Fleiri fréttir

Þrír greinst með berklasmit á árinu

Þrír einstaklingar hafa greinst með berkla á íslandi það sem af er árinu. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum sem nýlega voru gefin út á vef landlæknisembættisins. Í tveimur tilvikum þótti ástæða til að gangast fyrir allumfangsmikilli rannsókn til að rekja hugsanlegt smit.

Trylltur á traktor

Þýskur bóndi tók því illa þegar lögreglumenn stöðvuðu hann þar sem hann var að aka á þjóðvegi á traktor sínum. Bóndinn hafði ekki tilskilin ökuréttindi og hafði fengið margar viðvaranir. Nú þótti laganna vörðum nóg komið og skipuðu honum út úr traktornum. Bóndinn hélt nú ekki. Hann gaf í botn og þrusaði skrímslinu á næsta lögreglubíl. Framan á traktornum var vígalegur gaddalyftari.

Íslenskir ráðherrar axla sjaldan ábyrgð

Aðeins tvisvar frá stofnun lýðveldisins árið 1944 hefur það gerst að íslenskur ráðherra hefur sagt af sér í kjölfar gagnrýni. Á sama tíma þykja smámál á borð við ógreidd afnotagjöld af sjónvarpi vera nægt tilefni til afsagnar ráðherra í nágrannaríkjum okkar. Stjórnmálafræðingur telur að ráðherraábyrgð í íslenskum lögum sé ekki nægjanlega skýr og lítil hefð sé fyrir því að menn segi af sér.

Fjölskyldum danskra hermanna hótað

Íraskir hryðjuverkamenn hafa hlerað símtöl danskra hermanna við fjölskyldur sínar. Þeir hafa svo hringt í fjölskyldurnar og hótað þeim öllu illu, að sögn vefmiðilsins avisen.dk. Danskur sérfræðingur í sálfræðihernaði segir þetta hafa ótrúlega lamandi áhrif á hermennina. Varnarmálaráðuneytið vil ekki upplýsa um umfang þessara hótana.

Enn óvissa með Endeavour

Bandaríska geimferðastofnunin frestaði í gær fjórðu geimgöngu áhafnar geimferjunnar Endeavour vegna óvissu um hvort gera þyrfti við rifu á hitahlíf ferjunnar. Geimgangan átti að fara fram á morgun og fól í sér ýmiss önnur verkefni en mögulega viðgerð á geimferjunni. Göngunni hefur verið frestað fram á laugardag.

Biðlistum á BUGL útrýmt

Hundrað og fimmtíu milljónum króna verður varið á næstu átján mánuðum í að stórauka þjónustu við börn og ungmenni með hegðunar- og geðraskanir. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra kynnti áherslur sínar í geðheilbrigðismálum barna á blaðamannafundi á BUGL í dag.

Stjórnlausir skógareldar í úthverfum Aþenu

Gríðarlegir skógareldar hafa borist í úthverfi Aþenu, höfuðborgar Grikklands. Þrjátíu metra háar eldsúlur hafa þegar brennt tugi húsa til kaldra kola. Sjóðheitir stormsveitir koma í veg fyrir að hægt sé að nota flugvélar við slökkvistarfið. Slökkviliðsmenn á jörðu niðri ráða ekkert við ástandið. Gríska veðurstofan segir að vindinn muni ekki lægja fyrr en seint í kvöld.

Ræningjar í djúpum

Frú Chen sem býr í borginni Laoheku í Kína var að koma frá því að taka út peninga í bankanum sínum þegar tveir menn á skellinöðru renndu upp að henni. Þeir rifu af henni böggulinn sem hún hélt á undir hendinni.

Slökkviliðið kallað að Langholtsvegi

Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað að Langholtsvegi klukkan níu í morgun vegna reyks í húsi þar. Þegar málið var rannsakað kom í ljós að reykinn lagði frá potti á eldavél og engin hætta var á ferðum. Nokkurn tíma tókst að reykræsta íbúðina en ekki urðu miklar skemmdir á íbúðinni.

Anna Kristín formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs

Umhverfisráðherra hefur skipað stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs til næstu fjögurra ára og verður Anna Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarkona umhverfisráðherra, formaður stjórnarinnar. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu er gert ráð fyrir að þjóðgarðurinn verði formlega stofnaður snemma á næsta ári.

