Fleiri fréttir Hvíta húsið gagnrýnir Chavez Hvíta húsið sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem Hugo Chavez, forseti Venesúela, er harðlega gagnrýndur fyrir áætlanir sínar um að þjóðvæða fjarskiptafyrirtæki og olíuverkefni og sagði að bandarísk fyrirtæki sem yrðu fyrir tjóni vegna þjóðvæðingarinnar yrðu að fá bætur. 9.1.2007 17:34 Apple kynnir símtækið iPhone Steve Jobs, forstjóri Apple Computer steig á svið í Moscone sýningarhöllinni í San Francisco og tilkynnti innreið Apple á símamarkaðinn. Jobs sýndi nýtt tæki frá Apple, símtækið iPhone, sem er jafnframt, tölva með WiFi og Bluetooth tengingu, og tónlistar og vídeó-spilari. 9.1.2007 16:52 Banna viðskipti við ríkisbanka 9.1.2007 16:46 Loftferðasamningur í uppnámi Loftferðasamningur milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna er í uppnámi, eftir að Bandaríkjamenn neituðu að leyfa útlendingum að eiga meira en 25 prósenta hlut í bandarískum flugfélögum. 9.1.2007 16:27 Sá á bak þjófnum með fartölvuna Lögreglan í Reykjavík leitar nú manns sem braust inn í íbúð á Leifsgötu í dag og hafði á brott með sér fartölvu ásamt greiðslukorti, vegabréfi og ökuskírteini konu sem býr íbúðinni. Konan kom heim í dag og tók þá eftir því að búið var að losa stormjárn á glugga í íbúðinni. Þegar hún leit út um gluggann sá hún á bak þjófnum með fartölvuna í fanginu. 9.1.2007 16:21 Ók á ljósastaur á Kringlumýrarbraut Ökumaður bifreiðar var fluttur á sjúkrahús með minni háttar áverka eftir að hann missti stjórn á bílnum á Kringlumýrarbraut í Fossvogi og ók á ljósastaur. Slysið varð upp úr klukkan þrjú í dag. Að sögn lögreglu skemmdist bíllinn hins vegar það mikið að draga þurfti hann af vettvangi og þá þurfti einnig að fjarlægja staurinn. 9.1.2007 16:13 Dularfulli þvagskálaþjófurinn gaf sig fram Dularfulli þvagskálaþjófurinn sem við sögðum ykkur frá í síðustu viku hefur gefið sig fram við lögreglu og skilað ránsfengnum. Skálinni stal hann af Royal Oak kránni í Southampton og var til þess tekið hversu fagmannlega hann stóð að verki. 9.1.2007 16:12 Þúsundir verkamanna á flótta 9.1.2007 15:54 Loftárás Bandaríkjamanna var mannskæð Tæplega þrjátíu manns féllu í loftárás Bandaríkjamanna á þorpið Hayo í Sómalíu, í dag, að sögn manns úr nágrannaþorpi. Bandaríkjamenn voru á höttunum eftir mönnum sem þeir telja tilheyra Al Kæda. 9.1.2007 15:52 Landssamtök landeigenda á Íslandi stofnuð Ákveðið hefur verið að stofna Landssamtök landeigenda á Íslandi. Landssamtökunum er ætlað að berjast fyrir því að eignarréttur landeigenda að jörðum þeirra sé virtur í svokölluðu þjóðlendumáli, eins og kveðið er á um í stjórnarskrá Íslands og í Mannréttindasáttmála Evrópu, að því er segir í tilkynningu. 9.1.2007 15:48 Mýrin orðin mest sótta íslenska myndin Mýrin, kvikmynd Baltasars Kormáks sem byggð er á spennusögu Arnaldar Indriðasonar, er orðin mest sótta íslenska myndin frá því að mælingar hófust og sömuleiðis sú tekjuhæsta á Íslandi hvort sem horft er til íslenskra eða erlendra mynda. 82.500 manns hafa nú séð Mýrina. 9.1.2007 15:45 Rúður sprengdar með flugeldum Rúður voru sprengdar á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær með flugeldum og hlaust af því nokkurt tjón. Vill lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minna á að aðeins má nota flugelda frá 28. desember til 6. janúar. 9.1.2007 15:37 Enginn hjá Ríkislögreglustjóra hafi bíl til afnota Embætti Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er fram að hvorki ríkislögreglustjóri né aðrir starfsmenn embættisins hafa bíla frá embættinu til afnota, hvað þá lúxusbíla, eins og gefið hafi verið til kynna í efnisþættinum „Frá degi til dags", í Fréttablaðinu mánudaginn 8. janúar. 