Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Illa rökstudd ákvörðun sem vinnur gegn landsbyggðinni Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um verulegan samdrátt í þorskkvóta er illa rökstudd og vinnur gegn smærri fyrirtækjum í sjávarútvegi að mati Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins. Hann segir að þetta muni valda miklum búsifjum á landsbyggðinni. 6.7.2007 14:36
Hús sprakk í Svíþjóð Kröftug sprenging varð í húsi í Södersvik austan við Norrtälje í Svíþjóð í nótt og er það gjörónýtt. Enginn var í húsinu sem er til útleigu en næstu leigjendur áttu að taka við á morgun. Samkvæmt lögreglu hafði enginn haft í hótunum við þá sem tengjast húsinu og urðu eigendurnir fyrir miklu áfalli. 6.7.2007 14:24
Markvisst unnið að því að útrýma mávi af tjörninni Andavarp á tjörninni hefur ekki tekist vel í ár, að sögn Guðmundar B. Friðrikssonar, skrifstofustjóra hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Fáir ungar hafa komist á legg. Ástæðurnar eru þær að lítið er af æti við tjörnina og að mávurinn hefur étið ungana. 6.7.2007 14:23
Erfið ákvörðun en nauðsynleg Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, segir ákvörðun um að skera niður þorskkvótann um 63 þúsund tonn hafi verið erfið og honum sé fullljóst að hún skapar mikinn vanda fyrir sjávarbyggðir í landinu. Þetta kom fram í máli ráðherra í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. 6.7.2007 13:56
Hætta á að fólk geti drukknað á Hróaskeldu Rauði krossinn í Danmörku varar við því að hætta sé á að fólk geti drukknað á Hróaskelduhátíðinni. Þar hefur úrkoma verið mikil undanfarið og stór svæði eru þakin vatni. Talsmenn Rauða krossins á svæðinu segja að hætta á því að fólk geti drukknað sé raunveruleg, sérstaklega ef það er mjög ölvað og getur ekki komið sér upp úr vatninu af sjálfsdáðum. 6.7.2007 13:19
Sársaukafullt fyrir sjávarútveginn Samdráttur á aflaheimildum í þorski um 63 þúsund tonn fyrir næsta fiskveiðiár á eftir að verða mjög sársaukafullt fyrir sjávarútveginn að mati framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna. Hann undrast að ríkisstjórnin skuli einungis taka mið af tillögum Hafrannsóknarstofnunar í ákvörðun sinni. 6.7.2007 13:12
Réttargæslumaður stúlkunnar ósammála sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur Réttargæslumaður stúlkunnar sem kærði nauðgun á Hótel Sögu í mars síðastliðnum segist ósammála sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Dómurinn einblíni of mikið viðbrögð stúlkunnar frekar en verknaðinn. Lögmaður hins ákærða segir líklegt að hann eigi rétt á bótum eftir að hafa verið í gæsluvarðhaldi í fjóra mánuði. 6.7.2007 12:20
Umferðarstofa hvetur bílstjóra til að sýna bifhjólamönnum tillitssemi Umferðarstofa hefur sent frá sér tilkynningu vegna andúðar og tillitsleysi bílstjóra í garð bifhjólamanna.Að undanförnu hefur mikið verið rætt um hraðakstur bifhjólamanna. Lítið hefur hins vegar borið á réttmætri gagnrýni á hegðun margra bílstjóra í umgengni sinni við bifhjólamenn. 6.7.2007 12:17
Nektarhlaupið í Pamplona Hundruð dýraverndunarsinna hlupu nærri naktir á götum borgarinnar Pamplona á Spáni í gær til þess að mótmæla hinu árlega nautahlaupi í borginni. 6.7.2007 12:15
Nýr og umhverfisvænn forsetabíll Forseti Íslands tekur við nýrri Lexus tvinnbifreið frá Tadashi Arashima, forstjóra Toyota í Evrópu, seinni partinn í dag. Bifreiðin er af gerðinni Lexus LS600h og er knúinn Hybrid-kerfi sem samanstendur af rafmótor og öflugri átta strokka bensínvél. 6.7.2007 12:12
Kaupþing og Glitnir hækka vexti á íbúðarlánum Kaupþing hækkaði vexti á nýjum íbúðarlánum í dag um 0,25 prósent og eru vextirnir þá komnir í 5,2 prósent. Þetta var tilkynnt í gær eftir að ljóst var að Seðlabankinn myndi ekki lækka stýrivexti á þessu ári. Glitnir hefur einnig ákveðið að hækka vexti á nýjum verðtryggðum húsnæðislánum um 0,25 prósent, eða upp í 5,2 prósent eins og Kaupþing. 6.7.2007 12:08