Andláts Elvis minnst

Aðdáendur Elvis Presley minnast þess í dag að þrjátíu ár eru frá því rokkkóngurinn safnaðist til feðra sinna. Í dag verða minningartónleikar haldnir um Presley við heimili hans, Graceland. Búist er við mörg þúsund manns.

Vonast eftir að viðræður hefjist í september

Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkti í gær að breyta skipulagi í sveitarfélaginu þannig að olíuhreinsistöð geti risið í landi Hvestu í Arnarfirði. Viðræður milli aðstandenda stöðvarinnar og landeigenda eru þó ekki hafnar en bæjarstjórinn í Vestuggð vonar að ef allt gangi að óskum verði hægt að hefja byggingu stöðvarinnar næsta vor.

Taugatitringur á mörkuðum

Hlutabréfamarkaðir í Asíu og Evrópu hafa hrunið frá því þeir voru opnaðir í morgun. Áframhaldandi óvissu vegna samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði er þar um að kenna. Krónan hefur fallið um 12% á einum mánuði og veiktist um 2% í morgun. Úrvalsvísitalan lækkaði þá um rúm 4%.

Verbúðarstemning á gamla varnarsvæðinu

Fyrstu íbúarnir fluttu inn í námsmannaíbúðir á Keflavíkurflugvelli í gær. Strax í haust verður um 700 manna bæjarfélag komið í fulla starfsemi og er stefnt að því að íbúafjöldi tvöfaldist á næsta ári. Um 300 íbúðum var úthlutað í gamla varnarsvæðinu og var eftirspurnin mikil. Um helmingur íbúa sótti lyklana sína á skrifstofu Keilis í gær.

Óttast að 330 hafi týnt lífi

Óttast að rúmlega 300 manns hafi týnt lífi í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Björgunarmenn reyna nú hvað þeir geta til að leita eftirlifenda í rústum húsa.

Bæjarstjóri segir gagnrýni Kársnesbúa óvægna

Íbúar á Kársnesi í Kópavogi voru ómyrkir í máli í gærkvöldi á fjölmennum fundi með bæjarstjóra um fyrirhuguð byggingaráform á nesinu. Íbúarnir skora á bæjaryfirvöld að falla frá áformunum og koma til móts við vilja íbúa með framtíðaruppbyggingu á svæðinu. Bæjarstjórinn segir gagnrýni íbúanna jaðra við að vera óvægna, en að hann sé tilbúinn að skoða kröfur þeirra.

Vaxtastefna Seðlabankans vanmáttugt tæki

Nauðsynlegt er að endurskoða verðbólgumarkmið Seðlabankans að mati Samtaka atvinnulífsins. Samtökin hafa nú sent forsætisráðherra bréf þar sem þau ítreka áhyggjur sínar af afleiðingum peningamálastefnu Seðlabankans. Telja þau ljóst að aðgerðir bankans hingað til hafi haft skaðleg áhrif á atvinnulífið og þjóðarbúið í heild.

Tjón þegar vatnsleiðsla sprakk

Slökkviliðið á Suðurnesjum var kallað að húsi við Faxabraut í Keflavík þegar vatnsleiðsla sprakk þar fyrir stundu. Að sögn lögreglunnar rifnaði malbik upp á stórum kafla í götunni og mikið vatn flæddi. Svo virðist sem að minnsta kosti eitt hús hafi orðið fyrir talsverðum skemmdum. Lögreglan segir að enn sé unnið að því að bjarga verðmætum frá vatnstjóni.

Vill búa til súpu úr flökkuhundum

Flökkuhundar eru mikið vandamál í Nýju Delí á Indlandi. Þeir eru þar í tugþúsunda tali. Ýmislegt hefur verið reynt til þess að fækka þeim, en það hefur lítinn árangur borið. Borgarfulltrúi í borginni lagði í gær fram tillögu um að vandinn yrði lestur með því að fanga hundana og senda þá til Kóreu, þar sem hundakjöt er talið mikið lostæti.

Höfuðstöðvar Kaupþings áfram á Íslandi

Þrátt fyrir að aðeins 15 prósent af starfsemi Kaupþings fari fram hér á landi ætlar bankinn ekki að flytja höfuðstöðvar sínar segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri bankans. Hans segir mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að hér sé öflug fjármálastarfssemi.

