Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bandaríkjamenn á móti tillögum gegn gróðurhúsaáhrifum Bandaríkjamenn eru sagðir leggjast algerlega gegn tillögum sem Þjóðverjar ætla að leggja fyrir fund átta helstu iðnríkja heims um aðgerðir í loftslagsmálum. Á skjali, sem leggja á fyrir fundinn í júní, en Grænfriðungar hafa komist yfir og lekið til fjölmiðla, er að finna ályktunardrög þar sem kveðið er á um að iðnríkin setji sér tímaramma til að draga stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 26.5.2007 10:18
Sætaskipan á ríkisstjórnarfundum ekki tilviljunum háð Á fyrsta fundi nýrrar ríkisstjórnar í dag sátu þau Björn Bjarnason og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlið við hlið. Þetta mun hafa vakið þó nokkra athygli enda ekki langt síðan þau tvö börðust hart um völdin í Reykjavíkurborg. Þarna mun tilviljun ein þó ekki hafa ráðið. 25.5.2007 23:51
Kona í haldi fyrir stórfelld fjársvik Lögreglan í Reykjavík handtók í kvöld konu sem grunuð er um stórfelld fjársvik. Konan mun hafa tekið út af krítarkorti í óleyfi hátt í tvær milljónir króna. 25.5.2007 23:32
Óeirðaseggir dæmdir í Danmörku Fimm ungmenni voru í dag dæmd í fangelsi í Danmörku fyrir aðild sína að óeirðunum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þegar ungdómshúsið var rifið. Um er að ræða einn Dana, þrjá Bandaríkjamenn og Kanadamann. 25.5.2007 23:23
Tilboð í lóðir á Urriðaholti opnuð í dag Tilboð í lóðir í fyrsta áfanga uppbyggingar Urriðaholts í Garðabæ voru opnuð í dag. Alls stóðu til boða 47 lóðaeiningar fyrir 100 íbúðir og bárust tilboð í þær allar. Tilboðum var tekið í rúmlega helming lóðanna. Tilboð bárust í fimm óvenju stórar einbýlishúsalóðir en aðeins einu þeirra var tekið. 25.5.2007 23:06
Dæmd fyrir morðið á eðalbornum eiginmanni sínum Ekkja jarlsins af Shaftesbury var í dag dæmd í 25 ára fangelsi fyrir að myrða hann. Líkið af jarlinum fannst í gljúfri í Ölpunum árið 2005. Eiginkonan, Jamila M’Barek var fundin sek um að leggja á ráðin um morðið en hún fékk bróður sinn til að drýgja ódæðið. 25.5.2007 22:59
Héðinn Steingrímsson stórmeistari í skák Héðinn Steingrímsson skákmaður er orðinn stórmeistari í skák. Héðinn teflir nú á Capo d’Orso mótinu og á hann eina skák eftir en á morgun mætir hann skoska stórmeistaranum Jonathan Rowson. Árangur héðins hingað til í mótinu, en hann er efstur með sjö vinninga, þýðir að skákin á morgun skiptir ekki höfuðmáli því stórmeistaranafnbótin er í höfn. 25.5.2007 21:54
Star Wars frumsýnd fyrir 30 árum 25. maí er merkisdagur í augum margra því á þessum degi fyrir sléttum 30 árum var kvikmyndin Star Wars eftir George Lucas frumsýnd. Myndin sló í gegn og hefur haft gríðarleg áhrif á kvikmyndasöguna. Menn deila svo um hvort þau áhrif hafi verið til góðs eða ills. 25.5.2007 21:28
Álverið í Helguvík: Fyrsta skóflustunga fyrir lok þessa árs Logan Kruger, forstjóri Century Aluminium álfyrirtækisins er bjartsýnn á framtíð álvers í Helguvík og segir að það verði eitt það umhverfisvænasta í heiminum. Páll Ketilsson,ritstjóri Víkurfrétta, hitti Logan að máli og lagði fyrir hann nokkrar spurningar um væntanlegt álver í Helguvík. 25.5.2007 21:00
Kristrún aðstoðar Ingibjörgu Kristrún Heimisdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra. Kristrún, sem er varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, er lögfræðingur að mennt og 35 ára gömul. 25.5.2007 20:32
Dýrkeypt verkfall hjá SAS Talið er að vinnustöðvun vegna verkfalls átta hundruð starfsmanna SAS-flugfélagsins í Svíþjóð kosti félagið jafnvirði hátt í hundrað og níutíu milljóna íslenskra króna hvern dag sem ekki er flogið. 25.5.2007 20:03
