Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír teknir fyrir ölvun Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Tveir þeirra voru stöðvaðir í miðborginni. Í fyrra tilfellinu var um konu á sextugsaldri að ræða, en um þrjú leitið stöðvaði lögregla karlmann á fertugsaldri. Þriðji ökumaðurinn, karlmaður á fimmtugsaldri, var tekinn í Kópavogi undir morgun, en hann á einnig von á sekt vegna hraðaksturs. 1.4.2007 13:41
Sprengt í Breska sendiráðinu í Teheran Nokkrar sprengingar heyrðust í sendiráði Bretlands í Teheran nú rétt í þessu. Reuters fréttastofan skýrir frá þessu. Vitni heyrðu nokkrar minni sprengingar og sáu reyk inn í sendiráðsbyggingunni. Sprengjurnar sprungu á sama tíma og mótmæli fór fram vegna sjóliðanna sem eru í haldi í Íran. Eitt vitni sagði átta heimagerðar sprengjur hafa sprungið. 1.4.2007 12:54
Margar kvartanir vegna hávaða í heimahúsum Mikið barst af kvörtunum til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu vegna hávaða í heimahúsum. Ekki fóru öll partýin vel fram. Hins vegar var rólegra í miðborginni en oft áður og ekki mjög margir á ferli. Einn gestur skemmtistaðs nefbrotnaði. Það var eina tilfellið um slys á fólki sem lögreglu er kunnugt um, fyrir utan árás á tvo lögreglumenn sem hlutu minniháttar meiðsl í andliti. 1.4.2007 12:33
Framkoma Írana ófyrirgefanleg George Bush forseti Bandaríkjanna segir Írana hafa hagað sér með óafsakanlegum hætti í deilunni um bresku sjóliðanna fimmtán sem þeir hafa í haldi sínu. Á meðan saka írönsk stjórnvöld Breta um að ganga fram af hroka og eigingirni. 1.4.2007 12:15
Uppstokkun í rúmönsku ríkisstjórninni Calin Tariceanu forsætisráðherra Rúmeníu stokkaði upp í tveggja ára ríkisstjórn sinni í dag. Ráðherrar úr demokrataflokknum í stjórnarsamstarfi misstu ráðherrastóla sína. Frjálslyndi flokkur Tariceanu hafði þrýst á þrjá ráðherrana að segja af sér. Stjórnmálaskýrendur töldu afsögn ráðherranna geta splundrað stjórnarsamstarfi flokkanna þriggja. 1.4.2007 12:11
Málflutningur frjálslyndra ekki grundvöllur fyrir samstarfi Varaformenn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar segja málflutning frjálslyndra í málefnum innflytjenda ekki góðan grundvöll fyrir samstarfi. Katrín Jakobsdóttir varaformaður Vinstri grænna útilokar þó ekki samstarf við flokkinn. Þetta kemur fram í svari Katrínar við opnu bréfi Sigurðar Ólafssonar alþjóðastjórnmálafræðings. 1.4.2007 11:37
Hátíðarhöld í Reyðarfirði Álverið í Reyðarfirði er tekið til starfa. Geir H. Haarde forsætisráðherra ásamt framsóknarráðherrunum Jóni Sigurðssyni og Valgerði Sverrisdóttur og einum starfsmanni klipptu saman á borða í kerskála Alcoa Fjarðaáls í gær og markaði sú athöfn formlegt upphaf starfseminnar. Sólveig Bergmann og Sigurður Ingólfsson eru með þessa frétt. 1.4.2007 11:27
Rússar banna smásala af erlendum uppruna Rússar hafa bannað útlendingum að vinna sem smásalar í verslunum og á mörkuðum með nýjum lögum sem tóku gildi í dag. Um 20 þúsund útlendingar vinna á mörkuðum í Moskvu. Hefð hefur verið fyrir því frá tímum Sovétríkjanna. Vladimir Putin forseti Rússlands segir lögin séu sett þar sem hagsmunir Rússa séu í húfi. 1.4.2007 11:13
Enn deilt um sjóliðana George Bush Bandaríkjaforseti fordæmdi í gær framgöngu íranskra stjórnvalda í deilunni vegna bresku sjóliðanna fimmtán sem þeir hafa í haldi sínu og sagði hana með öllu óafskanlega. Fyrr í gær fullyrti Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti hið gagnstæða og sagði að bresk stjórnvöld gengju fram af hroka og eigingirni. 1.4.2007 11:00
Hlýtt á landinu Þrettán stiga hiti var klukkan níu í morgun á Kollaleyru í Reyðarfirði og ellefu stiga hiti á Hallormsstað, samkvæmt mælum Veðurstofunnar. Þeir sýna hlýindi um land allt á þessum fyrsta degi aprílmánaðar. 1.4.2007 10:37