Teknir með dóp við Skaftahlíð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo menn við Skaftahlíð í morgun og eru þeir grunaðir um að hafa keyrt undir áhrifum fíkniefna og að hafa haft fíkniefni undir höndum. Lögreglan segir að rannsókn málsins sé á byrjunarstigi og vildi ekki gefa upplýsingar um framgang þess. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglu.

Ég er á lausu

Hringur sem gefur til kynna að þú sért á lausu virðist vera að fara sigurför um heiminn. Hringinn geta borið bæði karlmenn og konur. Hann hefur nú selst í yfir 130 þúsund eintökum og framleiðandinn er að hefja mikla auglýsingaherferð. Hann er nýkominn úr kynningarferð til Kína, þar sem viðtökurnar voru mjög góðar, að hans sögn.

Eldflaug skotið á sænska farþegaflugvél

Eldflaug var skotið á sænska farþegaflugvél sem var í flugtaki frá Norður-Írak í síðustu viku. Eldflaugin sprakk rétt fyrir framan vélina, en ekki urðu á henni neinar skemmdir. Vélin var frá flugfélaginu Nordic Airways og um borð voru 137 farþegar og áhöfn.

Tryggingafélögin hagnast um tæpa 20 milljarða króna

Samanlagður hagnaður tryggingafélaganna eftir skatt nam 19,5 milljörðum króna á síðasta ári og dróst saman um 700 milljónir króna milli ára. Langstærsti hluti hagnaðarins stafar af fjármálarekstri en þá batnaði afkoma af skaðatryggingarekstri meðal annar vegna hækkun iðgjalda. Rekstur lögboðinna ökutækjatrygginga skilaði hagnaði upp á einn milljarð króna.

Ráðuneyti telja ómögulegt að refsa ríkisforstjórum

Í skýrslu Ríkisendurskoðunnar um framkvæmd fjárlaga á síðasta ári kemur fram að viðmælendur Ríkisendurskoðunnar í einstökum ráðuneytum hafi borið því við að réttarstaða starfsmanna ríkisins sé það sterk að í reynd sé nær ógjörningur að ná fram áminningu fari viðkomandi stofnun framúr fjárlögum. Gunnar Svavarsson formaður fjárlaganefndar segir að þótt ferlið sé flókið og erfitt muni nefndin leggja aukinn þunga á að áminningar verði veittar ef ástæða er til.

Komdu þér út kerling

Dyraverðir á lúxushóteli í Cancún í Mexíkó brugðust skjótt við þegar indíánakona í litríkum klæðum gekk inn í hótelið þeirra. "Enga götusölu hér," sögðu þeir. Þeir tóku konuna föstum tökum og ætluðu að henda henni út. Sem betur fór var í anddyrinu fólk sem þekkti Rigobertu Menchu, friðarverðlaunahafa Nóbels og frambjóðanda í forsetakosningum í Gvatemala.

Hart tekið á unglingadrykkju á Menningarnótt

Viðbragðsaðilar eins og slökkvilið, lögregla og björgunarsveitir hafa töluverðan viðbúnað vegna Menningarnætur og verður tekið sérstaklega hart á unglingadrykkju.

Aron Pálmi fær ekki einkaflug eins og Fischer

Aron Pálmi Ágústsson verður látinn laus á laugardaginn eftir 10 ára refsivist í Texas. Hann mun ekki fá einkaflug heim og mun ferðast á almennu farrými með Icelandair.

Blóðið ekki úr Madeleine litlu

Blóðið sem fannst í herberginu þar sem Madeleine McCann var rænt í Portúgal, reyndist ekki vera úr henni. DNA rannsókn í Bretlandi hefur leitt þetta í ljós að sögn Sky fréttastofunnar. Blóðið er sagt vera úr karlmanni.

Heildarafli jókst um 29 þúsund tonn

Heildarafli íslenskra skipa í síðastliðnum júlímánuði jókst um rúm 29 þúsund tonn miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Þetta er aukning upp á 21,1 prósent. Það sem af er árinu hefur fiskaflinn aukist um 1,1 prósent á föstu verði miðað við fyrra ár.

