Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýtt myndband með Osama Nýtt myndband Osama Bin Laden, leiðtoga Al-Kaída samtakanna, var birt á netinu í gær. Ekki er vitað hvenær myndbandið var útbúið en þar upphefur Bin Laden píslarvættisdauða og talar um Múhameð spámann. 15.7.2007 09:58
Einar Oddur Kristjánsson látinn Einar Oddur Kristjánsson Alþingismaður er látinn. Hann varð bráðkvaddur í fjallgöngu á Kaldbak, á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar, laust fyrir hádegi í gær. Geir H. Haarde forsætirráðherra minnist Einars Odds sem baráttumanns og áhrifamanns í stjórnmálum og atvinnulífi. 15.7.2007 09:41
Forseti Tanzaníu undirgengst alnæmispróf Forseti Tanzaníu og leiðtogar stjórnarandstöðunnar í landinu fóru í dag í opinbert alnæmispróf. Þjóðaráták gegn HIV/AIDS er nú að hefjast í landinu og með þessu vildu þeir hvetja landsmenn til þess að gangast undir sams konar próf. 14.7.2007 20:30
Fagnaðarfundir á Grensásdeild Það var hógvær en tilfinningarík stund þegar þau Þráinn og Valgerður hittust á Grensásdeild í dag - í fyrsta sinn eftir slysið í vetur og Valgerður sá nú bjargvætt sinn í fyrsta sinn, svo hún muni. 14.7.2007 19:45
Óttaðist um líf sitt vegna umferðar Vegfarandi, sem bjargaði lífi liðlega tvítugrar konu, þar sem hún sat föst í bílflaki sínu eftir árekstur, segist sjálfur hafa verið farinn að óttast um líf sitt vegna skeytingaleysis annarra vegfarenda, sem óku hjá á fullri ferð. 14.7.2007 19:19
Forgangsvopnaleitarhlið á ábyrgð flugvalla- og samgönguyfirvalda Nýtt forgangsvopnaleitarhlið á Keflavíkurflugvelli er á ábyrgð flugvalla- og samgönguyfirvalda. Það er því undir þeim komið hvort hliðið standi áfram en ekki dómsmálaráðherra og lögreglunni. 14.7.2007 19:12
Flýgur heim í kvöld í einkaflugvél Nítján ára íslenskur karlmaður sem slasaðist þegar hann fór út um glugga á annarri hæð hótels í Amsterdam verður fluttur heim til Íslands með einkaflugvél í kvöld. Pilturinn var undir áhrifum ofskynjunarsveppa þegar atvikið átti sér stað. 14.7.2007 19:05
Olíuhreinsistöð bjargar Vestfjörðum frá hruni Flosi Jakobsson útgerðarmaður í Bolungarvík segir að olíuhreinsistöð geti bjargað fjórðungnum frá algjöru hruni. Vestfirðingar eru ekki á einu máli um ágæti slíks stóriðnaðar fyrir vestan. 14.7.2007 18:56
Bónus hefur ægivald á matvælamarkaðnum Formaður Neytendasamtakanna segir Bónus hafa ægivald á matvælamarkaðnum hér á landi og vill að betur sé fylgst með samkeppni á matvælamarkaðnum. Íslendingar greiða að meðaltali rúmlega sextíu prósent hærra verð fyrir mat- og drykkjarvörur en íbúar ríkja Evrópusambandsins greiða fyrir sömu vörur. 14.7.2007 18:52
Starfsfólkið í Straumsvík sterkara en Rio Tinto Starfsmenn í álverinu í Straumsvík óttast ekki nýja húsbændur frá Rio Tinto sem Andri Snær Magnason rithöfundur kallar versta fyrirtæki í heimi. Sigurjón Vigfússon, starfandi aðaltrúnaðarmaður í álverinu í Straumsvík, segir að staða Straumsvíkur breytist ekkert þótt Rio Tinto komi að rekstrinum sem nýr eigandi. Sigurjón segir að starfsfólk í álverinu sér sterkara en Rio Tinto. 14.7.2007 18:52
Tesco búðum í Bretlandi lokað í varúðarskyni Lögregla í Bretlandi hefur lokað að minnsta kosti 11 Tesco kjörbúðum víðsvegar um landið í dag. Lögregla sagði aðgerðirnar vera gerðar í varúðarskyni. 14.7.2007 18:17
Norður-Kórea hefur lokað kjarnakljúfi sínum við Yongbyon Bandarísk yfirvöld skýrðu frá því nú rétt fyrir sex í kvöld að Norður-Kórea hefði lokað kjarnakljúfi sínum við Yongbyon í dag. Aðeins er beðið staðfestingar frá eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. 14.7.2007 17:53