Þrjú sveitarfélög greiða 7,6 milljarða fyrir Hitaveitu Suðurnesja Reykjanesbær, Hafnarfjörður og Grindavík þurfa að greiða ríkinu 7,6 milljarða fyrir hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja á miðvikudag í næstu viku. Reykjanesbær borgar um 4,7 milljarða króna, Hafnarfjörður tæpa tvo milljarða og Grindavík um einn milljarð króna. 6.7.2007 12:05
Málverk seldist á 2,2 milljarða Málverk eftir endurreisnarlistamanninn Raphael seldist á uppboði í gær fyrir meira en 2,2 milljarða íslenskra króna. Verkið er af ítalska greifanum Lorenzo d'Medici, forföður þess sem nú er á skjánum í Bachelor þáttunum á Skjá einum. Verkið hafði ekki sést opinberlega síðan árið 1968. 6.7.2007 12:00
Mótmæltu mannránum og ofbeldi Hundruð þúsunda manna í Kólumbíu mótmæltu í gær mannránum FARC, samtökum vinstri sinnaðra uppreisnarmanna. Talið er að um þrjú þúsund Kólumbíumenn séu nú í haldi mannræningja. 6.7.2007 12:00
Krónan hækkar við kvótalækkun Gengi krónunnnar hækkaði í morgun um 0,6%, strax og sjávarútvegsráðhera var búinn að tilkynna um niðurskurð þorskkvótans. Talið er að útflultningstekjur landsmanna dragist saman um 16 milljarða króna á ársgrundvelli vegna niðurskurðarins, og landsframleiðsla dregst saman um 0,7 prósent, þar af 0,2 á þessu ári þar sem næsta fiskveiðiár hefst frysta september. 6.7.2007 11:40
Ríkisstjórnin boðar viðamiklar aðgerðir vegna samdráttar á aflaheimildum Ríkisstjórnin kynnti í morgun viðamiklar mótvægisaðgerðir í tengslum við verulegan samdrátt á aflaheimildum í þorski. Aðgerðirnar miða fyrst og fremst að því að styðja sjávarbyggðir og draga úr því tjóni sem samdrátturinn hefur í för með sér. 6.7.2007 11:32
Fyrsta dauðsfallið í tengslum við flóðin í Suður-Svíþjóð Eldri kona fannst látin í bíl sínum rétt utan við Helsingborg í Suður-Svíþjóð í morgun. Bíllinn fannst umlukinn vatni í skurði við vegarkant og er talið að konan hafi drukknað. Mikil úrkoma og flóð hafa verið í Suður-Svíþjóð undanfarið. 6.7.2007 11:04
Aflaheimildir í þorski 130 þúsund tonn Ríkisstjórnin kynnti í morgun tillögur sínar um aflaheimildir í þorski fyrir næsta fiskveiðiár. Samkvæmt þeim verður þorskvótinn 130 þúsund tonn. Er þetta í fullu samræmi við tillögur Hafrannsóknarstofnunar og lægsti þorskvóti frá upphafi. Mótvægisaðgerðir gera ráð fyrir aðstoð við byggðarlög. 6.7.2007 10:39
Elsti fósturvísirinn að barni Stúlkubarn fæddist nýlega í Bandaríkjunum en fósturvísirinn sem barnið þróaðist úr hafði verið geymdur í frysti í þrettán ár. Þetta er talinn lengsti tími sem fósturvísir hefur verið geymdur þannig að úr hafi orðið heilbrigt barn. 6.7.2007 10:15
Varað við umferðartöfum og vegaskemmdum á Þingvallavegi Talsverðar skemmdir eru á klæðningu á 1,5 kílómetra vegakafla á Þingvallavegi við Grafningsvegamót. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Ökumenn eru beðnir um að aka varlega og hefur hraði verði takmarkaður við 50 kílómetra á klukkustund. 6.7.2007 10:13
Beint flug til Moskvu? Vilhjálmur Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavik, átti i gær fund með Yuri Lujkova, borgarstjóra í Moskvu. Á fundinum voru ýmis mál til umræðu og gerði borgarstjóri meðal annars grein fyrir vilja Íslendingar til að gera nýjan loftferðasamning við Rússa. 6.7.2007 09:58
Gestafjöldi að söfnum slagar hátt í heildaraðsókn að kvikmyndasýningum Gestafjöldi að söfnum og skyldri starfsemi var um 1.3 milljón á árinu 2005. Til samanburðar var fjöldi gesta árið 1995, 830 þúsund. Gestakomur árið 2005 slaga hátt i heildaraðsókn að kvikmyndasýningum sem var ríflega 1.4 milljónir sama ár. Frá árinu 2000 hefur fjöldi gesta að söfnum og skyldri starfsemi aukist jafnt og þétt eftir að hafa að miklu leyti staðið í stað á seinni hluta síðasta áratugar. 6.7.2007 09:10
