Fleiri fréttir

Ólafur Ragnar þiggur sæti í Þróunarráði Indlands

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur þegið sæti í Þróunarráði Indlands. Ráðinu er ætlað að móta tillögur um hvernig Indverjar geta styrkt efnahagslíf sitt og velferð þjóðarinnar án þess að umhverfi bíði varanlegt tjón af eða að gæðum náttúrunnar verði stefnt í hættu.

Óeirðir í Líbanon

Mörg þúsund Líbanar hafa lamað nær alla Beirút og lokað af hluta hennar. Stjórnarandstæðingar hafa lagt niður vinnu víða um Líbanon og ætla sér að steypa ríkisstjórn landsins með góðu eða illu.

Hrant Dink borinn til grafar í Istanbúl

Mikill viðbúnaður var í Istanbúl í dag þegar tugþúsundir manna söfnuðust saman á götum úti til að berja augum kistu blaðamannsins Hrants Dink sem borinn var til grafar í dag. Dink var skotinn til bana á föstudaginn.

Nærri því étinn af hákarli

Rúmlega fertugur Ástrali liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í heimalandi sínu eftir að þriggja metra langur hákarl réðst á hann undan austurströnd landsins í morgun. Maðurinn var við köfun þegar hákarlinn réðist á hann og beit um höfuð hans. Tókst manninum með snarræði að pota í auga hákarlsins sem losaði um tak sitt og spýtti nánast kafaranum út úr sér.

Hvetja til laga um hámarkslosun gróðurhúsalofttegunda

Forstjórar níu af stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna, þeirra á meðal Alcoa, skora á Bush Bandaríkjaforseta að setja lög um hámarkslosun gróðurhúsalofttegunda og verndun andrúmsloftsins. Forsetinn flytur árlega stefnuræðu sína í nótt og búist er við að umhverfismál beri þar á góma.

Beita þveröfugri aðferð við Akureyringa

Borgaryfirvöld í Reykjavík ætla að beita þveröfugri hagfræði við bæjaryfirvöld á Akureyri til að lokka fleiri farþega upp í strætisvagna sína. Með fjölgun farþega að markmiði hafa Akureyringar fellt fargjöldin niður en til að ná sama markmiði ætla Reykvíkingar að hækka sín fargjöld til muna.

Snjóflóðahætta utan þéttbýlis

Snjóflóðahætta getur verið utan þéttbýlis víða á landinu og féll eitt á Súðavíkurveg um miðnætti, skammt frá gamla þorpinu, sem eyddist í snjóflóðinu mikla fyrir rúmum áratug.

Hvalkjöt í hundamat

Birgðir af illseljanlegu hvalkjöti hafa hlaðist upp í Japan og hafa aukist um tvö þúsund tonn á tveimur árum. Greenpeace telur að með þessu séu brostin öll rök fyrir hvalveiðum Íslendinga. Benda samtökin á að Japanar séu farnir að nota hvalkjöt í hundamat.

Játningar kynferðisbrotamanns rannsakaðar

Játning Ágústs Magnússonar í Kompási á sunnudag, þar sem hann segir fórnarlömb sín hafa verið fleiri en hann var dæmdur fyrir, verður tekin til rannsóknar að sögn lögreglu. Ritstjóri Kompáss mætir í skýrslutöku hjá lögreglu eftir hádegi vegna þáttarins.

Ljóðstafur Jóns úr Vör afhentur

Guðrún Hannesdóttir bar sigur úr bítum í hinni árlegu Ljóðasamkeppni Jóns úr Vör 2007, en úrslitin voru kunngjörð Salnum í Kópavogi í fyrradag.

Fyrirtæki undir smásjá Neytendasamtakanna til 1. mars

Dæmi eru um matvörur sem hafa hækkað um þrjátíu og fimm prósent í janúar samkvæmt nýrri verðlagsvakt sem Neytendasamtökin settu upp á heimasíðu sína í gær. Fyrirtæki verða undir smásjá samtakanna segir formaðurinn sem hefur fulla trú á að lækkun virðisaukaskatts fyrsta mars skili sér til fólksins í landinu.

