Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimmtíu fótboltaunnendur látnir í bílsprengjum í Bagdad Tvær bílsprengjur urðu fimmtíu manns að bana í Bagdad í dag og særðu 135. Sprengjunum var beint að fólki sem var að fagna sigri írakska landsliðsins í knattspyrnu í undanúrslitum Asíukeppninnar, en liðið vann Suður-Kóreu í vítaspyrnukeppni. 25.7.2007 19:28
Gervigreindarfræðingar HR í fremstu röð Íslendingar urðu í gær heimsmeistarar í gervigreind þegar hugbúnaður frá Háskólanum í Reykjavík hafði betur í úrslitaviðureign við Háskólann í Kaliforníu. Keppt var í einfaldri útgáfu af skák. Sigurinn er mikil viðurkenning fyrir gervigreindarsetur háskólans, segir annar sigurvegaranna. 25.7.2007 19:00
Margt í boði um verslunarmannahelgi Búið er að skipuleggja fjölda skemmtana um Verslunarmannahelgina. Hægt verður að fara á furðubátakeppni á Flúðun, nú eða skella sér á hagyrðingamót á Borgarfirði Eystri. Stærstu hátíðirnar eru þó eins og síðustu ár Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og Ein með öllu á Akureyri. 25.7.2007 18:59
Fasteignir þjóðarinnar minna virði en eignir Kaupþings Eignir Kaupþings banka eru nú tæplega þrjátíu prósent meiri en verðmæti allra fasteigna á Íslandi. Metafkoma var á nær öllum sviðum hjá Kaupþingi á fyrri hluta ársins, en sex mánaða uppgjör var kynnt í dag. 25.7.2007 18:56
Klámráðstefnugestir í partýi feminista Nokkrir einstaklingar sem ætluðu að koma hingað á klámráðstefnuna svokölluðu dvöldu á Íslandi fyrir skemmstu, þótt ráðstefnan hefði verið flautuð af. Meðan á dvöl þeirra stóð, heimsóttu þeir hefðbundna ferðamannastaði og skemmtu sér í höfuðborginni. Þeim var alls staðar vel tekið nema í lokuðu teiti feminista, en þangað rötuðu þeir inn fyrir slysni. 25.7.2007 18:54
Ellefu starfsmenn Brunavarna á Egilsstöðum segja upp Ellefu hlutastarfandi starfsmenn á starfsstöð Brunavarna á Egilsstöðum hafa greint frá því að þeir muni hætta störfum frá og með 1. september næstkomandi komi ekki til frekari kjarabóta. 25.7.2007 18:51
Óumdeildur forystu- og samningamaður Einar Oddur Kristjánsson var forystumaður í íslensku atvinnulífi um áratugaskeið. Hann leiddi samtök atvinnurekenda í þjóðarsáttarsamningunum svo kölluðu árið 1990 og átti traust samverkamanna sinna jafnt sem mótherja. 25.7.2007 18:48
Einar Oddur kvaddur Um þúsund manns voru við minningarathöfn um Einar Odd Kristjánsson alþingismann í Hallgrímskirkju í dag. Þeirra á meðal voru forseti Íslands, forsætisráðherra og ríkisstjórn. 25.7.2007 18:45
Samskipti Líbýu og Evrópu batna Samskipti Líbýu og Evrópu snarbatna nú eftir að búlgörsku heilbrigðisstarfsmennirnir sex, sem dæmdir voru til dauða fyrir að smita um 400 börn af HIV veirunni, voru náðaðir. Samningur um bætt samskipti Líbýu og Evrópusambandsins var undirritaður í gær, en þess var krafist af Líbýu fyrir lausn fanganna. 25.7.2007 18:32
Víða uppskerubrestur vegna hitabylgju Ekkert lát er á hitabylgjunni í Evrópu sem fór vel yfir fjörtíu gráður víða í dag. 500 manns hafa látist af þeirra völdum í Ungverjalandi og Í Rúmeníu var tilkynnt um 27 dauðsföll af völdum hitanna í þessari viku. Búist er við áframhaldandi hitum í suður- og austurhluta landsins á morgun, en í vesturhluta Rúmeníu varð úrhellisrigning í dag. 25.7.2007 18:26
Beita gervitunglum gegn skógarþjófum Rússnesk yfirvöld ætla byrja að nota gervitungl til að koma upp um skógarhöggsmenn við iðju sína í skógum Síberíu. Skógarnir eru friðaðir samkvæmt rússneskum lögum. 25.7.2007 18:21
