Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íbúar við Thamesá varaðir við flóðum Óttast er að enn fleiri hús verði flóðunum í Bretlandi að bráð á morgun, þegar flóðbylgjur berast niðureftir Thamesánni. Spáð er áframhaldandi úrkomu sem myndi enn auka á vatnsflauminn. 24.7.2007 20:37
Bensín lækkar loks Það er sagt að sum fyrirtæki hækki um leið og krónan veikist en birgðastaða þeirra virðist alltaf mikil þegar krónan styrkist. Dollarinn hefur nú um nokkurt skeið verið undir 60 krónum og var marga farið að lengja eftir lækkun ýmissa vara, til dæmis bensíns. 24.7.2007 20:30
Metár í ferðamennsku Það er staðfest, þetta er besta ferðaár frá upphafi. Ferðamönnum fjölgar jafnt og þétt, en hver eru næstu skref í þessum geira? Ísland í dag ræddi við Magnús Oddsson, ferðamálastjóra. 24.7.2007 20:29
Gæludýrin svæfð Fólk lætur frekar svæfa dýrin sín á sumrin en á öðrum árstíma og töluvert fleiri kettir á vergangi koma inn í Kattholt. Ísland í dag hitti dýralækni og formann Kattavinafélagsins til að ræða þessi mál. 24.7.2007 20:24
Þjófavarnir Innbrotsþjófar eru margir útsjónarsamir og nýta sér sumarfríin til þess að láta greipar sópa um híbýli fólks. Sumir eru með öflugt öryggiskerfi til þess að fæla burt óboðna gesti en ekki hafa allir efni á slíku. En ýmislegt er þó hægt að gera til þess að halda óprúttnum þjófum í fjarlægð. 24.7.2007 20:19
Annríki hjá lögreglu vegna fíkniefnamála Sex fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Sautján ára piltur var stöðvaður við akstur í Háleitishverfi í gærmorgun. Hann var í annarlegu ástandi og á vettvangi fundust ætluð fíkniefni. 24.7.2007 20:18
Öldruðum, fötluðum og deyjandi úthýst Yfirlæknir öldrunarmála á Landspítalanum segir að ekki sé gert ráð fyrir öldruðum, fötluðum eða deyjandi sjúklingum í líknarmeðferð á nýju hátæknisjúkrahúsi. Engin skýr svör hafi fengist en ákveðið hafi verið að þessir hópar fengju ekki inni þegar lækka þurfti eina spítalabygginguna eftir grenndarkynningu. 24.7.2007 20:11
Hús hrundi aðeins augnablikum eftir rýmingu Byggingaeftirlitsmanni á Azoreyjum leist svo illa á hús sem hann fór framhjá að hann fékk lögregluna til þess að rýma það. Og það var eins gott. Aðeins nokkrum augnablikum eftir að síðasti íbúinn fór út úr húsinu hrundi það til grunna. 24.7.2007 20:03
Mannskæð hitabylgja í Ungverjalandi og víðar í Suður-Evrópu Um 500 dauðsföll í Ungverjalandi síðastliðna viku eru rakin til hitabylgjunnar sem gengur nú yfir Suður-Evrópu. Þetta er mesta mannfall vegna hita í landinu um margra ára skeið. Um 30 manns í nágrannalandinu Rúmeníu hafa einnig látið lífið í hitabylgjunni. 24.7.2007 19:51
5 ára sonur gæti bjargað flóttamanni Framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands segir að flóttamaður frá Darfur héraði í Súdan, sem á fimm mánaða son en hefur verið synjað um dvalarleyfi hér á landi, geti kært úrskurð dómsmálaráðuneytisins. Ákvæði í lögum heimilar manninum að dvelja hér á landi hafi hann sérstök fjölskyldutengsl við landið. 24.7.2007 19:16
Mótmælendur í lífshættu við álverið í Straumsvík Þrettán manns voru handteknir eftir mótmæli samtakanna Saving Iceland við álverið í Straumsvík í dag. Lögregla segir hóp fólksins hafa verið handtekin af öryggisástæðum, þar sem fólkið hafi hreinlega verið í lífshættu er það hljóp inná svæðið við kerskála álversins. 24.7.2007 19:12