Álit umheimsins á Bandaríkjunum minnkar

Álit bæði innanlands og utan á utanríkisstefnu Bandaríkjamanna fer þverrandi samkvæmt skoðanakönnun sem breska ríkisúrvarpið hefur látið gera. Leitað var svara hjá 25 þjóðum og voru þrír fjórðu aðspurðra óánægðir með hvernig Bandaríkjamenn tækju á ástandinu í Írak.

Eþíópískir hermenn á förum frá Sómalíu

Eþíópískir hermenn eru byrjaðir að yfirgefa Sómalíu fjórum vikum eftir að þeir komu inn í landið til að hjálpa stjórnarhernum að hrekja burt uppreisnarhreyfinguna Íslamska dómstólaráðið. Eþíópískur hershöfðingi tilkynnti þetta í dag við athöfn þar sem stríðsherrar skiluðu vopnum sínum.

GSM-samband komið í lag á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri

Ekki eiga lengur að vera truflanir a GSM-símasambandi hjá Vodafone á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri en enn eru truflanir á Suðurlandi. Truflananna varð vart í morgun en einnig voru truflanir á fastlínusambandi hjá nokkrum fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Ástæða bilunarinnar var slitinn ljósleiðari.

Frakkar sagðir of sigurvissir

Franskir miðlar fara hörðum orðum um frammistöðu Frakka í landsleiknum gegn Íslendingum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í gær. Þar segir að fall Evrópumeistaranna hafi verið hátt enda tapaði liðið með átta mörkum fyrir Íslandi. Frakkarnir hafi einfaldlega verið of sigurvissir eftir stórsigra á Áströlum og Úkraínumönnum.

Fallið frá gæsluvarðhaldskröfu yfir manni vegna bruna

Lögreglan á Selfossi féll í gær frá kröfu sinni um að þriðji maðurinn yrði úrskurðaður í gæsluvarðahald í tengslum við eldsvoða í parhúsi í Þorlákshöfn um helgina. Að sögn lögreglu þróaðist málið á þann veg í dag að ekki þurfti að fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum.

Fangar dvöldu í Byrginu

Fangar dvöldu í Byrginu á meðan það starfaði og gátu þeir valsað þar inn og út eftir því sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld. Þar var rætt við Erlend Baldursson hjá Fangelsismálastofnun sem sagði að um 30 fangar hefðu fengið að afplána þar hluta dóms síns.

Byssum stolið úr sumarbústað í Meðalfellslandi

Lögreglan á Selfoss leitar nú þjófs eða þjófa sem brutust inn í sumarbústað í Meðalfellslandi við Þingvallavatn og höfðu á brott með sér eitthvað af þýfi, þar á meðal tvö skotvopn.

Sprenging á skrifstofum Al Arabiya á Gasa

Sprenging varð á skrifstofum arabísku sjónvarpsstöðvarinnar Al Arabiya á Gasaströndinnni í gær. Töluvert tjón varð á innanstokksmunum en enginn var í húsinu þegar sprengingin varð. Ekki liggur fyrir hvað olli sprengingunni en aðalfréttastjóri stöðvarinnar í Dubai greindi frá því að stöðin hefði áður fengið hótanir.

Paris Hilton fær skilorðsbundinn dóm fyrir ölvunarakstur

Dekurdrósin Paris Hilton, einn af erfingjum Hilton-hótelkeðjunnar, var í dag dæmd í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi eftir að hún viðurkenndi að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Hún var jafnframt sektuð um 390 dollara, rúmlega 27 þúsund krónur fyrir athæfið.

Fjölmargir látnir eftir átök í Gíneu

Yfir tuttugu manns eru sagðir hafa látist og um hundrað særst í dag í átökum milli hersveita í Gíneu og stjórnarandstæðinga sem fara fram á afsögn Lansana Conte, forseta landsins. Allsherjarverkfall hefur verið í landinu í nærri tværi vikur og í dag tóku hátt í þrjátíu þúsund manns í mótmælagöngu á götum Cobakry, höfuðborgar Gíneu.

Mugison semur tónlist fyrir mynd Salles

Ísfirski tónlistarmaðurinn Mugison hefur samþykkt að gera tónlist við nýja mynd Walter Salles sem byggð er á skáldsögunni On the Road eftir bítskáldið Jack Kerouac. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta á Ísafirði.