Óttast um heilsufar fólks vegna flóðanna í Bretlandi Óttast er um heilsufar fólks í Bretlandi vegna skólps og eiturefna sem blandast hafa flóðavatninu þar. Eignatjón vegna flóðanna undanfarnar vikur er talið nema tæplega fjögur hundruð milljörðum króna. Þá hafa tugir farist vegna flóða í Kína. 25.7.2007 18:19
Brostin olíuleiðsla svartmálaði hús og bíla Vegavinnumenn sem voru að störfum í Burnaby fyrir utan Vancouver í Canada í gær urðu fyrir því óhappi að grafa í sundur olíuleiðslu með þeim afleiðingum að olía sprautaðist yfir 180 metra svæði. Olíugosbrunnurinn sem myndaðist náði 12 metra upp í loft og tók um 20 mínútur að stöðva lekann. 25.7.2007 17:31
Kjarnafæði innkallar Gamaldags sveitakæfu Matvælafyrirtækið Kjarnafæði hefur innkallað vöruna Gamaldags sveitakæfa í 250 gramma dósum vegna framleiðslugalla. Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að um sé að ræða vörur með pökkunardagsetningu 6. júlí 2007 og síðasta söludag 26. júlí næstkomandi. 25.7.2007 16:53
Frakkland og Líbýa taka upp samvinnu á sviði hergagnaframleiðslu Líbýa og Frakkland ætla sér að skrifa undir samstarfssamning varðandi framleiðslu á hergögnum á meðan heimsókn Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, stendur yfir. 25.7.2007 16:52
Vísindamenn skoða þróun fíla Vísindamenn segjast hafa reiknað út hvenær leiðir skildust milli Afríkufílsins og Asíufílsins. Samkvæmt rannsóknum þeirra hófu tegundirnar að þróast hvor í sína átt frá sameiginlegum forfeðrum fyrir 7,6 miljónum árum. 25.7.2007 16:49
Disney bannar reykingar í kvikmyndum sínum Walt Disney Co. hefur ákveðið að banna allar reykingar í kvikmyndum sem að framleiddar eru undir merki þess. Ennfremur ætlar það að hvetja dótturfyrirtæki sín, Miramax og Touchstone, til þess að draga úr reykingum í kvikmyndum sínum. Þá hefur það einnig ákveðið að setja slagorð gegn reykingum á umbúðir allra DVD-mynda sem að reykt er í. 25.7.2007 16:24
Varað við erlendum svikafyrirtækjum Varað er við erlendum svikafyrirtækjum í nýjasta fréttabréfi Samtaka ferðaþjónustunnar. Fyrirtækin eru sögð beita blekkingum til að hafa fé af íslenskum fyrirtækjum. 25.7.2007 16:18
Putin segir nauðsynlegt að styrkja rússneska herinn Vladimir Putin, forseti Rússlands, sagði í dag að nauðsynlegt væri að byggja upp herinn og njósnastarfsemi landsins vegna nýrra ógna, þar á meðal uppbyggingu bandarísks eldflaugakerfis í Austur-Evrópu. Putin sagði þetta á fundi með háttsettum yfirmönnum í hernum og leyniþjónustunni í dag. 25.7.2007 16:12
Það koma fleiri bækur um Harry Potter JK Rowling, höfundur Harry Potter bókanna hefur upplýst að hún sé ekki hætt að skrifa um hann. Það koma fleiri bækur um galdrastrákinn. Það er þó ekki ný skáldsaga í burðarliðunum að sinni, heldur uppsláttarbók fyrir aðdáendur Harrys og félaga. 25.7.2007 15:55
Vestmannaeyjabæ gert að greiða 2 milljónir króna Vestmannaeyjabæ var í Héraðsdómi Suðurlands í dag gert að greiða fyrrum eiganda matvælaverksmiðjunnar Öndvegisréttir rúmar 2 millljónir króna vegna útlagðs kostnaðar. Um var að ræða kostnað sem varð til vegna fyrirhugaðrar uppsetningar matvælaverksmiðju í Vestmannaeyjum árið 2001. Bærinn var hins vegar sýknaður af skaðabótakröfum. 25.7.2007 15:47
Tileinka íröksku þjóðinni sigur sinn í undanúrslitum Asíukeppninnar Írakska landsliðið í fótbolta tileinkaði sigur sinn í undanúrslitum Asíukeppninnar íröksku þjóðinni. Liðið vann sigur á Suður-Kóreu í dag á eins dramatískan hátt og hægt er í fótbolta, eða í vítaspyrnukeppni. Markvörður Íraka, Noor Sabri, var valinn maður leiksins. Hann varði fjórðu vítaspyrnu Suður-Kóreumanna í leiknum. 25.7.2007 15:21