Tvær til þrjár milljónir HIV/AIDS smitaðir í Indlandi Á bilinu 2 til 3,1 milljón manna í Indlandi eru með HIV/AIDS samkvæmt nýrri rannsókn sem Sameinuðu þjóðirnar og stjórnvöld í Indlandi stóðu að. Áður var talið að allt að tvisvar sinnum fleiri væru smitaðir í Indlandi og hefði það því verið fjölmennasti hópur smitaðra í einu landi. 6.7.2007 08:48
Meintur hryðjuverkamaður hringdi frá Íslandi Móðir Kafeels Ahmed, sem grunaður er um að tengjast hryðjuverkaárásum á Glasgow, telur að hann hafi hringt í sig frá Íslandi síðastliðinn laugardag, að því er The Times of India greinir frá. Móðirin fullyrðir í samtali við blaðið að Ahmed hafi sagt við sig að hann væri að vinna að stóru verkefni sem tengdist hlýnun jarðar. Hann myndi þurfa að ferðast mikið í tengslum við verkefnið og myndi ekki hafa samband næstu vikuna. 5.7.2007 22:13
Þrjú hundruð ær drepast í óveðri í Danmörku Óveður og vatnavextir við Vadehaved í Danmörku kostaði 300 ær lífið í síðustu viku. dýraverndarsamtök í Danmörku telja að eigandinn hefði átt að gæta betur að öryggi dýranna. Þau vilja að dýraverndarlögum verði breytt. 5.7.2007 21:32
Þyrla Landhelgisgæslunnar kvödd að Skaftárfelli Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Sif var kölluð að Þjóðgarðinum í Skaftárfelli á sjöunda tímanum í kvöld til að sækja erlendan ferðamann. Maðurinn hafði kennt sér meins og læknir taldi ráðlegast að kalla út þyrluna. Ekki er meira vitað um málið að svo stöddu. 5.7.2007 20:54
Íbúar á Njálsgötu ósáttir Velferðarráð Reykjavíkurborgar ákvað formlega í gær að hefja rekstur heimilis fyrir heimilislausa á Njálsgötu í Reykjavík. Mikill styr hefur staðið um málið að undanförnu og hafa nokkrir íbúar við götuna mótmælt harðlega. Pétur Gautur Svavarsson, annar tveggja fulltrúa íbúa og húseigenda í samráðshópi vegna húsnæðsisins, ræddi við Katrínu Rut Bessadóttur í Íslandi í dag. 5.7.2007 20:18
Hróarskelduhátíðin nær hámarki um helgina Á fyrsta degi Hróarskelduhátíðarinnar í Danmörku hefur þegar rignt meira en nokkru sinni áður í tæplega fjörutíu ára sögu hátíðarinnar. Gripið hefur verið til neyðarráðstafana þar sem spáð er enn meiri úrkomu um helgina. Vatni og aur er dælt af svæðinu og hálmi dreift á gönguleiðir. 5.7.2007 20:06
Ítalskur ferðamaður stöðvaður fyrir of hraðan akstur Lögreglan á Akureyri stöðvaði ítalskan ferðamann á bílaleigubifreið fyrir of hraðan akstur í Öxnadal um hádegisbil í dag en ökuhraði hans var mældur 171 km/klst. Hámarkshraði þarna er 90 km/klst. 5.7.2007 20:00
Segja Landsbankann hafa svikið gefin fyrirheit Hjón sem fóru halloka í verslunarrekstri saka Landsbankann um að bera ábyrgð á óheillaþróuninni. Fyrirheit hafi verið svikin auk þess sem bankinn hafi beitt makalausri hörku og óbilgirni. Trygginga hafi verið krafist í öllum eignum, innkomu og sjóðum en steininn hafi tekið úr þegar þau voru krafin um að framselja líftryggingar sínar til bankans. 5.7.2007 19:56
Minnir á áhættu sem fylgir lánum í erlendri mynt Seðlabankastjóri telur hættu á að heimilin vanmeti þá áhættu sem felist í lánum í erlendri mynt. Hann segir lánin mjög álitleg á pappírum en ekki sé allt gull sem glóir. 5.7.2007 19:29
Í forsendum að þorkkvótinn verði 160 þúsund tonn Seðlabankinn gerir ráð fyrir því í hagspá að þorskkvóti næsta fiskveiðiárs verði 160 þúsund tonn en ekki 130 eins og Hafró leggur til. Stýrivöxtum var ekki breytt í dag og gaf Seðlabankastjóri í skyn að þeir yrðu ekki lækkaðir fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári. 5.7.2007 19:21