Bush styður Gonzales George Bush, forseti Bandaríkjanna, kom í gærkvöld Alberto Gonzales, dómsmálaráðherra landsins, til aðstoðar í þeirri orrahríð sem hann stendur nú. Gonzales er sakaður um að átta saksóknurum úr embætti sínu af pólitískum ástæðum. 1.4.2007 10:30
Áhersla frjálslyndra: Hömlur á innflytjendur Frjálslyndi flokkurinn birtir heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu í morgun undir yfirskriftinni: Viljum við sitja uppi með sömu vandamál og aðrar þjóðir sem hafa leyft óhindraðan innflutning erlends vinnuafls. Spurt er hver kaup og kjör íslenskra iðnaðar- og byggingaverkamanna verði þegar hægist um á vinnumarkaði. 1.4.2007 10:29
Ofbeldið í Írak eykst enn Þrátt fyrir stórhertar öryggisráðstafanir í Írak létu fleiri lífið þar í ofbeldisverkum í marsmánuði en í mánuðinum þar á undan. Samkvæmt upplýsingum írösku ríkisstjórnarinnar dó 1.861 maður í landinu vegna átaka og hryðjuverka en í febrúar biðu 1.645 bana. 1.4.2007 09:50
Viðrekstur á ferð Lögreglumenn í Reykjanesbæ veittu bifreið athygli laust eftir miðnætti í nótt. Karlmaður sem var farþegi framan í bílnum sat hálfur út um gluggann og baðaði út höndum á meðan bifreiðin var á ferð. Lögreglumenn fengu þá skýringu að farþegi í aftursæti bifreiðarinnar hefði leyst vind. Mengunin hefði verið það mikil að farþeginn í framsætinu sá sér ekki fært að vera inni í bifreiðinni á meðan. 1.4.2007 09:49
Frítt áfengi í unglingasamkvæmi Um klukkan 11 í gærkvöldi fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um að frítt áfengi væri veitt í samkvæmi fyrir 16 ára unglinga í heimahúsi á Laufásvegi. Lögreglan fór á staðinn og hitti fyrir um 100 ungmenni á aldrinum 14-18 ára. Þau sögðust hafa borgað þúsund til fimmtán hundruð króna aðgangseyri. Partýhaldarinn var 15 ára stúlka. Hún var afar ölvuð. 1.4.2007 09:40
Tveir lögreglumenn á slysadeild Tveir lögreglumenn fóru á slysadeild í morgun eftir að maður sló þá fyrir utan Sólon í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan hafði verið kölluð til þar sem maðurinn lét ófriðlega fyrir utan kaffihúsið. Hann sló þá þegar þeir reyndu að tala við hann. Lögreglumennirnir hlutu minniháttar meiðsl í andliti. 1.4.2007 09:34
Kynþáttahatur sagt vaxandi vandamál Þörf er á að bregðast við vaxandi kynþáttahatri, að sögn framkvæmdastjóra Alþjóðahúss. Samtök kvenna af erlendum uppruna íhuga að kæra frambjóðanda Frjálslynda flokksins vegna ummæla um innflytjendur. 1.4.2007 09:15
Stækkun álversins hafnað Tillaga um breytt deiliskipulag vegna stækkunar álvers Alcan í Straumsvík var felld í íbúakosningu í Hafnarfirði í gær. 50,3 prósent sögðu nei en 49,7 prósent sögðu já. 88 atkvæðum munaði á fylkingunum. 1.4.2007 09:00
Niðurstaðan mikil vonbrigði Baldur Baldursson hjá Hag Hafnarfjarðar, sem studdi stækkun álversins í Straumsvík, sagði niðurstöðuna í kvöld mikil vonbrigði og að stuðningsmenn Hags væru mjög ósáttir. 31.3.2007 23:46
Stór og erfið ákvörðun fyrir Hafnfirðinga „Við erum bara mjög ánægð,“ sagði Pétur Óskarsson, talsmaður Sólar í Straumi, eftir að ljóst varð að Hafnfirðingar hefðu hafnað stækkun álversins í Straumsvík. 31.3.2007 23:13
Sjálfsagt að skoða kröfur um endurtalningu Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir sjálfsagt að skoða kröfur um endurtalningu í atkvæðagreiðslunni um stækkun álversins í Straumsvík en innan við prósenti munaði á fylkingum. 50,3 prósent voru andvíg stækkuninni en 49,7 prósent voru hlynnt henni. 31.3.2007 23:02
Farið verður að vilja bæjarbúa Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, sagði í viðtali á vef Ríkisútvarpsins að það væri ekki bæjarfulltrúa að taka afstöðu í málinu aðspurður um þær fullyrðingar um að bæjarfulltrúar hefðu átt að skýra frá afstöðu sinni. 31.3.2007 22:36
