Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
ASK Arkitektar sigruðu í samkeppni um miðbæ Árborgar ASK Arkitektar báru sigur úr býtum í samkeppni um miðbæjarskipulag á Selfossi sem bæjarstjórn Árborgar stóð fyrir. Alls bárust tíu tillögur að skipulagi í miðbænum en tillaga ASK var samkvæmt umsögn dómnefndar vel unnin og skýr og gaf fyrirheit um spennandi miðbæ. 29.1.2007 16:39
Hillary klaufaleg á blaðamannafundi Hillary Clinton forsetaframbjóðandi demókrata í Bandaríkjunum fékk óvænt viðbrögð á fjöldafundi í Iowa í Bandaríkjunum í gær, vegna ummæla sem hún viðhafði um hæfni sína til að meðhöndla illa menn. Hillary byrjaði fundinn á alvarlegum nótum og sagðist vera í forsetaslagnum af alvöru, hún ætlaði að vinna. Hún gagnrýndi George Bush Bandaríkjaforseta harðlega fyrir stríðið í Írak. 29.1.2007 16:37
Nýtt Windows fer í sölu á morgun Sala hefst á morgun á nýrri útgáfu af Windows stýrikerfinu frá Microsoft, Windows Vista. Búist er við að um 100 milljón tölvur verði komnar með nýja stýrikerfið innan 12 mánaða. Þetta er um 15% þeirra tölva sem nú keyra á XP stýrakerfinu. Viðmót og öryggismál, eru meðal þess sem bætt hefur verið í nýju útgáfunni, sem verður markaðssett í þremur gerðum. Lágmarksbúnaður til að keyra Vista er 512 Mb af innra minni, 800 megaherza örgjörvi og 15 Gígabita pláss á harða diskinum. 128MB af skjáminni er líka nauðsynlegt til að nýta þrívíddarútlit glugganna í nýja viðmótinu. Uppfærsla í Vista úr Windows XP kostar á bilinu 15 til 20 þúsund krónur hér á landi. 29.1.2007 16:36
Leggur fram frumvarp um stofnfrumurannsóknir Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um tæknifrjóvgun sem miðar að því að heimila nýtingu stofnfrumna til rannsókna og lækninga. 29.1.2007 16:21
Eimskip eignast alla hluti í Norðurfrakt Eimskip hefur keypt alla hluti í Norðufrakt ehf. á Siglufirði en fyrir átti félagið 52 prósenta hlut. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu eru seljendur Árni Helgason á Ólafsfirði og Ásmundur H. Einarsson á Siglufirði. 29.1.2007 15:59
Spurt hvort Samfylkingin og Vinstri - græn styddu stefnu frjálslyndra Kallað var eftir því á Alþingi í dag hvort Samfylkingin og Vinstri - græn styddu hugmyndir Frjálslynda flokksins í innflytjendamálum sem greint hefði verið frá á landsfundi flokksins um helgina. 29.1.2007 15:40
Fyrsta málið staðfest hjá sakamáladómsstólnum í Haag Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag ákvað í dag að næg sönnunargögn væru gegn leiðtoga og liðsmanni í Kongólska hernum til að hefja fyrsta mál dómstólsins. Ákvörðunin staðfestir ákæru gegn Thomas Lubanga um að hafa skráð börn í herinn sem hermenn. Hún markar þáttaskil fyrir dómstólinn sem var komið á fót árið 2002 og er ætlað að vera varanlegur alþjóðlegur stríðsglæpadómstóll. 29.1.2007 15:37
Mótmæli fyrirhuguð vegna Herjólfshækkunar Hækkun á fargjöldum Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs mælist illa fyrir í Eyjum. Að sögn Frétta í Eyjum hefur hópur fólks ákveðið að efna til mótmælastöðu við Herjólf áður en skipið fer seinni ferðina kl. 16.00 á miðvikudaginn. Gjaldskrá Herjólfs hækkar 1. febrúar um 11,49% að meðaltali. Almennt fargjald fyrir fullorðinn hækkur úr 1800 krónum í 2000 krónur. 29.1.2007 15:24
