Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríkisstjórnin fallin samkvæmt fyrstu tölum Ríkisstjórnin er fallin samkvæmt fyrstu tölum úr fimm kjördæmum en búið er að telja 82.589 atkvæði. Framsóknarflokkurinn mælist með 10 prósenta fylgi og fær sex þingmenn en Sjálfstæðisflokkurinn 24 þingmenn og mælist með 36 prósenta fylgi. 12.5.2007 22:12
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking bæta við sig í Kraganum Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin bæta báðir við sig samkvæmt nýjustu tölum frá Suðvesturkjördæmi. Framsóknarflokkurinn tapar fylgi frá síðustu kosningum. 12.5.2007 22:06
Jón Sigurðsson og Steinunn Valdís úti Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og Steinunn Valdís, fyrrum borgarstjóri, eru ekki inni samkvæmt fyrstu tölum úr Reykjavík norður. Kjörsókn hefur verið minni í kjördæminu en í fyrri kosningum en talið er að hún hafi verið rúmlega átta prósent minni en í síðustu Alþingiskosningum. 12.5.2007 22:04
Málefnalegri kosningabarátta gæti skýrt minni kjörsókn Minni átök milli flokka og málefnalegri kosningabarátta gæti skýrt minni kjörsókn í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur að mati Baldurs Þórhallssonar, dósents í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hann segir erfitt að meta hvort minni kjörsókn henti einum flokki betur en öðrum. 12.5.2007 21:42
Móðurhjartað slær alltaf á réttum stað Edda Guðmundsdóttir, eiginkona Steingríms Hermannssonar og móðir Guðmundar Steingrímssonar, sagði í viðtali í kosningasjónvarpi Stöðvar tvö að móðurhjartað slægi alltaf á réttum stað þegar hún var spurð að því hvorn hún hefði nú kosið. 12.5.2007 21:25
Nokkuð minni kjörsókn í Reykjavík norður en suður Kjörsókn í Reykjavíkurkjördæmi norður klukkan 21 var 64,94 prósent sem er tæplega níu prósentustigum minna en á sama tíma fyrir fjórum árum. Alls höfðu 28.425 kosningabærra manna í kjördæminu neytt atkvæðisréttar síns í kjördæminu klukkan 21. 12.5.2007 21:16
Óánægja með vinnubrögð yfirkjörstjórnar á Suðurlandi Fyrr í dag kærðu vinstri grænir, samfylkingar- og framsóknarmenn Sjálfstæðismenn á Suðurlandi fyrir að miðla upplýsingum um kjörsókn út úr kjördeildum. Sigurður Vilhelmsson, umboðsmaður Framsóknarflokksins í Vestmannaeyjum er afar ósáttur með vinnubrögðin í málinu og átelur yfirkjörstjórn fyrir að taka ekki efnislega á kærunni. 12.5.2007 20:48
Kjörsókn nokkuð dræmari á höfuðborgarsvæðinu Kjörsókn í þeim þremur kjördæmum sem ná yfir höfuðborgarsvæðið er nokkru minni en fyrir fjórum árum. Þannig höfðu 27.487 kosið í Reykjavíkurkjördæmi norður klukkan 20 sem er 62,79 prósenta kjörsókn en á sama tíma árið 2003 höfðu 70,71 prósent kjósenda nýtt atkvæðisrétt sinn. 12.5.2007 20:39
Mjög góð kjörsókn í Grímsey Kjörstöðum hefur nú verið lokað á nokkrum stöðum á landinu, sérstaklega á minni og afskekktari stöðum. Í Grímsey var kjörsókn um 71,6 prósent en miðað við fjölda utankjörfundaratkvæða var kosningaþátttaka þar nánast 100 prósent. 12.5.2007 20:31
Um 30 þúsund manns voru í bænum þegar mest var Lögreglan í Reykjavík áætlar að um 30 þúsund manns í það minnsta hafi verið samankomin í miðborginni í dag að fylgjast með því Þega Risessan svokallaða reyndi að tjónka við föður sinn sem farið hafði um borgina og látið öllum illum látum. 12.5.2007 20:21