Baráttan hafi á vissan hátt verið ósanngjörn Rannveig Rist, forstjóri Alcan, sagði þegar nýjustu tölur voru ljósar, þar sem meirihluti Hafnfirðinga er enn á mót stækkun álversins, að hún væri ekki búin að gefa upp alla von. Eftir ætti að telja utankjörfundaratkvæði og staðan gæti því breyst. 31.3.2007 22:12
Andstæðingar álvers enn með forystuna Andstæðingar stækkunar álvers Alcan í Straumsvík hafa enn forystu eftir að öll atkvæði fyrir utan utankjörfundaratkvæði hafa verið talin eða 11.569. Aðrar tölur voru lesnar upp rétt í þessu. Alls eru 5860 andvíg stækkun álversins en 5638 með stækkuninni en 71 atkvæði var autt og ógilt. 31.3.2007 21:34
Skemmd í skögultönninni Fíllinn Tanni, sem á heima í dýragarðinum í Portland í Oregon í Bandaríkjunum, á óskemmtilegan dag í vændum. Á morgun fer hann í heimsókn til tannlæknisins til að láta gera við aðra skögultönnina en hún hefur beðið viðgerðar í heil fjórtán ár. 31.3.2007 21:00
Scotland Yard aðstoðar við rannsókn á dauða Woolmers Breska lögreglan Scotland Yard hyggst senda þrjár lögreglumenn til Jamaíku til að hjálpa til við rannsókn morðsins á Bob Woolmer, fyrrverandi þjálfara pakistanska landsliðsins í krikket. Lögreglan á Jamaíku óskaði eftir aðstoðinni. 31.3.2007 20:52
Lifði af fall af níundu hæð Það þykir ganga kraftaverki næst að fimm ára gamall drengur komst lífs af þegar hann féll út um glugga af níundu hæð fjölbýlishúss í Hamilton í Ontario-fylki í Kanada. 31.3.2007 20:30
Næstu tölur lesnar upp klukkan 21.30 Búist er við að næstu tölur í atkvæðagreiðslunni í Hafnarfirði um stækkun álversins í Straumsvík verði lesnar upp klukkan 21.30 en atkvæðin eru talin í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Bein útsending verður á Vísi með viðtölum við fulltrúa andstæðra fylkinga. 31.3.2007 20:18
Treystir sért ekki til að spá fyrir um úrslitin Pétur Óskarsson, talsmaður Sólar í Straumi sem barðist gegn stækkun álversins í Straumsvík, sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld þegar fyrstu tölur lágu fyrir að við þessar aðstæður væri hægt að fagna frábærri kjörsókn hjá Hafnfirðingum. Hann treysti sér hins vegar ekki til að spá fyrir um hvort andstæðingar álversins myndu halda forystu sinni til enda. 31.3.2007 20:14
Féll niður af gámi um borð í skipi Karlmaður brotnaði á nokkrum stöðum þegar hann féll niður af gámi um borð í skipinu Kársnesi í Hafnarfjarðarhöfn á sjöunda tímanum í kvöld. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild slasaðist maðurinn ekki alvarlega en hann virðist hafa borið hendurnar fyrir sig þegar hann lenti. 31.3.2007 20:09
Kosningin er sigur fyrir lýðræðið Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, fagnaði því hversu góð þátttaka var í kosningunni og sagði hana sigur fyrir lýðræðið. Spurður hvort hann vildi gefa upp hvort hann hefði kosið með eða á móti álverinu sagði Lúðvík að hann hefði kosið rétt, annað vissi hann ekki. 31.3.2007 19:56
Hefur ekki gefið upp vonina Rannveig Rist, forstjóri Alcan, sagði á Stöð 2 eftir að fyrstu tölur í atkvæðagreiðslunni í Hafnarfirði urðu ljósar að ef þetta yrðu úrslitin yrði verksmiðjunni líklega lokað, hún myndi daga uppi eins og náttröll ef hún yrði ekki stækkuð. Hún sagðist þó ekki hafa gefið upp von enda munurinn á fylkingunum lítill. 31.3.2007 19:42
Íhuga á breytingar á lögum um friðhelgi einkalífsins Bogi Nilsson, ríkissaksóknari, segir menn þurfa að hugleiða það hvort ekki sé kominn tími til að endurskoða þann hluta almennra hegningarlaga sem lýtur að friðhelgi einkalífsins. Þetta segir hann í kjölfar þess að maður var sýknaður í héraðsdómi fyrir heimildarlausa myndatöku af naktri stúlku. 31.3.2007 19:30
Flugstöð við Húsavík til sölu á spottprís Flugstöðin á Húsavíkurflugvelli er til sölu fyrir spottprís. Heimamenn vilja verja mannvirkið og eru mjög ósáttir. 31.3.2007 19:30
