Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samkomulag um viðskiptaþvinganir gegn Írönum Samkomulag mun hafa tekist meðal vesturveldanna, Kína og Rússlands, um frekari viðskiptaþvinganir á hendur Írönum vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Samkvæmt heimildum Breska ríkisútvarpsins, BBC, hefur verið samið um grundvallaratriði í nýjum ályktunum og uppkast verður lagt fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á fundi í New York í kvöld. 15.3.2007 13:30
Upplýst um skipun þjóðstjórnar Ismail Haniya forsætisráðherra og Mahmoud Abbas forseti Palestínu hafa nú upplýst hverjir skipi ráðherra sæti í nýrri þjóðstjórn Palestínumanna. Kosið verður um hvort stjórnin njóti trausts á laugardaginn. Lykilembætti fjármála-, innanríkis-, og utanríkisráðherra verða skipuð mönnum sem hvorki eru hluti af Hamas- né Fatah-hreyfingunni. 15.3.2007 13:05
Mótmæla breytingum á lögum um Gæsluna Félag vélstjóra og málmtæknimanna ætlar að afhenda forseta Alþingis undirskriftalista sjómanna á skipum Landhelgisgæslunnar á eftir vegna breytinga á björgunarlaunum í nýjum lögum um LHG. Afhendingin fer fram í skálanum við Alþingishúsið klukkan tvö síðdegis. 15.3.2007 12:23
Ökuníðingur verður kærður fyrir hegningarlagabrot Ökuníðingur sem lögreglumenn á Austfjörðum eltu á ofsahraða á milli byggðarlaga í tvær klukkustundir í gær, verður kærður fyrir brot á hegningarlögum auk ótal umferðarlagabrota gærdagsins. Lögreglumenn frá Egilsstöðum og Eskifirði eltu hann á ofsahraða fram og aftur á milli þéttbýlisstaða á Austfjörðum, meðal annars um Egilsstaði, Reyðarfjörð og Eskifjörð. 15.3.2007 12:16
Einn gámanna fundinn Þyrla Landhelgisgæslunnar fann fyrir stundu einn af gámunum sem féllu fyrir borð af flutningaskipi við Reykjanes í gærkvöldi, og skipum stafar hætta af. Varðskip á að reyna að draga gáminn til lands. Samtals féllu fimm 40 feta langir gámar af flutningaskipinu Kársnesi, þegar það fékk á sig brotsjó úti af Garðskaga á Reykjanesi um klukkan hálf sjö í gærkvöldi. 15.3.2007 12:15
Áfram heilbrigðisþjónusta í húsi gömlu Heilsuverndarstöðvarinnar Gerður hefur verið samningur um að fyrirtækið Heilsuverndarstöðin taki við rekstri húsnæðisins sem áður hýsti Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. 15.3.2007 12:14
Æ, litla krúttið Starfsfólk sjúkrahúss í Dortmund í Þýskalandi brá heldur betur í brún þegar það fann fullorðinn mann í neyðar-hitakassa fyrir óvelkomin ungabörn. Heinrich Mueller hafði klifrað inn um lúgu og rennt sér dauðadrukkinn niður sérstaka rennu ætlaða ungabörnum. 15.3.2007 12:13
Sérfræðingar gagnrýna auðlindaákvæði Stjórnskipunarnefndin hefur ekki enn afgreitt frumvarp um auðlindaákvæði í stjórnarskrá. Nefndin sat á rökstólum frá því laust eftir átta i morgun og lauk störfum skömmu fyrir þingfund. Sérfræðingar sem komið hafa fyrir nefndina hafa verið afar gagnrýnir á ákvæðið. 15.3.2007 12:02
Blindir beðið eftir þjónustumiðstöð árum saman Þekkingarmiðstöð fyrir blinda hefur enn ekki verið stofnuð, þó að nefnd um málefni blindra og sjónskertra nemenda hafi lagt það til fyrir nokkrum árum. Helgi Hjörvar sagði á Alþingi í morgun að þetta væri dæmi um einstakt aðgerðarleysi stjórnvalda. Menntamálaráðherra segir framkvæmdahóp vinna að málinu. 15.3.2007 12:01