Fimmtán manna áhöfn bjargað Sex skipverjum var bjargað úr spænskum togara um borð í breska herþyrlu við Scilly eyjur, 45 kílómetra frá Cornwall á Suðvesturodda Bretlands í dag. Sexmenningarnir urðu eftir fyrr í dag þegar níu manns var bjargað. Flogið var með þá til Brest í Norður Frakklandi. Fyrsta tilraun þyrlunnar til aðstoðar var að koma pumpu um borð í skipið sem er spænskt og heitir Mareton, en hjálparkall barst frá skipinu eftir að það fékk á sig sjó um 160 mílur vestur af Scilly eyjum. 29.1.2007 15:24
Fimmtán teknir fyrir ölvunarakstur um helgina Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina, þar af fjórtán karlar eftir því fram kemur á vef lögreglunnar. Tíu voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi, einn í Hafnarfirði og einn á Álftanesi 29.1.2007 15:03
Vara fólk við vafasamri markaðssetningu fæðubótarefna Neytendasamtökin vara fólk við varasamri markaðssetningu fæðubótarefna og afeitrunarmeðferða og þeim hræðsluáróðri sem stundum ríkir gegn venjulegum mat eins og það er orðað á heimasíðu samtakanna. 29.1.2007 14:53
Kína varar við víni og konum Yfirvöld í Kína hafa varað ríkisstjórnina og starfsmenn Ólympíuleikanna við því að taka þátt í spillingu eða siðlausri hegðun þegar Ólympíuleikarnir fara fram í Peking árið 2008. Kommúnistaflokkurinn í Peking varaði embættismenn og opinbera starfsmenn við því að dreifa orku sinni í vín eða konur. Haft er eftir kínverska dagblaðinu, the China Daily, að fylgst verði með embættismönnum og hvort lífstíll þeirra sé nægilega ábyrgur. 29.1.2007 14:47
Flugnema dæmdar bætur vegna flugslyss Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag flugkennara og flugskóla til þess að greiða flugnema um 3,8 milljónir króna í skaðabætur vegna flugslyss sem hann lenti í í æfingaflugi árið 2003. 29.1.2007 14:42
Verkfalli aflýst hjá British Airways Tveggja daga verkfalli flugliða hjá breska flugfélaginu British Airways hefur verið aflýst. Samningar náðust nú eftir hádegið milli félagsins og flugliða um aðalatriði deilunnar. Verkfallið var fyrirhugað frá miðnætti í kvöld til miðnættis á miðvikudagskvöld. Sættir um laun og veikindadaga tókust loks í dag. Þrátt fyrir að verkfallinu hafi verið aflýst er gert ráð fyrir einhverjum truflunum á flugi. 29.1.2007 14:07
Nemendur sendir heim í mótmælaskyni Kennarar í barnaskólanum á Eyrarbakka sendu í morgun um áttatíu börn í efstu bekkjum skólans heim til sín um tíuleytið til þess að mótmæla því sem þeir kalla sleifarlag við framkvæmdir á skólalóðinni á Eyrarbakka. 29.1.2007 13:57
Gámar fjarlægðir af strandaða flutningaskipinu Fjöldi björgunarbáta hóf í dag að fjarlægja meira en tvö þúsund gáma af flutningaskipinu MSC Napoli, sem strandaði undan ströndum Devon á Englandi 19 janúar. Risastór fljótandi krani er notaður til að færa gámana, sem innihalda allt frá barnableyjum til mótorhjóla. Verkið er bæði tímafrekt og vandasamt, en skipið má ekki breyta um stöðu þegar gámarnir eru teknir af því. 29.1.2007 13:54
