Fleiri fréttir Áfram barnakvóti í Kína Kínverjar hafa alls ekki í hyggju að breyta barnakvóta sínum sem heimilar aðeins eitt barn á hverja fjölskyldu í þéttbýli, og tvö til sveita. Hlutfall kynjanna í Kína er orðið mjög ójafnt. 27.12.2006 16:27 Lögreglan fangelsar nakinn mann Lögreglan í Reykjavík færði karlmann á þrítugsaldri í fangageymslu í gær. Sá hafði gengið um nakinn í miðborginni. Lögreglan tók manninn um níu leytið í gærmorgun á Lokastígnum en þegar hún kom á staðinn var hann á sokkunum einum klæða. 27.12.2006 16:21 Afsláttarkort verða sjálfvirk frá áramótum Tryggingastofnun ætlar að hefja sjálfvirka útgáfu á afsláttarkortum fyrir læknis- og heilsugæsluþjónustu um næstu áramót. Hingað til hefur þurft að safna greiðslukvittunum og framvísa þeim hjá Tryggingastofnun til að fá afsláttarkortið. Kortið verður sent sjálfkrafa heim til þeirra sem ná hámarksgreiðslum ef upplýsingar um það eru til hjá Tryggingastofnun og endurgreiðslur lagðar inn á bankareikninga fólks. 27.12.2006 16:07 Íranar hraða kjarnorkuáætlun 27.12.2006 15:59 Hæstiréttur ræður ekki yfir þingmönnum Hæstiréttur Massachusetts, í Bandaríkjunum, hefur úrskurðað að hann hafi engan rétt til þess að skipa þingmönnum fylkisins að greiða atkvæðu um eitt eða neitt, á fylkisþinginu. 27.12.2006 15:48 Búið að dæla um 45 þúsund lítrum af olíu Búið er að dæla um fjörtíu og fimm þúsund lítrum af olíu úr flutningaskipinu Wilson Muuga sem strandaði við Hvalsnes í síðustu viku. Nú er verið að dæla úr tveimur svartolíutönkum sem eru ofarlega í skipinu en í þeim voru um 60 þúsund lítrum af olíu. 27.12.2006 15:42 FL-Group tilbúið að ráðast í stærri verkefni Hannes Smárason, forstjóri FL-Group, segir að vænta megi umtalsverðra frétta af FL-Group á árinu 2007. Fyrirtækið hefur úr umtalsverðum fjármunum að moða á næsta ári eftir að hafa losað um fjármagn. Hannes segir fyrirtækið tilbúið að ráðast í stærri verkefni en áður. 27.12.2006 15:24 Nornir fá uppreist æru Um 100 nornasérfræðingar alls staðar að úr heiminum munu koma saman í Vardø í Noregi á næsta ári til að ræða nornaveiðarnar í Finnmörku, Norðvestur-Rússlandi og Mið-Evrópu. Norræni menningarsjóðurinn styrkir þessa ráðstefnu. 27.12.2006 15:06 Óvarlegt að senda Harry prins til Íraks Mikil umræða er um það í Bretlandi hvort rétt sé að Harry prins fari til Íraks, með hversveit sinni, sem verður send þangað næsta vor. Harry er sagður leggja mikla áherslu á að fylgja félögum sínum, en varnarmálaráðuneytið segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun þar um ennþá. 27.12.2006 14:27 Styrkjum úthlutað til sjávarrannsókna Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, úthlutaði í dag 25 milljónum króna til sjávarrannsókna á samkeppnissviði. Níu verkefni fengu styrk en alls bárust þrjátíu og þrjár umsóknir um styrki. 27.12.2006 14:16 FL Group invests in American Airlines 27.12.2006 14:13
Sjá næstu 50 fréttir
Áfram barnakvóti í Kína Kínverjar hafa alls ekki í hyggju að breyta barnakvóta sínum sem heimilar aðeins eitt barn á hverja fjölskyldu í þéttbýli, og tvö til sveita. Hlutfall kynjanna í Kína er orðið mjög ójafnt. 27.12.2006 16:27
