Fleiri fréttir

Kominn til meðvitundar eftir snjóflóð

Maðurinn sem slasaðist í snjóflóði í Hlíðarfjalli á dögunum er kominn til meðvitundar. Hann er á batavegi að sögn læknis á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri en of snemmt er að segja til um hvort hann nær fullum bata.

Kostnaður vegna Wilson Muuga þegar orðinn nærri 50 milljónir

Kostnaður Umhverfisstofnunar vegna strands flutningaskipsins Wilson Muuga er nú þegar kominn í tæpar 48 milljónir króna en útgerð og tryggingafélag skipsins hafa lýst því yfir að þau muni ekki greiða meira en rúmar 70 milljónir króna fyrir hreinsun á strandstað.

Stórauka umferðarlöggæslu á næstu tveimur árum

Samgönguráðuneytið og Ríkislögreglustjóri undirrituðu í dag samstarfssamning um að stórauka umferðarlöggæslu á næstur tveimur árum. Verða 218 milljónir króna veittar til aukins eftirlits á tímabilinu.

Tony Blair yfirheyrður

Breska lögreglan yfirheyrði Tony Blair forsætisráðherra í annað sinn í morgun vegna rannsóknar á fjármálum og fjármögnun stjórnmálaflokka. Þetta upplýsti talsmaður forsætisráðherrans í morgun. Hann sagði ennfremur að Blair hafi réttarstöðu vitnis í málinu. Blair var áður yfirheyrður um sama mál í byrjun desember.

Jesús elskar Ósama

„Jesús elskar Ósama" stendur á skiltum fyrir utan kirkjur í Ástralíu. Þessi fullyrðing hefur vakið reiði hjá sanntrúuðum og kirkjusæknum Áströlum þó að þeir hafi neyðst til að viðurkenna að sennilega sé þetta hárrétt miðað við trúarbókstafinn.

Ríkisstjórnin hysji upp um sig brækurnar í fangelsismálum

Hvatt var til þess á Alþingi í morgun að fangelsismál yrðu tekin úr höndum ráðherra og að þingnefndir hefðu frumkvæði að því veita aukið fé í málaflokkinn. Var ríkisstjórnin jafnframt hvött til að hysja upp um sig brækurnar í málefnunum.

Tortilla-mótmæli í Mexíkó

Tugir þúsunda gengu um götur Mexíkóborgar í gær til að mótmæla verðhækkunum á Tortilla-maíspönnukökum. Verðið á þessari algengustu fæðu Mexíkóa hækkaði nýverið um heil 400%. Ástæðan er sögð vera hækkandi verð á maís, meðal annars vegna þess að Bandaríkjamenn bjóða sífellt hærra verð í maísolíu sem er nýtt sem umhverfisvænt eldsneyti.

Lagt til að loðnukvóti verði aukinn

Hafrannsóknastofnun, sem verið hefur að mæla loðnustofninn norðaustur af landinu að undanförnu, leggur til að kvótinn verði aukinn um 190 þúsund tonn og verði samtals 370 þúsund tonn. Þar af komi u.þ.b. 300 þúsund tonn í hlut íslenskra skipa.

Flugslysaæfing ákveðin

Flugslysaæfing verður haldin í Skagafirði í vor en æfingin er hugsuð sem lokahnykkur á endurskoðun flugslysaáætlunar fyrir flugvöllinn á Sauðárkróki. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúa viðbragðsaðila í Skagafirði, fulltrúa Flugstoða og Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í gær.

Írak ekki vígvöllur Bandaríkjamanna og Írana

Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, er þess fullviss að Íranar standi á bakvið nokkrar af þeim árásum sem gerðar hafa verið á bandaríska hermenn í Írak. Í viðtali sem fréttamaður bandarísku fréttastöðvarinnar CNN tók við hann sagði al-Maliki að hann myndi ekki leyfa það að Írak yrði vígvöllur Bandaríkjamanna og Írana.