Eiður skorar til stuðnings veikum börnum Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðisins í knattspyrnu og leikmaður Barcelona, skrifaði í gær undir samstarfssamning við Eimskipafélag Íslands til þriggja ára bæði á sviði kynningar- og góðgerðamála. 29.1.2007 13:41
Þrír dagar í reykingabann í Frakklandi Frá og með 1. febrúar næstkomandi verður bannað að reykja í opinberum stöðum, nema á kaffihúsum og veitinga- og skemmtistöðum í Frakklandi. Veitingasalar hafa ár til að aðlagast, þar verður bannað að reykja 1. febrúar á næsta ári. Reykingabannið mun breyta ásýnd Frakklands þar sem löngum hefur búið ein mesta reykingaþjóð Evrópu. 29.1.2007 13:30
Líðan vélsleðamanns fer batnandi Líðan mannsnis sem lenti í snjóflóði norðan við skíðasvæðið í Hlíðarfjalli fer batnandi. Að sögn læknis á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri er hann þó enn í öndunarvél. 29.1.2007 13:15
Keflavíkurflugvöllur notaður sem umskipunarhöfn Keflavíkurflugvöllur var um helgina notaður sem eins konar umskipunarhöfn fyrir flutning frá Texas til Sádi-Arabíu. Það voru Antonov-flutningavélar frá Rússlandi sem önnuðust flutninginn sem var sérhæfður búnaður til borunar eftir olíu. 29.1.2007 13:00
Dagur Kári hlýtur verðlaun á Sundance Dagur Kári Pétursson kvikmyndaleikstjóri var einn fjögurra hugsjónamanna í kvikmyndagerð sem hlutu verðlaun á Sundance kvikmyndahátíðinni á laugardag. Verðlaunin nema tæplega 700 þúsund krónum í framleiðslustyrk, auk aðstoðar við dreifingu. Það var handrit Dags Kára “The good heart” sem tryggði honum verðlaunin. Auk peningaverðlaunanna eru myndinni tryggðar sýningar í japönsku sjónvarpi. 29.1.2007 12:51
Allt stefnir í verkfall hjá British Airways Allt útlit er fyrir að tveggja daga verkfall starfsmanna breska flugfélagsins British Airways hefjist á morgun. Flugfélagið hefur þegar aflýst 1.300 flugferðum, þar á meðal til og frá Íslandi. 29.1.2007 12:45
Á fleygiferð í bíl í Illum Stórverslunin Illum á Strikinu í Kaupmannahöfn hefur eflaust líkst tökustað kvikmyndar í gærkvöld þegar tveir menn óku bifreið inn í verslunina og reyndu að ræna skartgripadeildina þar. 29.1.2007 12:41
Rætt um alþjóðlegan háskóla á Keflavíkurflugvelli Alþjóðlegur háskóli, tengdur þekkingarsetri og rannsóknastofnunum, er meðal þeirra hugmynda, sem áhugi er á að gera að veruleika á Keflavíkurflugvelli. 29.1.2007 12:30
Þrenn samtök lýsa ábyrgð Þrenn samtök hafa lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem framin var í Rauðahafsbænum Eilat í Ísrael í morgun. Þrír létu lífið í árásinni en hún var gerð í bakaríi í bænum, sem er fjölsóttur af ferðamönnum. 29.1.2007 12:30
Ingibjörg Sólrún hefur enga trú á því að Jón Baldvin bjóði fram Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur enga trú á því að Jón Baldvin Hannibalsson geri alvöru í því að bjóða fram nýjan lista í alþingiskosningum. Hann skilji manna best að menn megi ekki stökkva frá borði þrátt fyrir ágjöf. Það viti þeir best sem sjálfir hafi staðið í brúnni. Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins orðaði möguleikann á slíku framboði í Silfri Egils í gær. 29.1.2007 12:18