Lögreglan fangelsar nakinn mann Lögreglan í Reykjavík færði karlmann á þrítugsaldri í fangageymslu í gær. Sá hafði gengið um nakinn í miðborginni. Lögreglan tók manninn um níu leytið í gærmorgun á Lokastígnum en þegar hún kom á staðinn var hann á sokkunum einum klæða. 27.12.2006 16:21
Afsláttarkort verða sjálfvirk frá áramótum Tryggingastofnun ætlar að hefja sjálfvirka útgáfu á afsláttarkortum fyrir læknis- og heilsugæsluþjónustu um næstu áramót. Hingað til hefur þurft að safna greiðslukvittunum og framvísa þeim hjá Tryggingastofnun til að fá afsláttarkortið. Kortið verður sent sjálfkrafa heim til þeirra sem ná hámarksgreiðslum ef upplýsingar um það eru til hjá Tryggingastofnun og endurgreiðslur lagðar inn á bankareikninga fólks. 27.12.2006 16:07
Hæstiréttur ræður ekki yfir þingmönnum Hæstiréttur Massachusetts, í Bandaríkjunum, hefur úrskurðað að hann hafi engan rétt til þess að skipa þingmönnum fylkisins að greiða atkvæðu um eitt eða neitt, á fylkisþinginu. 27.12.2006 15:48
Búið að dæla um 45 þúsund lítrum af olíu Búið er að dæla um fjörtíu og fimm þúsund lítrum af olíu úr flutningaskipinu Wilson Muuga sem strandaði við Hvalsnes í síðustu viku. Nú er verið að dæla úr tveimur svartolíutönkum sem eru ofarlega í skipinu en í þeim voru um 60 þúsund lítrum af olíu. 27.12.2006 15:42
FL-Group tilbúið að ráðast í stærri verkefni Hannes Smárason, forstjóri FL-Group, segir að vænta megi umtalsverðra frétta af FL-Group á árinu 2007. Fyrirtækið hefur úr umtalsverðum fjármunum að moða á næsta ári eftir að hafa losað um fjármagn. Hannes segir fyrirtækið tilbúið að ráðast í stærri verkefni en áður. 27.12.2006 15:24
Nornir fá uppreist æru Um 100 nornasérfræðingar alls staðar að úr heiminum munu koma saman í Vardø í Noregi á næsta ári til að ræða nornaveiðarnar í Finnmörku, Norðvestur-Rússlandi og Mið-Evrópu. Norræni menningarsjóðurinn styrkir þessa ráðstefnu. 27.12.2006 15:06
Óvarlegt að senda Harry prins til Íraks Mikil umræða er um það í Bretlandi hvort rétt sé að Harry prins fari til Íraks, með hversveit sinni, sem verður send þangað næsta vor. Harry er sagður leggja mikla áherslu á að fylgja félögum sínum, en varnarmálaráðuneytið segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun þar um ennþá. 27.12.2006 14:27
Styrkjum úthlutað til sjávarrannsókna Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, úthlutaði í dag 25 milljónum króna til sjávarrannsókna á samkeppnissviði. Níu verkefni fengu styrk en alls bárust þrjátíu og þrjár umsóknir um styrki. 27.12.2006 14:16
Sofnaði undir stýri og ók í gegnum girðingu Mildi þykir að ekki fór verr þegar ökumaður sofnaði undir stýri í morgun og ók í gegnum girðingu og inn á tún. Maðurinn ók eftir Innnesvegi á leiðinni til Akraness. 27.12.2006 14:00
Ók á 150 kílómetra hraða í gegnum Hvalfjarðagöngin Ökumaður sem reyndi að stinga lögreglumenn af í Hvalfjarðagöngunum aðfaranótt aðfangadags var á rúmlega eitt hundrað og fimmtíu kílómetra hraða. 27.12.2006 13:50
Íslamistarnir hörfa Sómalska stjórnarhernum, með aðstoð hersveita frá Eþíópíu, hefur tekist að ná yfirráðum yfir bænum Jowhar í miðhluta landsins en hann hefur talsverða hernaðarlega þýðingu. 27.12.2006 13:45
Hóta að loka fyrir gas til Evrópu Hvíta Rússland hótaði í dag að loka fyrir gasleiðslur Rússa til Vestur-Evrópu, ef rússneski orkurisinn Gazprom félli ekki frá kröfum sínum um stórhækkað verð á gasi til Hvíta Rússlands á næsta ári. Stærstu viðskiptavinir Rússa í Evrópu eru Þýskaland, Ítalía, Tyrkland og Frakkland. 27.12.2006 13:28