9.1.2007 15:27 Dæmdur fyrir árás á fyrrverandi eiginkonu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna, og til að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni og barnsmóður 400 þúsund krónur í miskabætur vegna stórfelldrar líkamsárásar á hana í maí árið 2005. 9.1.2007 15:15 Nektarsamkomur vinsælar í fínustu háskólum Bandaríkjanna Nektarsamkomur njóta töluverðra vinsælda í virðulegustu háskólum Bandaríkjanna, eins og til dæmis Yale, Columbia, MIT og Brown. Ekkert kynlíf er leyft á þessum samkomum, þar er aðeins spjallað og drukkið te. 9.1.2007 15:10 Amerísk flugvélög vilja ekki erlenda fjárfesta Bandaríkjamenn segja að Evrópusambandið verði að segja þeim hvað komi næst, eftir að þeir höfnuðu þeim hluta loftferðasamnings sem lýtur að rýmkuðum heimildum til að fjárfesta í bandarískum flugfélögum. 9.1.2007 14:46 Samningur um fjölbreytileg menningarleg tjáningarform verði staðfestur Utanríkisráðherra kynnti í morgun a ríkisstjórnarfundi samning um að vernda og styðja við fjölbreytileg menningarleg tjáningarform sem samþykktur var á aðalráðstefnu Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir rúmu ári. 9.1.2007 14:46 Ísafjarðarvélin lenti í Keflavík Flugmenn flugvélar á leið frá Reykjavík til Ísafjarðar í morgun urðu varir við bilun í bremsubúnaði og treystu sér ekki til að lenda á Ísafirði. Þeir sneru vélinni til Keflavíkur af öryggisástæðum. Vél var send frá Reykjavík til Keflavíkur til að sækja farþegana og fljúga með þá til Ísafjarðar. 9.1.2007 14:25 Páfi fagnar nýjum stofnfrumum Páfagarður fagnaði því í dag að fundist hefði ný leið til þess að rækta stofnfrumur án þess að nota fósturvísa. Í yfirlýsingu frá Páfagarði segir að það geti hjálpað til við læknisrannsóknir án þess að ganga í berhögg við kaþólska trú. 9.1.2007 14:05 Undirskriftalisti gegn samkynhneigðum Bresk trúfélög hafa tekið höndum saman um að reyna að stöðva nýja löggjöf um réttindi samkynhneigðra. Félögin ætla að afhenda Elísabetu drottningu undirskriftalista, og standa með kyndla við lávarðadeildina þegar málið verður tekið fyrir þar. 9.1.2007 13:44 Shalit sagður við góða heilsu Herskáu samtökin PRC í Palestínu, sem rændu ísraelska hermanninum Gilad Shalit í júní í fyrra, greindu frá því í dag að hann væri við góða heilsu og að þau væru reiðubúin að halda honum í mörg ár ef ekki yrði orðið við kröfum þeirra. 9.1.2007 13:41 Yfir 30 fórust í flugslysi í Írak 9.1.2007 13:31 Þess vegna eru karlmenn hamingjusamari Menn hafa lengi velt því fyrir sér hvort kynið sé hamingjusamara, karlar eða konur. Nokkrir bandarískir hugsuðir hafa sett fram tuttugu ástæður fyrir því að karlar séu hamingjusamari. 1. Við höldum eftirnafninu okkar. 2. Brúðkaupsundirbúningurinn sér um sig sjálfur. 3. Bifvélavirkjar segja okkur sannleikann. 4. Sama vinna, hærri laun. 5. Hrukkur auka á karakter. 6. Brúðarkjóll 300 þúsund, smókingleiga 5000. 9.1.2007 13:30 ETA lýsir yfir ábyrgð á tilræði á Madrídarflugvelli Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, segjast bera ábyrgð á bílsprengju sem sprakk á Madrídarflugvelli fyrir tíu dögum þar sem tveir menn létust. Samtökin birtu yfirýsingu þessa efnis í dagblaðinu Gara en þar birtast jafnan sjónarmið ETA. 9.1.2007 13:28 Argóarflísin gerir það gott í Danmörku Argóarflísin, bók rithöfundarins SJÓN, sem kom út í fyrra, hefur fengið lofsamlega dóma í Danmörku og verið valin ein af bókum ársins í einu dagblaða landsins. 9.1.2007 13:16 Hlýjasta ár sögunnar Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnir á morgun umfangsmiklar tillögur um framtíðarskipan orkumála innan sambandsins sem verður liður í baráttuáætlun sambandsins gegn loftslagsbreytingum. Því er spáð að árið 2007 verði það hlýjasta í sögunni. 