Fleiri fréttir Varnarasamkomulag við Dani og Norðmenn í höfn Samningar um varnarsamstarf Íslendinga við Dani og Norðmenn verða undirritaðir á fimmtudaginn á NATO fundi í Ósló. Ekki fæst gefið upp hvað felst í þeim fyrr en eftir undirritun. Samkvæmt norska blaðinu Aftonposten felur samkomulagið við Norðmenn það í sér að norski flughersinn sjái um eftirlit í lofthelgi Íslands á friðartímum. 24.4.2007 12:00 SAMAN hópurinn fær Íslensku lýðheilsuverðlaunin Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 voru veitt við hátíðlega athöfn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun. Handhafi verðlaunanna í ár er SAMAN hópurinn og veitti Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hópnum verðlaunin fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra. 24.4.2007 11:50 Einmana börn frekar fórnarlömb kynferðisbrota Á síðustu fimmtán mánuðunum hefur tuttugu og eitt kynferðisbrotamál verið kært þar sem gerandi komst í kynni við fórnarlambið í gegnum netið. Sérfræðingur Barnahúss telur einmana börn frekar verða fórnarlömb í slíkum málum þar sem þau hafi oft lága sjálfsmynd og eigi erfitt með að segja nei. Einmana börn voru umræðuefnið á morgunverðarfundi á Grand hóteli í morgun. 24.4.2007 11:30 Svíar skila fornmunum til Íslands Hundruð íslenskra fornmuna sem hafa verið geymslu í Det Nordiske Museum í Stokkhólmi verða fluttir hingað til lands á næstunni. Munirnir verða gefnir Þjóðminjasafni Íslands og er það samkvæmt samkomulagi íslenskra og sænskra stjórnvalda. 24.4.2007 11:21 Leiðtogar minnast Jeltsíns 24.4.2007 11:09
Monday Blues 23.4.2007 15:21 Vilja stýrimannanám til Vestmannaeyja Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja vill hefja stýrimannanám í Vestmannaeyjum. Þannig yrði samstarf milli Fjöltækniskólans í Reykjavík og Framhaldsskóla Vestmannaeyja, en námið yrði hluti af stúdentsprófi. Nú er einungis hægt að sækja skipstjórnarnám í Fjöltækniskólanum í Reykjavík. Elliði segir að það hafi orðið til þess að stöðugt hafi dregið úr aðsókn í námið. 23.4.2007 15:20 Silja verðlaunuð fyrir Wuthering Heights Silja Aðalsteinsdóttir hlaut í dag, á degi bókarinnar, Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu sína á verkinu Wuthering Heights eftir Emily Brontë sem Bjartur gaf út á síðasta ári. Silja tók við verðlaununum úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, við athöfn að Gljúfrasteini fyrr í dag. 23.4.2007 14:56 Sektaður fyrir að valda hættu og hneykslan 17 ára drengur frá Mosfellsbæ var í dag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til að greiða 30 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir brot á áfengis- og umferðarlögum. Hann var ákærður fyrir að valda „hættu og hneykslan á almannafæri”, eins og segir í ákæru, með því að sitja uppi í afturrúðu bifreiðar sem ók eftir Austurvegi á Selfossi í desember 2006. 23.4.2007 14:26 Litríkur forseti látinn Boris Jeltsín , fyrrverandi forseti Rússlands, er látinn. Þessi umdeildi leiðtogi Rússlands varð 76 ára gamall. Hann var fyrsti þjóðkjörni forseti landsins og sat tvö kjörtímabil sem einkenndust af miklum átökum, bæði innan lands og utan. 23.4.2007 13:47 Óttast átök gyðinga og kaþólskra 23.4.2007 13:42 12 ára gamall böðull Talibanar í Afganistan notuðu tólf ára gamlan dreng sem böðul, þegar þeir tóku af lífi mann sem var sakaður um að hafa aðstoðað bandaríska hermenn. Drengurinn hjó höfuðið af manninum, og var það tekið upp á myndband. 23.4.2007 13:15 Sarkozy með forskot á Royal Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægrimanna, og Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista, berjast um franska forsetaembættið í seinni umferð kosninga þar í landi eftir hálfan mánuð. Kosningabarátta þeirra er þegar hafin. Samkvæmt nýjum skoðanakönnunum hefur Sarkozy allt að sex prósentustiga forskot á Royal. 23.4.2007 12:49 Söguleg bankaviðskipti Samið var um ein stærstu kaup í sögu bankaviðskipta í morgun þegar tilboð breska Barclays bankans í hollenska bankann ABN AMRO var samþykkt. Kaupverðið nemur jafnvirði sex þúsund milljarða íslenskra króna. Royal Bank of Scotland gæti þó boðið betur og bolað Barclays frá samningaborðinu 23.4.2007 12:42 Sjá næstu 50 fréttir