120 vitni kölluð fyrir í aðalmeðferð Baugsmáls Við fyrirtöku í morgun í Baugsmálinu, sem enn er komið í héraðsdóm, kom fram að vænta má þess að 120 vitni verði kölluð fyrir í aðalmeðferð málsins í næsta mánuði. Á þessu stigi málsins er verið að fjalla um ákæruliði sem áður hafði verið vísað frá héraðsdómi og Hæstarétti. 29.1.2007 12:15
Yfir 300 uppreisnarmenn féllu í bardögum Að minnsta kosti 300 uppreisnarmenn eru sagðir hafa fallið í heiftarlegum átökum við íraskar og bandarískar hersveitir í Najaf-héraði undanfarinn sólarhring. Að minnnsta kosti fimm íraskir hermenn liggja í valnum eftir átökin og tveir bandarískir. 29.1.2007 12:02
Þrír hafa gefið sig fram Þrír menn af þeim fjórum sem gengu í gildru fréttaskýringaþáttarins Kompáss þegar þeir héldu sig vera að fara á fund þrettán ára stúlkubarns hafa gefið sig fram við lögreglu. Enn er óljóst hvernig ákæruvaldið mun taka á málum mannanna. 29.1.2007 12:00
UNICEF þarf 43 milljarða til að sinna neyð Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2007, sem kynnt var í dag, kemur fram að UNICEF þurfi rúmlega 43 milljarða til að aðstoða börn og konur á 33 neyðarsvæðum víða um heim. Verkefnin eru bæði í Darfur en eins í löndum sem fá minni fjölmiðlaathygli á borð við Haítí, Eritreu og Mið-Afríkulýðveldið. 29.1.2007 12:00
Lítill hestur er mikil hjálp Panda hefur allt sem maður gæti óskað sér í gæludýri og blindrahesti. Hún verndar eiganda sinn Ann Eide, lætur vita þegar hún þarf að gera stykkin sín, er ávallt viðbúin og elskar að elta hluti. Smáhesturinn Panda í Betlehem, New York, hefur hjálpað Eide, 58 ára, að komast ferða sinna í borgum og sveitum frá árinu 2003. Edie heyrði fyrst um blindrahesta árið 2000, en þá var hún með blindrahund. 29.1.2007 11:43
Ástralir drekki endurunnið skolp Íbúar í Queensland í Ástralíu munu bráðlega fá endurunnið skolpvatn í kranavatninu, að því er fylkisstjórinn hefur sagt. Hugmyndin nýtur afar lítilla vinsælda hjá íbúunum en fylkisstjórinn segir engra annarra kosta völ og sama muni eflaust eiga við um fleiri fylki Ástralíu á næstu árum. 29.1.2007 11:29
Stálu bílum í Reykjavík og á Skeiðum Bíræfnir bílaþjófar voru á ferðinni í Reykjavík og á Skeiðum í síðustu viku eftir því sem segir á vef lögreglunnar á Selfossi. Lögregla fékk tilkynningu um að bíl hefði verið stolið af sveitabæ á Skeiðum aðfaranótt þriðjudags en hann fannst næsta dag við fjölbýlishús í Laugarneshverfi í Reykjavík. 29.1.2007 11:27
Margrét ákveður næstu skref í dag Margrét Sverrisdóttir ákveður á fundi í dag klukkan sex hver næstu skref hennar á vettvangi stjórnmálanna verða. Þá fundar hún með sínu nánasta samstarfsfólki úr Frjálslynda flokknum um þá stöðu sem upp er komin eftir að hún laut í lægra haldi fyrir Magnúsi Þór Hafsteinssyni í varaformannskjöri á landsfundi flokksins um helgina. 29.1.2007 11:08
Vegfarandi varð fyrir bílhurð Lögregla á Ísafirði rannsakar nú mál sem upp kom í gær en þá varð gangandi vegfarandi fyrir hurð á bifreið sem var ekið fram hjá honum á Skutulsfjarðarbraut. Eftir því sem fram kemur í frétt frá lögreglunni meiddist vegfarandinn ekki alvarlega en bifreiðinni var ekið á brott eftir atvikið. 29.1.2007 10:56