Lay Low söngkona ársins og Bubbi söngvari ársins

Lay Low var valin söngkona ársins á Íslensku tónlistarverðlununum 2006. Bubbi Morthens var valinn söngvari ársins og sagði af því tilefni að hann hefði alltaf þótt hann sjálfur góður söngvari. Elfa Rún Kristinsdóttir var valin bjartasta vonin.

Klósett sprengt upp í grunnskóla

Klósett var sprengt upp í einum af grunnskólum borgarinnar í gær. Klósettið splundraðist og þykir mildi að enginn skyldi slasast við uppátækið.

Ófremdarástand í fangelsismálum á Akureyri

Flótti gæsluvarðhaldsfanga úr fangelsinu á Akureyri í gærkvöldi er dæmi um það ófremdarástand sem ríkir í fangelsismálum á Akureyri. Þetta segir Fangelsismálastofnun, en einum fanganna tókst að komast út úr klefa sínum og frelsa tvo aðra.

Ábyrgð hjá útgerð og tryggingarfélagi

Umhverfisráðherra segir að útgerð og tryggingafélag flutningaskipsins Wilson Muuga beri ábyrgð á því að koma skipinu af strandstað við Sandgerði fyrir nítjánda júní næstkomandi. Útgerðin og tryggingafélagið hafa sagt að þau beri einungis kostnað upp að rúmum 70 milljónum króna en ráðherra segir ábyrgð þeirra í þessum efnum ótvíræða.

Öldruðum hjónum stíað í sundur

Nítíu og fjögurra ára gamall maður fær ekki að dvelja með eiginkonu sinni á dvalarheimili þar sem hann er sagður of vel á sig kominn. Eiginmaðurinn hefur lést og heilsu hans hrakað síðan þeim hjónum var stíað í sundur.

Björgunarafrek á Selfossi

Björgunarsveitarmenn á Selfossi þykja hafa unnið frækilegt afrek þegar þeir björguðu ungum manni úr bíl sem féll í Ölfusá í gærkvöldi. Gúmbjörgunarbátur þeirra varð vélarlaus úti í miðri á og samtímis því sem þá rak stjórnlaust niður ólgandi flúðir með meðvitundarlítinn ökumanninn um borð blésu þeir lífi í hann og hnoðuðu.

Mótmæltu hækkunum fargjalda með Herjólfi

Fjöldi fólks kom saman í Vestmannaeyjahöfn í dag til að mótmæla hækkunum fargjalda með Herjólfi. Einn af mótmælendunum sem fréttastofan ræddi við telur að hátt í fimm hundruð manns hafi tekið þátt í þeim.

Ríkisstjórn fullkunnugt um fjármálaóreiðu Byrgisins í 4 ár

Ríkisstjórninni var fullkunnugt um fjármálaóreiðu Byrgisins vorið 2003. Síðan þá hefur stjórnin veitt Byrginu á annað hundrað milljónir króna. Fjölmargar viðvörunarbjöllur hafa klingt á síðustu fjórum árum án þess að við þeim hafi verið brugðist. Málið er klúður frá upphafi til enda, segir Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samfylkingar.

Úrsögnum úr Frjálslynda flokknum fjölgar

Enn fjölgar úrsögnum úr Frjálslynda flokknum en nokkuð hefur verið um úrsagnir eftir að Margrét Sverrisdóttir sagði sig úr flokknum. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, segir ekki við öðru að búast þar sem mikil smölun hafi verið á landsfund flokksins um helgina. Því var fyrirfram ljóst að margir hafi fyrst og fremst ætlað að taka þátt í kosningunni.

Slíta ætti stjórnarsamstarfinu vegna svika í stjórnarskrármálinu

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að Framsóknarflokkurinn ætti að slíta stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn vegna vanefnda um að setja ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum landsins inn í tillögur um breytingar á stjórnarskránni. Hann segist ekki eiga samleið með flokki sem hafi farið eins mikið á svig við stefnumál sín og flokkurinn hafi gert á þessu kjörtímabili.