9.1.2007 13:00 Ráðist á þorp í Sómalíu Bandaríkjaher gerði í nótt loftárásir á þorp í Sómalíu þar sem talið var að liðsmenn al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna hefðust við. Vitni segja fjölmarga almenna borgara hafa fallið í árásunum. Bandaríkjamenn hafa ekki viljað tjá sig um aðgerðir næturinnar. Íslamskir uppreisnarmenn, sem hefur verið líkt við Talíbana og Bandaríkjamenn telja hafa tengsl við al-Kaída hryðjuverkasamtökin, náðu stórum hluta Sómalíu á sitt vald í fyrra. Skömmu fyrir jól réðust eþíópískar hersveitir inn í landið með stuðningi sómalískra stjórnvalda og hröktu þá á flótta. Það var svo í morgun sem fréttir bárust af árás á þorpið Badel þar sem talið var að hryðjuverkamenn úr röðum al-Kaída hefðust við. Bandarískar hersveitir sendu í nótt af stað þungvopnaða, fjögurra hreyfla herflugvél til árása. Vél sem þessi eirir engu á stóru svæði þegar vopnum hennar er beytt. Fulltrúar sómalískra stjórnvalda segja marga hafa fallið. Bandaríkjamenn hafa ekki tjáð sig um árás næturinnar en búist var við tilkynningu frá varnarmálaráðuneytinu síðar í dag. Árásin í nótt er fyrsta opinbera hernaðaraðgerð Bandaríkjamanna í Sómalíu frá árinu 1994 þegar átján bandarískir hermenn féllu í höfuðborginni, Mogadishu. Þorpið sem ráðist var á í nótt er nærri landamærunum að Kenýa og sagt síðasta vígi uppreisnarmanna í Sómalíu. Í gær var greint frá því að eþíópískar og sómalískar hersveitir væru nærri því að leggja það undir sig. Ætla má að það reynist auðvelt eftir aðgerðir næturinnar. Abdullahi Yusuf, forseti Sómalíu, segist styðja aðgerðir Bandaríkjamanna. Þeir hafi rétt til að ráðast gegn hryðjuverkamönnum sem beri ábyrgð á árásum gegn sendiráðum þeirra í Kenýa og Tansaníu. Grunur leikur á að einhverjir þeirra sem fallið hafi í nótt hafi átt þátt í þeim árásum árið 1998 sem kostuðu 250 manns lífið. 9.1.2007 12:45 Matvælaverð á Íslandi hæst í heimi Matvælaverð hér á landi er að öllum líkindum hið hæsta í heimi og það sama á við heildarútgjöld heimilanna. 9.1.2007 12:30 Handtekinn grunaður um vegabréfafölsun Erlendur karlmaður var í gær handtekinn á Flugstöð Leifs Eiríkssonar en hann er grunaður um vegabréfafölsun. Víkurfréttir greina frá þessu og jafnframt að málið sé nokkuð umfagnsmikið. 9.1.2007 12:09 Vilja að ákæru um samráð verði vísað frá Verjendur forstjóra olíufélaganna þriggja sem sæta ákæru í samráðsmálinu á hendur olíufélögunum kröfðust þess í héraðsdómi í morgun að málinu yrði vísað frá. Allir þrír ákærðu voru viðstaddir þingfestingu í héraðsdómi í morgun. 9.1.2007 12:05 Varað við barnaníðingi á Akureyri Lögreglan á Akureyri leitar nú manns sem tvívegis hefur reynt að lokka átta og níu ára drengi upp í bíl sinn í grennd við Síðuskóla. Hvorugur piltanna þáði boð hans en þeir hafa gefið trúverðuga lýsingu á bílnum sem maðurinn var á en lýsing á manninum sjálfum er meira á reiki. 9.1.2007 11:56 Vestfirðingum fækkaði fyrri hluta 2006 Alls fluttust 202 einstaklingar frá Vestfjörðum fyrstu 6 mánuði ársins 2006 en 163 fluttu til landsfjórðungsins á sama tíma. Fækkunin er því 39 manns. Flestir, sem fóru, fluttust til höfuðborgarsvæðisins, eða 123. Á sama tíma fluttust 163 til Vestfjarða, einnig flestir af höfuðborgarsvæðinu eða 59 einstaklingar. Sagt er frá þessu í blaðinu Bæjarins Besta í dag, en tölurnar koma frá Hagstofu Íslands. 