Skemma brann í Garðabæ

Eldur kom upp í skemmu í Ránargrund í Garðabæ rétt eftir klukkan ellefu í kvöld. Slökkvilið hefur náð að slökkva eldinn og verið er að slá á glæðurnar. Um er að ræða bátageymslu sem mun vera í eigu Garðabæjar og hefur hún staðið ónotuð um nokkurn tíma.

250 látnir hið minnsta

Írösk yfirvöld segja að 250 hið minnsta, hafi látist í sprengjuárásunum í norðurhluta landsins í gær. Þetta er mannskæðasta árásin í landinu frá því í stríðinu 2003. Fjórar sprengjur lögðu tvö þorp jasída trúflokksins í rúst og slösuðust að minnsta kosti 350. Björgunarsveitir eru enn að störfum og búist er við því að tala látinna eigi eftir að hækka.

Fullt út úr dyrum í Salnum

Fundur í Salnum í Kópavogi, sem íbúasamtökin Betri byggð á Kársnesi standa fyrir, er nú í fullum gangi. Gríðarlega góð mæting er á fundinum en um 400 manns hafa lagt leið sína á fundinn.

Olíuhreinsistöð er lífsspursmál fyrir framtíð byggðar

Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar segir að olíuhreinsunarstöð í landi Hvestu í Arnarfirði myndi hafa gríðarlega mikla þýðingu fyrir samfélagið á Vestfjörðum og sé í raun lífsspursmál. Í dag samþykkti bæjarstjórn Vesturbyggðar að breyta skipulagi svæðisins þannig að leyfilegt er að byggja olíuhreinsistöð í Arnarfirði.

Viðskiptaráðherra leitar að vistvænni bíl

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, segir að nýr ráðherrabíll verði keyptur á næstunni. Í fréttum Stöðvar 2 nú í kvöld voru ráðherrabílarnir flokkaðir eftir því hve umhverfisvænir þeir eru og kom bíll Björgvins kom verst út. Bíllinn var áður ráðherrabíll landbúnaðarráðherra. Viðskiptaráðherra hefur hann aðeins til umráða þangað til nýr bíll verður keyptur.

Íbúar á Kársnesi halda fund um skipulagsmál

Íbúasamtökin Betri byggð á Kársnesi halda opinn fund um skipulagsmál nessins í kvöld. Fundurinn hefst klukkan átta og er hann haldinn í Salnum. Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að markmið fundarins sé að gefa íbúum á Kársnesi „kost á að kynna sér nánar inntak þeirra skipulagsbreytinga sem standa fyrir dyrum.“

Grafa með skóflum og berum höndum

Björgunarmenn og almennir borgarar grafa nú með skóflum og berum höndum í rústum húsa í bænum Kataníja í Norður-Írak þar sem sjálfsvígssprengjuárás varð minnst tvö hundruð manns að bana í gær. Fjórar flutningabifreiðar fullar af sprengiefni voru sprengdar í loft upp nær samtímis.

Ráðherrabílarnir misjafnlega umhverfisvænir

Utanríkisráðherra er á umhverfisvænasta ráðherrabílnum. Ráðherrabíll flokksbróður hennar í viðskiptaráðuneytinu er fjandsamlegastur umhverfinu í bílaflota ráðherranna. Þrír ráðherrar eru komnir á tvinnbíla, en enginn þeirra getur lagt ókeypis í stæði í miðbænum - til þess eru bílar þeirra ekki nógu visthæfir.

NATO sagði mikilvægt að reka íslenska loftvarnarkerfið áfram

Atlantshafsbandalagið lagði ofuráherslu á að íslenska loftvarnarkerfið yrði rekið áfram eftir að Bandaríkjamenn gæfu það frá sér. Íslendingar tóku í dag við rekstri fjögurra ratsjárstöðva og reka kerfið áfram sem hluta af evrópska loftvarnarkerfinu.

Vill gegna starfi forstjóra áfram

Forstjóri Ratsjárstofnunar, sem sagt var upp í gær, sækist eftir að gegna starfinu áfram. Hann vill opna reksturinn eins og hægt verður og tryggja gagnsæi hans nú þegar yfirráðum Bandaríkjamanna sleppir.

Sjá næstu 50 fréttir