Fleiri hafernir er nokkrum sinnum fyrr í talningu

Fleiri hafernir, tólf talsins, sáust en nokkru sinni áður í hinni árvissu vetrarfuglatalningu Náttúrufræðistofnunar sem fram fór í byrjun mánaðarins. Sáust þeir allt frá Meðallandi í austri, vestur og norður um til Vestfjarða.

Varað við hættum á ísnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir því til foreldra að ræða við börn sín um hættuna af því að leika sér á ís. Á höfuðborgarsvæðinu séu ýmsir staðir sem freista í þessum efnum en lögreglumenn hafa sannreynt það í dag að ísinn er þunnur og því mjög varhugaverður.

Ævintýralegur fyrri hálfleikur hjá íslenska liðinu

Ísland hefur yfir 18-8 þegar flautað hefur verið til leikhlés í lokaleik liðsins gegn Frökkum í B-riðli heimsmeistaramótsins í handbolta. Segja má að allt hafi gengið upp hjá íslenska liðinu fyrstu 30 mínúturnar, en liðið komst í 5-0 og náði svo tíu marka forskoti undir lok hálfleiksins

Demókratar vilja Hillary, repúblíkanar Giuliani

Flestir demókratar í Bandaríkjunum vilja Hillary Clinton sem forsetaefni flokksins á næsta ári. Helstu andstæðingar hennar innan flokksins eru ekki hálfdrættingar á við hana, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Washington Post. Repúblíkanar vilja helst fá fyrrverandi borgarstjóra New York í slaginn eða helsta andstæðing Bush frá árinu 2000.

Edmund Hillary gegn hvalveiðum

Hinn frækni fjallgöngumaður Edmund Hillary, sem fyrstur manna kleif Everest, hefur gengið hvalavinum á hönd og ætlar að berjast fyrir friðun hvalastofna. Hillary, sem orðinn 86 ára gamall upplýsti um þetta í heimsókn í Nýsjálenska rannsóknarstöð á Suðurpólnum.

Listar yfir kynferðisbrotamenn í Bretlandi og Bandaríkjunum

Yfirvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum halda úti ítarlegum og uppfærðum listum yfir dæmda kynferðisbrotamenn í löndunum tveimur. Listar frá hverju fylki fyrir sig í Bandaríkjunum eru aðgengilegir á netinu og geta þarlendir notað þá til að kanna hvort dæmdir kynferðisbrotamenn eru búsettir í næsta nágrenni við þá.

Innbrot hluti af grófu einelti

Fjórir þrettán ára drengir í Laugalækjarskóla stálu lyklum af skólabróður sínum og notuðu þá til þess að brjótast inn heima hjá honum. Talið er að þjófnaðurinn sé hluti af grófu einelti.

Stórsigur Vinstri grænna

Vinstri grænir verða í lykilstöðu við myndun ríkisstjórnar að loknum kosningum, verði úrslit þeirra eins og könnun Fréttablaðsins gefur til kynna. Samfylkingin bíður afhroð samkvæmt könnuninni en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður flokksins er sannfærð um að þetta verði ekki úrslit kosninga.

Munu fella lögin um RÚV úr gildi

Stjórnarandstaðan gafst upp í óvinsælu andófi sínu gegn frumvarpi um Ríkisútvarpið, að mati menntamálaráðherra, en stjórnarandstaðan hætti óvænt umræðum um frumvarpið í morgun. Forystumenn stjórnarandstöðunnar segja hana einhuga um að standa vörð um Ríkisútvarpið og að hún muni fella lögin úr gildi, fái hún til þess meirihluta á Alþingi að loknum kosningum í vor.

Hjálmar vill Suðurnesjakonu í þriðja sætið

Hjálmar Árnason, sem tapaði fyrir Guðna Ágústssyni í baráttu um fyrsta sæti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi um helgina, og sagði sig í framhaldinu af listanum, vill að kona af Suðurnesjum skipi þriðja sæti listans í hans stað. Formaður flokksins hefur skilning á þessu sjónarmiði en segir það í verkahring flokksins í kjördæminu að raða fólki á listann.