44 bílar skemmdust í eldsvoða í Sviss 44 bílar skemmdust í gríðarmiklum eldsvoða á einni stærstu tónlistarhátíð Sviss í dag. Lögregla þar í landi skýrði frá þessu. Hún er enn að rannsaka upptök eldsins og íkveikja hefur ekki verið útilokuð. Fimm slökkviliðsmenn slösuðust lítillega í baráttu sinni við logana. 14.7.2007 17:37
Þriðji maðurinn ákærður vegna sprengjutilræðanna í Lundúnum og Glasgow Breska lögreglan hefur ákært þriðja manninn í tengslum við sprengjutilræðin í Glasgow og Lundúnum. Dr. Sabeel Ahmed, 26 ára, frá Liverpool, hefur verið ákærður fyrir að búa yfir upplýsingum sem hefðu getað komið í veg fyrir hryðjuverk. 14.7.2007 17:16
Alþjóðasamfélagið harmar ákvörðun Putins Rússar hafa sagt sig úr samkomulagi sem takmarkar fjölda herdeilda og þungavopna á ýmsum stöðum í Evrópu. Vladimir Putin, forseti Rússlands, skrifaði undir lög þess efnis nú í morgun. Evrópusambandið, Bretar og Bandaríkjamenn segjast harma ákvörðun rússneska forsetans. 14.7.2007 16:51
Karíókí ógnar þjóðaröryggi Norður-Kóreu Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa fyrirskipað lokun karíókístaða sem og internetkaffihúsa þar sem leyniþjónusta landsins telur þetta tvennt ógna þjóðaröryggi. Samkvæmt flóttamönnum frá Norður-Kóreu er almenningur ekki mikið á þannig stöðum, sem flestir eru við landamæri Kína, heldur frekar viðskiptamenn erlendis frá. 14.7.2007 16:24
Bastilludagurinn haldinn hátíðlegur í dag Frakkar halda nú upp á þjóðhátíðardag sinn, Bastilludaginn. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, breytti út af vananum og leyfði hermönnum frá öllum löndum Evrópusambandsins að taka þátt í skrúðgöngu hersins. 14.7.2007 16:04
Tveir unglingspiltar ætluðu að myrða hundruð samnemenda sinna Tveir táningar voru í dag ákærðir fyrir að hafa ætlað að ráðast á skóla í úthverfi New York. Táningarnir eru 15 og 17 ára og voru báðir nemendur í skólanum. Sá yngri var sá sem öllu réði og skipulagði. Hann leitaði vel og lengi að vopnum á internetinu til þess að geta notað í árásinni sem átti að fara fram á níu ára afmæli atburðanna í Columbine skólanum, þann 20. apríl 2008. 14.7.2007 15:46
Maður handtekinn í tengslum við þrefalt morð í Manchester Lögreglan í Manchester á Englandi hefur handtekið 32 ára karlmann í tengslum við morð á þriggja manna fjölskyldu. Pierre Williams er atvinnulaus og verður yfirheyrður af lögreglunni á næstunni. Hann er grunaður um að hafa myrt Kesha Wizzart, 18 ára, móður hennar Beverley Samuels, 36 ára, og bróður hennar Fred, 13 ára. 14.7.2007 15:30
24 létu lífið og 29 særðust í árás í Pakistan 24 hermenn létu lífið og 29 særðust í sjálfsmorðsárás í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Árásarmaðurinn keyrði bíl hlöðnum sprengiefnum inn í bílalest hermanna. Önnur árás var gerð á hermenn í Pakistan í dag og í henni særðust tveir. 14.7.2007 15:12
Öryggisgæsla hert í Mogadishu Gríðarlega öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, þar sem á að halda sátta- og friðarfund á milli fleiri en eitt þúsund fyrrum stríðsherra, öldunga og stjórnmálamanna. Fleiri hundruð hermenn hafa verið kallaðir til borgarinnar til þess að sinna gæslu. 14.7.2007 14:32
Vilt þú gista í IKEA? IKEA í Noregi hefur ákveðið að leyfa fólki að gista í búðinni. Frá 23. júlí til 27. júlí fær almenningur tækifæri til þess að gista í öllum sýningarherbergjum í búðinni. Fólk getur valið úr brúðarsvítum eða lúxussvítu en henni fylgir morgunverður í rúmið. Svo geta aðrir gist í kojum nú eða fjölskylduherbergjunum. 14.7.2007 14:12
Sjö rænt í Nígeríu Vígamenn rændu í morgun sjö starfsmönnum dýpkunarfyrirtækis í suðausturhluta Nígeríu. Fólkinu var rænt í borginni Onitsha, sem er á bökkum Níger. Mannræningjarnir hafa sett fram beiðni um lausnargjald. 14.7.2007 13:50