Blair af beinu brautinni Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lenti í óskemmtilegri uppákomu þegar hann lenti í Miami í Flórída í nótt. Þegar flugvélin sem hann var farþegi í var að aka eftir flugbrautinni í átt til flugstöðvarinnar misstu flugmenn hennar af beygju með þeim afleiðingum að vélin ók út af brautinni. 27.12.2006 13:15
Eldur kviknaði á efrihæð Kaffi Amor á Akureyri Eldur kviknaði á efrihæð Kaffi Amor á Akureyri á níunda tímanum í morgun. Eftir að reykkarfarar frá slökkviliðinu á Akureyri höfðu farið inn í húsið kom í ljós að eldurinn var á salerni og tókst að slökkva hann fljótt. 27.12.2006 13:08
Bjóða bandarískum áhrifamönnum til Svalbarða Norðmenn ætla að bjóða bandarískum stjórnmálamönnum að heimsækja Svalbarða í von um að fá þá til liðs við sig í baráttunni gegn útblæstri gróðurhúsaloftegunda. Svalbarði er aðeins þúsund kílómetra frá Norðurpólnum og þar má sjá greinileg merki um hlýnandi loftslag. 27.12.2006 13:04
Sýknaður af því að reyna að hindra varp arna Bóndi við Breiðafjörð, sem gefið var að sök að hafa sett upp gasbyssu til þess að fæla erni frá hreiðurstæði í firðinum og koma þannig í veg fyrir að þeir verptu þar, var í dag sýknaður í Héraðsdómi Vestfjarða af broti á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og spendýrum. 27.12.2006 13:00
Bandaríkjastjórn fagnar dauðadómnum Skiptar skoðanir eru um dauðadóminn yfir Saddam Hussein sem íraskur áfrýjunardómstóll staðfesti í gær. Bandarísk stjórnvöld fagna dómnum en Evrópusambandið hefur hins vegar skorað á írösku ríkisstjórnina að þyrma lífi Saddams. 27.12.2006 13:00
Ha, við danskir ? Ráðgjafanefnd danska utanríkisráðuneytisins leggur til að dönsk fyrirtæki hætti að leggja áherslu á danskan uppruna sinn í viðskiptum við Miðausturlönd. Þess í stað telji þau sig vera skandinavisk. 27.12.2006 13:00
Fimm ungmenni hafa játað innbrot Fimm ungmenni hafa játað að hafa brotist tvisvar inn í verslun á Akureyri og í veitingarhús um jólin. Sýslumaðurinn á Akureyri fór í gær fram gæsluvarðhald yfir ungmennunum. Þau hafa nú verið látin laus og er þýfið fundið. 27.12.2006 12:57
Hamborgarhryggirnir uppseldir Síðustu þrjá daga fyrir jól var orðinn verulegur skortur á hamborgarhryggjum í verslunum Bónuss. Skorturinn var fyrirsjáanlegur og samkvæmt upplýsingum frá Högum var sóst eftir leyfi til að flytja inn svínahryggi. Leyfið var veitt en með slíkum ofurtollum að hryggirnir hefðu verið seldir út úr búð með tapi. 27.12.2006 12:45
Krefst fundar í samgöngunefnd Jón Bjarnason, alþingismaður og fulltrúi Vinstri grænna í samgöngunefnd Alþingis, krefst fundar í samgöngunefnd vegna deilu flugumferðarstjóra og samgönguráðherra, og vill að Alþingi grípi þegar inn í málið. Hann leggur til að gildistöku laga um hlutafélagsvæðingu flugumferðarstjórnar um áramót, verði frestað, eða fallið verði frá lögunum. 27.12.2006 12:30
Gerald Ford látinn Gerald Ford, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lést í gærkvöld, 93 ára að aldri. Ford verður seint talinn í hópi tilþrifamestu forseta landsins enda var hann aldrei kjörinn af þjóð sinni í embættið. 27.12.2006 12:30