Rigning á Spáni Mörg hundruð manns hafa þurft að hverfa frá heimilum sínum á Mið-Spáni þar sem mikið hefur ringt í vikunni. Vegir hafa farið í sundur í flóðum á svæðinu og vatn flætt yfir lestarteina. 400 íbúar í bænum Alcazar de San Juan urðu að flýja en vatnshæð sumstaðar þar hefur náð einum og hálfum metra að sögn yfirvalda. 25.5.2007 19:45
Vatnsmeðferðir stundaðar í lækningaskyni fyrstu árin á Kleppi Fyrstu meðferðir fyrir geðfatlaða á Kleppi fyrir hundrað árum voru svokallaðar vatnsmeðferðir sem fólust í að setja sjúklingana í heit og köld böð í lækningaskyni. Þá voru sumir þeirra látnir lifa einungis á vatni í nokkrar vikur. Bylting varð í meðhöndlun geðfatlaðra þegar geðlyfin komu um miðja seinustu öld. 25.5.2007 19:38
Strandsiglingar hefjast Norðlendingar hafa ákveðið að hefja strandsiglingar hringinn í kringum landið. Siglt verður héðan til Danmerkur og Eystrasaltsríkjanna. Til þess hefur verið keypt rúmlega þrjú þúsund tonna fjölnota flutningaskip sem siglt verður hingað frá Lettlandi eftir helgi. 25.5.2007 19:30
Forsætisráðherra í þriðja kjörtímabil í röð Allt útlit er fyrir að Berti Ahern verði forsætisráðherra Íralands þriðja kjörtímabilið í röð. Útgönguspár og fyrstu tölur benda til þess að fylking undir forystu Fianna Fáil, flokks Aherns, hafi fengið tæp 45% atkvæða en bandalag mið og vinstri flokka tæp 37%. Kosið var í gær. Ekki er búist við lokatölum fyrr en í byrjun næstu viku. 25.5.2007 19:15
Samverustundir foreldra og ungmenna besta vímuefnaforvörnin Vímuefnaneysla ungmenna í Reykjavík hefur dregist saman síðasta áratug og er nú minni en í mörgum borgum Evrópu, sem sækjast nú eftir því að kynnast íslenskum forvarnaraðferðum. Samverustundir ungmenna og foreldra, eftirlit með samkvæmum og skipulagt tómstundastarf eru lykillinn að velgengni Íslendinga í forvarnarmálum. 25.5.2007 19:13
Framboð á leiguhúsnæði eykst með tilkomu Keilis Í hálffimmfréttum Kaupþings er greint frá því að útlit sé fyrir að framboð á húsnæði til leigu muni aukast að einhverju marki á suðvesturhorninu með tilkomu Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. „Alls er um 2.200 íbúðir að ræða sem jafngildir tæplega heils árs framboði á íbúðum á Reykjavíkursvæðinu,“ segir Kaupþing. 25.5.2007 19:05
Valgerður í varaformanns- embættið Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, sækist eftir embætti varaformanns Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi í næsta mánuði. Hvorki Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, eða Magnús Stefánsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, sækjast eftir embættinu. Valgerður segir Framsóknarflokkinn verða málefnalegan í stjórnarandstöðu sinni. 25.5.2007 19:00
Ríkisstjórn ræðir málefni Flateyrar Sjávarútvegsráðherra viðurkennir að vandi Flateyrar sé endurspeglun á hlið kvótakerfisins sem mönnum hafi verið ljós. Þess vegna hafi verið gripið til mótaðgerða innan kerfisins. Ríkisstjórnin ræddi vanda Flateyrar en þar sé ljóst að mótaðgerðirnar hafa ekki dugað til. Yfirlýst lokun útgerðar og vinnslu á staðnum er plássinu gífurlegt áfall. 25.5.2007 18:58
Óhugnanlegt myndband fer um netið Myndband sem vakið hefur óhug fólks gengur nú manna á milli á netinu. Óljóst er hvort myndbandið er leikið eða ekki en það sýnir karlmann nauðga konu. Myndbönd af þessu tagi hvetja menn ekki til ofbeldisverka segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur. 25.5.2007 18:57
Ríkisstjórn ræðir aðgerðir í þágu barna og eldri borgara Ríkisstjórnin ákvað í morgun að leggja fyrir þing aðgeðraráætlun í málefnum barna í næstu viku, í samræmi við stefnuskrá nýrrar stjórnar. Einnig voru rædd í stjórninni aðgerðir í málefnum aldraðra og breytingar á stórnarráðinu vegna tilflutnings verkefna. 25.5.2007 18:50