Refsingum hótað Íranar láta að því liggja að bresku sjóliðarnir fimmtán, sem handteknir voru á dögunum, verði ákærðir og þeim refsað fyrir landhelgisbrot. Margaret Beckett, utanríkisráðherra Bretlands, kveðst áhyggjufull yfir stefnu íranskra stjórnvalda í málinu en hún sendi þeim opinbert svarbréf vegna þess í dag. 31.3.2007 19:30
Útlit fyrir að seinkun verði á endanlegum tölum Útlit er fyrir að úrslit í atkvæðagreiðslunni um stækkun álvers Alcan liggi ekki fyrir fyrr en á ellefta tímanum í kvöld eftir því sem greint var frá í fréttum Sjónvarpsins fyrir stundu. 31.3.2007 19:28
Andstæðingar með nauma forystu eftir fyrstu tölur Þeir sem vilja að álver Alcan í Straumsvík verði ekki stækkað hafa forystu samkvæmt fyrstu tölum úr atkvæðagreiðslu um stækkunina sem fram fór í Hafnarfirði í dag. Búið er að telja 5950 atkvæði af 12.752 og eru 3000 andvígir stækkun álversins en 2950 með henni. 31.3.2007 19:08
Samkomulag um vörn gegn kynferðisglæpum gegn börnum Samkomulag hefur náðst, innan Evrópuráðsins, um tillögu að bindandi samningi um vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi en fastlega er búist við að samningurinn verði fullgildur hér á landi síðar á þessu ári. Það kallar á lagabreytingar, segir forstjóri Barnaverndarstofu, meðal annars um skilgreingu á kynferðisofbeldi gegn börnum sem og heimildir lögreglu til notkunar tálbeitu. 31.3.2007 19:00
Toghleri klemmdist milli skips og ísjaka Minnstu munaði að illa færi þegar sjór flæddi inn í togara, þegar hann var að veiðum í hafís við Austur-Grænland í vikunni. Toghleri togarans, sem er grænlenskur og heitir Ocean Tiger, klemmdist á milli skipsins og ísjaka og rifnaði stórt gat á skutinn undan þrýstingnum. 31.3.2007 18:55
Saka samkeppnisyfirvöld um seinlæti Stofnendur Iceland Express saka samkeppnisyfirvöld um að hafa með seinlæti sínu gert Icelandair kleift að knésetja sig og neytt stofnendur til að selja félagið langt undir raunverði. 31.3.2007 18:38
Bresk stjórnvöld fóru ekki löglega og rökrétta leið Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, sagði í dag að bresk yfirvöld hefðu ekki valið löglega og rökrétta leið til þess að fá lausa 15 sjóliða sem handteknir voru úti fyrir ströndum Íraks í síðustu viku. 31.3.2007 18:34
Segir Hafnfirðinga munu una úrslitum kosninganna Hafnfirðingar kjósa í dag um stækkun álversins í Straumsvík. Mikil spenna ríkir enda afar tvísýnt um úrslit en kjörstöðum verður lokað eftir tæpan hálftíma. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir kosningaþátttökuna sýna að rétt hafi verið að ganga til kosninga um málið. 31.3.2007 18:29
Ríflega tíu þúsund höfðu kosið klukkan 18 10.017 manns höfðu kosið í atkvæðagreiðslunni um stækkun álvers Alcan í Hafnarfirði nú klukkan 18 þegar ein klukkustund er eftir af kjörfundi. Af þeim kusu tæplega 1200 utan kjörfundar. Bein útsending er frá Hafnarfirði á Vísi og má nálgast hana uppi í hægra horni skjásins. 31.3.2007 18:03
Flokksmenn Mugabe styðja hann til áframhaldandi setu Zanu, flokkur Roberts Mugabe forseta Simbave styður hann áfram til setu sem forseti. Þeir ákváðu í gær að standa við bakið á honum í kosningunum á næsta ári. Mugabe er 83 ára gamall og hefur setið í embætti forseta frá árinu 1980. 31.3.2007 16:57
Öll ljós slökkt í Sidney Íbúar í Sidney í Ástralíu slökktu öll ljós í borginni í gærkvöldi í heilan klukkutíma. Þetta var gert til að vekja athygli á hlýnun loftslags. Aðeins hið fræga kennileiti, óperuhúsið var upplýst. Yfirvöld í Sidney vonast til þess að viðburðurinn veki heimsathygli á þeim vanda sem steðjar að mannkyni sökum hlýnun loftslags. Um fjórar milljónir manna búa í Sidney og langflestir tóku þátt í nótt. 31.3.2007 16:39