Dæling úr Wilson Muuga gengur vel Dæling á olíu hófst úr flutningaskipinu Wilson Muuga á strandstað við Hvalsnes á Reykjanesi um fjögurleytið í nótt og gengur nokkuð vel. Til stóð að hefja dælingu síðdegis í gær en vegna tæknilegra erfiðleika tókst það ekki og lítilræði af olíu lak í sjóinn. Betur gekk undir morgun þegar aftur var reynt, og er olíunni dælt í olíubíl í fjörunni. 27.12.2006 12:15
Nýr norrænn ferðarisi í eigu Íslendinga Nýr íslenskur ferðarisi varð til á Norðurlöndunum í dag með stofnun Northern Travel Holding, sem er í eigu Fons, FL Group og Sunds. Hið nýja félag hefur keypt Sterling flugfélagið, Iceland Express, yfir helmings hlut í flugfélaginu Astraeus, stóran hlut í sænsku ferðaskirfstofunni Ticket og alla hluti í dönsku ferðaskrifstofunni Hekla Travel. Samanlögð velta þessara félaga er áætluð um 120 milljarðar króna. 27.12.2006 12:00
Ölöglegum innflytjendum fækkar Handtökum ólöglegra innflytjenda á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkós hefur fækkað um rúmlega þriðjung síðan þjóðvarðliðið fór að hjálpa til við landamæragæsluna. Landamæraeftirlit Bandaríkjanna telur þetta benda til þess að færri reyni að smygla sér inn og þakka fælingarmætti þjóðvarðliðsins. 27.12.2006 11:50
Hátt í tvær milljónir króna fást fyrir Bítlaplötu Metfé, 115.000 dollarar, (1.792.750 ísl. kr.) fékkst fyrir Bítlaplötu sem var til sölu á uppboðsvefnum itsonlyrocknroll.com. Óþekktur aðili keypti eintak af "Meet The Beatles", fyrstu LP plötunni, sem The Beatles gáfu út í Bandaríkjunum hjá Capitol hljómplötuútgáfunni, af systur George heitins Harrisons. 27.12.2006 11:24
27.309 fá hlífðargleraugu Slysavarnarfélagið Landsbjörg og Blindrafélagið senda öllum 10-15 ára börnum á landinu gjafabréf fyrir hlífðargleraugum í ár. Þetta gera félögin til þess að minna á að slys eru tíð um áramót og að algengast er að fólk slasist á höndum, andliti og augum. Í flestum tilfellum eru einnig misbrestir á að notkunarleiðbeiningar um flugelda séu virtar. 27.12.2006 11:21
Útsölur hafnar í Lundúnum Fólk í leit að kjarakaupum mætti snemma í biðraðir í Lundúnum í morgun en klukkan fimm um morguninn voru um 2000 manns mætt í biðröð fyrir utan Selfridges á Oxford street en sú búð ætti að vera mörgum Íslendingnum góðu kunn. 26.12.2006 20:45
Rússneskur njósnari rekinn úr landi í Kanada Yfirvöld í Kanada ráku í dag úr landi mann sem grunaður er um að hafa verið rússneskur njósnari. Maðurinn á að hafa notað falsað fæðingarvottorð til þess að komast fyrir skilríki, kennitölu og vegabréf. Ráðamenn í Kanada sögðu þetta sýna að hver sá sem virti ekki lög þeirra og ógnaði öryggi samfélagsins væri ekki ekki velkominn í landinu. 26.12.2006 20:30
Eldflaug skotið á Ísrael og 2 særðust Eldflaug var skotið frá Gazaborg í dag á Ísrael og særðust tveir í bæ í suðurhluta Ísrael og eru þeir fyrstu aðilarnir sem meiðast síðan vopnahlé gekk í garð á milli Ísraela og Palestínumanna. Talsmenn Ísraela sögðu að 13 ára drengur hefði verið annar af þeim sem særst hefðu. 26.12.2006 20:15
Fimm í varðhaldi vegna þjófnaðar Sýslumaðurinn á Akureyri hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir fimm aðilum sem grunaðir eru um innbrot og þjófnaði í tvö fyrirtæki á Akureyri. Aðfaranótt jóladags var brotist inn í verslun og stolið snjóbrettum og búnaði þeim tengdum. 26.12.2006 20:00