Skilaboð frá Bandaríkjunum Fréttamenn í dag glíma við tímaleysi, eigin tilfinningar og misvitra heimildarmenn. Þetta sögðu Dan Rather og Bob Woodward, tvær helstu stjörnur bandarískrar frétta- og blaðamennsku, þegar þeir ræddu við unga blaðamenn í Monteray í Kaliforníu nýlega. 12.5.2007 20:00
Deilt um auglýsingar á kjörstað Mikið stapp hefur staðið yfir í Njarðvík í allan dag vegna auglýsinga Sjálfstæðisflokksins í félagsheimili flokksins. Auglýsingarnar voru sýnilegar frá kjörstað og slíkt er óheimilt samkvæmt lögum. Nú fyrir stundu voru auglýsingarnar fjarlægðar. 12.5.2007 19:56
Mátti dúsa í dýflissu Þrítug tékknesk kona á yfir höfði sér átta ára fangelsisdóm fyrir að hafa hlekkjað átta ára son sinn nakinn niður og lokað hann í kjallara á heimili þeirra. Tilviljun ein réð því að nágrannar konunnar fundu strákinn. 12.5.2007 19:45
Danskir stjórnmálamenn á sögulegum tímamótum Á kjördegi Íslendinga standa danskir stjórnmálamenn á sögulegum tímamótum. Fækkað hefur í meirihluta forsætisráðherrans eftir að þingmenn hafa gengið til liðs við nýjan flokk. Haldi óróinn áfram gæti þurft að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. 12.5.2007 19:18
Geysispennandi kosningasjónvarp framundan Undirbúningur kosningasjónvarpsins er nú á lokaspretti og starfsfólk stöðvar 2 um allt land er í startholunum fyrir útsendinguna sem hefst klukkan níu. Sigríður Guðlaugsdóttir heimsótti myndverið á Lynghálsi, en þaðan verður fylgst náið með framvindu mála fram á rauða nótt. 12.5.2007 19:06
Barist í Karachi Vel á þriðja tug manna hafa fallið í átökum stjórnarandstæðinga og stuðningamanna ríkisstjórnarinnar í Karachi í Pakistan í dag. Upp úr sauð skömmu eftir að umdeildur dómari kom til borgarinnar til að funda með andstæðingum Musharrafs forseta. Dómaranum var vikið tímabundið úr starfi í vikunni og vakti það miklar reiði. 12.5.2007 19:04
Risessan farin til Frakklands Risessan sem arkað hefur um götur Reykjavíkurborgar undanfarna tvo sólarhringa er nú á heimleið. Áætlanir hennar um að reyna að lokka föður sinn með sér heim til Frakklands fóru öðruvísi en á horfðist í fyrstu. 12.5.2007 18:57
Hjúkrunarfræðingar vilja úr BHM Félag Íslenskra hjúkrunarfræðinga stefnir á úrsögn úr Bandalagi íslenskra háskólamanna. Á fulltrúaþingi félagsins á þriðjudaginn kom fram afdráttarlaus vilji fulltrúanna til þess. 12.5.2007 18:55
Um helmingur landsmanna hefur greitt atkvæði Um helmingur landsmanna hafði kosið í Alþingiskosningunum klukkan sex í dag. Kjörsókn er svipuð og í síðustu kosningum víðast hvar. Í Reykjavík er kjörsóknin þó ívið minni en 2003 en til þess þarf að taka að þá var kjörsóknin óvenjugóð. 12.5.2007 18:53
319 milljónir í boði fyrir upplýsingar um Madeleine Menn keppast nú við að bjóða verðlaun til handa þeim sem gefið gæti upplýsingar um hvar Madeleine McCann, er niðurkomin. 319 milljónir íslenskra króna, eru nú í boði fyrir upplýsingar sem varpað gætu ljósi á málið. 12.5.2007 17:24
Kjörsókn meiri í Norðausturkjördæmi Kjörsókn hefur gengið vel víðsvegar um landið en er heldur minni en fyrir fjórum árum ef undan er skilið Norðausturkjördæmi. Þar er kjörsókn umtalsvert meiri á Egilsstöðum og á Akureyri en í síðustu kosningum. 12.5.2007 16:52
Fórnarlömb árásarmanns í Virginia Tech fá prófskírteini Skólayfirvöld í Virginia Tech háskólanum hafa veitt nokkrum þeirra sem létu lífið í skotárásinnni í skólanum í síðasta mánuði prófgráður. Ættingjar hinna látnu tóku við prófskírteinum þeirra við hátíðlega athöfn í gær. 12.5.2007 15:51