Aðgangur veittur að persónuupplýsingum án leyfis Landlæknisembættið veitti aðgang að persónuupplýsingum um fóstureyðingar kvenna án þess að leyfi væri fyrir því. Embættið segir um mistök hafa verið að ræða. 5.7.2007 19:08
Segir Ísland eiga fullt erindi í öryggisráðið Brian Atwood, einn helsti sérfræðingur á sviði þróunarmála í heiminum vill endurskipuleggja öryggisráð Sameinuðu þjóðanna en segir þó Ísland eiga þar fullt erindi. Atwood hélt opin fund í utanríkisráðuneytinu í morgun. 5.7.2007 19:00
Eucalyptus kannaður Ástralskir vísindamenn hafa hrint af stað viðamiklum rannsóknum á erfðaræðilegum leyndarmálum ástralska trésins Eucalyptus. Eucalyptus-trén hafa löngum verið vísindamönnum hugleikin. Þau lifa aðallega í Ástralíu en einnig öðrum Eyjaálfulöndum. Trén vaxa afar hratt og telja yfir 700 tegundir. 5.7.2007 18:59
Nærri tveir tugir hraðamyndavéla settar upp á landinu Mikið átak hefst á næstu dögum í eftirliti með akstri ökumanna þegar tvær sjálfvirkar og fullkomnar hraðamyndavélar verða settar upp á þjóðvegi 1 í Hvalfjarðarsveit. Nærri tveir tugir myndavélar verða settar upp á næstu vikum og mánuðum. 5.7.2007 18:51
Samtök atvinnulífsins vilja leggja niður vörugjöld Samtök atvinnulífsins vilja leggja niður vörugjöld og segja þau úrelta skattheimtu og draug fortíðar. Þau telja vörugjöldin beina neyslu fólks í ákveðna vöruflokka án þess að neytendur geri sér grein fyrir því. 5.7.2007 18:45
Eldar á Frönsku Riveriunni slökktir Hundruðir íbúa og ferðamanna fengu að snúa aftur að heimilum sínum og tjaldstæðum á Frönsku Riveríunni í dag en þeim var gert að flytja sig frá aðsetrum sínum eftir að skógareldar blossuðu upp í gær. 5.7.2007 18:44
Fékk ekki réttlláta málsmeðferð vegna aðkomu læknaráðs Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði í dag að mál Söru Lindar Eggertsdóttur níu ára fjölfatlaðrar stúlku sem hlaut alvarlegar heilaskemmdir eftir fæðingu hefði ekki fengið réttláta málsmeðferð fyrir Hæstarétti Íslands, einkum vegna aðkomu læknaráðs. Faðir stúlkunnar segir niðurstöðuna áfellisdóm yfir íslensku réttarkerfi en það sé léttir að 9 ára baráttu sé lokið. 5.7.2007 18:30
Segir björgunarfólk hafa valdið dauða sonar síns Faðir manns sem lést í flóðunum í Bretlandi í síðustu viku segir klúður björgunarfólks hafa valdið dauða sonar hans. Hjálparsveitum tókst ekki að losa manninn úr holræsi og hann lést eftir þriggja klukkustunda baráttu. Sláandi myndir af vettvangi voru birtar í dag. 5.7.2007 18:22
Kaupþing hækkar vexti á íbúðalánum Kaupþing hefur ákveðið að hækka fasta vexti á nýjum íbúðalánum Kaupþings úr 4,95% í 5,20% frá og með 6. júlí 2007. Þetta þýðir hækkun um 0,25%. 5.7.2007 17:22
Um 100 börn lentu í sjónum við strendur Dublinar Meira en 100 börnum hefur verið bjargað eftir að siglingarkeppni við strendur Dublinar breyttist í martröð í dag. Öflug vindhviða varð til þess að 91 bát hvolfdi. Um 100 börn sem tóku þátt í keppninni lentu við það í sjónum. 5.7.2007 16:43
Sýknaður af nauðgunarkæru Pólverjinn sem sakaður var um að hafa nauðgað konu í kjallara Hótels Sögu var sýknaður fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þótti dómurum ekki sýnt að maðurinn hefði þröngvað konunni til samræðis. 5.7.2007 16:43
Meintur hryðjuverkamaður ekki staddur hér á landi Ekkert bendir til þess að meintur hryðjuverkamaður sé staddur hér á landi samkvæmt greiningardeild Ríkislögreglustjóra. Málið hefur verið til skoðunar hjá lögreglunni í dag. 5.7.2007 16:25
Hundur veittist að lögreglumanni við skyldustörf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að beita varnarúða í gærkvöldi til að hindra að hundur réðist að lögreglumanni við skyldustörf. Lögreglumaðurinn var við húsleit í íbúð í austurborginni en um var að ræða þýskan Schäfer hund. Tæplega 100 grömm af ætluðu amfetamíni fundust í íbúðinni. 5.7.2007 16:08