Mannlíf segir flokkinn hafa kúgað Morgunblaðið Fullyrt er í Mannlífsgrein að forysta Sjálfstæðisflokksins hafi fyrir áratug reynt að kúga Styrmi Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðsins til fylgisspektar við stefnu flokksins. Hafi Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi bankaráðsmaður í Landsbankanum meðal annars krafist gjaldfellingar lána ritstjórans. Kjartan segir þetta staðlausa stafi og slúður. 25.5.2007 18:47
Þjökuð af sektarkennd Enn hefur ekkert spurst til hinnar þriggja ára gömlu Madeleine McCann sem hvarf af hótelherbergi á Portúgal fyrir þremur vikum. Foreldrar hennar segjast þjökuð af sektarkennd yfir því að hafa skilið hana eina eftir með yngri systkinum sínum meðan þau snæddu kvöldverð í næsta nágrenni. Margir foreldrar hefðu þó líkast til gert það sama. 25.5.2007 18:45
Endurbætur á slysa- og bráðadeild í Fossvogi hafnar Nú standa yfir miklar endurbætur á slysa- og bráðadeild á Landspítala Fossvogi. Fólk er beðið um að sína skilning á þeim óþægindum sem kunna að skapast vegna breytinganna. 25.5.2007 18:39
Starfsmaður á Kárahnjúkum greinist með berkla Portúgölsk kona, starfsmaður á Kárahnjúkum, hefur verið greind með berkla og er í einangrun á Landspítalanum. Vakthafandi læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað staðfesti þetta í samtali við Vísi. 25.5.2007 18:05
Felldi úr gildi dóm um afhendingu barns Hæstiréttur felldi í dag úr gildi dóm héraðsdóms um að íslenskri konu bæri að afhenda barnsföður sínum dóttur sína með beinni aðfararaðgerð þar sem dómur á æðra dómstigi í Frakklandi væri ekki fallinn. 25.5.2007 16:50
Féll niður tröppu með barn í fanginu Fertug kona slasaðist um miðjan daginn í gær eftir að hún féll niður tröppu í vesturbæ Reykjavíkur. Konan var með barn sitt fanginu en það sakaði ekki. Nokkuð var um slys á fólki á höfuðborgarsvæðinu í gær en flest voru þau minniháttar. 25.5.2007 16:39
Sex létust í flugslysi í Perú Sjö manns komust lífs og sex fórust af þegar perúsk herflugvél hrapaði í skóglendi Amason í norðausturhluta landsins. Flugvélin, sem var nítján sæta De Havilland Twin Otter, fór í loftið í gærkvöld en sambandið rofnaði skömmu síðar við hana. 25.5.2007 16:31
Bílvelta á Óshlíð Flytja þurfti konu á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði eftir að bíll sem hún ók valt á veginum um Óshlíð laust fyrir klukkan þrjú í dag. Nota þurfti klippur til að ná konunni út úr bifreiðinni. 25.5.2007 16:22
Hið brjálæðislega bensínverð í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn eru farnir að venjast hinu brjálæðislega verði sem er á bensíni þar í landi. Lítrinn er farinn að nálgast heilar fimmtíu krónur. Fyrst þegar bensínið byrjaði að hækka voru viðbrögð neytenda harkaleg. 25.5.2007 16:02
Lögðu 417 þúsund kílómetra að baki Nýtt met var sett í hinni árlegu hjólakeppni Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, Hjólað í vinnuna, sem stóð frá 2. til 22. maí. Alls lögðu 6642 þátttakendur frá 409 vinnustöðum ríflega 417 þúsund kílómetra að baki á þessum tíma en það jafngildir rúmum tíu hringjum í kringum jörðina. 25.5.2007 16:00
Reggie rúllað upp Tveggja metra langur krókódíll sem hefur læðupokast um fylkisgarð í úthverfi Los Angeles í Bandaríkjunum var handsamaður í gær. Það voru skriðdýrasérfræðingar og þjóðgarðsverðir sem yfirbuguðu dýrið eftir mikla glímu. 25.5.2007 15:33
Lögreglan bjargar messuhaldi í Krísuvík Á dögunum stálu tveir ógæfumenn biblíu og sálmabók úr Krísuvíkurkirkju en þeir voru handteknir fyrir austan fjall skömmu eftir þjófnaðinn. 25.5.2007 15:28
