Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Risessa á ferð um miðborgina Átta metra há og tignarleg risessa hægði á umferð í miðborginni í dag. Tafirnar verða ekki minni á morgun þegar berserkurinn faðir hennar slæst í för. 11.5.2007 20:11
Mátti dúsa í dýflissu Þrítug tékknesk kona á yfir höfði sér átta ára fangelsisdóm fyrir að hafa hlekkjað átta ára son sinn nakinn niður og lokað hann í kjallara á heimili þeirra. Tilviljun ein réð því að nágrannar konunnar fundu strákinn. 11.5.2007 19:30
MND sjúklingur fer heim eftir margra mánaða bið Útlit er fyrir að 63 ára MND sjúklingur sem dvalið hefur á taugadeild Landspítalans hátt í 10 mánuði fái nú loks að dvelja heima hjá fjölskyldu sinni alla daga vikunnar. Kópavogsbær hefur útvegað honum fulla heimahjúkrun, en fjölskylda hans hefur sóst eftir að fá slíka þjónustu í fleiri mánuði. 11.5.2007 19:07
Brown vill leiða ríkisstjórn Gordon Brown, fjármálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, hellti sér í morgun formlega í slaginn um leiðtogaembættið í Verkamannaflokknum. Talið er að hann eigi greiða leið í embættið og takið við forsætisráðuneytinu af Tony Blair í lok júní. Blair tilkynnti um afsögn sína í gær. 11.5.2007 18:45
Jónas áfram formaður Ekki er útilokað að Jónas Garðarsson setjist aftur í formannsstól Sjómannafélags Reykjavíkur þegar hann hefur afplánað sína refsingu. Jónas var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. 11.5.2007 18:45
Talsmenn flokkanna allir bjartsýnir Talsmenn stjórnmálaflokkanna eru allir bjartsýnir á úrslit kosninganna á morgun. Síðustu klukkustundirnar er lögð áhersla á að ganga maður á mann, gefa blöðrur, forstpinna og annan varning merktum flokkunum. 11.5.2007 18:43
Trúarhópar takast á í Egyptalandi Að minnsta kosti 10 kristnir Egyptar særðust í átökum á milli trúarhópa í þorpi nálægt Kaíró. Kristnir ætluðu sér að byggja kirkju í þorpinu án þess að hafa fyrir því tilskilin leyfi og því brutust átökin út. Kveikt var í fjórum húsum í þropinu Behma í átökunum sem blossuðu upp í morgun, stuttu eftir að bænastund múslima var lokið. 11.5.2007 17:57
Verulegar líkur á hryðjuverkaárás í Þýskalandi Samkvæmt fréttum á vefsíðu ABC fréttastöðvarinnar er veruleg hætta á hryðjuverkaárás á bandarísk skotmörk í Þýskalandi. Talið er að hryðjuverkamennirnir ætli sér að ráðast gegn herstöðinni Patch Barracks, með því takmarki að valda sem mestum mannskaða. 11.5.2007 17:42
Tveir leiðtogar á leið út funduðu í París Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom til Frakklands í dag til að kveðja Jacques Chirac, fráfarandi Frakklandsforseta, og ræða við Nicolas Sarkozy, arftaka Chiracs. Vel virtist fara á með þeim Chirac og Blair í heimsókninni en Blair er eins Chirac á leið af valdastóli. 11.5.2007 16:46
Norðmenn munu leyfa hjónabönd samkynheigðra Norska ríkisstjórnin er að undirbúa löggjöf þar sem samkynhneigðir fá sömu réttindi og gagnkynheigðir, til hjónavígslu í kirkju. Norska blaðið Aftenposten segir að þessar fréttir hafi lekið út um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar. Varaformaður Kristilega þjóðarflokksins segir að þeir séu í losti yfir þessum tíðindum, og muni berjast með kjafti og klóm gegn frumvarpinu. 11.5.2007 16:29
Vonast til að klára atkvæðatalningu á minna en tólf klukkustundum Reiknað er með því að búið verði að telja öll atkvæði í kosningunum á morgun fyrir klukkan fjögur aðfaranótt sunnudags. Formaður kjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður segist þó vona að hægt verði að ljúka talningu mun fyrr. 11.5.2007 16:25