Baldvin Halldórsson látinn Baldvin Halldórsson, leikari og leikstjóri er látinn, 85 að aldri. Hann var einn af vinsælustu leikurum þjóðarinnar í rúma fjóra áratugi og lék nær tvö hundruð hlutverk á sviði Þjóðleikhússins. Þá var hann leikstjóri þar í rúm tuttugu ár. Eftirlifandi eiginkona hans er Vigdís Pálsdóttir og lætur hann eftir sig þrjú uppkomin börn. 14.7.2007 13:36
Enginn slasaðist í fjögurra bíla árekstri Enginn slasaðist alvarlega þegar fjórir bílar lentu í hörðum árekstri við Esjurætur, skammt frá Mógilsá á níunda tímanum í morgun. 14.7.2007 12:30
Iðnaðarráðherra ekki hrifinn af olíuhreinsistöð Iðnaðarráðherra er ekki hrifinn af þeim hugmyndum sem fram hafa komið um að setja niður olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Bæjarstjórinn á Ísafirði vill að kannað verði til þrautar hvort þessi iðnaður sé heppilegur. 14.7.2007 12:21
Óvenjulegt símtal til Neyðarlínunnar í Kanada Nokkrum kanadískum ungmennum brá heldur betur í brún þegar tveir fílar gerðu sig heimakomna í garðinum við hús þeirra síðastliðinn fimmtudag. Fílarnir Bunny og Suzy búa í sirkus skammt frá heimili ungmennanna í Newmarket í Ontario í Kanada. 14.7.2007 12:14
Slapp ómeiddur úr brennandi íbúð Maður slapp ómeiddur út um glugga á bakhlið á brennandi íbúð við Miklubraut, á móts við Miklatún, laust fyrir klukkan átta í morgun. Allt húsið var rýmt til öryggis. 14.7.2007 12:12
Ákærður fyrir þátttöku í sprengjutilræðum í Bretlandi Ástralska lögreglan hefur ákært Muhammad Haneef, indverskan lækni, fyrir þátttöku sína í sprengjutilræðunum í Bretlandi í lok júní. Í ákærunni sem gefin var út á hendur honum kemur fram að hann sé ákærður fyrir stuðning við hryðjuverkasamtök. 14.7.2007 12:09
Mikil aukning á akstri undir áhrifum fíkniefna Lögreglan á Selfossi tók fjóra ökumenn úr umferð í nótt grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna eða lyfja, en aðeins einn vegna ölvunar. Þetta eru fleiri svona atvik á einni nóttu á Suðurlandi en nokkru sinni fyrr og til samanburðar var aðeins einn tekinn grunaður um ölvunarakstur á svæði lögreglunnar í Árnessýslu í nótt. 14.7.2007 12:00
Sádi-Arabía takmarkar völd trúarbragðalögreglu Innanríkisráðuneytið í Sádi-Arabíu hefur bannað trúarbragðalögreglu landsins að taka fólk í gæsluvarðhald þar sem undanfarið hefur fólk látið lífið í haldi þeirra. Einnig hefur þeim verið bannað að reyna ná fram játningum og framvegis verður trúarbragðalögreglan að afhenda borgaralegri lögreglu landsins fólk sem það telur hafa gerst brotlegt við lögin. 14.7.2007 11:42
Átta hermenn láta lífið í sjálfsmorðsárás Átta hermenn létu lífið og 15 slösuðust í sjálfsmorðsárás í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Þúsundir hermanna hafa verið fluttir á svæðið undanfarna daga til þess að koma í veg fyrir hugsanlegar aðgerðir herskárra múslima gegn stjórnvöldum í landinu. 14.7.2007 11:28
Starbucks lokar útibúi sínu í Forboðnu borginni Bandaríska kaffihúsakeðjan Starbucks hefur lokað kaffihúsi sínu í Forboðnu borginni í Peking. Staðurinn opnaði árið 2000 og varð strax umdeildur. Safnverðir í Forboðnu borginni buðu Starbucks á að vera áfram en aðeins ef að þeir myndu fjarlægja öll merki og seldu einnig aðrar vörur. Því var hafnað og því lokaði kaffihúsið. 14.7.2007 11:20
Verkfræði, hreyfilist og tækni Hollendingurinn Theo Jansen er hreyfiaflsskúlptúristi. Hann er listamaður sem nýtir sér tækni og verkfræði til að búa til stórkostlegar furðuverur með ótal fætur sem knúnar eru áfram af veðri og vindum. 14.7.2007 10:00
Þrír milljarðar til höfuðs Osama bin Laden Öldungadeild Bandaríkjaþings ákvað í gær að tvöfalda þá upphæð sem sett hefur verið til höfuðs Osama bin Laden, leiðtoga Al-Kaída samtakanna, og er hún nú rúmir þrír milljarðar íslenskra króna. Þingmenn Demókrataflokksins sögðu Íraksstríðið draga úr getu Bandaríkjamanna til að berjast við Al-Kaída. Mistök Bush væru fyrst og fremst að ná ekki að fanga Osama bin Laden og rétta yfir honum. 14.7.2007 09:54