Risessan reynir að róa pabba sinn Risinn er fundinn og nú freistar risessan, dóttir hans, þess að sannfæra hann um að koma með sér úr landi. Risinn hefur verið mjög pirraður síðan hann var vakinn upp og hefur skemmt bíla með hnífapörunum sínum. 12.5.2007 15:20
Sjálfstæðismenn á Suðurlandi kærðir Samfylkingin í Suðurkjördæmi hefur kært til yfirkjörstjórnar störf fulltrúa Sjálfstæðismanna í kjördeild á Selfossi, í Þorlákshöfn og Vestmanneyjum. Athugasemd er gerð við það að Sjálfstæðismenn miðli upplýsingum um kjörsókn út úr kjördeildum. 12.5.2007 15:13
Öflug sprenging í Árósum Einn mann sakaði þegar stór gaskútur sprakk nærri veitingastað við veðhlaupabrautina í Højbjerg í Árósum í Danmörku í morgun. Að sögn vitna var sprengingin mjög öflug og skók næsta nágrenni. Miklar skemmdir urðu á veitingahúsinu. 12.5.2007 15:09
Kjörsókn ívið minni víðast hvar Kosningar til Alþingis hafa gengið vel fyrir sig það sem af er. Kjörsókn hefur víðast verið heldur dræmari en fyrir fjórum árum ef undan er skilið Norðvesturkjördæmi þar sem kjörsókn hefur verið töluvert meiri og á Akureyri hafa nokkuð fleiri greitt atkvæði en árið 2003. 12.5.2007 14:34
Risessan leitar að pabba sínum Leit risessunnar að föður heldur áfram í dag en faðir hennar, risinn, hefur gengið berserksgang um borgina. Risessan hóf daginn á því að fara í sturtu áður en hún hélt af stað á nýjan leik. 12.5.2007 13:08
Nýjustu tölur á Vísi Á kosningavef Vísis verður í kvöld hægt að fylgjast með stöðunni í Alþingiskosningunum eins og hún er hverju sinni. Staðan verður uppfærð um leið og nýjar tölur berast og reiknað út hvaða frambjóðendur eru inni á þingi eins og staðan er á þeim tíma. 12.5.2007 12:47
Kaldo, en ekki Kaldi Maður af eistneskum uppruna hefur ítrekað orðið fyrir símaónæði vegna þess hve nafn hans líkist bjórnum sem bruggaður er á Árskógssandi. Hann heitir Kaldo en bjórinn Kaldi. 12.5.2007 12:45
Hagnaður Baugs dregist saman Hagnaður Baugs dróst saman um tvo þriðju í fyrra miðað við árið á undan að því er breska dagblaðið Daily Telegraph greinir frá í morgun. Þar er vitnað til gagna sem það hefur undir höndum sem afhent voru fulltrúum fyrirtækisins Blueheat sem er að yfirtaka matvælaþjónustuna Booker sem Baugur á stóran hlut í. 12.5.2007 12:45
Kæra í Suðurkjördæmi Samfylkinginn í Suðurkjördæmi undirbýr nú kæru vegna starfa fulltrúa Sjálfstæðismanna í kjördeild á Selfossi og í Vestmannaeyjum. 12.5.2007 12:21
Hvað má og hvað má ekki gera við kjörseðil Það getur vafist fyrir sumum hvað megi gera við kjörseðilinn og hvað ekki. Auðvelt er að gera kjörseðil ógildan með því að fara ekki rétt með hann. Þannig má ekki strika út frambjóðendur af öðrum listum en þeim eina sem kjósandi merkir við. 12.5.2007 12:11
Kosningasjónvarp með stæl á Stöð 2 Stöð tvö mun fjalla skilmerkilega um kosningarnar í kvöld. Kosningasjónvarpið hefst formlega klukkan níu. Þar verður boðið upp á skýringar á framvindu mála, auk skemmtunar fram á rauða nótt. Þá verður kosningavefur Vísis með nýjustu tölur á hverjum tíma. 12.5.2007 11:59
Ingibjörg Sólrún kaus í Hagaskóla Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar hefur greitt sitt atkvæði í Alþingiskosningunum. Hún mætti í Hagaskóla á ellefta tímanum og kaus í 5. kjördeild. 12.5.2007 11:30