Bera ábyrgð á dauða sjö vistmanna Hjón á fimmtugsaldri sem rekið hafa elliheimili í London voru handtekin á dögunum vegna dauða sjö manns sem dvalið hafa á heimilinu. Farið var að skoða málið eftir að 97 ára maður dó skyndilega. Einnig hafa sex aðrir vistmenn dáið þar á skyndilegan síðan árið 2004 og eru skötuhjúin einnig grunum um aðild að dauða þeirra. 15.3.2007 11:50
Blair: „Við erum að gera hið rétta“ Tony Blair forsætisráðherra Bretlands þvertekur fyrir að vera hersveita Breta og Bandaríkjamanna í Írak geri illt verra. Hann segir að vesturveldin eigi að hætta að biðjast afsökunnar á því að gera „hið rétta“ í Írak. Þetta sagði Blair í viðtali á Sky News í morgun en nú stendur yfir sérstök Íraksvika á stöðinni. Blair sagði: „Við eigum að vera þar að berjast við fólk sem reynir að eyðileggja möguleika á lýðræði með hryðjuverkum“. Innrásin í Írak er sennilega stærsta ákvörðun sem Blair hefur tekið á tíu ára ferli sínum sem forsætisráðherra og sú sem hefur reynst honum erfiðust. Mörg flokkssystkina hans hafa snúist gegn honum vegna hennar. 15.3.2007 11:49
Sýknaður af sölu hakakrossa Hæstiréttur Þýskalands hefur snúið við dómi gegn eiganda póstverslunar sem var dæmdur í 300 þúsund króna sekt fyrir að selja vörur með hakakrossi nazista. Samkvæmt þýskum lögum er bannað að bera eða sýna hakakrossinn opinberlega. 15.3.2007 11:32
Varaforseti Saddams dæmdur til dauða Dauðadómur var staðfestur yfir fyrrverandi varaforseta Saddam Hussein. Taha Yassin Ramadan var dæmdur af áfrýjunardómstól Íraks og verður hengdur fyrir morðin á 148 sjítum eins og Saddam og tveir aðstoðarmenn hans. 15.3.2007 11:25
Veitingahús og mötuneyti lækki verð Neytendasamtökin gera þá kröfu að veitingahús og mötuneyti sem ekki hafa lækkað verð geri það þegar í stað. Lækkun virðisaukaskatts á matvæli er ætluð neytendum og ber seljendum að skila henni til þeirra. Samtökin telja allt annað óásættanlegt, eins og segir í frétt á vef Neytendasamtakanna. 15.3.2007 11:21
Stjórnarandstaðan vill funda um lok þingsins Stjórnarandstaðan fór fram á Alþingi það að hún yrði kölluð til samráðsfundar vegna loka þingsins. Áttatíu mál liggja fyrir þinginu í dag og sagði stjórnarandstaðan ljóst að það væri tæpt að það næðist að afgreiða þau öll. Fara þyrfti því yfir hvaða mál næðist að afgreiða. 15.3.2007 11:21
Tilboð opnuð vegna Neðri Þjórsár Tilboð vegna ráðgjafaþjónustu vegna virkjana í Neðri Þjórsá; Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun, voru opnuð í Landsvirkjun í gær. Útboðsgögn voru dagsett í desember 2006 og buðu þrír í verkið. Lægsta tilboðið hljóðaði upp á tæpar 1400 milljónir króna og var frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf, VGK-Hönnun hf og Rafteikningu hf. Þeir fengu einnig bestu tæknilegu einkunn, eða 99,8 prósent. 15.3.2007 10:57
Stal fyrir insúlíni Listaverkaþjófur var settur í fangelsi í fimm ár eftir að upp komst um 200 listaverk metin á fimm milljón dollara væru horfin úr listaverkasafni í St. Petersburg. Kona mannsins vann á safninu og höfðu þau í sameiningu stolið verkum þaðan í mörg ár. Að sögn mannsins gerðu þau það aðeins til þess að geta keypt insulin handa konunni, en hún dó úr hjartaáfalli eftir að upp komst um þjófnaðinn. Á meðal verka sem skötuhjúin stálu voru verk eftir Leonardo da Vinci og Claude Monet. 15.3.2007 10:57