Vinnuslys við brúnarústirnar í miðbæ Reykjavíkur Karlmaður slasaðist í dag þegar hann féll af vinnupalli við rústir húsanna sem brunnu í eldsvoðanum í miðbæ Reykjavíkur. Maðurinn féll niður þrjá metra. 11.5.2007 16:01
Varað við mikilli umferð í miðborginni á morgun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við mikilli umferð á morgun, sérstaklega í miðbæ Reykjavíkur þar sem saman fara kosningar og viðburðir á Listahátíð. 11.5.2007 15:57
Vill hermenn bandamanna áfram í Írak Forseti Íraks sagði í dag að land hans þyrfti bandaríska og breska hermenn í eitt eða tvö ár til viðbótar, til þess að gæta öryggis í landinu. Jalal Talabani lét þess orð falla í ræðu sem hann flutti í Cambridge háskóla, í Bretlandi. "Ég tel að á næsta einu til tveim árum getum við styrkt okkar eigin her og kvatt vini okkar," sagði forsetinn. 11.5.2007 15:32
Vegagerðinni gert skylt að mæla mengun við Gjábakkaveg Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar frá því í maí 2006 varðandi mat á umhverfisáhrifum Gjábakkavegar. Telur ráðherra að vegurinn muni ekki hafa umtalsverð umhverfisáhrif. Vegagerðinni er þó gert skylt að gera mælingar á ákomu loftaðborinnar köfnunarefnismengunar áður en framkvæmdir hefjast. 11.5.2007 15:22
Rætt um framtíð ratsjárkerfis í dag Íslensk yfirvöld héldu í dag áfram viðræðum við Bandaríkjamenn um framtíð ratsjár- og loftvarnarkerfisins á landinu. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu fóru viðræðurnar fram í Reykjavík og var áfram var rætt um fyrirkomulag og fjármögnun á kerfinu og miðaði viðræðum vel áfram. 11.5.2007 15:13
Bandaríkjamenn viðurkenna að hafa drepið borgara Hersveitir Bandaríkjamanna í Afganistan hafa viðurkennt að hafa drepið borgara í loftárásum á uppreisnarmenn talibana í suðurhluta landsins fyrr í vikunni. Í yfirlýsingu frá sveitunum kemur ekki fram hversu margir hafi látist. 11.5.2007 15:07
Dæmd fyrir að draga sér fé Kona var í Héraðsdómi Austurlands í gær dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik upp á nærri 300 þúsund krónur. 11.5.2007 14:51
Metþátttaka í utankjörstaða- atkvæðagreiðslu Mjög góð kjörsókn hefur verið í utankjörstaðaatkvæðagreiðslum í Reykjavík og á Akureyri. Nú þegar hafa mun fleiri kosið en á sama tíma í síðustu bæjar- og sveitarstjórnarkosningum. 11.5.2007 14:43
Franskir framámenn kátir við kjötkatlana Franska þjóðin virðist ekkert kippa sér upp við það að nýkjörinn forseti hennar skuli nú lifa í vellystingum pragtuglega á risastórri snekkju á Miðjarðarhafi. Snekkjan er í eigu auðkýfings sem er persónulegur vinur Nikulásar Sarkozys. Forsetinn pakkaði niður og flaug með einkaþotu til Möltu innan við 24 klukkustundum eftir að hann sigraði í forsetakosningunum. 11.5.2007 14:41
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að framvísa ógildu ökuskírteini Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa framvísað ógildu ökuskírteini þegar lögregla hafði afskipti af honum. 11.5.2007 14:40
Hafravatnsvegur lokaður við Vesturlandsveg Aðkoman að Hafravatnsvegi verður lokuð við Hringtorgi á Vesturlandsvegi frá og með mánudeginum og til 12. júní. Þetta er vegna framkvæmda við gatnagerð og veitulagnir eftir því sem segir á vef framkvæmdasviðs borgarinnar. 11.5.2007 13:45
Erlendir verkamenn fái upplýsingar um réttindi sín Tryggja verður að erlendir verkamenn á Íslandi fái nægar upplýsingar um réttindi sín og skyldur við komuna til landsins. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu starfshóps á vegum félagsmálaráðherra sem fjallaði um málefni útlendinga á íslenskum vinnumarkaði. Í skýrslunni eru lagðar fram fjölmargar tillögur hvernig bæta megi starfskjör útlendinga hér á landi og yfirsýn stjórnvalda yfir málaflokknum. 11.5.2007 13:34