Geir Haarde kaus í Hagaskóla Geir Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins mætti á kjörstað í Hagaskóla fyrir stundu til þess að greiða atkvæði sitt í kosningunum. 12.5.2007 11:21
Útgerðarfyrirtæki vísar ásökunum á bug Vísir hf. í Grindavík vísar á bug ásökunum sem fram komu í frétt Stöðvar 2 í gærkvöldi. Í fréttinni var sagt frá því að fyrirtækið hafi landað þorski og gefið upp sem ufsa. Í yfirlýsingu sem borist hefur fyrirtækinu er þessu vísað alfarið á bug. 12.5.2007 11:09
Sögulegt samkomulag Rússar, Túrkmenar og Kasakar hafa náð sögulegu samkomulagi um lagningu nýrrar gasleiðslu meðfram strönd landanna við Kaspíahaf. Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, greindi frá þessu á fundi leiðtoga Mið-Asíuríkja í Túrkmenistan í morgun. 12.5.2007 11:00
Simbabve stjórnar sjálfbærri þróun fyrir SÞ Afríkuríkið Simbabve var í gær valið til formennsku í nefnd Sameinuðu þjóðanna um málefni sjálfbærrar þróunar. Álfur heims skiptast á að fara fyrir nefndinni og var komið að Afríku. 12.5.2007 10:45
Ómar kaus í Laugardalshöll Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, mætti á kjörstað nú fyrir stundu til að greiða sitt atkvæði í Alþingiskosningunum. Ómar kaus í Laugardalshöllinni. 12.5.2007 10:31
Gíslatöku lauk án blóðbaðs Umsátri við sendiráð Rússa í San Jose, höfuðborg Kosta Ríka, lauk í nótt þegar tvítugur maður frá Kirgistan, sem hafi tekið annan mann í gíslingu þar, gaf sig fram við lögreglu. 12.5.2007 10:30
Samkomulag næst um stjórn í Serbíu Forseti Serbíu, Boris Tadic, tilkynnti í dag að samkomlag hefði nást á milli flokks hans og flokks fráfarandi forsætisráðherra, Voijslav Kostunica, um að Kostunica muni gegna embætti í eitt kjörtímabil í viðbót. Einnig mun lítill flokkur teknókrata bætast í hópinn og flokkarnir þrír mynda því með sér ríkisstjórn. 11.5.2007 23:30
Föðurlandið, sósíalismi eða dauði! Venesúela hefur tekið sér slagorð forseta landsins, Hugo Chavez, „Föðurlandið, sósíalismi eða dauði“ sem opinbera kveðju landsins. Það er talið merki um aukin völd Chavez í opinberum stofnunum í landinu. Slagorðið er afleiða af slagorði Fidels Castro, forseta Kúbu, „Föðurland eða dauði, Við munum sigra“ og er nú notað á öllum fundum Chavez. 11.5.2007 23:00
Gæslan keypti búnað til að slökkva gróðurelda Landhelgisgæslan hefur fengið búnað til að nota í þyrlum Landhelgisgæslunnar sem er sérstaklega hannaður til að slökkva gróðurelda. Um er að ræða sérhannaða fötu sem notuð er í þessum tilgangi. Hún rúmar alls 2000 lítra af vatni. 11.5.2007 22:30
Ríkisstjórnin missir þingmeirihluta samkvæmt könnun Gallup Ríkisstjórnin missir þingmeirihluta sinn samkvæmt niðurstöðum síðustu raðkönnunar Gallup fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið, sem gerð var dagana 9. til 10. maí. Þetta kom fram í fréttum Ríkssjónvarpsins í kvöld. 11.5.2007 22:00
Stjórn Alþjóðabankans vill að Wolfowitz segi af sér Meirihluti þeirra landa sem eiga sæti í stjórn Alþjóðabankans finnst að Paul Wolfowitz, forseti bankans, eigi að segja af sér. Einn af meðlimum stjórnarinnar, sem kemur frá þróunarlandi, sagði að meirihluti meðlima væru á þessari skoðun. „Við erum þeirrar trúar að Alþjóðabankinn geti ekki haldið áfram undir stjórn Hr. Wolfowitz.“ sagði hann enn frekar. Lokaákvörðun um framtíð Wolfowitz verður tekin í næstu viku. 11.5.2007 21:45