9.1.2007 11:42 Snarpur skjálfti í Norðursjó á sunnudag Öflugur jarðskjálfti varð í Norðursjó aðfaranótt sunnudagsins og fannst víða á vesturströnd Noregs. Fram kemur vef Aftenposten að skjálftinn hafi verið 4,8 á Richter og er hann sá stærsti sem mælst hefur í Norðursjó í nærri tuttugu ár. 9.1.2007 11:36 20 þúsund hermenn í viðbót til Íraks George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að fjölga í herliði Bandaríkjanna um 20 þúsund hermenn en þetta fullyrti öldungardeildarþingmaður sem hitti forsetann í kvöld. Bush sagði þingmanninum að áætlunin um að auka fjölda hermanna væri væri komin frá forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki. 8.1.2007 23:40 3,7 milljónir flóttamanna flúið heimili sín í Írak Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sagði í dag að allt að 3,7 milljónir manna hefðu flúið heimili sín í Írak vegna ástandsins sem þar ríkir. Talið er að um 50 þúsund bætist í hópinn á hverjum mánuði. Konur hafa einnig neyðst út í vændi og frásagnir af þrælkunarvinnu barna verða háværari. 8.1.2007 23:29 Ekki fjölgað í breska herliðinu í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar sér ekki að auka við fjölda breskra hermanna í Írak en búist er við því að George W. Bush, Bandaríkjaforseti, muni tilkynna mikla fjölgun í bandaríska herliðinu í Írak í nótt. Talið er að Bush ætli að auka um allt að 20 þúsund hermenn. 8.1.2007 22:59 30 ára fangelsi fyrir sprengjutilræði Yfirvöld í New York dæmdu í dag pakistanskan innflytjanda í 30 ára fangelsi fyrir að ætla sér að sprengja upp neðanjarðarlestarstöð í Manhattan í New York. 8.1.2007 22:35 Hryðjuverkamenn vara fólk í Alsír við Leiðtogi hryðjuverkahóps í Alsír gaf í dag út viðvörun og sagði að Frakkar í Alsír væru í hættu vegna yfirvofandi sprengjuárása. Sagði hann ennfremur að þeir væru komnir með vopn og sprengiefni og biðu aðeins fyrirmæla frá Osama Bin Laden, leiðtoga al-Kaída samtakanna. 8.1.2007 22:19 Nektarpartý í bandarískum háskólum Bandarískir nemendur í bestu háskólum landsins hafa tekið sig til, gert uppreisn gegn kreddum og hefðum í skólunum og ákveðið að kasta af sér byrðum þjóðfélagsins, sem og fötum sínum, og halda nektarpartý. 8.1.2007 21:54 Kviknaði í út frá potti á Húsavík Slökkvilið Húsavíkur var kallað að fjölbýlishúsi í bænum á áttunda tímanum í kvöld. Kviknað hafði í eldhúsinnréttingu út frá potti og var talsverður reykur. Lítill eldur reyndist vera í íbúðinni, en nokkrar skemmdir eru urðu vegna reyks og sóts. Sameign hússins slapp þó nær alveg við skemmdir. 8.1.2007 21:34 Orðið „fáviti“ fjarlægt úr stjórnarskrá Í New Jersey gæti orðið „fáviti“ bráðlega verið fjarlægt úr stjórnarskrá ríkisins til þess að fólk sem er andlega fatlað geti nýtt sér atkvæðisrétt sinn og kosið. Lögin sem banna að „fávitar“ kjósi voru sett fyrir meira en 150 árum síðan til þess að koma í veg fyrir að þeir sem væru andlega fatlaðir gætu kosið. 8.1.2007 21:15 Áhersla á samkomulag í Doha Að ná góðum árangri í Doha-viðræðum Alþjóðaviðskiptasambandsins er forgangsatriði bæði Evrópusambandsins og Bandaríkjanna en frá þessu skýrði Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 8.1.2007 21:00 Þjóðvæðing fyrirtækja hafin í Venesúela Forseti Venesúela, Hugo Chavez, biðlaði í kvöld til þingsins í landinu og bað það um að veita honum sérstök völd til þess að geta þjóðvætt ýmis fyrirtæki. Meðal þeirra sem þjóðvæða á er fjölmiðlafyrirtækið CANTV sem og einhverjir hlutar olíuverkefna á Orinoco svæðinu. 8.1.2007 20:45 Sjö á bráðamóttöku vegna gaseitrunnar Gasið sem angraði íbúa New York borgar í dag varð til þess að sjö manns voru flutt á bráðadeild með einkenni sem hlutust af gasinu. Ekki er vitað um uppruna gassins en það hefur verið talið harmlaust hingað til. 8.1.2007 20:30 Gullæði í Brasilíu Þúsundir fátækra Brasilíumanna streyma nú, vopnaðir skóflum og vélsögum, á nýfundið gullsvæði djúpt í Amazon frumskóginum og óttast yfirvöld umhverfisslys. Einnig eru áhyggjur af því að heilsu fólks verði stefnt í hættu þar sem aðbúnaður á svæðinu er nær enginn. Fyrir aðeins nokkrum vikum fundust gullæðar á yfirborðinu á svæðinu og þegar fréttir fóru að berast af gullfundinum streymdu vongóðir á staðinn. 8.1.2007 20:15 Sjá næstu 50 fréttir