Níu manns handteknir í aðgerðum bresku lögreglunnar

Níu manns voru handteknir í nótt, í aðgerðum bresku lögreglunnar, grunaðir um undirbúning hryðjuverka í Bretlandi. Íbúar í Birmingham, þar sem handtökurnar fóru fram, eru felmtri slegnir og hissa.

Beita á lagalegum úrræðum vegna uppsagna fangavarða

Fangelsismálastofnun ríkisins hafa borist uppsagnir frá 39 fangavörðum sem starfa í fangelsum landsins. Uppsagnirnar eru frá og með 1. maí næstkomandi. Í tilkynningu sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur sent frá sér segir að kjarasamningar við fangaverði séu í gildi.

Lýst eftir sextán ára stúlku

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir sextán ára stúlku Sigríði Hugrúnu Sigurðardóttur. Ekkert er vitað um ferðir Sigríðar síðan á síðastliðinn laugardag. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hennar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1100.

Lögregla átti ekki þátt í dauða manns sem gekk berserksgang

Ekki er talið lögreglan hafi átt þátt í dauða karlmanns sem lést í haldi hennar eftir að hann gekk berserksgang á Hótel Sögu. Krufning leiddi í ljós að maðurinn lést vegna æsingsóráðsheilkenna sem orsakaðist af neyslu fíkniefna.

Bara ríkið

Þúsundir stúdenta og kennara fóru í mótmælagöngu í Aþenu í dag, til þess að mótmæla endurbótum stjórnvalda á menntakerfinu, sem meðal annars felur í sér að einkareknir háskólar verða leyfðir.

Tilnefningar Hagþenkis kynntar

Á blaðamannafundi sem nú stendur yfir í ReykjavíkurAkademíunni var verið að kynna lista 10 framúrskarandi fræðirita sem til greina koma við veitingu Viðurkenningar Hagþenkis árið 2006. Hagþenkir eru félag höfunda fræðirita og kennslugagna og viðurkenningarnar eru:

Fangelsuð fyrir að reyna að smygla fíkniefnum inn á Litla-Hraun

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag konu í tveggja mánaða fangelsi fyrir að reyna að smygla fíkniefnum inn á Litla-Hraun og fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna sama dag. Konan reyndi í haust að smygla hassi í leggöngum sínum inn í fangelsið en fíkniefnahundur varð efnanna var

Flugstoðir leggja ekki niður flugvelli

Flugstoðir ohf segja ekkert hæft í fullyrðingum Arngríms Jónssonar flugstjóra og formanns Flugmálafélags Íslands þess efnis, að Flugstoðir hafi lagt niður Ólafsfjarðarflugvöll. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsinga- og kynningarfulltrúi Flugstoða, segir að Ólafsfjarðarflugvöllur hafi verið lagður af um síðustu aldamót í samvinnu við yfirvöld á staðnum, og þá voru Flugstoðir ohf ekki til.

Kompás aðgengilegur fyrir iTunes á podcast

Fréttaskýringaþátturinn Kompás sem sýndur er á Stöð 2 er nú aðgengilegur fyrir iTunes á Podcast.is. Eins og kunnugt hlaut þátturinn Edduverðlaunin í fyrra í flokknum besti sjónvarpsþátturinn og þá hefur umfjöllun hans um læknadóp, Byrgið og barnaníðinga á Netinu vakið mikla athygli.

Tétsenar heiðra Krúsjoff

Tétesenar endurskírðu í dag torg í höfuðborg sinni Grozny, eftir Nikita Krúsjoff, fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna. Ástæðan fyrir þessum heiðri er sú að fyrir fimmtíu árum leyfði Krúsjoff Tétsenum að snúa aftur heim til sín úr útlegð.