Kviknaði í bíl á Hafnarfjarðarvegi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust fyrir klukkan þrjú í dag eftir að kviknaði í bíl á Hafnarfjarðarvegi til móts við Fífuna í Kópavogi. Engan sakaði í brunanum. 25.7.2007 15:11
Engan sakaði í bílveltu á Álftanesvegi Betur fór en á horfðist þegar jeppabifreið valt á Álftanesvegi laust fyrir klukkan tvö í dag. Tveir voru í bílnum en þá sakaði ekki að sögn lögreglu. 25.7.2007 14:45
Fjölskyldur smitaðra barna fordæma náðun Fjölskyldur barnanna sem smituðust af HIV/AIDS í Líbýu hafa skorað á líbýsk stjórnvöld að slíta stjórnmálasambandi við Búlgaríu, reka alla búlgarska ríkisborgara úr landi og hætta viðskiptum við búlgörsk fyrirtæki. 25.7.2007 14:34
Múslimar hafna sjálfsmorðsárásum -og Bin Laden Fáir múslimar styðja sjálfsmorðsárásir samkvæmt nýrri alþjóðlegri könnun sem sagt er frá á fréttavef BBC. Úrtakið var 45 þúsund manns í 47 löndum. Þar hafði stuðningur múslima allsstaðar minnkað nema í Palestínu. Stuðningur við Osama bin-Laden hefur einnig minnkað verulega. 25.7.2007 14:32
Frakkar gera það oftast Frakkar eru duglegastir í bólinu samkvæmt nýrri könnun sem franska tímaritið L'Express lét gera í samvinnu við frönsku sjónvarpsstöðina France 24. Þjóðverjar koma í öðru sæti en Bretar standa sig verst. 25.7.2007 14:11
Da Silva hreinsar til í flugmálum Brasilíu Luiz Inacio da Silva, forseti Brasilíu, ætlar sér að skipta um ráðherra flugmála vegna slyssins sem varð þar í landi í síðustu viku. Nærri 200 manns létu lífið þegar farþegaþota rann útaf flugbraut á flugvellinum í Sao Paulo og hafnaði á bensínstöð. 25.7.2007 13:45
Nígerísk stjórnvöld höfða mál gegn Pfizer Nígerísk stjórnvöld hafa lagt fram formlega kæru gegn bandaríska lyfjarisanum Pfizer vegna lyfjaprófanna sem fram fóru í ríkinu Kanó í norðurhluta Nígeríu árið 1996. 25.7.2007 13:23
Dýrasti bíll landsins Bíll af tegundinni Bugatti Veyron 16,4 sem er auglýstur til sölu hér á landi kostar rúmlega tvö hundruð milljónir króna. Þetta er dýrasti skráði bíllinn á söluvefnum bílasölur.is sem er sameiginlegur gagnagrunnur flestra bílasala á landinu. Næst dýrasti bíllinn á söluvefnum kostar rúmar 46 milljónir. 25.7.2007 13:06
Þriðja þjóðverjanum rænt í Afghanistan Þriðja þjóðverjanum á einni viku var rænt í Afghanistan í morgun. Um helgina fannst lík annars þjóðverja sem rænt var í síðustu viku af Talibönum sem krefjast þess að þýsk og suður-kóresk stjórnvöld sendi herlið sín tafarlaust frá Afghanistan og að talibanar í afgönskum fangelsum verði leystir úr haldi. 25.7.2007 13:05
Kjalvegur illa farinn Syðri hluti Kjalvegar er illa farinn eftir þurrka síðustu misseri. Vegurinn er heflaður á vorin en síðan er lítið sem ekkert viðhald á honum yfir sumartímann. Dæmi eru um að akstur yfir Kjöl taki hátt í fimm klukkustundir. 25.7.2007 13:02
Hitabylgja í SA-Evrópu veldur miklum skaða Talið er að allt að fimm hundruð manns hafi látist í Ungverjalandi af völdum hitabylgjunnar sem gengið hefur yfir landið síðustu daga með um og yfir 40 stiga hita. Dauðsföll í nágrannaríkjunum í sunnanverðri Evrópu eru einnig rakin til hitannna og víða loga skógareldar vegna þurrka. 25.7.2007 12:58