Varnarasamkomulag við Dani og Norðmenn í höfn Samningar um varnarsamstarf Íslendinga við Dani og Norðmenn verða undirritaðir á fimmtudaginn á NATO fundi í Ósló. Ekki fæst gefið upp hvað felst í þeim fyrr en eftir undirritun. Samkvæmt norska blaðinu Aftonposten felur samkomulagið við Norðmenn það í sér að norski flughersinn sjái um eftirlit í lofthelgi Íslands á friðartímum. 24.4.2007 12:00
SAMAN hópurinn fær Íslensku lýðheilsuverðlaunin Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 voru veitt við hátíðlega athöfn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun. Handhafi verðlaunanna í ár er SAMAN hópurinn og veitti Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hópnum verðlaunin fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra. 24.4.2007 11:50
Einmana börn frekar fórnarlömb kynferðisbrota Á síðustu fimmtán mánuðunum hefur tuttugu og eitt kynferðisbrotamál verið kært þar sem gerandi komst í kynni við fórnarlambið í gegnum netið. Sérfræðingur Barnahúss telur einmana börn frekar verða fórnarlömb í slíkum málum þar sem þau hafi oft lága sjálfsmynd og eigi erfitt með að segja nei. Einmana börn voru umræðuefnið á morgunverðarfundi á Grand hóteli í morgun. 24.4.2007 11:30
Svíar skila fornmunum til Íslands Hundruð íslenskra fornmuna sem hafa verið geymslu í Det Nordiske Museum í Stokkhólmi verða fluttir hingað til lands á næstunni. Munirnir verða gefnir Þjóðminjasafni Íslands og er það samkvæmt samkomulagi íslenskra og sænskra stjórnvalda. 24.4.2007 11:21
Háhýsi í stað gömlu húsanna í miðbænum Lítið lát er á hugmyndum landsmanna um húsakost við Lækjartorg og sýnist sitt hverjum hvort varðveita eigi gömlu húsin á horni Lækjargötu og Austurstrætis eða byggja þar ný hús. Arkitektar og skipulagsfræðingar kasta nú á milli sín margskonar hugmyndum í þessu efni. Þær byggja meðal annars á hugmyndum Hrafns Gunnlaugssonar um stórhýsi á grunnum brunarústanna við Lækjartorg. 24.4.2007 11:06
Árituð smásaga eftir Kjarval boðin upp Á uppboðsvefnum ebay.com er nú til sölu hefti eftir Jóhannes S. Kjarval sem ber heitið „Hvalasagan frá átján hundruð nítíu og sjö,“ auk fleiri muna. Innan á kápu heftisins er áritun frá Kjarval til Ástu, sem eigandi heftisins, sem ekki vill láta nafns síns getið, telur að sé amma sín. Hann segir heftið einstakt, ekki síst vegna áritunarinnar, og opnunarboðið á ebay hljóðar upp á 58.500.00 dollara, eða tæpar 3,8 milljónir íslenskra króna. 24.4.2007 10:57
Fólk tvírukkað fyrir skil á ónýtum dekkjum Brögð eru að því að dekkjaverkstæði rukki fólk fyrir að skila inn ónýtum dekkjum þrátt að þau gjöld séu innifalin í kaupverði dekkjanna að sögn verkefnastjóra Úrvinnslusjóðs. Fólk er því í sumum tilvikum að tvígreiða úrvinnslugjaldið. 24.4.2007 10:51
Of mikil skerðing á þjónustu Strætós Fulltrúar minnihluta borgarstjórnar telja að skerðing á þjónustu Strætós næstkomandi sumar muni leiða til fækkunar farþega. Til stendur að lengja tíma milli ferða upp í 30 mínútur. Breytingarnar taka gildi 1. júní næstkomandi. Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna eru alfarið á móti breytingunum og telja of langt gengið. 24.4.2007 10:48