Boða öflugt umferðareftirlit yfir hvítasunnuhelgi Allt umferðareftirlit verður aukið yfir hvítasunnuhelgi en meginmarkmiðið er að draga úr hraðakstri og auka umferðaröyryggi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. Þá mun embættið leggja sérstaka áherslu á umferðareftirlit í allt sumar. 25.5.2007 15:19
Fær bætur vegna flutnings í starfi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til þess að greiða hjúkrunarfræðingi hálfa milljón króna í bætur vegna tilfærslu í starfi innan Landspítalans sem var talin íþyngjandi. Hins vegar hafnaði dómurinn kröfu hjúkrunarfræðingsins um að tilfærslan yrði dæmd ógild. 25.5.2007 15:19
Stofna almenningshlutafélag til kaupa veiðiheimildir Kanna á möguleikana á því að stofna almenningshlutafélag í Ísafjarðarbæ sem hefur það hlutverk að kaupa veiðiheimildir og tryggja þannig fullvinnslu sjávarafurða á svæðinu. Þetta kemur fram í tillögu sem meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar hefur lagt fram og greint er frá á fréttavef Bæjarins besta. 25.5.2007 14:53
Nauðlenti eftir býflugnabardaga Boeing farþegaþota nauðlenti í Bournemoth Bretlandi í dag eftir að hafa flogið í gegnum mikinn sverm af býflugum. Níutíu farþegar voru um borð í vélinni sem var á leið til Faros í Portúgal. Vélin var frá flugfélaginu Palmair. 25.5.2007 14:44
Nordisk Mobil Ísland fær úthlutað tíðniheimild fyrir farsíma á Íslandi Fjarskiptafyrirtækið Nordisk Mobil Ísland ehf. hefur fengið úthlutað tíðniheimild fyrir landrægt stafrænt farsímakerfi á Íslandi. Um er að ræða arftaka gamla NMT farsímakerfisins en gert er ráð fyrir að fullri útbreiðslu verði náð strax í byrjun næsta árs. 25.5.2007 14:39
Þrettán sækjast eftir embætti umboðsmanns barna Þrettán umsóknir bárust um embætti umboðsmanns barna en umsóknarfrestur rann út þriðjudaginn 22. maí. Í hópi umsækjenda eru níu konur og fjórir karlar. 25.5.2007 14:33
Allt um krókódíla Krókódílar eru stærstu núlifandi skriðdýr heimsins og sennilega einu forsögulegu risarnir sem enn eru hér á jörðinni. Rannsóknir hafa sýnt að krókódílar virðast vera skyldari fuglum en öðrum núlifandi tegundum skriðdýra. 25.5.2007 14:27
Össur nýr samstarfsráðherra Norðurlanda Össur Skarphéðinsson, nýr iðnaðarráðherra, hefur tekið við embætti samstarfsráðherra Norðurlanda samkvæmt ákvörðun Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Tekur hann við því embætti af Jónínu Bjartmarz sem hvarf úr stóli umhverfisráðherra í gær. 25.5.2007 14:24
Sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 6 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Maðurinn sló annan mann með glerflösku í andlitið á skemmtistað í Reykjavík í fyrra. Þá var honum gert að greiða fórnarlambinu 273 þúsund krónur í skaðabætur. 25.5.2007 14:12
Gleymdu því góði Bandaríkin hafa hafnað tilraunum Þjóðverja til þess að fá átta helstu iðnríki heims til þess að fallast á að draga verulega úr úblæstri kolefna. Bandaríkjamenn gera þetta með nokkru offorsi. Þjóðverjar ætluðu að leggja fram tillögur þess efnis á ráðstefnu iðnríkjanna sem hefst í Þýskalandi 6 júní næstkomandi. 25.5.2007 14:09
Héðinn skrefi frá stórmeistaraáfanga Alþjóðlegi skákmeistarinn Héðinn Steingrímsson er kominn með aðra höndina á stórmeistaraáfanga eftir að hann gerði jafntefli við ítalska meistarann Luca Shytaj í áttundu og næstsíðustu umferð Capo d'Orso-mótsins á Sardiníu. 25.5.2007 14:07
Hátt í þrjú þúsund ungmenni til starfa hjá Vinnuskólanum Gert er ráð fyrir að um 2.500 ungmenni muni starfa hjá Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar. Skráningum lýkur í næstu viku og segir skólastjóri Vinnuskólans að hægt verði að útvega öllum þeim vinnu sem vilja. 25.5.2007 14:04