Dæmdur fyrir að vera með dóp í fangaklefa Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag fanga á Litla-Hrauni í eins mánaðar fangelsi fyrir að hafa haft í tvígang fíkniefni í klefa sínum. Fangaverðir fundu efnin við leit í klefanum. 11.5.2007 13:15
Hljóðfæri úr drasli vesturlandabúa á Listahátíð Hljómsveitin Konono N°1 heldur tónleika í porti Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í kvöld. Hljómsveitin er frá Kinshasa í Kongo og hlaut verðlaun sem besti nýliðinn í heimstónlist hjá breska ríkisútvarpinu BBC í fyrra. Þeir spila einnig á nýjustu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Volta. 11.5.2007 13:07
Villtist á leið að vændishúsi Lögreglan á Spáni stöðvaði á dögunum fjölfatlaðan mann sem var á leið í hjólastól sínum til vændishúss í næsta nágrenni. Maðurinn var einn á ferð og hafði villst á leiðinni og var kominn út á hraðbraut. 11.5.2007 13:00
Hálfs árs fangelsi fyrir vörslu mikils fjölda barnaklámmynda Héraðsdómur Suðurlands dæmdi dag karlmann í hálfs árs fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðsbundna, fyrir vörslu mikils fjölda barnaklámmmynda. Alls fundust rúmlega 6500 ljósmyndir og nærri 180 hreyfimyndir með barnaklámi í tölvum mannsins og hörðum diski við skoðun lögreglu. 11.5.2007 12:45
Hola í veginum Það verður varasamt af aka um hraðbrautina í Harris-sýslu í Indiana í Bandaríkjunum næstu daga en gríðarstór hola hefur opnast þar á miðjum veginum. Yfirvöld segja þetta einsdæmi þar. 11.5.2007 12:45
Krían komin á Nesið Krían er komin vestast á Seltjarnarnesið. Vegfarandi sem var í göngutúr þar í morgun og hafði samband við fréttastofu sagðist hafa orðið var við hana og að hún hefði kallað á sig. 11.5.2007 12:45
Hvað gerir kjörseðil ógildan Kjósendur rita stundum tákn eða skilaboð á kjörseðla þegar þeir kjósa í kosningum. Allt slíkt ógildir kjörseðilinn. Hægt er að strika frambjóðendur út af listum, en einungis af þeim lista sem kjósandi setur X við. Ef fiktað er í öðrum listum verður seðillinn ógildur. 11.5.2007 12:39
NASA kynnir arftaka Hubble geimsjónaukans Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur kynnt James Webb geimsjónaukann sem ætlað er að leysa Hubble af hólmi. 11.5.2007 12:35
Verðlaunafé boðið Breskur auðjöfur hefur heitið jafnvirði tæplega hundrað og þrjátíu milljóna króna fyrir upplýsingar sem gætu leitt lögreglu í Portúgal að þriggja ára breskri stúlku sem hvarf þar fyrir rúmri viku. Leitin að Madelein McCann hefur ekki borið árangur og portúgalska lögreglan hefur dregið úr umfangi hennar. 11.5.2007 12:16
Menn víða sammála Eiríki á Vesturlöndum Víða á Vesturlöndum eru menn sammála Eiríki Haukssyni söngvara um að austurblokkin svonefnda hafi með sér óeðlilegt samstarf við atkvæðagreiðlu í Júróvision keppninni. Eiríkur lýsti því við mafíu og sagði að að lög frá Mið- og Vestur-Evrópu ættu ekki lengur möguleika í keppninni. 11.5.2007 12:15
Mikil hreyfing á kjósendum samkvæmt könnunum Mikil hreyfing er á kjósendum samkvæmt þeim skoðanakönnunum sem birst hafa undanfarna daga. Capacent Gallup mælir minni fylgisaukningu við Samfylkinguna en Félagsvísindastofnun og mælir Framsóknarflokkinn með meira fylgi en Félagsvísindastofnun gerir. 11.5.2007 12:03