Minnkandi verðbólga og vaxandi atvinnuleysi Vaxandi atvinnuleysi og minnkandi verðbólga í kjölfar kólnun hagkerfisins mun einkenna íslenskt efnhagslíf á næstu árum. Þetta kemur fram í nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins sem birt var í dag. Gert er ráð fyrir miklum samdrætti í fjárfestingum á næsta ári. 24.4.2007 10:27
Veðjað á nafn nýfæddrar prinsessu Það má telja næsta öruggt að nýfædd prinsessa í Danmörku, dóttir Friðriks krónprins og Maríu Elísabetar krónprinsessu, beri nafnið Margrét ef marka má veðbankann Ladbrokes. 23.4.2007 23:01
Hillary og Obama njóta jafnmikils stuðnings Öldungadeildarþingmaðurinn Barack Obama, sem sækist eftir að verða forsetaefni demókrata í kosningum í Bandaríkjunum á næsta ári, nýtur nú jafnmikilla vinsælda og Hillary Clinton, starfssystir hans, sem einnig sækist eftir útnefningu demókrata. 23.4.2007 22:42
NASA birtir þrívíddarmyndir af sólinni Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, birti dag fyrstu þrívíddarmyndirnar sem teknar hafa verið af sólinni. Myndirnar voru teknar með tveimur gervitunglum sem eru hvort sínum megin sólarinnar en með því að hafa þá þannig og taka mynd náði Nasa dýptinni í myndunum. 23.4.2007 22:31
Hörpudiskur hrynur vegna sníkjudýrasýkingar Sníkjudýrasýking er talin orsökin fyrir því að hörpuskeljastofninn í Breiðafirði hafi hrunið eftir því sem segir á vef Skessuhorns. 23.4.2007 22:03
Ræður sér lögfræðing til að tryggja starfslok sín Paul Wolfowitz, bankastjóri Alþjóðabankans, hefur ráðið sér lögfræðing til þess að gæta hagsmuna sinna fari svo að hann verði rekinn frá bankanum. 23.4.2007 21:50
Staðfastur í friði, frelsi og framförum „Hann hélt um stjórnartaumana á erfiðum tímum en sagan mun bera honum fagurt vitni því hann var hugrakkur og staðfastur í helstu áherslumálum sínum, friði, frelsi og framförum," sagði Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, í yfirlýsingu í dag í kjölfar fráfalls Borísar Jeltsíns, fyrrverandi forseta Rússalands. 23.4.2007 21:30
Fórnarlambanna í Virgina Tech minnst í skólanum í dag Nemendur og kennarar við Virgina Tech háskólann minntust í dag þeirra 33 sem létust í skotárás í skólanum fyrir viku. Lítill hópur kom saman um klukkan sjö í morgun við heimavistina þar sem Cho Seung-hui lét fyrst til skarar skríða og drap tvo. 23.4.2007 21:05
Telja hugsanlegt að Íranar hafi rænt fyrrverandi FBI-manni Bandaríkjastjórn telur hugsanlegt að fyrrverandi starfsmaður bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, sé í haldi Írana. Þetta hefur Reuters-fréttaveitan eftir ónafngreindum heimildarmanni í bandaríska utanríkisráðuneytinu. 23.4.2007 20:19
Fólk í öllum skápum á Akureyri Það er allt gistirými uppbókað, ég held að það sé fólk í öllum skápum hjá okkur líka, segir hótelstjóri á Akureyri. Nýliðinn vetur er enda sá besti sem menn muna í ferðaþjónustu norðan heiða. 23.4.2007 20:00
Matvöruþjófnaður reyndist dýrkeyptur Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa stolið mat úr verslun Hagkaupa í Kringlunni að verðmæti rúmlega fimm þúsund krónur. 23.4.2007 20:00
Átti marga aðdáendur og fjendur Boris Jelstín, fyrrverandi Rússlandsforseti, lést í dag, 76 ára að aldri. Ekkert hefur verið gefið formlega út um banamein hans en líklegast talið að hjarta Jeltsíns hafi gefið sig. Óhætt er að segja að hann hafi átt sér bæði ótalda aðdáendur og fjendur enda litríkur maður sem þótti oft á tímum sýna einræðistilburði. 23.4.2007 19:45
Þrír létust í flugeldasprengingum í Napólí Þrír létust þegar sprenging varð í flugeldaverksmiðju í Napólí á Ítalíu í dag. Eftir því sem ANSA-fréttastofan greinir frá flugu líkamshlutar mörg hundð metra í sprengingunum og rúður í nærliggjandi veitingastöðum brotnuðu. 23.4.2007 19:31