Göng til Eyja munu kosta 50-80 milljarða króna Vestmannaeyjagöng munu kosta á bilinu fimmtíu til áttatíu milljarða króna, samkvæmt nýrri skýrslu íslenskrar verkfræðistofu. Í skýrslunni er það talið álitamál hvort réttlætanlegt sé að grafa jarðgöng á jafn jarðfræðilega virku svæði og Vestmannaeyjasvæðið er. 24.7.2007 18:59
Auðmenn að safna jörðum á Íslandi Sverrir Kristinsson, varaformaður Félags fasteignasala,segir að íbúafjölgun í Reykjavík nú sé sú mesta í hálfa öld. Þetta sé einn af meginþáttunum sem orsakað hafa mikla hækkun á húsnæði í höfuðborginni. Sverrir segir að eignamenn séu að safna jörðum og verð á þeim og lendum hafi því hækkað mikið. 24.7.2007 18:45
Tveir á tvöföldum hámarkshraða í íbúðargötu Tveir ökumenn voru sviptir ökuleyfi til bráðabirgða í gærkvöldi en bílar þeirra mældust á meira en tvöföldum leyfilegum hámarkshraða í íbúðargötu í Breiðholti. Annar ökumannanna er 17 ára og nýkominn með bílpróf en hinn er á fertugsaldri. 24.7.2007 18:33
Vonlítið að veiða ýsukvótann segja sjómenn fyrir vestan Sjómenn á Vestfjörðum telja nánast vonlaust að veiða ýsukvótann sem þeim hefur verið úthlutað því mikið af þorski komi með sem þeim verður ekki heimilt að veiða. 24.7.2007 18:30
Umhverfissinni smíðar flugvél í frístundum og spilar á fullvaxið pípuorgel í bílskúrnum Einn helsti baráttumaður gegn virkjunum í neðri hluta Þjórsár er þúsund þjala smiðurinn Ólafur Sigurjónsson í Forsæti. Á meðan hann berst ekki gegn áformum Landsvirkjunar leikur hann á pípuorgel ættað úr Landakirkju í Vestmannaeyjum í bílskúrnum sínum og hann smíðar líka flugvél. 24.7.2007 18:30
Talið að mótmælendur gætu verið í hættu Óttast var um öryggi mótmælendanna sem handteknir voru við álver Alcan í Straumsvík. Óskað var eftir aðstoð lögreglu um klukkan eitt í dag. Talið var að þeir sem fóru inn á svæðið gætu verið í alvarlegri hættu að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins. 24.7.2007 18:08
Pútin segir framsalskröfu Breta bera vott um úreltan nýlenduhugsunarhátt Vladimir Pútin forseti Rússlands segir kröfu Breta um að Rússar framselji Andrei Lugovoy, meintan morðingja Alexanders Litvinenko, vera móðgun og bera vott um úreltan nýlenduhugsunarhátt Breta. "Krafa þeirra er augljós vottur um leifar af nýlenduhugsunarhætti," sagði Pútin í rússneska ríkissjónvarpinu í dag. 24.7.2007 17:32
Bensínverð lækkar í dag Olíufélögin hafa verið að lækka verð á bensíni í dag um hátt í fjórar krónur á lítrann, og kostar hann á mannlausum sjálfsafgreiðslustöðvum almennt innan við hundrað tuttugu og eina króna. Þetta er í samræmi við lækkun á heimsmarkaði. 24.7.2007 16:43
Auralaus sælkeri handtekinn á veitingahúsi Karlmaður um fertugt var handtekinn á veitingahúsi í miðborginni í gærkvöld en þar hafði hann gert vel við sig í mat og drykk samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þegar kom að því að greiða reikninginn gat maðurinn hins vegar ekki borgað fyrir kræsingarnar. Hann er því skiljanlega ekki lengur neinn aufúsugestur á veitingastaðnum en maðurinn er raunar óvelkominn á fleiri stöðum. 24.7.2007 16:37
Vestmannaeyjagöng talin kosta 50 til 80 milljarða Áhætta við gerð jarðganga til Vestamannaeyja er mikil og álitamál hvort slíkt sé réttlætanlegt miðað við jarðfræðilega virkni svæðisins. Þetta kemur fram í skýrslu sem Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. vann fyrir Vegagerðina en skýrsluna á enn eftir að opinbera. Talið er að Vestmannaeyjagöng muni kosta 50 til 80 milljarða króna. 24.7.2007 16:26
Íslandsmót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara Fyrstu helgina í september verður haldið svokallað ÍSMÓT 2007 hér á landi. Á því safnast saman hársnyrtar, snyrtifræðingar, gullsmiðir, klæðskerar og ljósmyndarar og munu þeir keppa á Íslandsmótum í sínum greinum. 24.7.2007 16:26
Norska prinsessan segist vera skyggn Norska prinsessan Marta Lovísa tilkynnti í dag að hún sé skyggn og að hún ætli sér að hjálpa fólki að tala við engla. Marta Lovísa, sem er 35 ára, er menntaður sjúkraþjálfari. 24.7.2007 16:02
Bandaríkin og Íran stofna sameiginlega nefnd um stöðugleika í Írak Bandaríkin og Íran ákváðu í dag að setja á fót sérstaka nefnd sem á að taka á því verkefni að auka stöðugleika í Írak. Ákvörðunin var tekin á öðrum fundi þessara landa en sá fyrsti var haldinn í maí síðastliðnum. Fundurinn entist í nærri sjö klukkutíma. 24.7.2007 15:16
Íslenskir auðmenn skrá einkaþotur sínar á Caymaneyjum Engin íslenskur forstjóri eða stórfyrirtæki hafa látið skrá einkaþotur sínar á Íslandi, en þær eru orðnar að minnstakosti fimm og tvær hið minnsta munu vera væntanlegar. 24.7.2007 14:56
Þrettán mótmælendur handteknir við álverið í Straumsvík Um þrettán mótmælendur á vegum samtakanna Saving Iceland voru handteknir vegna mótmæla við álverið í Straumsvík laust eftir klukkan tvö í dag. Hluti hópsins hlekkjaði sig við hlið að vinnusvæði álversins og tókst þannig að loka tímabundið fyrir alla umferð að svæðinu. Þá fóru nokkrir mótmælendur inn á vinnusvæðið. 24.7.2007 14:31
Lýsa yfir áhyggjum vegna sífellt flóknari reglna Sífellt flóknari regluverk um vigtun sjávarafla og aukin ábyrgð á starfsmenn hafna án endurgjalds frá ríkinu er áhyggjuefni að mati stjórnar Hafnasambands Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sambandinu. 24.7.2007 14:05
Lohan tekin fyrir ölvunarakstur og að hafa kókaín í fórum sínum Lögreglan í Santa Monica handtók nú um hádegisbil leikkonuna Lindsay Lohan vegna ölvunaraksturs. Þá kom í ljós að hún var einnig með eiturlyf á sér. Samkvæmt vefsíðunni TMZ.com var um kókaín að ræða sem fannst þegar leitað var á Lohan á lögreglustöðinni. 24.7.2007 13:34
Þrír mótmælendur handteknir við álverið í Straumsvík Um 20 mótmælendur á vegum samtakanna Saving Iceland hafa stöðvað alla umferð að álverinu í Straumsvík. Þá hafa nokkrir mótmælendur farið inn á vinnusvæðið. Lögreglan hefur nú þegar handtekið þrjá mótmælendur. 24.7.2007 13:26
Framdi sjálfsmorð með handsprengju Fyrrverandi fangi í Gvantanamó fangelsinu á Kúbu framdi sjálfsmorð með handsprengju í Pakistan í dag, frekar en komast undir manna hendur. Abdullah Mehsud var handtekinn í Afganistan þar sem hann barðist með Talibönum. 24.7.2007 13:13
Vegagerðin ætlar ekki að fjölga ferðum Herjólfs um Verslunarmannahelgina Vegagerðin mun ekki verða við beiðni Vestmannaeyjabæjar um að bæta við fleiri næturferðum með Herjólfi um Verslunarmannahelgina. Ástæðurnar eru aukinn kostnaður og það að ekki er uppselt í þær ferðir sem áður hafði verið bætt við. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir þetta mikil vonbrigði. 24.7.2007 13:09
Iðnaðarráðuneytið endurskoðar virkjanaleyfi Múlavirkjunar Iðnaðarráðuneytið vinnur að endurskoðun virkjanaleyfis Múlavirkjunar á Snæfellsnesi, í ljósi þess að framkvæmdir á svæðinu eru ekki í samræmi við upphaflegar áætlanir. 24.7.2007 13:02
Lentu flugvél á þjóðvegi Kennsluflugvél úr síðari heimsstyrjöldinni var nauðlent á þjóðvegi í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær vegna vélarbilunar. Vélin lenti innan um bíla sem voru þar á ferð, og varð að vonum uppi fótur og fit. 24.7.2007 13:00