Hvíta húsið gagnrýnir Chavez Hvíta húsið sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem Hugo Chavez, forseti Venesúela, er harðlega gagnrýndur fyrir áætlanir sínar um að þjóðvæða fjarskiptafyrirtæki og olíuverkefni og sagði að bandarísk fyrirtæki sem yrðu fyrir tjóni vegna þjóðvæðingarinnar yrðu að fá bætur. 9.1.2007 17:34
Apple kynnir símtækið iPhone Steve Jobs, forstjóri Apple Computer steig á svið í Moscone sýningarhöllinni í San Francisco og tilkynnti innreið Apple á símamarkaðinn. Jobs sýndi nýtt tæki frá Apple, símtækið iPhone, sem er jafnframt, tölva með WiFi og Bluetooth tengingu, og tónlistar og vídeó-spilari. 9.1.2007 16:52
Loftferðasamningur í uppnámi Loftferðasamningur milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna er í uppnámi, eftir að Bandaríkjamenn neituðu að leyfa útlendingum að eiga meira en 25 prósenta hlut í bandarískum flugfélögum. 9.1.2007 16:27
Sá á bak þjófnum með fartölvuna Lögreglan í Reykjavík leitar nú manns sem braust inn í íbúð á Leifsgötu í dag og hafði á brott með sér fartölvu ásamt greiðslukorti, vegabréfi og ökuskírteini konu sem býr íbúðinni. Konan kom heim í dag og tók þá eftir því að búið var að losa stormjárn á glugga í íbúðinni. Þegar hún leit út um gluggann sá hún á bak þjófnum með fartölvuna í fanginu. 9.1.2007 16:21
Ók á ljósastaur á Kringlumýrarbraut Ökumaður bifreiðar var fluttur á sjúkrahús með minni háttar áverka eftir að hann missti stjórn á bílnum á Kringlumýrarbraut í Fossvogi og ók á ljósastaur. Slysið varð upp úr klukkan þrjú í dag. Að sögn lögreglu skemmdist bíllinn hins vegar það mikið að draga þurfti hann af vettvangi og þá þurfti einnig að fjarlægja staurinn. 9.1.2007 16:13
Dularfulli þvagskálaþjófurinn gaf sig fram Dularfulli þvagskálaþjófurinn sem við sögðum ykkur frá í síðustu viku hefur gefið sig fram við lögreglu og skilað ránsfengnum. Skálinni stal hann af Royal Oak kránni í Southampton og var til þess tekið hversu fagmannlega hann stóð að verki. 9.1.2007 16:12
Loftárás Bandaríkjamanna var mannskæð Tæplega þrjátíu manns féllu í loftárás Bandaríkjamanna á þorpið Hayo í Sómalíu, í dag, að sögn manns úr nágrannaþorpi. Bandaríkjamenn voru á höttunum eftir mönnum sem þeir telja tilheyra Al Kæda. 9.1.2007 15:52
Landssamtök landeigenda á Íslandi stofnuð Ákveðið hefur verið að stofna Landssamtök landeigenda á Íslandi. Landssamtökunum er ætlað að berjast fyrir því að eignarréttur landeigenda að jörðum þeirra sé virtur í svokölluðu þjóðlendumáli, eins og kveðið er á um í stjórnarskrá Íslands og í Mannréttindasáttmála Evrópu, að því er segir í tilkynningu. 9.1.2007 15:48
Mýrin orðin mest sótta íslenska myndin Mýrin, kvikmynd Baltasars Kormáks sem byggð er á spennusögu Arnaldar Indriðasonar, er orðin mest sótta íslenska myndin frá því að mælingar hófust og sömuleiðis sú tekjuhæsta á Íslandi hvort sem horft er til íslenskra eða erlendra mynda. 82.500 manns hafa nú séð Mýrina. 9.1.2007 15:45
Rúður sprengdar með flugeldum Rúður voru sprengdar á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær með flugeldum og hlaust af því nokkurt tjón. Vill lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minna á að aðeins má nota flugelda frá 28. desember til 6. janúar. 9.1.2007 15:37
Enginn hjá Ríkislögreglustjóra hafi bíl til afnota Embætti Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem tekið er fram að hvorki ríkislögreglustjóri né aðrir starfsmenn embættisins hafa bíla frá embættinu til afnota, hvað þá lúxusbíla, eins og gefið hafi verið til kynna í efnisþættinum „Frá degi til dags", í Fréttablaðinu mánudaginn 8. janúar. 9.1.2007 15:27