Stuðningur Bayrou gæti ráðið úrslitum Svo virðist sem miðjumaðurinn Francois Bayrou ráði miklu um hver verði næsti forseti Frakklands þó hann hafi ekki náð í seinni umferð kosninganna. Stuðningur hans gæti ráðið úrslitum að mati stjórnmálaskýrenda. Valið stendur milli hægrimannsins Nicolas Sarkozy og sósíalistans Segolen Royal. 23.4.2007 19:30
Þrjú þúsund látast í umferðinni á degi hverjum Á hverjum degi látast þrjú þúsund manns í umferðarslysum í heiminum og gert er ráð fyrir að á hverri mínútu slasist eitt barn alvarlega í umferðinni. Alþjóðleg umferðarvika hófst í dag en sérstök áhersla er á umferðaröryggi í þróunarlöndum. 23.4.2007 19:20
Þjóðarsorg í Rússlandi á miðvikudag vegna fráfalls Jeltsíns Vladímír Pútín Rússlandsforseti greindi frá því í dag að lýst yrði yfir þjóðarsorg á miðvikudag vegna fráfalls Borísar Jeltíns, forvera hans í embætti, sem lést í dag. 23.4.2007 19:13
Fækka þarf apótekum um þriðjung Fækka þarf apótekum á Íslandi um þriðjung til að lækka lyfjaverð, segir formaður Lyfjagreiðslunefndar. Lyf á Íslandi eru sextíu prósentum dýrari en lyf að meðaltali á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta kemur fram í nýútkominni könnun Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. 23.4.2007 18:57
Varnarsamkomulag mögulega í höfn Líklegt má telja að samkomulag um varnarsamstarf Íslands og Noregs á Norður-Atlantshafi takist á fundi Atlantshafsbandalagsþjóða sem haldinn verður í Ósló í Noregi í lok vikunnar. Þá munu Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, og Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, eiga tvíhliða fund. 23.4.2007 18:56
Enginn útlendingahatursflokkur Við erum enginn útlendingahatursflokkur sagði frambjóðandi Frjálslynda flokksins á vinnustaðafundi í dag. Innflytjenda- og sjávarútvegsmál voru frambjóðendum flokksins ofarlega í huga á fundinum en fundarmenn höfðu meiri áhuga á að ræða hvort svonefnt kaffibandlag stjórnarandstöðuflokkanna haldi. 23.4.2007 18:56
Telur eðlilegt að skoða leyfi eigi staðgöngumærðun Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra telur eðlilegt að skoða hvort að leyfa eigi konum að ganga með barn annarrar konu. Slíkt er óheimilt hér á landi. 23.4.2007 18:39
Á þriðja þúsund manns hafa sótt um vinnu Undirbúningur að umhverfismati fyrir álver Alcoa á Húsavík er að hefjast eftir að fyrirtækið ákvað að hefja þriðja áfanga að undirbúningi að byggingu álvers þar. Hátt á þriðja þúsund manns hafa sótt um starf hjá Alcoa Fjarðaráli á Reyðarfirði. 23.4.2007 18:30
Ný hús tilbúin innan tveggja ára Borgarstjórinn í Reykjavík vonar að ný og endurbyggð hús verði risin á horni Lækjargötu og Austurstrætis innan tveggja ára. Hann hefur falið embættismönnum að hefja viðræður við eigendur húsanna um kaup borgarinnar á þeim og reiknar með niðurstöðu öðru hvoru megin við mánaðamótin. 23.4.2007 18:30
Samið um orkusölu vegna álvers í Helguvík Norðurál og Hitaveita Suðurnesja undirrituðu í dag samning um orkusölu til fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík. Samkvæmt samningnum mun HS útvega Norðuráli raforku fyrir álverið í Helguvík, þar á meðal allt að 150 megavött fyrir fyrsta áfanga álversins sem miðast við 150.000 tonna ársframleiðslu. 23.4.2007 18:16
Lá við vinslitum Ingibjargar Sólrúnar og Össurar Gróið hefur um heilt eftir að átök urðu um formennsku í Samfylkingunni milli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Össurar Skarphéðinssonar. Össur segir þó að litlu hafi mátt muna að uppúr vináttu þeirra slitnaði alveg. 23.4.2007 18:03