Boðað til stjórnarfundar eftir Kompás

Boðað hefur verið til stjórnarfundar á Vernd vegna umfjöllunar Kompáss um dæmdan barnaníðing, þar sem ræða á hvort krafist verði endurskoðunar á hverjir fái að ljúka þar afplánun. Íbúar hverfisins eru órólegir vegna málsins og því að barnaníðingar geti tekið út hluta refsingar sinnar í hverfinu.

Launaseðlar í tveimur myntum spennandi kostur

Alþýðusamband Íslands skoðar þann möguleika að taka upp í kjarasamningum heimild til að launþegar fái hluta launa sinna í erlendum gjaldmiðli. Með því móti gætu launamenn nýtt sér langtum hagstæðari húsnæðislán í útlendri mynt og lágmarkað gengisáhættu.

Þið eruð reknir -allir 400 þúsund

Ríkisstjórn Libyu ætlar að reka rúmlega þriðjung opinbera starfsmanna sinna úr embætti. Það eru um 400 þúsund manns. Tilgangurinn er sá að draga úr opinberum útgjöldum og örva einkaframtakið í landinu. Ekki verða menn þó settir á Guð og gaddinn, því hinum brottreknu verða tryggð laun í þrjú ár, eða lán til þess að stofna fyrirtæki.

Norður-Írska lögreglan leyfði morð á kaþólikkum

Háttsettir foringjar í lögreglunni á Norður-Írlandi leyfðu uppljóstrurum sínum meðal mótmælenda að fremja morð á kaþólikkum í meira en áratug, samkvæmt skýrslu umboðsmanns lögreglunnar, sem gerð var opinber í dag. Á árunum 1991 og 2003 myrtu vígamenn úr Ulster sjálfboðaliðasveitinni að minnsta kosti 10 kaþólikka.

Mótmæla harðlega hækkun á strætófargjöldum

Fulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra í umhverfisráði mótmæla harðlega hækkunum á fargjöldum Strætós um allt að 33 prósent og segja þær ganga í berhögg við stefnu Reykjavíkurborgar um að efla almenningssamgöngur með það markmið að bæta umhverfi, heilsu og borgarbrag.

Lygavefur á netinu endaði með morði

Thomas Montgomery hefur verið ákærður fyrir morðið á Brian Barrett frá Buffalo í New York ríki í Bandaríkjunum. Brian var 22 ára þegar hann fannst myrtur fyrir utan verksmiðjuna þar sem þeir unnu í september sl. Hann hafði dregist inn í netsamband Thomasar og konu frá Virginíu ríki. Thomas var 18 ára sjóliði á leið til Íraks og hún 18 ára yngismey sem sendi honum kvenundirföt og myndir af sér. … eða svo héldu þau. Bæði voru í raun miðaldra og hann auk þess giftur. Í skjóli internetsins höfðu þau átt í sambandi í ár þar sem þau lugu til um aðstæður sínar.

Fóðraði svínin með 30 vændiskonum

Kanadiskur svínabóndi hefur verið ákærður fyrir að myrða þrjátíu vændiskonur, og fóðra svínin á líkamsleifum þeirra. Talið er mögulegt að hann hafi sextíu og þrjú morð á samviskunni. Það komst upp um hann fyrir algera tilviljun.

Danir ekki búnir undir veturinn

Hraðbrautinni við Köge á Sjálandi, sem er suður af Kaupmannahöfn, var lokað í dag vegna fjöldaáreksturs á veginum. Eftir því sem danskir vefmiðlar greina frá rákust í kringum 50 bílar saman í röð óhappa og var fjöldi sjúkrabíla sendur á vettvang.

Um hundrað látnir í Írak í dag

Hundrað manns hið minnsta hafa fallið í bílsprengju- og eldflaugaárásum í Bagdad í dag og er dagurinn því einn sá blóðugasti frá upphafi árs. 88 létust og 160 særðust snemma í morgun þegar tvær bílsprengjur sprungu á markaði með notuð föt sem fátækir íbúar Bagdad-borgar sækja mikið.

Sjá næstu 50 fréttir