Bryndís Schram og Sigur Rós stöðva framkvæmdir í Mosó

Framkvæmdir við tengibraut um Álafosskvos í Mosfellsbæ voru stöðvaðar í dag í kjölfar mótmæla íbúa á svæðinu. Meðal þeirra sem tóku þátt í mótmælunum var Bryndís Shcram fjölmiðlakona sem tók sig til og settist fyrir framan vinnuvélar og stöðvaði þannig vinnu þeirra.

Mengun verður langt undir mörkum

Verði af stækkun álvers Alcan í Straumsvík verða loftgæði með tilliti til heilsu fólks og mengunar gróðurs og jarðvegs undir öllum mörkum sem sett eru innan sem utan lóðamarka álversins. Þetta kom fram á fundi Samtaka Atvinnulífsins um atvinnulíf og umhverfi sem fram fór í morgun.

Mágur Osamas myrtur á Madagaskar

Óþekktir byssumenn myrtu í dag mág Ósamas bin Laden, á eynni Madagaskar, sem er undan suðausturströnd Afríku. Jamal Khalifa átti þar demantanámu, og verslaði með eðalsteina. Tíu til tuttugu byssumenn eru sagðir hafa ráðist inn á heimili hans, skotið hann til bana, og stolið ýmsum eigum hans.

Sala á Morgunblaðinu dregst saman á milli ára

Meðaltalssala á Morgublaðinu á dag dróst saman um nærri fimm þúsund eintök á síðari helmingi ársins 2006 miðað við sama tímabil ársins 2005. Þetta eru niðurstöður upplagseftirlits Viðskiptaráðs Íslands sem hefur eftirlit með seldum eintökum Morgunblaðsins og prentun og dreifingu Fréttablaðsins.

Skaðræðisrollur í sælgætisleit

Ný umhverfisvæn saltkorn sem notuð eru til að selta hála vegi í Wales í Bretlandi hafa reynst of góð – alla vega hjá kindurm í nágrenninu. Sykur-líkur hjúpur saltsins þykir það bragðgóður hjá sauðunum í Flintshire að þeir flokkast upp á vegina eftir að saltbíllinn hefur farið hjá, og borða saltið upp til agna. Hið umhverfisvæna salt er húðað sykurhlaupi svo það festist betur í hálku í stað þess að renna eða fjúka af veginum.

Lýsing af leiknum hraðaði akstrinum

Sautján ára gömul stúlka var stöðvuð á Vesturlandsvegi í gær á 125 km hraða. Hún gaf lögreglu þá skýringu að hún hefði gleymt sér við lýsingu í útvarpinu á leik Íslendinga og Dana. Í hita leiksins gleymdi hún að fylgjast með hraðamælinum. Skömmu síðar var liðlega tvítugur piltur tekinn á sama vegi á 129 km hraða.

Steinaldarþorp í grennd við Stonehenge

Breskir fornleifafræðingar hafa fundið rústir af stóru þorpi í grennd við Stonehenge, sem talið er að hafi tengst hinum fornu steinhleðslum. Þorpið er þá um 4600 ára gamalt og það stærsta sem fundist hefur í Bretlandi, frá síðari hluta steinaldar. Fornleifafræðingarnir telja sig hafa fundið tuttugu og fimm húsastæði og telja að þau séu mun fleiri. Þá grunar að íbúarnir hafi unnið við að reisa Stonhenge.

Sakaðir um vandræðagang í tengslum við strand Wilson Muuga

Umhverfisráðherra og samgönguráðherra voru sakaðir um vandræðagang í tengslum við strand Wilson Muuga í Hvalnesfjöru í desember og spurðir hvernig og hvenær ætti að fjarlægja flak skipsins. Samgönguráðherra sagði hins vegar að lögin væru skýr um ábyrgð skipseigenda og ekki yrði gefinn neinn afsláttur á því.

Sjá næstu 50 fréttir