Minningarathöfn um Einar Odd Minningarathöfn verður í Hallgrímskirkju í dag um Einar Odd Kristjánsson alþingismann, sem varð bráðkvaddur í síðustu viku. Sérstakt aukablað með minningargreinum um Einar Odd fylgir Morgunblaðinu í dag. 25.7.2007 12:47
Búist við að flóð nái hámarki næsta sólarhring Svo virðist sem verstu flóð í Englandi síðastliðin 60 ár séu að ná hámarki. Stór svæði eru þó enn undir vatni og meira en 350 þúsund íbúar á flóðasvæðunum eru enn án neysluhæfs drykkjarvatns. 25.7.2007 12:35
Sprengja sprakk á leið Tour de France Lítil sprening varð um hádegisbil á spænska legg Tour de France hjólreiðakeppninnar. Stuttu áður hafði maður sem kynnti sig sem meðlim ETA, basknesku aðskilnaðarsamtakanna, hringt í vegagerðina á Spáni og fullyrt að hópurinn hefði sett sprengjur við hluta leiðarinnar. Enginn særðist í sprengingunni og keppnin hélt áfram án áfalla. 25.7.2007 12:26
Jónína S. Lárusdóttir verður ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins Viðskiptaráðherra hefur skipað Jónínu S. Lárusdóttur í starf ráðuneytisstjóra viðskiptaráðuneytisins. Jónína tekur við starfinu um næstu mánaðamót. 25.7.2007 12:25
Þarf sérstök björgunargöng samhliða Eyjagöngum Grafa þyrfti sérstök björgunargöng upp á tugi milljarða króna, samhliða Vestmannaeyjagöngunum, ef farið yrði eftir reglum Evrópusambandsins um öryggi í löngum jarðgöngum. 25.7.2007 12:14
Metafkoma hjá Kaupþingi Metafkoma var á nær öllum sviðum hjá Kaupþingi á fyrri hluta ársins. Hagnaður bankans eftir skatta var tæpir fjörutíu og sjö milljarðar króna. Eignir hafa vaxið og eru nú meiri en verðmæti allra fasteigna á Íslandi. 25.7.2007 11:59
Búlgaría afpöntuð ókeypis Norsk ferðaskrifstofa hefur ákveðið að leyfa ungum viðskiptavinum sínum að afpanta ferðir til Búlgaríu sér að kostnaðarlausu. Fjölmargar fréttir hafa borist um nauðganir og önnur ofbeldisverk gegn Norrænum unglingum í baðstrandarbænum Sunny Beach á Svartahafsströnd landsins. 25.7.2007 11:23
Snæfellsbær tapar 2 milljörðum vegna niðurskurðar á þorskkvóta Snæfellsbær verður af rúmum 2 milljörðum króna vegna niðurskurðar á aflaheimildum í þorski á næsta fiskveiðiári. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá bæjarráði Snæfellsbæjar. Ráðið telur einboðið að aðgerðirnar muni hafa mikil neikvæð áhrif á samfélagið. 25.7.2007 11:02
Ítalir rökræða stöðu kvenna í þjóðfélaginu Mikil umræða fer nú fram á Ítalíu um stöðu kvenna í þjóðfélaginu. Ímynd kvenna þar í landi snýst um kynþokka og að hafa laglegar línur. Sumar konur telja karlrembu vera vera ástæðuna en aðrar konur segja ekkert eðlilegra en að vera stoltar af líkama sínum. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndbrot með fréttinni. 25.7.2007 10:50
Alcan ætlar að kæra mótmælendur Alcan ætlar að kæra þá meðlimi samtakanna Saving Iceland sem mótmæltu við álver fyrirtækisins í Straumsvík í gær. Fjármálastjóri fyrirtækisins segir lögfræðinga fyrirtækisins vera vinna í málinu. 25.7.2007 10:41
Starfsfólk BBC á námskeið til að læra að segja satt Yfir 16 þúsund starfsmenn breska ríkissjónvarpsins BBC hafa verið sendir á námskeið þar sem þeir eiga að læra að segja satt. Þetta var ákveðið eftir að upplýst var um stórfelldar falsanir í útvarps- og sjónvarpsþáttum þar sem fé var safnað. 25.7.2007 10:23
Stofnandi Facebook sakaður um að hafa stolið hugmyndinni Tengslavefurinn Facebook á nú yfir höfði sér málsókn frá stofnendum annars tengslavefs, ConnectU. Þeir segja stofnanda Facebook, Mark Zuckerberg, hafa stolið hugmyndinni frá sér á meðan þau voru saman við nám í Harvard háskóla. 25.7.2007 10:14