Dæmdur fyrir árás á fyrrverandi eiginkonu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna, og til að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni og barnsmóður 400 þúsund krónur í miskabætur vegna stórfelldrar líkamsárásar á hana í maí árið 2005. 9.1.2007 15:15
Nektarsamkomur vinsælar í fínustu háskólum Bandaríkjanna Nektarsamkomur njóta töluverðra vinsælda í virðulegustu háskólum Bandaríkjanna, eins og til dæmis Yale, Columbia, MIT og Brown. Ekkert kynlíf er leyft á þessum samkomum, þar er aðeins spjallað og drukkið te. 9.1.2007 15:10
Amerísk flugvélög vilja ekki erlenda fjárfesta Bandaríkjamenn segja að Evrópusambandið verði að segja þeim hvað komi næst, eftir að þeir höfnuðu þeim hluta loftferðasamnings sem lýtur að rýmkuðum heimildum til að fjárfesta í bandarískum flugfélögum. 9.1.2007 14:46
Samningur um fjölbreytileg menningarleg tjáningarform verði staðfestur Utanríkisráðherra kynnti í morgun a ríkisstjórnarfundi samning um að vernda og styðja við fjölbreytileg menningarleg tjáningarform sem samþykktur var á aðalráðstefnu Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir rúmu ári. 9.1.2007 14:46
Ísafjarðarvélin lenti í Keflavík Flugmenn flugvélar á leið frá Reykjavík til Ísafjarðar í morgun urðu varir við bilun í bremsubúnaði og treystu sér ekki til að lenda á Ísafirði. Þeir sneru vélinni til Keflavíkur af öryggisástæðum. Vél var send frá Reykjavík til Keflavíkur til að sækja farþegana og fljúga með þá til Ísafjarðar. 9.1.2007 14:25
Páfi fagnar nýjum stofnfrumum Páfagarður fagnaði því í dag að fundist hefði ný leið til þess að rækta stofnfrumur án þess að nota fósturvísa. Í yfirlýsingu frá Páfagarði segir að það geti hjálpað til við læknisrannsóknir án þess að ganga í berhögg við kaþólska trú. 9.1.2007 14:05
Undirskriftalisti gegn samkynhneigðum Bresk trúfélög hafa tekið höndum saman um að reyna að stöðva nýja löggjöf um réttindi samkynhneigðra. Félögin ætla að afhenda Elísabetu drottningu undirskriftalista, og standa með kyndla við lávarðadeildina þegar málið verður tekið fyrir þar. 9.1.2007 13:44
Shalit sagður við góða heilsu Herskáu samtökin PRC í Palestínu, sem rændu ísraelska hermanninum Gilad Shalit í júní í fyrra, greindu frá því í dag að hann væri við góða heilsu og að þau væru reiðubúin að halda honum í mörg ár ef ekki yrði orðið við kröfum þeirra. 9.1.2007 13:41
Þess vegna eru karlmenn hamingjusamari Menn hafa lengi velt því fyrir sér hvort kynið sé hamingjusamara, karlar eða konur. Nokkrir bandarískir hugsuðir hafa sett fram tuttugu ástæður fyrir því að karlar séu hamingjusamari. 1. Við höldum eftirnafninu okkar. 2. Brúðkaupsundirbúningurinn sér um sig sjálfur. 3. Bifvélavirkjar segja okkur sannleikann. 4. Sama vinna, hærri laun. 5. Hrukkur auka á karakter. 6. Brúðarkjóll 300 þúsund, smókingleiga 5000. 9.1.2007 13:30
ETA lýsir yfir ábyrgð á tilræði á Madrídarflugvelli Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, segjast bera ábyrgð á bílsprengju sem sprakk á Madrídarflugvelli fyrir tíu dögum þar sem tveir menn létust. Samtökin birtu yfirýsingu þessa efnis í dagblaðinu Gara en þar birtast jafnan sjónarmið ETA. 9.1.2007 13:28
Argóarflísin gerir það gott í Danmörku Argóarflísin, bók rithöfundarins SJÓN, sem kom út í fyrra, hefur fengið lofsamlega dóma í Danmörku og verið valin ein af bókum ársins í einu dagblaða landsins. 9.1.2007 13:16
Hlýjasta ár sögunnar Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnir á morgun umfangsmiklar tillögur um framtíðarskipan orkumála innan sambandsins sem verður liður í baráttuáætlun sambandsins gegn loftslagsbreytingum. Því er spáð að árið 2007 verði það hlýjasta í sögunni. 9.1.2007 13:00