Tíu ára stúlka í Egyptalandi greinist með fuglaflensu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin greindi frá því í dag að tíu ára stúlka hefði greinst með fuglaflensu í Egyptalandi, en hún er 25. manneskjan þar í landi sem greinist með sjúkdóminn. Haft er eftir egypskum fjölmiðlum að komið hafi verið með stúlkuna á sjúkahús í gær þar sem hún þjáðist af hita og verkjum í vöðvum. 14.3.2007 23:31
Hækkanir á mörkuðum í Bandaríkjunum í dag Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum réttu sig af í dag eftir nokkuð skarpa lækkun í gær upp á tvö prósent sem hafði áhrif víða um heim. Dow Jones fór á tímabili niður fyrir 12 þúsund stig í dag í fyrsta sinn í fjóra mánuði en endaði 12.133 stigum í lok dags og hækkaði því um nærri hálft prósent frá því í gær. 14.3.2007 22:58
Skip missti fimm gáma þegar það fékk yfir sig brotsjó Kársnes, skip Atlantsskipa, missti út fimm gáma fyrr í kvöld á leið sinni til landsins frá Danmörku. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Atlantsskipum reið brotsjór yfir skipum um klukkan hálfsjö og var skipið þá við Garðskaga. 14.3.2007 22:48
Losa þarf byggðir landsins við drápsklyfjar kvótakerfisins Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, sagði á eldhúsdegi á Alþingi í kvöld að losa þyrfti byggðir landsins við drápsklyfjar kvótakerfisins og færa þeim aftur atvinnufrelsi og nýtingarrétt sem af þeim hefði verið tekinn. Þá sagði hann frjálslynda vilja hækka atvinnuleysisbætur upp í 150 þúsund krónur og leyfa bótaþegum að vinna án þess að skerða tekjur þeirra. 14.3.2007 22:41
Heitir á stjórnarandstöðu um samstarf í auðlindamáli Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, hét á stjórnarandstöðuna um samstarf í auðlindamálinu og sagði erindi Framsóknarflokksins aldrei hafa verið meira en nú í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld. 14.3.2007 22:08
Þurfum ekki að hlaupa og kaupa málningu „Við höfum staðið vaktina á hverju sem gengur og við þurfum því ekki að hlaupa út í búð og kaupa málningu þegar vindurinn hefur snúist og stóriðjustefnan er orðin óvinsæl," sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld. 14.3.2007 21:40
Varaði við stöðvun eða frestun vinstri manna Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði ekki sjálfgefið að lífskjör landsmanna héldu áfram að batna og varaði við hugmyndum Vinstri - grænna og Samfylkingarinnar um frestun og eða stöðvun framkvæmda. „Stopp þýðir afturför ... ótti við breytingar skilar okkur engu," sagði Geir í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum á Alþingi. 14.3.2007 21:14
Írar drykkfelldastir ESB-þjóða Írar eru drykkfelldastir Evrópusambandsþjóða ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar sem gerð var á drykkjuvenjum innan sambandsins. Rúmlega þriðjungur Íra drekkur áfengi í óhófi þegar hann fær sér í glas en með óhófi er miðað við fimm drykki eða meira í hvert skipti sem menn blóta Bakkusi. 14.3.2007 20:50
Réttlætiskröfu almennings svarað með sjónhverfingu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sakaði stjórnarflokanna um að hafa stjórnarskrána að leiksoppi og að svara réttlætiskröfu almennings um sameign auðlinda með sjónhverfingu í nýju auðlindaákvæði í stjórnarskrá í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld. 14.3.2007 20:02