Eldar geysa undan ströndum Kaliforníu Mikill eldur varð þó nokkrum heimilum að bráð á Santa Catalina eyju í Kyrrahafi rétt utan við Los Angeles í nótt. Íbúum 12 hundruð heimila var fyrirskipað að yfirgefa þau og hundruðir manna bíða nú eftir ferju til meginlandsins. Herinn sendi tólf slökkviliðsbíla með svifnökkvum rúmlega fjörtíu km sjóleiðina frá ströndum Kaliforníu. 11.5.2007 11:42
Grænlenskur bær settur í þurrkví Grænlenska landstjórnin hefur lokað fyrir allar vínveitingar og áfengissölu í bænum Quaanaaq. Það erdönsk kennslukona sem stendur á bakvið þessá ákvörðun. Karen Littauer hefur nýlokið við að halda þriggja mánaða námskeið fyrir börn og unglinga í Quaanaaq. Henni var brugðið við áfengisneyslu íbúanna, og fór með málið í fjölmiðla. 11.5.2007 11:35
Gaman hjá Sir Alex Fótboltastjórinn Sir Alex Ferguson hefur í samvinnu við nokkra aðra auðmenn keypt 279 breska pöbba. Kaupverðið er um níu milljarðar íslenskra króna. Meðal annarra kaupenda er Idol dómarinn Simon Cowell. Seljandi er Marstons brugghúsið. 11.5.2007 11:27
Karlmaður slasast í bílveltu Karlmaður á tvítugsaldri slasaðist þegar bíll sem hann ók valt við bæinn Vindhæli á Skagastrandarvegi um hálf sjöleytið í morgun. Bíllinn er talinn gjörónýtur. 11.5.2007 11:27
Fagna umbótaríkisstjórn í Serbíu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fagnar þreifingum Serba að mynda umbótaríkisstjórn í landinu sem er fylgjandi Evrópu. Framkvæmdastjórnin gaf í skyn möguleika á að taka strax aftur upp viðræður við slíka stjórn. Yfirlýsing þess efnis var gefin út í kjölfar óstaðfestra frétta í serbnesku sjónvarpi. 11.5.2007 11:09
Risessan lögð af stað Átta metra dúkkan Risessa fór á flakk um götur borgarinnar um nú í morgun að viðstöddum miklum fjölda áhorfenda. Risessan er hluti af stórsýningu franska götuleikhússins Royal de Luxe sem standa mun í dag og á morgun 11.5.2007 11:05
Uggvænleg tíðindi fyrir neytendur Almennar hækkanir á mat- og drykkjavörum í síðasta mánuði eru uggvænleg tíðindi fyrir neytendur að sögn talsmanns neytenda. Hann segir nauðsynlegt að veita verslunum varanlegt aðhald til þess að koma í veg fyrir að þær hirði ávinning neytenda af skattalækkununum. 11.5.2007 10:55
Ekki fleiri lík takk Vísindamenn við hollenskt sjúkrahús hafa beðið fólk að hætta að ánafna spítalanum líkamsleifar sínar í þágu vísinda. Ástæðan er plássleysi á Háskólaskjúkrahúsinu sem er í Leiden. Yfirmenn sjúkrahússins segja að þeir muni ekki taka við fleiri líkum þar sem hvergi sé pláss fyrir þau. 11.5.2007 10:42
Gvuuð hvað við erum feitar Tvær stúlkur við Framingham háskólann í Massachusetts í Bandaríkjunum, urðu skelfingu lostnar þegar þær sáu bera maga sína á forsíðu skólablaðsins. Þær höfðu þó berað maga sína sjálfviljugar, ásamt fimm vinkonum sínum. Það gerðu þær á íþróttakappleik. Þar hvöttu þær sitt lið, en þó einkum einn leikmanninn. Þær skrifuðu nafn hans á maga sér...einn bókstaf á hvern maga. 11.5.2007 10:38
Moore rannsakaður vegna Kúbuferðar Bandaríska ríkisstjórnin hefur hafið rannsókn á ferðalagi kvikmyndagerðarmannsins Michael Moore til Kúbu. Hann fór þangað í mars vegna vinnslu á kvikmynd um heilbrigðisþjónustu í Bandaríkjunum. Moore, sem gerði meðal annars myndina „Fahrenheit 9/11“, en í henni réðst hann gegn stjórn George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, ku hafa brotið lög með ferðalagi sínu. 10.5.2007 23:27
Hvað er erfðamengun? Margar tegundir lífvera mynda staðbundna stofna. Stofnar þessir eru oft vel erfðafræðilega aðgreindir frá öðrum slíkum stofnum. Sá munur stafar af erfðafræðilegri einangrun og náttúruvali. Þannig verða stofnar aðlagaðir að því umhverfi sem þeir búa við og gerist sú aðlögun með náttúruvali. 10.5.2007 23:27