Allt að 500 létu lífið í slysi í Nígeríu Óttast er að allt að fimm hundruð manns hafi beðið bana þegar sprenging varð í olíuleiðslu í Lagos, stærstu borg Nígeríu, í morgun. Ræningjar stungu gat á leiðsluna í nótt og því stóðu við hana hundruð manna, sem vildu ná sér í olíu, þegar ógæfan reið yfir. 26.12.2006 19:45
Eitt mesta hellakerfi landsins fundið í Eldhrauni Ein mesta hellaþyrping landsins hefur fundist í Skaftáreldahrauni norðan Kirkjubæjarklausturs. Hellarnir, sem samtals eru yfir fimmtán kílómetra langir, hafa verið að koma í ljós í nokkrum alþjóðlegum rannsóknarleiðöngrum. Einn hellanna, tveggja kílómetra langur, þykir einstakt náttúrufyrirbæri þar sem vatn sprautast inn í hann úr sprungum í loftinu. 26.12.2006 19:30
Nýr stjórnmálaflokkur stofnaður Nýr stjórnmálaflokkur, sem fengið hefur nafnið Flokkurinn, hefur verið stofnaður. Meðal áhersluatriða er að breyta kosningakerfinu og afnema ný lög um styrki til stjórnmálaflokka. 26.12.2006 19:15
Mikið tjón í eldsvoða í Mývatnssveit í gær Mikil eyðilegging varð í bruna í Mývatnssveit í gær. Karlmaður, sem slasaðist mikið í eldsvoðanum, hefur verið fluttur á Landsspítalann til meðferðar. Hann er ekki talinn í lífshættu. 26.12.2006 19:00
Tannheilsu íslenskra ungmenna hrakar Tannheilsu íslenskra ungmenna hrakar, samkvæmt nýrri rannsókn sem er að ljúka. Einkum er glerungseyðing að aukast, sérstaklega hjá piltum, og fer það saman við meira gosdrykkjaþamb stráka. 26.12.2006 18:49
Dauðadómurinn staðfestur Áfrýjunardómstóll í Írak hefur staðfest dauðadóminn yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta landsins, og verður hann að óbreyttu tekinn að lífi innan fjögurra vikna. 26.12.2006 18:45
Byrjað að dæla úr Wilson Muuga í kvöld Byrjað verður að dæla olíu úr flutningaskipinu Wilson Muuga í kvöld. Öllum dælubúnaði var komið fyrir í skipinu í dag, þar á meðal um 300 metra langri slöngu sem notuð verður til að koma olíu á tankbíla. 26.12.2006 18:44
Handtekinn eftir 20 ára leit Franska lögreglan hefur handtekið bankaræningja eftir 20 ára leit. Milhoud Hai var einn af þeim sem að rændu útibú Frakklandsbanka árið 1986 og komust þeir undan með um 17 milljónir dollara, eða um 1,2 milljarða íslenskra króna. 26.12.2006 17:58
Fresta fæðingum til 1. janúar 2007 Tilvonandi mæður í þýskalandi gera nú allt sem þær geta til þess að fresta fæðingu barna sinna til 1. janúar. Ástæðan fyrir þessu undarlega æði er að vegna sílækkandi fæðingartíðni í þýskalandi hafa þýsk stjórnvöld ákveðið að greiða fólki 2/3 af launum þeirra eftir skatta í allt að fjórtán mánuði en aðeins ef barn þeirra fæðist á eða eftir 1. janúar 2007. 26.12.2006 17:43
Spænskir múslimar senda páfa bréf Spænskir múslimar hafa sent Benedikt páfa bréf þar sem þeir biðja um leyfi til þess að biðja í gamalli spænskri kirkju sem fyrr á öldum var fræg moska múslima. 26.12.2006 17:19
Forseti Súdan samþykkir sameiginlegt friðargæslulið Forseti Súdan, Omar Hassan al-Bashir, hefur sagt Sameinuðu þjóðunum að hann styðji áætlun þeirra um sameiginlegt friðargæslulið SÞ og Afríkusambandsins til þess að vernda óbreytta borgara í Darfur héraði landsins. 26.12.2006 16:55