Stofna samtök þeirra sem dvalið hafa á upptökuheimilum Stofnuð verða samtök þeirra sem voru á barna- og unglingaheimilum hins opinbera á árunum 1950-80. Á fjölmennum fundi þessa fólks var skorað á stjórnvöld að bjóða öllum þessum hópi sömu úrræði og nú eru í boði fyrir drengi sem voru í Breiðavík. Frumvarp um opinbera rannsóknarnefnd á málefnum þessara heimila hefur verið afgreidd frá allsherjarnefnd þingsins. 14.3.2007 20:00
Tillaga um endurnýjun kjarnorkukafbátaflota samþykkt Þingmenn í neðri deild breska þingsins samþykktu í kvöld með yfirgnæfandi meirihluta tillögur Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, um að endurnýja kjarnorkuvopnabúr Bretlands. 14.3.2007 19:47
Bjóða stjórnvöldum 95 þúsund pund fyrir síðustu langreyðarnar Dýraverndunarsamtökin World Society for Protection of Animals (WSPA) hafa sent Geir H. Haarde forsætisráðherra bréf þar sem ríkisstjórn Íslands eru boðin 95 þúsund pund, jafnvirði um 12,4 milljóna króna, fyrir að veiða ekki þær tvær langreyðar sem eftir eru af veiðikvóta sem sjávarútvegsráðherra gaf út í haust. 14.3.2007 19:27
Reka 300 starfsmenn Danska ríkisútvarpið ætlar að segja upp 10% starfsmanna sinna á þessu ári vegna kostnaðar við byggingu nýrra höfuðstöðva sem hefur farið fram úr áætlun. Fjölmargir starfsmenn lögðu niður vinnu í dag til að mótmæla aðgerðunum. 14.3.2007 19:15
Læsti ljósmyndara inni á landi svo kalla þurfti til lögreglu Ljósmyndari Fréttablaðsins ætlaði í dag að mynda landið þar sem fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins ætlar að hafa lögbýli. Guðmundur Jónsson brást ókvæða við og læsti ljósmyndarann inni á landinu og kalla þurfti til lögreglu til að aðstoða hann við að komast burt. 14.3.2007 19:06
Hlógu að Davíð Hreinn Loftsson og Jón Ásgeir Jóhannesson hlógu að Davíð Oddssyni fyrrverandi forsætisráðherra fyrir að trúa að álagning á vörur frá Baugi væri lægri en raun var. Þetta sagði Jónína Benediktsdóttir að hefði átt sér stað eftir fund þremenninganna í Stjórnarráðinu. Viðtal við Jónínu fylgir fréttinni. 14.3.2007 19:00
Birgjar svara fyrir sig Hækkandi heimsmarkaðsverð, launaskrið, dýrara hráefni og gengishækkanir eru meðal þeirra skýringa sem birgjar gefa á hækkunum frá sér til veitinga- og kaffihúsa. Veitingamenn hafa verið gagnrýndir fyrir að lækka ekki matarverð en þeir hafa aftur bent á birgjana. 14.3.2007 18:56
Vaknaði og féll svo aftur í dá Læknar í Bandaríkjunum standa ráðþrota frammi fyrir ráðgátunni um konuna sem vaknaði úr 6 ára dái, vakti í 3 daga og féll síðan aftur í dá. Þeir kunna engar skýringar á því hvað hafi vakið hana og síðan valdið því að hún féll aftur í dá. 14.3.2007 18:45
Gaskútaþjófar gripnir Gaskútaþjófum sem stálu þremur gaskútum frá tveimur heimilum í Hafnarfirði varð ekki kápan úr því klæðinu því lögregla greip þá á sunnudagskvöld eftir að þeir höfðu reynt að fá skilagjald fyrir kútana á nokkrum bensínstöðum. 14.3.2007 18:45