Geir og Guðni væntanlega verið teknir til bæna Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, gerði karlrembu og viðhorf til kvenna í pólitík að umræðuefni sínu í óvenju beinskeyttri ræðu við Háskólann á Akureyri í dag. Hún nafngreindi meðal annars nokkra karlkyns stjórnmálamenn sem að hennar mati hafa sýnt kollegum sínum af gagnstæða kyninu óvirðingu. 23.4.2007 17:42
Segja kvótasölu ríkisins hækka matarverð Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ, mótmæla því að frítollakvótar vegna innflutnings kjöts og osta skuli hafa verið boðnir upp og seldir fyrir rúmar 430 milljónir króna á dögunum. Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að kvótauppboðin séu andstæð yfirlýstum markmiðum ríkisstjórnarinnar um lækkun matvöruverðs og hugmyndum um frítollakvóta. Samtökin segja að ríkið geti hagnast um 600 milljónir á ári. 23.4.2007 16:32
Koffín-kikk í sturtunni Nú hefur verið sett á markað koffínsápa fyrir þá sem hafa ekki tíma til að fara bæði í sturtu á morgnana og að fá sér kaffi. Framleiðendur sápunnar Shower Shock segja að koffeinið fari inn í líkama notandans þegar hann þvær sér. Einn þvottur samsvarar koffíni úr tveimur bollum af kaffi. 23.4.2007 15:56
Vilja stýrimannanám til Vestmannaeyja Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja vill hefja stýrimannanám í Vestmannaeyjum. Þannig yrði samstarf milli Fjöltækniskólans í Reykjavík og Framhaldsskóla Vestmannaeyja, en námið yrði hluti af stúdentsprófi. Nú er einungis hægt að sækja skipstjórnarnám í Fjöltækniskólanum í Reykjavík. Elliði segir að það hafi orðið til þess að stöðugt hafi dregið úr aðsókn í námið. 23.4.2007 15:20
Silja verðlaunuð fyrir Wuthering Heights Silja Aðalsteinsdóttir hlaut í dag, á degi bókarinnar, Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu sína á verkinu Wuthering Heights eftir Emily Brontë sem Bjartur gaf út á síðasta ári. Silja tók við verðlaununum úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, við athöfn að Gljúfrasteini fyrr í dag. 23.4.2007 14:56
Sektaður fyrir að valda hættu og hneykslan 17 ára drengur frá Mosfellsbæ var í dag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til að greiða 30 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir brot á áfengis- og umferðarlögum. Hann var ákærður fyrir að valda „hættu og hneykslan á almannafæri”, eins og segir í ákæru, með því að sitja uppi í afturrúðu bifreiðar sem ók eftir Austurvegi á Selfossi í desember 2006. 23.4.2007 14:26
Litríkur forseti látinn Boris Jeltsín , fyrrverandi forseti Rússlands, er látinn. Þessi umdeildi leiðtogi Rússlands varð 76 ára gamall. Hann var fyrsti þjóðkjörni forseti landsins og sat tvö kjörtímabil sem einkenndust af miklum átökum, bæði innan lands og utan. 23.4.2007 13:47
12 ára gamall böðull Talibanar í Afganistan notuðu tólf ára gamlan dreng sem böðul, þegar þeir tóku af lífi mann sem var sakaður um að hafa aðstoðað bandaríska hermenn. Drengurinn hjó höfuðið af manninum, og var það tekið upp á myndband. 23.4.2007 13:15
Sarkozy með forskot á Royal Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægrimanna, og Segolene Royal, frambjóðandi sósíalista, berjast um franska forsetaembættið í seinni umferð kosninga þar í landi eftir hálfan mánuð. Kosningabarátta þeirra er þegar hafin. Samkvæmt nýjum skoðanakönnunum hefur Sarkozy allt að sex prósentustiga forskot á Royal. 23.4.2007 12:49
Söguleg bankaviðskipti Samið var um ein stærstu kaup í sögu bankaviðskipta í morgun þegar tilboð breska Barclays bankans í hollenska bankann ABN AMRO var samþykkt. Kaupverðið nemur jafnvirði sex þúsund milljarða íslenskra króna. Royal Bank of Scotland gæti þó boðið betur og bolað Barclays frá samningaborðinu 23.4.2007 12:42