Hugsanleg brot Ísraelsmanna á vopnalögum Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna birtir Bandaríkjaþingi bráðabirgðaskýrslu í dag um það hvort vopnalög Bandaríkjanna hafi verið brotin þegar Ísraelar vörpuðu klasasprengjum, framleiddum í Bandaríkjunum, á íbúðabyggð í Líbanon síðastliðið sumar. 29.1.2007 10:46
Vígamenn Hamas ræna yfirmanni öryggissveita Fatah Vígamenn hliðhollir Hamas samtökunum rændu í kvöld yfirmanni öryggissveita Mahmoud Abbas, forseta heimastjórnar Palestínumanna. Talsmaður palestínskra öryggissveita skýrði frá þessu í kvöld. Maðurinn sem var rænt heitir Sayyed Shabban og var yfir öryggissveitum á Gaza. 28.1.2007 20:46
Kabila treystir stöðu sína Stuðningsmenn Joseph Kabila, forseta Kongó, unnu auðveldan sigur í fylkisstjórakosningum í Kongó en úrslit voru birt í dag. Stjórnarandstaðan, undir forystu Jean-Pierre Bemba, mótmælti niðurstöðununum samstundis og sagði brögð í tafli. Kosningabandalag Kabila vann sex af níu fylkisstjórakosningum og sjálfstæðir frambjóðendur unnu tvær. 28.1.2007 20:29
Fimm hermenn felldir í Najaf Tveir bandarískir hermenn létu lífið þegar þyrla hrapaði í bardaganum í Najaf í dag. Þetta sagði fulltrúi bandaríska hersins í kvöld. Fréttamaður Reuters fréttaveitunnar sá þyrluna hrapa eftir að hafa lent í skothríð. Reykur liðaðist frá þyrlunni þegar hún hrapaði. 28.1.2007 20:09
Vísbendingar um að Samfylkingu hafi mistekist Allt bendir til að Samfylkingunni hafi mistekist að verða valkostur við Sjálfstæðisflokkinn, segir Jón Baldvin Hannibalsson. Ef stofna þarf nýja hreyfingu til að fókusera á aðalatriðin þá verði menn að gera það. Hann segir ótímabært að svara því hvort hann gengi í slíkan flokk. 28.1.2007 19:45
Þúfnapólitík réði úrslitum Þúfnapólitík réði úrslitum hjá framsóknarmönnum á Suðurlandi, að mati Eyglóar Harðardóttur. Hún laut í lægra haldi fyrir skrifstofustjóra þingflokksins sem kjörstjórn vildi stilla upp í þriðja sætið eftir að Hjálmar Árnason gaf það frá sér. 28.1.2007 19:30
250 uppreisnarmenn felldir í Írak Bandarískar og íraskar hersveitir hafa barist í allan dag við uppreisnarmenn úr röðum súnnía og sjía múslima í borginni Najaf. Bandaríski herinn hefur hingað til ekki viljað segja neitt um bardagann þar sem hann er enn í gangi en írösk yfirvöld sögðu rétt í þessu að fleiri en 250 uppreisnarmenn hefðu látið lífið. 28.1.2007 19:15
Deilt um friðlandið á Hornströndum Bæjarstjórinn á Ísafirði vill stækka friðland Hornstranda - en hópur landeigenda vill minnka það. Eina friðunin á Hornströndum hefur verið friðun tófunnar, segir einn landeigenda. 28.1.2007 18:54
Vill að Margrét leiði lista í Reykjavík Margrét Sverrisdóttir íhugar að kæra framkvæmd kosninga á landsþingi Frjálslynda flokksins þar sem hún segir hafa ríkt glundroða. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, vill að Margrét skipi fyrsta sæti flokksins í Reykjavík suður í næstu þingkostningum 28.1.2007 18:45
Læknir á slysadeild varð fyrir árás Læknir á slysadeild Landsspítalans tognaði á hendi þegar ráðist var á hann í nótt. Fjórir ungir menn voru handteknir fyrir slagsmál og læti á biðstofu slysadeildarinnar. 28.1.2007 18:45