Sjóntæki til hjálpar börnum á leið upp úr kössunum Foreldrar drengs með alvarlegan augnsjúkdóm vissu ekki að þau gætu leitað eftir aðstoð fyrir hann hjá sjálfstætt starfandi augnlæknum. En tæki sem Sjónstöð Íslands fékk að gjöf fyrir ári til að útbúa sérstakar linsur vegna sjúkdósmins, hafa verið í kössum frá því þau komu til landsins fyrir um sjö mánuðum. 14.3.2007 18:30
Stöðvaður eftir hraðakstur í Fagradal Lögreglan á Egilsstöðum hefur haft hendur í hári ökumanns sem hún veitti eftirför í dag en hann virti að vettugi stöðvunarmerki lögreglu eftir hraðakstur. 14.3.2007 18:25
Sérfræðingar sjá mikla annmarka á auðlindatillögu Flestir þeir sérfræðingar, sem komið hafa fyrir stjórnarskrárnefnd í gær og í dag, telja að tillaga stjórnarflokkanna til breytingar á stjórnarskránni auki réttaróvissu um eignarhald á auðlindum. Fulltrúar útgerðarmanna segja tillöguna engu breyta um að handhafar veiðiheimilda eigi heimildirnar og þær verði ekki afturkallaðar án bóta. 14.3.2007 18:19
Fingurbrotnaði þegar mark féll á hann í grunnskóla Sjö ára piltur fingurbrotnaði þegar mark féll á hann í grunnskóla í austurborginni í gærmorgun. Eftir því sem segir í frétt frá lögreglunni var pilturinn við nafnakall í íþróttasal skólans þegar óhappið varð. 14.3.2007 18:15
Eldhúsdagur á Alþingi í beinni á Vísi Hinn hefðbundni eldhúsdagur eða almennar stjórnmálaumræður verða á Alþingi í kvöld eins og venjan er í lok þings. Sýnt verður beint frá umræðunum á Vísi en þær hefjast klukkann 19.50. 14.3.2007 18:09
Rauðum sportbíl veitt eftirför Sjónarvottar á Reyðarfirði hafa orðið varir við það að lögreglan á svæðinu veitir rauðum sportbíl eftirför. Ekki er vitað hvað ökumaður sportbílsins hefur í hyggju en hann ekur á mikilli ferð. Lögreglan getur ekki tjáð sig um málið að svo stöddu. 14.3.2007 17:47
Maður slasaðist þegar krani skekktist Kalmaður á þrítugsaldri slasaðist á höfði við byggingarvinnu í Kópavogi í gær. Hann var að festa þakplötur á nýbyggingu ásamt öðrum þegar óhappið átti sér stað. Mennirnir voru umluktir sérstakri körfu sem krani heldur uppi til öryggis, en karfan er færð til eftir þörfum. Svo óheppilega vildi til að karfan skekktist til og við það fékk annar mannanna skurð á höfuðið, en hinn slapp ómeiddur. 14.3.2007 16:49
Írak vill afnema dauðarefsingu Ríkisstjórn Íraks, sem hlaut mikla gagnrýni fyrir hvernig staðið var að aftöku Saddams Hussein, vill afnema dauðarefsingu, að sögn mannréttindaráðherra landsins. Wijdan Michael segir að það verði gert í áföngum. Fyrsta skrefið verði að afnema dauðarefsingar fyrir brot önnur en þau allra verstu, svosem þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu. 14.3.2007 16:45
Alþingi vinnur gegn lækkun matvöruverðs Samtök verslunar og þjónustu undrast afgreiðslu Alþingis á tillögum samtakanna og Samtaka Atvinnulífsins um að úthluta tollkvótum vegna innflutnings án kvótasölu þegar umsóknir um kvóta eru meiri en framboð. Í ljósi þjóðarátaks um lækkun matvöruverðs sé það afar óábyrgt af hálfu þingsins og telja samtökin ákvarðanir Alþingis vinna gegn átakinu. 14.3.2007 16:29
Farið á bakvið hreyfihamlaða Með setningu nýrrar reglugerðar er farið á bakvið hagsmunasamtök hreyfihamlaðra með afar ósmekklegum hætti. Þetta segir fulltrúi í Farartækjanefnd Sjálfsbjargar. Nýja reglugerðin gerir ráð fyrir að taka upp mat á því hvort bifreiðakaup hreyihamlaðra henti viðkomandi. 14.3.2007 16:10