Skagfirðingar leggja til mótvægisaðgerðir Skagfirðingar hafa þungar áhyggjur af þeim búsifjum sem sveitarfélagið verður fyrir við niðurskurð þorskkvóta. Byggðaráð sveitarfélagsins hefur því lagt fram lista yfir mótvægisaðgerðir sem það vill að ríkisvaldið grípi til og eru þær í 26 liðum. Lagt er til að háskólanám verði eflt í Skagafirði, að þar verði komið upp aðstöðu til kvikmyndagerðar og athugað verði hvort sveitarfélagið geti hýst netþjónabú. 14.7.2007 09:52
Fjórir teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna Lögreglan á Selfossi tók fjóra ökumenn úr umferð í nótt grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Þetta er óvenju mikill fjöldi slíkra atvika á einni nóttu á Suðurlandi og til samanburðar var aðeins einn tekinn grunaður um ölvunarakstur á svæði lögreglunnar í Árnessýslu í nótt. 14.7.2007 09:51
Slapp ómeiddur úr brennandi íbúð Maður slapp ómeiddur út um glugga á bakhlið á brennandi íbúð við Miklubraut, á móts við Miklatún, laust fyrir klukkan átta í morgun. Reykur meinaði honum útgöngu um dyrnar. Óttast var að tveir til viðbótar væru í íbúiðnni og voru sjö reykkafarar sendir inn en fundu engan. 14.7.2007 09:50
Unglingapartý í Hafnarfirði leyst upp Lögreglumenn handtóku tvær fimmtán ára stúlkur eftir að þær réðust á lögregluþjóna við skyldustörf í Hafnarfirði í nótt. Lögreglan hafði verið kölluð að húsi þar sem mikið fjölmenni var í unglingapartíi, sem olli nágrönnum ónæði. Húsráðandi reyndist vera 15 ára stúlka, sem umsvifalaust sló lögreglumann. 14.7.2007 09:48
Fimm líkamsárásir í nótt Fimm líkamsárásir komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af fjórar í miðborginni. Í einni þeirra var maður barinn með öflugu barefli, og var hann fluttur á Slysadeild, meðal annars með áverka á höfði. Árásarmaðurinn var handtekinn og gistir fangageymslur. Í hinum tilvikunum komust árásarmennirnir undan og fórnarlömbin meiddust minna. 14.7.2007 09:47
Rússar rifta samkomulagi við NATO um takmörkun á herafla í Evrópu Rússar hafa tímabundið sagt sig úr samkomulagi sem takmarkar fjölda herdeilda og þungavopna á ýmsum stöðum í Evrópu. Vladimir Putin, forseti Rússlands, skrifaði undir lög þess efnis nú í morgun. 14.7.2007 09:43
Karlmaður grunaður um morðið i Manchester í gær Lögreglan í Manchester leitar 32 ára gamals manns í tengslum við morðið á konu og tveimur börnum hennar í Manchester í gær. Beverley Samuels var hjúkrunurfræðingur en best þekkt fyrir þátttöku í hæfileikakeppni á ITV sjónvarpsstöðinni. 13.7.2007 23:38
Tveir virtir repúblikanar vilja hermenn heim Tveir öldungadeildarþingmenn repúblikanaflokksins krefjast þess að Bush Bandaríkjaforseti setji fram áætlun um að draga úr herliði í Írak fyrir árslok. 13.7.2007 22:40
Mikil umferð á þjóðveginum Ljóst er að margir hafa ákveðið að nýta góða veðrið til að ferðast. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur umferð verið mjög mikil það sem af er degi. Bæði um Suðurlandsveg og Vesturlandsveg. Lögreglan segir að umferðin hafi gengið mjög vel en töluvert sé um hraðakstur. Í dag hafa hátt í þrjátíu ökumenn verið stöðvaðir fyrir að kitla pinnan í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli. 13.7.2007 22:08
Rio Tinto er verst í heimi Andri Snær Magnason rithöfundur segir að Rio Tinto, nýr eigandi álversins í Straumsvík, sé versta fyrirtæki í heimi. Hann segir að það sé vel hugsanlegt að það komi á daginn að Íslendingar hafi fórnað miklum náttúruverðmætum fyrir þessa vondu menn. Oddur Ástráðsson ræddi við Andra Snæ í Íslandi í dag. 13.7.2007 21:23