Ráðist á þorp í Sómalíu Bandaríkjaher gerði í nótt loftárásir á þorp í Sómalíu þar sem talið var að liðsmenn al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna hefðust við. Vitni segja fjölmarga almenna borgara hafa fallið í árásunum. Bandaríkjamenn hafa ekki viljað tjá sig um aðgerðir næturinnar. Íslamskir uppreisnarmenn, sem hefur verið líkt við Talíbana og Bandaríkjamenn telja hafa tengsl við al-Kaída hryðjuverkasamtökin, náðu stórum hluta Sómalíu á sitt vald í fyrra. Skömmu fyrir jól réðust eþíópískar hersveitir inn í landið með stuðningi sómalískra stjórnvalda og hröktu þá á flótta. Það var svo í morgun sem fréttir bárust af árás á þorpið Badel þar sem talið var að hryðjuverkamenn úr röðum al-Kaída hefðust við. Bandarískar hersveitir sendu í nótt af stað þungvopnaða, fjögurra hreyfla herflugvél til árása. Vél sem þessi eirir engu á stóru svæði þegar vopnum hennar er beytt. Fulltrúar sómalískra stjórnvalda segja marga hafa fallið. Bandaríkjamenn hafa ekki tjáð sig um árás næturinnar en búist var við tilkynningu frá varnarmálaráðuneytinu síðar í dag. Árásin í nótt er fyrsta opinbera hernaðaraðgerð Bandaríkjamanna í Sómalíu frá árinu 1994 þegar átján bandarískir hermenn féllu í höfuðborginni, Mogadishu. Þorpið sem ráðist var á í nótt er nærri landamærunum að Kenýa og sagt síðasta vígi uppreisnarmanna í Sómalíu. Í gær var greint frá því að eþíópískar og sómalískar hersveitir væru nærri því að leggja það undir sig. Ætla má að það reynist auðvelt eftir aðgerðir næturinnar. Abdullahi Yusuf, forseti Sómalíu, segist styðja aðgerðir Bandaríkjamanna. Þeir hafi rétt til að ráðast gegn hryðjuverkamönnum sem beri ábyrgð á árásum gegn sendiráðum þeirra í Kenýa og Tansaníu. Grunur leikur á að einhverjir þeirra sem fallið hafi í nótt hafi átt þátt í þeim árásum árið 1998 sem kostuðu 250 manns lífið. 9.1.2007 12:45
Matvælaverð á Íslandi hæst í heimi Matvælaverð hér á landi er að öllum líkindum hið hæsta í heimi og það sama á við heildarútgjöld heimilanna. 9.1.2007 12:30
Handtekinn grunaður um vegabréfafölsun Erlendur karlmaður var í gær handtekinn á Flugstöð Leifs Eiríkssonar en hann er grunaður um vegabréfafölsun. Víkurfréttir greina frá þessu og jafnframt að málið sé nokkuð umfagnsmikið. 9.1.2007 12:09
Vilja að ákæru um samráð verði vísað frá Verjendur forstjóra olíufélaganna þriggja sem sæta ákæru í samráðsmálinu á hendur olíufélögunum kröfðust þess í héraðsdómi í morgun að málinu yrði vísað frá. Allir þrír ákærðu voru viðstaddir þingfestingu í héraðsdómi í morgun. 9.1.2007 12:05
Varað við barnaníðingi á Akureyri Lögreglan á Akureyri leitar nú manns sem tvívegis hefur reynt að lokka átta og níu ára drengi upp í bíl sinn í grennd við Síðuskóla. Hvorugur piltanna þáði boð hans en þeir hafa gefið trúverðuga lýsingu á bílnum sem maðurinn var á en lýsing á manninum sjálfum er meira á reiki. 9.1.2007 11:56
Vestfirðingum fækkaði fyrri hluta 2006 Alls fluttust 202 einstaklingar frá Vestfjörðum fyrstu 6 mánuði ársins 2006 en 163 fluttu til landsfjórðungsins á sama tíma. Fækkunin er því 39 manns. Flestir, sem fóru, fluttust til höfuðborgarsvæðisins, eða 123. Á sama tíma fluttust 163 til Vestfjarða, einnig flestir af höfuðborgarsvæðinu eða 59 einstaklingar. Sagt er frá þessu í blaðinu Bæjarins Besta í dag, en tölurnar koma frá Hagstofu Íslands. 9.1.2007 11:42
Snarpur skjálfti í Norðursjó á sunnudag Öflugur jarðskjálfti varð í Norðursjó aðfaranótt sunnudagsins og fannst víða á vesturströnd Noregs. Fram kemur vef Aftenposten að skjálftinn hafi verið 4,8 á Richter og er hann sá stærsti sem mælst hefur í Norðursjó í nærri tuttugu ár. 9.1.2007 11:36
