Fleiri fréttir

Kynnti tillögur vegna stækkunar álvers

Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, kynnti á blaðamannafundi í dag nýja deiliskipulagstillögu að fyrirhugaðri stækkun álversins í Straumsvík og tillögur um fyrirkomulag og tímasetningu á íbúakosningu.

Ólafur fundaði með Kalam og Soniu Gandhi

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson átt í dag og í gær fundi með forseta Indlands dr. A.P.J. Kalam og Soniu Gandhi leiðtoga Congressflokksins. Á fundunum kom fram ríkur vilji til að efla tengsl milli landanna og að efnt yrði til samvinnu við Íslendinga á ýmsum sviðum, sem sem í orkumálum, vísindum, tækni og viðskiptum.´

Gerði tilraun til flugráns

Lögreglan í N'Djamena, höfuðborg Tsjad, handtók í morgun súdanskan mann sem rænt hafði farþegaþotu með 103 innanborðs.

Vetrarveður veldur usla á meginlandi Evrópu

Vetrarveður hefur valdið töluverðum usla í Norður- og Mið-Evrópu í dag og eru þrír látnir í umferðarslysum í Þýslandi sem rekja má til hálku á vegum. Þá eru tugir slasaðir í landinu.

Forseti Ísraels í launalaust leyfi

Moshe Katsav forseti Ísraels tilkynnti ísraelska þinginu í dag að hann myndi taka launalaust leyfi. Forseta þingsins var tilkynnt um ákvörðunina eftir að saksóknarar tilkynntu að þeir ætluðu að ákæra Katsav fyrir nauðgun og röð annarra kynferðisglæpa.

Biður um meira svigrúm

Bush Bandaríkjaforseti bað þjóð sína um að gefa sér meiri tíma til að ná árangri í Írak í stefnuræðu sinni í gær. Stjórn hans ætlar að beita sér fyrir því að á næstu tíu árum dragi Bandaríkjamenn úr olíunotkun sinni um fimmtung.

Gripið hafi verið til fullnægjandi aðgera vegna máls barnaníðings

Dómsmálaráðuneytið telur að gripið hafi verið til fullnægjandi aðgerða vegna máls dæmds barnaníðings sem greint var frá í fréttaskýringarþætttinum Kompási á sunnudaginn var. Maðurinn reyndi að komast í samband við 13 ára stúlku í kynferðislegum tilgangi þegar hann dvaldi á áfangaheimilinu Vernd en stúlkan var tálbeita Kompáss.

110 skilja ekki íslensku á öldrunarstofnunum

110 manns sem starfa á öldrunarstofnunum á landinu skilja ekki íslensku eða geta ekki tjáð sig á íslensku. Þetta kom fram í svari Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Önnu Kristínar Gunnarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar.

Ísland sagt til fyrirmyndar í skattamálum hótela og veitingastaða

Samtök hótel- og veitingasamtaka innan Evrópusambandsríkjanna HOTREC héldu ráðstefnu á föstudaginn í Búdapest um virðisaukaskatt. Samtökin hafa síðastliðin 15 ár barist fyrir tilslökun af hálfu Evrópuráðsins þess efnis að gisting og veitingaþjónusta í aðildarlöndunum verði í lægra þrepi virðisaukaskatts.

Red Hot Chili Peppers á Hróarskeldu

Skipuleggjendur Hróarskelduhátíðarinnar voru að tilkynna að Red Hot Chili Peppers yrðu eitt stærsta nafnið á hátíðinni nú í sumar. Kaliforníska rokksveitin hefur einu sinni áður spilað í Hróarskeldu.

TF-EIR, ný þyrla Landhelgisgæslunnar, á leið til landsins

Landhelgisgæslan fær nýja þyrlu í dag og hefur hún hlotið einkennisstafina TF-EIR. Þetta verður fjórða þyrla Gæslunnar og er samskonar og TF-SIF, minni þyrlan. Hún er leigð frá Noregi og fljúga flugmenn Landhelgisgæslunnar henni til Íslands.

Kópavogur kaupir mun ódýrara en Reykjavík

Lóðarverð á hverja íbúð sem Kópavogsbær greiðir landeiganda Elliðavatns samkvæmt eignarnámssamkomulagi við hann er vel innan við tvær milljónir á íbúð, að sögn Gunnars Birgissonar bæjarstjóra.

Ríkisfyrirtæki gagnrýnt á Alþingi fyrir að kaupa prentsmiðju

Ríkið var sakað á Alþingi í morgun um að gera strandhögg á prentmarkaði með kaupum Íslandspósts á fyrirtækinu Samskiptum. Samgönguráðherra varði kaupin en þingmaður Framsóknarflokks sem og Samfylkingarþingmenn gagnrýndu þau harðlega.

Jade Goody í kuldanum eftir Big brother

Breska sjónvarpsstjarnan Jade Goody reynir nú að klóra í bakkann eftir umtalaða þáttaröð raunveruleikaþáttarins Big brother. Hún skapaði sér mikla óvild í þáttunum með stríðni og dónaskap við indverska leikkonu og var sökuð um kynþáttahatur. Sjónvarpsstöðin Living TV og ilmvatnsframleiðandi sem var í samstarfi við hana hafa sagt upp samningum.

Úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Ákveðið hefur verið að úthluta úr Framkvæmdasjóði aldraðra um 712 milljónum króna á þessu ári til uppbyggingar verkefna í öldrunarþjónustu. Af þessu verða 441 milljón króna veitt vegna fjölgunar hjúkrunarrýma.

Vínræktarhéraðið Skandinavía

Danmörk og Svíþjóð verða eitt besta hvítvínssvæði í heimi í framtíðinni þegar andrúmsloftið hlýnar. Þetta er álit vínsérfræðinga og loftslagsfræðinga sem Los Angeles Times spurði álits. Þá verður Þýskaland eitt virtasta rauðvínsland heims.

Mistakist í Írak geta afleiðingarnar orðið víðtækar

George Bush Bandaríkjaforseti segir að mistakist Bandaríkjaher að ná tökum á ástandinu í Írak hafi það bæði alvarlegar og víðtækar afleiðingar. Bush flytur í klukkan tvö í nótt, að íslenskum tíma, stefnuræðu sína þar sem hann ver meðal annars þá ákvörðun að fjölga hermönnum í Írak.

Aldraðir og öryrkjar bjóða fram til Alþingiskosninga

Hópur aldraðra og öryrkja hefur ákveðið að stofna til framboðs fyrir komandi Alþingiskosningar. Aðalmarkmið hópsins er að bæta kjör og aðbúnað eldra fólks og öryrkja. Lögð hafa verið drög að helstu áhersluatriðum framboðsins og verða þau fullmótuð á næstu dögum.

Stjórn Verndar vonar að viðmót nágranna dofni ekki

Fangahjálpin Vernd vonar að vinsamlegt viðmót nágranna áfangaheimilisins dofni ekki þrátt fyrir þann skugga sem umræða síðustu daga hefur varpað á heimilið. Stjórn Fangahjálparinnar Verndar kom til fundar í kvöld til að ræða málefni áfangaheimilisins.

Margir vilja nýta mannvirki á Keflavíkurflugvelli

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hefur fengið sendar yfir eitthundrað hugmyndir um nýtingu mannvirkja og húsakosts á vellinum. Félagið hefur opnað heimasíðu og kappkostar að koma lífi í Keflavíkurflugvöll á nýjan leik sem allra fyrst. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar bíður mikið verk að koma öllu í gang.

Skemma eyðilagðist í veðurofsa

Skemma við bæinn Fell í Kollafirði eyðilagðist í veðurofsa í dag. Björgunarsveitin Dagrenning á Hólmavík var kölluð út á fjórða tímanum þar sem þakplöturnar voru byrjaðar að losna.

Hákarinn spýtti honum út úr sér

Rúmlega fertugur kafari liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Ástralíu eftir að þriggja metra langur hvíthákarl réðst á hann undan austurströnd landsins í morgun. Hákarlinn beit um búk og síðan höfuð mannsins. Honum tókst með snarræði að pota í auga hákarlsins sem spýtti honum þá út úr sér.

Hvalkjöt í hundana

Birgðir af hvalkjöti hrannast upp í Japan og er svo komið að farið er að nota það í hundamat. Þetta fullyrða Greenpeace-samtökin og segja þar með sannað að enginn grundvöllur sé fyrir hvalveiðum Íslendinga.

Börn í Byrginu

Unglingsstúlkur hafa verið í vistun í Byrginu þrátt fyrir að meðferðarheimilið hafi ekki haft heimild til að vista börn. Byrgið leitaði eftir heimild til barnavistunar hjá Barnaverndarstofu fyrir þremur árum en var hafnað eftir skoðun.

Forsætisráðherra: Margir ókostir fylgja aðild að ESB

Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir marga ókosti fylgja aðild að Evrópusambandinu. EES-samningurinn tryggi nægilegt aðgengi að markaði ESB. Geir segir að aðild hafi ekki verið til umræðu á Ísland í mörg ár. Mögulegt sé þó að einn flokkur ræði þann möguleika fyrir þingkosningarnar í vor.

Gengisáhætta erlendra húsnæðislána sáralítil

Gengisáhætta af erlendum húsnæðislánum er sáralítil, segir sjálfstæður fjármálaráðgjafi. Ef fólk þolir upp undir tuttugu prósenta sveiflu í greiðslubyrði af húsnæðislánum eru erlend lán hagstæðasti kosturinn.

Margrét og Magnús Þór í slag

Margrét Sverrisdóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins ætlar að bjóða sig fram til varaformanns Frjálslynda flokksins á komandi flokksþingi. LUM Þetta er haft eftir áreiðanlegum heimildum innan Frjálslynda flokksins

Taprekstur eykst ár frá ári

Ríkisútvarpið eyddi tæpum hálfum milljarði umfram heimildir á hálfs árs tímabili í fyrra. Taprekstur stofnunarinnar hefur margfaldast á tveimur árum. Þingmenn spurðu í dag hvað hefði verið að gerast í útvarpinu. Menntamálaráðherra var gagnrýndur fyrir að leyna upplýsingum um fjárhagsstöðu stofnunarinnar í dag.