Heilbrigðisstarfsfólk loksins frjálst Sex heilbrigðisstarfsmenn sem hafa setið í fangelsi í Líbýu í átta ár eru komnir heim til Búlgaríu. Fólkið var sakað um að hafa vísvitandi sýkt yfir 400 libysk börn af alnæmi. 24.7.2007 12:56
Þrír unglingar slösuðust í bílveltu í gærkvöldi Þrír sautján ára unglingar slösuðust, en enginn alvarlega, þegar bíll þeirra valt út af Reykjanesbraut norðan við Kúagerði um klukkan ellefu í gærkvöldi. 24.7.2007 12:53
Lögreglubílum fjölgað undanfarin ár Lögreglubílum hefur fjölgað, meðalaldur þeirra lækkað og akstur þeirra aukist verulega, frá því að Ríkislögreglustjóri tók við innkaupum og rekstri allra lögreglubíla í landinu fyrir nokkrum árum. 24.7.2007 12:49
Laxveiði að glæðast á ný Laxveiði er víða að glæðast eftir mjög lélega veiði að undanförnu, sem aðallega er rakin til vatnsleysis í ánum vegna þurrka. 24.7.2007 12:47
Legnámsaðgerðir algengar hér á landi Hlutfallslega flestar legnámsaðgerðir voru framkvæmdar hér á landi árið 2004 borið saman við hin Norðurlöndin samkvæmt samantekt Norræna heilbrigðistölfræðiráðsins. Alls voru 365 slíkar aðgerðir framkvæmdar á Íslandi á hverja 100 þúsund íbúa en næst flestar voru aðgerðirnar í Finnlandi eða 354 talsins. 24.7.2007 12:45
Sautján ára tekinn fyrir fjögur innbrot Lögreglan á Akureyri hefur haft hendur í hári unglings á sautjánda ári, sem framið hefur mörg innbrot í bænum að undanförnu og var að koma sér upp glæpaklíku. 24.7.2007 12:44
Skýfall í höfuðborginni í gærkvöldi Úrhellis rigningu eða skýfall gerði á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og var slökkviliðið kallað í þrjú hús til að dæla út vatni, sem kom upp úr niðurföllum í þeim. 24.7.2007 12:42
Rúmlega fimmtíu styrkir veittir úr tónlistarsjóði Alls voru veittir 51 styrkur úr tónlistarsjóði fyrir seinni helming þessa árs samkvæmt tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Hæsta styrkinn hlaut tónlistarhátíðin Ung Nordisk Musik eða 3 milljónir króna. Þá fékk Hamrahlíðarkórinn ferðastyrk upp á 800 þúsund krónur. 24.7.2007 12:06
Varnargarðar reistir meðfram Thames-ánni Breskar björgunarsveitir hamast nú við að byggja varnargarða neðarlega meðfram Thamesá þar sem búist er við miklum flóðum á næstu dögum. Hundruð þúsunda manna hafa enn ekki neitt hreint vatn til drykkjar, en verið er að koma rafmagni á á nýjan leik. 24.7.2007 11:43
Frambjóðendur demókrata tókust á með hjálp YouTube Í gærkvöldi sátu átta frambjóðendur demókrata til forsetakosninga í Bandaríkjunum fyrir svörum í fyrstu kappræðunum þar sem einungis er stuðst við spurningar sem áhorfendur senda inn á netinu. Kappræðurnar voru samstarfsverkefni CNN fréttastöðvarinnar og myndbandavefsins Youtube. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndbrot frá kappræðunum. 24.7.2007 11:22
Klikkuðu DARPA- vísindamennirnir Ef það er klikkað og getur drepið fólk, varið hermenn eða njósnað um óvini þá geturðu verið viss að DARPA er að fjármagna þróun þess. DARPA stendur fyrir Defense Advanced Research Projects Agency eða Rannsóknarstofnun hátækni-varnarbúnaðar. 24.7.2007 11:00
Spánverjar handtaka rússneskan njósnara Spænska leyniþjónustan handtók í morgun grunaðan gagnnjósnara sem talið er að hafi sent ýmis ríkisleyndarmál til Rússlands. Alberto Saiz, yfirmaður leyniþjónustunnar skýrði frá þessu í morgun. Gagnnjósnarinn hafði unnið fyrir rússa síðastliðin þrjú ár. Ekki var gefið upp hversu lengi hann hafði unnið fyrir Spánverja. 24.7.2007 10:36