20 þúsund hermenn í viðbót til Íraks George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að fjölga í herliði Bandaríkjanna um 20 þúsund hermenn en þetta fullyrti öldungardeildarþingmaður sem hitti forsetann í kvöld. Bush sagði þingmanninum að áætlunin um að auka fjölda hermanna væri væri komin frá forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki. 8.1.2007 23:40
3,7 milljónir flóttamanna flúið heimili sín í Írak Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sagði í dag að allt að 3,7 milljónir manna hefðu flúið heimili sín í Írak vegna ástandsins sem þar ríkir. Talið er að um 50 þúsund bætist í hópinn á hverjum mánuði. Konur hafa einnig neyðst út í vændi og frásagnir af þrælkunarvinnu barna verða háværari. 8.1.2007 23:29
Ekki fjölgað í breska herliðinu í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar sér ekki að auka við fjölda breskra hermanna í Írak en búist er við því að George W. Bush, Bandaríkjaforseti, muni tilkynna mikla fjölgun í bandaríska herliðinu í Írak í nótt. Talið er að Bush ætli að auka um allt að 20 þúsund hermenn. 8.1.2007 22:59
30 ára fangelsi fyrir sprengjutilræði Yfirvöld í New York dæmdu í dag pakistanskan innflytjanda í 30 ára fangelsi fyrir að ætla sér að sprengja upp neðanjarðarlestarstöð í Manhattan í New York. 8.1.2007 22:35
Hryðjuverkamenn vara fólk í Alsír við Leiðtogi hryðjuverkahóps í Alsír gaf í dag út viðvörun og sagði að Frakkar í Alsír væru í hættu vegna yfirvofandi sprengjuárása. Sagði hann ennfremur að þeir væru komnir með vopn og sprengiefni og biðu aðeins fyrirmæla frá Osama Bin Laden, leiðtoga al-Kaída samtakanna. 8.1.2007 22:19
Nektarpartý í bandarískum háskólum Bandarískir nemendur í bestu háskólum landsins hafa tekið sig til, gert uppreisn gegn kreddum og hefðum í skólunum og ákveðið að kasta af sér byrðum þjóðfélagsins, sem og fötum sínum, og halda nektarpartý. 8.1.2007 21:54
Kviknaði í út frá potti á Húsavík Slökkvilið Húsavíkur var kallað að fjölbýlishúsi í bænum á áttunda tímanum í kvöld. Kviknað hafði í eldhúsinnréttingu út frá potti og var talsverður reykur. Lítill eldur reyndist vera í íbúðinni, en nokkrar skemmdir eru urðu vegna reyks og sóts. Sameign hússins slapp þó nær alveg við skemmdir. 8.1.2007 21:34
Orðið „fáviti“ fjarlægt úr stjórnarskrá Í New Jersey gæti orðið „fáviti“ bráðlega verið fjarlægt úr stjórnarskrá ríkisins til þess að fólk sem er andlega fatlað geti nýtt sér atkvæðisrétt sinn og kosið. Lögin sem banna að „fávitar“ kjósi voru sett fyrir meira en 150 árum síðan til þess að koma í veg fyrir að þeir sem væru andlega fatlaðir gætu kosið. 8.1.2007 21:15
Áhersla á samkomulag í Doha Að ná góðum árangri í Doha-viðræðum Alþjóðaviðskiptasambandsins er forgangsatriði bæði Evrópusambandsins og Bandaríkjanna en frá þessu skýrði Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 8.1.2007 21:00
Þjóðvæðing fyrirtækja hafin í Venesúela Forseti Venesúela, Hugo Chavez, biðlaði í kvöld til þingsins í landinu og bað það um að veita honum sérstök völd til þess að geta þjóðvætt ýmis fyrirtæki. Meðal þeirra sem þjóðvæða á er fjölmiðlafyrirtækið CANTV sem og einhverjir hlutar olíuverkefna á Orinoco svæðinu. 8.1.2007 20:45
Sjö á bráðamóttöku vegna gaseitrunnar Gasið sem angraði íbúa New York borgar í dag varð til þess að sjö manns voru flutt á bráðadeild með einkenni sem hlutust af gasinu. Ekki er vitað um uppruna gassins en það hefur verið talið harmlaust hingað til. 8.1.2007 20:30
Gullæði í Brasilíu Þúsundir fátækra Brasilíumanna streyma nú, vopnaðir skóflum og vélsögum, á nýfundið gullsvæði djúpt í Amazon frumskóginum og óttast yfirvöld umhverfisslys. Einnig eru áhyggjur af því að heilsu fólks verði stefnt í hættu þar sem aðbúnaður á svæðinu er nær enginn. Fyrir aðeins nokkrum vikum fundust gullæðar á yfirborðinu á svæðinu og þegar fréttir fóru að berast af gullfundinum streymdu vongóðir á staðinn. 8.1.2007 20:15