Fleiri fréttir Baugur lýsir yfir andstöðu við hvalveiðar Baugur Group hefur tekið þá ákvörðun að lýsa yfir andstöðu við hvalveiðar Íslendinga þar sem það sé farið að skaða íslensk félög erlendis. Félagið segir í tilkynningu, að útrás íslenskra fyrirtækja hafi verið gríðarleg á undanförum árum og farið vaxandi á sviði tísku, lyfjaframleiðslu, matvöru, bankastarfsemi og tónlistar til dæmis. 3.1.2007 14:59 Fundur flugumferðarstjóra stendur enn Búist er við því að félagsfundur flugumferðarstjóra vegna deilu þeirra við Flugstoðir ohf. standi að minnsta kosti í klukkustund til viðbótar en hann hófst klukkan eitt í dag. Kaffihlé stendur nú yfir en fundurinn er lokaður öðrum en félögum í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra. 3.1.2007 14:50 Hagur þýskra skánar 3.1.2007 14:24 Grábrókarveita tekin í notkun á föstudag Grábrókarveita, ný vatnsveita Orkuveitu Reykjavíkur í Borgarfirði, verður formlega tekin í notkun á föstudaginn kemur með pompi og prakt. Veitan er í Grábrókarhrauni skammt frá Bifröst en góð vatnsból fundust þar árið 2004. 3.1.2007 14:24 Fimm lemstruðust í bílveltu á Vestfjörðum Fimm manns voru fluttir á Sjúkrahúsið á Ísafirði eftir að hafa lemstrast þegar jeppi valt norðan við afleggjarann sem liggur út að Núpi í Dýrafirði nú eftir hádegið. 3.1.2007 14:03 Handtekinn fyrir hengingarmyndir 3.1.2007 13:53
Sjá næstu 50 fréttir
Baugur lýsir yfir andstöðu við hvalveiðar Baugur Group hefur tekið þá ákvörðun að lýsa yfir andstöðu við hvalveiðar Íslendinga þar sem það sé farið að skaða íslensk félög erlendis. Félagið segir í tilkynningu, að útrás íslenskra fyrirtækja hafi verið gríðarleg á undanförum árum og farið vaxandi á sviði tísku, lyfjaframleiðslu, matvöru, bankastarfsemi og tónlistar til dæmis. 3.1.2007 14:59
Fundur flugumferðarstjóra stendur enn Búist er við því að félagsfundur flugumferðarstjóra vegna deilu þeirra við Flugstoðir ohf. standi að minnsta kosti í klukkustund til viðbótar en hann hófst klukkan eitt í dag. Kaffihlé stendur nú yfir en fundurinn er lokaður öðrum en félögum í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra. 3.1.2007 14:50
Grábrókarveita tekin í notkun á föstudag Grábrókarveita, ný vatnsveita Orkuveitu Reykjavíkur í Borgarfirði, verður formlega tekin í notkun á föstudaginn kemur með pompi og prakt. Veitan er í Grábrókarhrauni skammt frá Bifröst en góð vatnsból fundust þar árið 2004. 3.1.2007 14:24
Fimm lemstruðust í bílveltu á Vestfjörðum Fimm manns voru fluttir á Sjúkrahúsið á Ísafirði eftir að hafa lemstrast þegar jeppi valt norðan við afleggjarann sem liggur út að Núpi í Dýrafirði nú eftir hádegið. 3.1.2007 14:03
Magni Austfirðingur ársins 2006 Magni Ásgeirsson sigraði með yfirburðum í kjöri á Austfirðingi ársins 2006 en það var vikublaðið Austurlandið sem stóð fyrir kjörinu í samstarfi við Landsbanka Íslands. 3.1.2007 13:49
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að geyma fíkniefni í fangaklefa Fangi á Litla-Hrauni var í dag í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft hass og tóbaksblandað kannabisefni í klefa sínum. 3.1.2007 13:45
Kona verður Buffæta Hinir skrautlega klæddu verðir við Tower of London hafa staðið vaktina síðan 1845. Allir hafa þeir verið karlmenn. Nú hefur hinsvegar verið tilkynnt að kona muni á næstunni ganga í raðir þeirra. 3.1.2007 13:36
Fimm handteknir vegna tengsla við hryðjuverkaárásir Spænska lögreglan hefur handtekið fimm menn sem grunaðir eru um að hafa hjálpað tveimur mönnum, sem grunaðir eru um aðild að sprengjuárásunum á lestarkerfið í Madríd í mars 2004, að flýja. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti landsins í dag. 3.1.2007 13:24
Starfsmannafélög Reykjavíkur og Akraness sameinast Félögar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar fóru yfir þriðja þúsundið nú um áramótin þegar Starfsmannafélag Akraness sameinaðist félaginu. Félagsmenn í Starfsmannafélagi Akraness voru ríflega 350 og í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar um 2900. Sameinað félag verður því með um 3250 félagsmenn. 3.1.2007 13:21
Vandaði stjórnvöldum ekki kveðjurnar Talsmaður eldri borgara, Arndís Björnsdóttir, kennari, fyrrverandi verslunarmaður og varaþingmaður, var harðorð í garð stjórnvalda í Íslandi í bítið í morgun. Hún sagði meðal annars að enginn vilji væri í þjóðfélaginu til að gera neitt í málefnum eldri borgara og öryrkja. Stjórnarandstaðan væri ekki undanskilin. 3.1.2007 13:15
Ljósastaurar brotnuðu í Hlíðarfjalli í fárviðri Ljósastaurar brotnuðu í Hlíðarfjalli í fárviðrinu sem gerði laust fyrir jól. Lítið varð úr þeim skíðajólum sem margir vonuðust eftir en þó var opið nokkra daga í fjallinu milli jóla og nýárs. 3.1.2007 13:15
Aldrei minna veiðst af rækju en í fyrra Rækjuaflinn á nýliðnu ári var aðeins þrjú þúsund tonn, eða minni en nokkru sinni, eftir að íslenskir sjómenn komust á annað borð upp á lagið með að veiða rækju. 3.1.2007 13:00
Amerískar rán-marglyttur í Oslóarfirði Norðmenn hafa af því áhyggjur að amerískar rán-marglyttur hafa fundist í miklum breiðum á Oslóarfirði. Það var þessi tegund af marglyttum sem lagði fiskveiðar í Svartahafi í rúst á áttunda áratugnum. 3.1.2007 12:59
Búinn að fá nóg Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, vill ekki sitja annað kjörtímabil í embætti og vill losna úr ráðuneytinu áður en núverandi tímabil er liðið. Hann gagnrýnir Bandaríkjamenn fyrir að bregðast of seint við ofbeldi í landinu. Bandaríkjamenn segja á móti að þeir hefðu hagað aftöku Saddams Hússein öðruvísi. 3.1.2007 12:45
Ostur ekki góður fyrir bresk börn Ostur er ekki góður kostur samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í Bretlandi. Þar í landi er bannað að auglýsa mat sem hefur hátt innihald fitu, sykurs og salts í barnatímum. Samkvæmt stöðlunum sem notaðir eru um svokallað „ruslfæði“ þá er ostur mjög slæmur fyrir börn og reyndar talinn verri en sykrað morgunkorn, kartöfluflögur og ostborgarar. 3.1.2007 12:44
Veltan í Kauphöllinni nærri 4500 milljarðar á síðasta ári Veltan í Kauphöll Íslands á síðasta ári nam nærri 4500 milljörðum og hefur aldrei verið meiri. Hún jókst um ríflega 2500 milljarða frá fyrra ári eða um 77 prósent. Fram kemur í ársyfirliti Kauphallarinnar að veltuaukning á hlutabréfamarkaði hafi numið 82 prósentum en 72 prósentum á skuldabréfamarkaði. 3.1.2007 12:42
Úrskurður kveðinn upp í Kjarvalsmálinu í dag Héraðsdómur kveður upp úrskurð í dag í Kjarvalsmálinu svokallaða. Afkomendur listmálarans vilja fá úr því skorið hvort fimm þúsund listaverk sem fóru úr vinnustofu listmálarans til borgarinnar hafi verið flutt þaðan með lögmætum hætti. 3.1.2007 12:30
Flugvélar enn leitað Enn er allt á huldu með örlög rúmlega eitt hundrað farþega sem voru um borð í indónesískri flugvél sem hvarf að morgni nýársdags. Vélin var á leið frá Jövu til Súlavesí-eyja. Ranglega var sagt frá því í gær að flugvélin og 12 eftirlifendur hefðu fundist í gærmorgun og vakti það fyrst von hjá ástvinum þeirra sem er saknað en hún snerist síðan upp í reiði. 3.1.2007 12:30
Stærsta verkfræðiskrifstofa landsins verður til Stærsta verkfræðistofa landsins með alls 240 starfsmenn varð til um áramótin þegar Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns og verkfræðistofan Hönnun sameinuðust undir nafninu VGK-Hönnun hf. 3.1.2007 12:28
Flugstoðir byrjaðar að ráða til sín flugumferðarstjóra Þorgeir Pálsson, forstjóri Flugstoða, sagði í samtali við fréttastofu nú rétt fyrir fréttir að fyrirtækið Flugstoðir væri þegar farið að ráða til sín flugumferðarstjóra. 3.1.2007 12:15
Flugumferðarstjórar taka afstöðu til tilboðs í dag Flugumferðarstjórar, sem ekki hafa ráðið sig hjá Flugstoðum ohf., ætla á félagsfundi í dag að taka afstöðu til tilboðs fyrirtækisins frá því í gær, ef það stendur þá enn. Fundi var slitið í gær þrátt fyrir samkomulag, vegna þess að Flugstoðir vildu ekki að það yrði borið undir félagsfund flugumferðarstjóra. 3.1.2007 12:05
Vextir af yfirdráttalánum jafngilda útgjöldum til fræðslumála Fyrirtæki og einstaklingar greiða jafn mikið í vexti af yfirdráttarlánum á einu ári og ríkið kostar til allra fræðslumála í landinu, þar með er talinn allur kostnaður ríkisins við háskóla og framhaldsskóla landsins. Heimilin ein og sér greiða tvisvar sinnum meira í vexti af yfirdráttarlánum en sem nemur þeirri upphæð sem lækkun matvælaverðs á að skila. 3.1.2007 12:00
Á 130 kílómetra hraða á Miklubraut Tvítugur piltur var gripinn eftir að bíll hans mældist á 130 kílómetra hraða á Miklubraut í nótt. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að hann hafi nokkrum sinnum áður gerst sekur um umferðarlagabrot. 3.1.2007 11:50
Farþegum með Flugfélagi Íslands fjölgar um átta prósent Farþegum með Flugfélagi Íslands fjölgaði um átta prósent á árinu 2006 miðað við árið 2005. Alls flugu um 380 þúsund manns með félaginu í fyrra, þar af um 18 þúsund farþegar í millilandaflugi til Færeyja og Grænlands. 3.1.2007 11:45
Þinglýstum samningum fjölgaði undir lok árs Þinglýstum kaupsamningum fjölgaði um 1,1 prósent og velta tengd samningunum jókst um 7,5 prósent milli nóvember í fyrra og nýliðins desember. Þetta kemur fram á vef Fasteignamats ríkisins. 3.1.2007 11:34
Aðeins 17.206 myrtir á árinu Kólumbíska lögreglan fagnar því um áramótin að morðmál í landinu hafa ekki verið færri í 20 ár. "Einungis" 17.206 létust fyrir hendi morðingja á árinu, eða rétt rúmlega 47 á dag. Mannránum fækkar einnig umtalsvert, úr 329 árið 2005 niður í 200 á síðasta ári. Kólumbía hefur einna hæsta morðtíðni í heimi en hlutirnir virðast vera að færast í rétta átt. 2.1.2007 23:02
Magni heiðraður Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps heiðraði Magna Ásgeirsson á Þorláksmessu fyrir frammistöðu hans í sumar í Rockstar Supernova og jákvæða kynningu sem Borgarfjörður eystri fékk í því samhengi. Þetta kemur fram á héraðsvefmiðlinum austurglugginn.is. 2.1.2007 22:46
Kosið verður um hjónaband samkynhneigðra Kjósendur í Massachusetts fá að kjósa um það í kosningunum 2008 hvort banna eigi hjónaband samkynhneigðra í eina fylki Bandaríkjanna þar sem það er nú leyfilegt. Þessi ákvörðun löggjafarþings fylkisins verður hins vegar endurskoðuð og er hugsanlegt að hætt verði við að leyfa kjósendum að ákveða. 2.1.2007 21:52
Þýðir ekki að ljúga á Selfossi Þjófur einn á þrítugsaldri var ekki fyrr kominn út úr yfirheyrslu frá dómara á Selfossi fyrir þjófnað en hann var búinn að stela veski og nýta sér kort konunnar sem átti veskið. Upp komst um þjófinn af því að afgreiðslukonan þekkti eiganda kortsins og tók því ekki gilda skýringu þjófsins að hann væri sonur konunnar. 2.1.2007 21:29
Neituðu að spá um Kastró Æðstu prestar algengustu trúarbragða á Kúbu, hinnar afrísk-kúbönsku Santeria-trúar, neituðu að spá nokkuð fyrir um heilsu Fídels Kastrós á nýju ári en mæltu með því að eyjaskeggjar fórnuðu geit, til að leggja sitt af mörkum til friðar og félagslegrar einingar í landinu. Kastró hefur ekki sést opinberlega í rúmlega fimm mánuði. 2.1.2007 21:09
Ekki kynþáttahatur að gefa svínasúpu Franskur dómstóll ákvað í dag að samtök sem hafa tengsl við öfgahægriöfl megi halda áfram að bjóða heimilislausum svínasúpu. Lögregla hafði kært samtökin fyrir kynþáttahatur í fæðuvalinu, þar sem bæði múslimar og gyðingar neiti sér um svínakjöt af trúarlegum ástæðum. 2.1.2007 20:30
Maliki vill ekki sitja annað kjörtímabil Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki, hefur ekki áhuga á að sitja annað kjörtímabil og óskar þess jafnvel að þurfa ekki að sitja út núverandi kjörtímabil. Hann segist einungis hafa tekið að sér embættið því hann hafi talið að það þjónaði hagsmunum þjóðarinnar. Þetta segir hann í viðtali við blaðið Wall Street Journal, sem birtist í dag. 2.1.2007 20:11
Stórhuga Ban Ki-moon Ban Ki-moon, nýr framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ætlar að byggja upp traust á samtökin. Hann ætlar einnig að beina sérstakri athygli að krefjandi verkefnum í Miðausturlöndum og Darfur auk þess sem hann ætlar að efna þúsaldarmarkmið S.þ. um að helminga fátækt fyrir árið 2015. Ban mætti í fyrsta skipti í nýju vinnuna í dag. 2.1.2007 19:15
Ljósmóðirin ekki fyllilega sátt við afkvæmið Eiríkur Tómasson lagaprófessor hafði milligöngu um að Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hófu stjórnarmyndunarviðræður vorið 1995, þegar Sjálfstæðisflokkurinn sleit stjórnarsamstarfi við Alþýðuflokkinn og myndaði stjórn með Framsóknarflokknum. Eiríki hugnast hins vegar ekki stjórnarhættir þeirra, seinni hluta samstarfsins. 2.1.2007 19:01
Margmenni við útförina Útför Geralds Ford, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var haldin Washington í dag en hann andaðist á öðrum degi jóla, 93 ára að aldri. 2.1.2007 19:00
Flugskólar lamaðir Fulltrúar flugumferðarstjóra og Flugstoða settust til fundar nú síðdegis til að freista þess að ná lendingu í deilu sinni. Starfsemi flugskóla Reykjavíkur hefur nánast legið niðri í dag vegna skorts á flugumferðarstjórum. 2.1.2007 18:54
Íslenska krónan er dýr og á undanhaldi Íslenska krónan er of dýr og fyrirtæki taka í vaxandi mæli stöðu með evrunni. Líkur eru á að þau muni einnig hefja skráningu hlutabréfa sinna í evrum. Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, efast um að krónan eigi framtíð fyrir sér og er enn þeirrar skoðunar að Ísland verði komið í Evrópusambandið innan tveggja kjörtímabila. 2.1.2007 18:46
Bæði vilja í forsætisráðherrastólinn Það verður ekki heiglum hent að mynda félagshyggjustjórn eftir kosningar í vor ef marka má orðaskak formanna Samfylkingar og Vinstri grænna í Kryddsíldinni á gamlársdag. Ný staða gæti komið upp í íslenskum stjórnmálum eftir kosningar, segir stjórnmálafræðingur, ef sá flokkur sem lengst er til vinstri fengi stól utanríkisráðherra 2.1.2007 18:45
Aftökunni var næstum frestað Litlu munaði að aftökunni á Saddam Hussein yrði frestað vegna framkomu böðlanna í hans garð og hafa írösk stjórnvöld fyrirskipað rannsókn á málinu. Óttast er að átök trúarhópa muni magnast vegna þessa en aldrei hafa jafnmargir borgarar látið lífið vegna átaka í Írak og í síðasta mánuði. 2.1.2007 18:45
Misvísandi upplýsingar frá þorpshöfðingja Enn er allt á huldu með örlög um hundrað farþega og áhafnar um borð í farþegaflugvél sem hvarf á leið sinni frá Jövu til Súlavesíu-eyja í gærmorgun. Í morgun var sagt að flakið og 12 eftirlifendur væru fundnir en svo var ekki. Rangar upplýsingar frá þorpshöfðinga á Súlavesíu-eyju hafi ratað í fjölmiðla. 2.1.2007 18:38
Læknar meta aðstæður vistmanna Læknar og sérfræðingar hafa verið fengnir til að skoða aðstæður vistmanna í Byrginu. Reykjavíkurborg, eins og ríkið, bíður niðurstöðu Ríkisendurskoðunar um fjármál Byrgisins áður en ákvörðun verður tekin um frekari styrki. 2.1.2007 18:30
Uppreisnarmennirnir segjast munu snúa aftur Sómalsku uppreisnarmennirnir í Íslamska dómstólaráðinu hótuðu síðdegis að þeir myndu snúa aftur og halda áfram baráttunni við stjórnarherinn. Uppreisnarmennirnir þverneita að þiggja boð stjórnarinnar um uppgjöf saka í skiptum fyrir að uppreisnarmennirnir skili vopnum sínum. 2.1.2007 18:07
Fjórir forsetar minntust Fords George Bush, forseti Bandaríkjanna, og þrír fyrrverandi forsetar, George Bush eldri, Bill Clinton og Jimmy Carter, fylgdu Gerald Ford, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna til grafar í Washington í dag. Núverandi forseti minntist Fords sem mannsins sem tókst að endurreisa trú Bandaríkjamanna á lýðræði í landinu eftir Watergate-hneykslið. 2.1.2007 17:51