Hitabylgja í SA-Evrópu veldur miklum skaða Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 25. júlí 2007 12:58
Talið er að allt að fimm hundruð manns hafi látist í Ungverjalandi af völdum hitabylgjunnar sem gengið hefur yfir landið síðustu daga með um og yfir 40 stiga hita. Dauðsföll í nágrannaríkjunum í sunnanverðri Evrópu eru einnig rakin til hitannna og víða loga skógareldar vegna þurrka. Í gær létust 27 vegna hitanna í Rúmeníu og hundruð eldri borgara féllu í yfirlið á götum vegna hitanna sem náðu 42 gráðum í suðurhluta landsins. Vanalega er lofthiti mældur í tveggja metra hæð, en veðurfræðingar mældu rúmlega 65 gráðu hita við jörðu. Rafmagn hefur víða farið af vegna ofnotkunar þar sem óvenjumargir notast við loftkælingu. Uppskerubrestur er víða á svæðinu vegna skógarelda og hita, sérstaklega í Serbíu, Rúmeníu og Ungverjalandi. Á síðasta ári voru það flóð sem herjuðu á íbúa flestra þurrkasvæðanna í Rúmeníu og Ungverjalandi. Skógareldar geisa víða í löndunum í kring. Á Ítalíu fundust tvö brunnin lík í bíl suður af Róm í gær og tveir létust á strönd skammt frá úr reykeitrun vegna eldanna. Ítölsk yfirvöld telja að brennuvargar hafi komið skógareldunum af stað, en ekki miklir hitar. Þá lést flugmaður þegar flugvél sem reyndi að slökkva eldana fórst. Tveir flugmenn létust einnig í Ungverjalandi við slökkvistörf. Alvarlegur uppskerubrestur er í Serbíu og víðar í nágrannalöndunum og hefur sums staðar veruleg áhrif á efnahag.
Mest lesið Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Fleiri fréttir Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Sjá meira