Telur þörf á lagabreytingum vegna barnaníðinga

Forstjóri Barnaverndarstofu telur þörf á að breyta lögum svo hægt sé að fylgjast betur með barnaníðingum sem líklegir eru til að brjóta af sér á ný. Lögreglan rannsakar játningar Ágústs Magnússonar í Kompás þar sem hann sagðist hafa framið fleiri brot en hann hefur verið dæmdur fyrir.

Lýst eftir karlmanni á fimmtugsaldri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigurði Hólm Sigurðssyni. Sigurður er 43 ára, grannvaxinn og stuttklipptur. Hann er 184 cm á hæð.

Norðurskautsverkefni styrkt

Samstarfsnefnd Norrænu ráðherranefndarinnar hefur samþykkt að styrkja 22 Norðurskautsverkefni. Í fréttum Norrænu ráðherranefndarinnar segir að styrkirnir nemi liðlega 80 milljónum íslenskra króna.

Beirút lömuð vegna óeirða

Beirút, höfuðborg Líbanons, er nærri lömuð vegna óeirða sem þar hafa geisað síðan í nótt. Mörg þúsund mótmælendur hafa lagt niður vinnu í Beirút og víðar og krefjast þess að ríkisstjórnin segi af sér svo hægt verði að kjósa nýtt þing. Stjórnvöld segja þetta tilraun Hizbollah til valdaráns.

Þjófar mikið á ferðinni

Nokkuð hefur verið um innbrot á höfuðborgarsvæðinu í dag og í nótt. Brotist var inn í hús í Mosfellsbæ og þaðan stolið tölvum, tölvuskjáum, fartölvu og myndavél. Ekki er vitað hvort einn eða fleiri þjófar hafi þar verið á ferð en talið er að þeir hafi farið inn um glugga.

Vantar hermenn í fleiri stríð

Bandarískir hershöfðingjar hafa af því nokkrar áhyggjur að Írak og Afganistan hafi dregið úr getu heraflans til þess að berjast á nýjum vígstöðvum. Yfirhershöfðingi landgönguliðsins sagði í yfirheyrslu hjá þingnefnd að þeir hefðu skoðað aðrar hernaðaráætlanir, og hefðu áhyggjur af því að þar skorti getu á sumum sviðum.

Haraldur Johannessen þarf að víkja sæti

Hæstiréttur Íslands úrskurðaði í dag að Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, skuli víkja sæti við rannsókn á meintum skattalagabrotum Baugsmanna.

Segolene Royal biðst vægðar

Segolene Royal, forsetaframbjóðandi sósíalista í Frakklandi, bað fjölmiðla í dag um að hætta að hnýsast í einkalíf sitt. Fjölmiðlar hafa undanfarið fjallað mikið um meintan ágreining hennar og sambýlismanns hennar Francois Hollande, sem er formaður Sósíalistaflokksins og gerði sér sjálfur vonir um að verða í framboði til forseta. Litlar líkur eru á að fjölmiðlar verði við óskum hennar.

Í hár saman út af tölvuleikjum

Óhófleg tölvunotkun hefur valdið vandræðum á heimilum í höfuðborginni. Á vef lögreglunnar er sagt frá heimsókn lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu að ónefndu húsi í gær þar sem fjölskyldan var komin í hár saman vegna tölvunotkunar unglingspilta á heimilinu.

Ítalskur ráðherra krefst hermanna heim frá Afganistan

Ráðherra græningja í samsteypustjórn Romanos Prodis, á Ítalíu, hefur hótað uppreisn í ríkisstjórninni vegna ítalskra hermanna í Afganistan. Hann krefst þess að gerð verði tímaáætlun um heimkvaðningu þeirra. Ítalir hafa þegar kallað hermenn sína heim frá Írak, en Prodi var á móti því stríði. Hann segir aftur á móti að hermennirnir í Afganistan tilheyri friðargæslusveitum, og það sé allt annar handleggur.

Samstaða um að bregðast við ólöglegum netfjárhættuspilum

Samstaða var um það á Alþingi í dag að bregðast þyrfti við auglýsingum um fjárhættuspil sem birst hefðu í fjölmiðlum á undanförnum vikum og fjárhættuspilum á Netinu en jafnframt að málið væri snúið og því ekki auðvelt að koma böndum á slíka starfsemi.

Forseti Ísraels ákærður fyrir nauðgun

Forseti Ísraels, Moshe Katsav, verður ákærður fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot gegn fjórum konum í starfsliði hans. Dómsmálaráðuneyti Ísraels sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis, í dag. Forsetinn hefur neitað allri sök.

RÚV-frumvarpið samþykkt á Alþingi

Frumvarp um Ríkisútvarpið ohf var samþykkt á Alþingi laust eftir klukkan þrjú með 29 atkvæðum stjórnarliða gegn 21 atkvæðum stjórnarandstöðu í kjölfar háværra umræðna um fjárhagsstöðu stofnunarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir