Asíu og Evrópu hafa hrunið frá því þeir voru opnaðir í morgun. Áframhaldandi óvissu vegna samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði er þar um að kenna. Krónan hefur fallið um 12% á einum mánuði og veiktist um 2% í morgun. Úrvalsvísitalan lækkaði þá um rúm 4%. 16.8.2007 12:05
Verbúðarstemning á gamla varnarsvæðinu Fyrstu íbúarnir fluttu inn í námsmannaíbúðir á Keflavíkurflugvelli í gær. Strax í haust verður um 700 manna bæjarfélag komið í fulla starfsemi og er stefnt að því að íbúafjöldi tvöfaldist á næsta ári. Um 300 íbúðum var úthlutað í gamla varnarsvæðinu og var eftirspurnin mikil. Um helmingur íbúa sótti lyklana sína á skrifstofu Keilis í gær. 16.8.2007 12:02
Óttast að 330 hafi týnt lífi Óttast að rúmlega 300 manns hafi týnt lífi í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Björgunarmenn reyna nú hvað þeir geta til að leita eftirlifenda í rústum húsa. 16.8.2007 11:51
Bæjarstjóri segir gagnrýni Kársnesbúa óvægna Íbúar á Kársnesi í Kópavogi voru ómyrkir í máli í gærkvöldi á fjölmennum fundi með bæjarstjóra um fyrirhuguð byggingaráform á nesinu. Íbúarnir skora á bæjaryfirvöld að falla frá áformunum og koma til móts við vilja íbúa með framtíðaruppbyggingu á svæðinu. Bæjarstjórinn segir gagnrýni íbúanna jaðra við að vera óvægna, en að hann sé tilbúinn að skoða kröfur þeirra. 16.8.2007 11:42
Vaxtastefna Seðlabankans vanmáttugt tæki Nauðsynlegt er að endurskoða verðbólgumarkmið Seðlabankans að mati Samtaka atvinnulífsins. Samtökin hafa nú sent forsætisráðherra bréf þar sem þau ítreka áhyggjur sínar af afleiðingum peningamálastefnu Seðlabankans. Telja þau ljóst að aðgerðir bankans hingað til hafi haft skaðleg áhrif á atvinnulífið og þjóðarbúið í heild. 16.8.2007 11:36
Tjón þegar vatnsleiðsla sprakk Slökkviliðið á Suðurnesjum var kallað að húsi við Faxabraut í Keflavík þegar vatnsleiðsla sprakk þar fyrir stundu. Að sögn lögreglunnar rifnaði malbik upp á stórum kafla í götunni og mikið vatn flæddi. Svo virðist sem að minnsta kosti eitt hús hafi orðið fyrir talsverðum skemmdum. Lögreglan segir að enn sé unnið að því að bjarga verðmætum frá vatnstjóni. 16.8.2007 11:35
Vill búa til súpu úr flökkuhundum Flökkuhundar eru mikið vandamál í Nýju Delí á Indlandi. Þeir eru þar í tugþúsunda tali. Ýmislegt hefur verið reynt til þess að fækka þeim, en það hefur lítinn árangur borið. Borgarfulltrúi í borginni lagði í gær fram tillögu um að vandinn yrði lestur með því að fanga hundana og senda þá til Kóreu, þar sem hundakjöt er talið mikið lostæti. 16.8.2007 11:35
Höfuðstöðvar Kaupþings áfram á Íslandi Þrátt fyrir að aðeins 15 prósent af starfsemi Kaupþings fari fram hér á landi ætlar bankinn ekki að flytja höfuðstöðvar sínar segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri bankans. Hans segir mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að hér sé öflug fjármálastarfssemi. 16.8.2007 11:25
Teknir með dóp við Skaftahlíð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo menn við Skaftahlíð í morgun og eru þeir grunaðir um að hafa keyrt undir áhrifum fíkniefna og að hafa haft fíkniefni undir höndum. Lögreglan segir að rannsókn málsins sé á byrjunarstigi og vildi ekki gefa upplýsingar um framgang þess. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglu. 16.8.2007 11:22
Ég er á lausu Hringur sem gefur til kynna að þú sért á lausu virðist vera að fara sigurför um heiminn. Hringinn geta borið bæði karlmenn og konur. Hann hefur nú selst í yfir 130 þúsund eintökum og framleiðandinn er að hefja mikla auglýsingaherferð. Hann er nýkominn úr kynningarferð til Kína, þar sem viðtökurnar voru mjög góðar, að hans sögn. 16.8.2007 11:17
Eldflaug skotið á sænska farþegaflugvél Eldflaug var skotið á sænska farþegaflugvél sem var í flugtaki frá Norður-Írak í síðustu viku. Eldflaugin sprakk rétt fyrir framan vélina, en ekki urðu á henni neinar skemmdir. Vélin var frá flugfélaginu Nordic Airways og um borð voru 137 farþegar og áhöfn. 16.8.2007 11:01
Tryggingafélögin hagnast um tæpa 20 milljarða króna Samanlagður hagnaður tryggingafélaganna eftir skatt nam 19,5 milljörðum króna á síðasta ári og dróst saman um 700 milljónir króna milli ára. Langstærsti hluti hagnaðarins stafar af fjármálarekstri en þá batnaði afkoma af skaðatryggingarekstri meðal annar vegna hækkun iðgjalda. Rekstur lögboðinna ökutækjatrygginga skilaði hagnaði upp á einn milljarð króna. 16.8.2007 10:40
Ráðuneyti telja ómögulegt að refsa ríkisforstjórum Í skýrslu Ríkisendurskoðunnar um framkvæmd fjárlaga á síðasta ári kemur fram að viðmælendur Ríkisendurskoðunnar í einstökum ráðuneytum hafi borið því við að réttarstaða starfsmanna ríkisins sé það sterk að í reynd sé nær ógjörningur að ná fram áminningu fari viðkomandi stofnun framúr fjárlögum. Gunnar Svavarsson formaður fjárlaganefndar segir að þótt ferlið sé flókið og erfitt muni nefndin leggja aukinn þunga á að áminningar verði veittar ef ástæða er til. 16.8.2007 10:17
Komdu þér út kerling Dyraverðir á lúxushóteli í Cancún í Mexíkó brugðust skjótt við þegar indíánakona í litríkum klæðum gekk inn í hótelið þeirra. "Enga götusölu hér," sögðu þeir. Þeir tóku konuna föstum tökum og ætluðu að henda henni út. Sem betur fór var í anddyrinu fólk sem þekkti Rigobertu Menchu, friðarverðlaunahafa Nóbels og frambjóðanda í forsetakosningum í Gvatemala. 16.8.2007 10:15
Hart tekið á unglingadrykkju á Menningarnótt Viðbragðsaðilar eins og slökkvilið, lögregla og björgunarsveitir hafa töluverðan viðbúnað vegna Menningarnætur og verður tekið sérstaklega hart á unglingadrykkju. 16.8.2007 10:06
Aron Pálmi fær ekki einkaflug eins og Fischer Aron Pálmi Ágústsson verður látinn laus á laugardaginn eftir 10 ára refsivist í Texas. Hann mun ekki fá einkaflug heim og mun ferðast á almennu farrými með Icelandair. 16.8.2007 10:04
Blóðið ekki úr Madeleine litlu Blóðið sem fannst í herberginu þar sem Madeleine McCann var rænt í Portúgal, reyndist ekki vera úr henni. DNA rannsókn í Bretlandi hefur leitt þetta í ljós að sögn Sky fréttastofunnar. Blóðið er sagt vera úr karlmanni. 16.8.2007 09:54