Fleiri fréttir

Ökumaður missti stjórn á bíl sínum í Miðbænum

Ökumaður slasaðist og var fluttur á Slysadeild Landsspítalans-háskólasjúkrahús til aðhlynningar, eftir að hann missti stjórn á bíl sínum á móts við Kolaportið í Reykjavík og ók á umferðarljós. Ljósavitinn brotnaði niður og bíllin stór skemmdist, en maðurinn slasaðist ekki alvarlega.

Um 64% Akureyringa vilja nýjan meirihluta í bæjarstjórn

Rúmlega 64% Akureyringa vilja fá nýjan meirihluta í bæjarstjórn samkvæmt niðurstöðum í nýlegri Gallup könnun. Fréttavefurinn Dagur greinir frá niðurstöðum könnunarinnar en í henni var spurt um ánægju með meiri- eða minnihluta í bæjar- og sveitafélögum víða um land.

Bætir í vindinn á Austurlandi

Verulega hefur hvesst á Austurlandi í morgun með ofankomu og skafrenningi. Stórhríð er á fjallvegum og beðið með mokstur þartil veður lægir. Vindhraði fer víða vel yfir 20 metra á sekúndu og er skólahaldi í grunnskólanum á Eskifirði frestað til hádegis vegna óveðurs og leikskólinn verður lokaðaur í dag.

Nokkrir festust í bílum sínum vegna óveðurs

Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu fólk í föstum bílum á Holtavörðuheiði og í Víðidal í gærkvöldi og bóndi kom konu til hjálpar, sem var föst í bíl sínum á Eyrarfjalli við Ísafjarðardjúp, en óveðrinu tók að slota upp úr klukkan þrjú í nótt.

Aftakaveður og nokkur snjóflóð fallið

Um tuttugu manns gista nú hjá vinum og ættingjum á Bolungarvík vegna snjóflóðahættu og verða þar fram á morgun. Veðrinu hefur lítið slotað en fyrr í dag lýsti Veðurstofan yfir viðbúnaðarstigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Sex hús hafa verið rýmd á Bolungarvík vegna þessa. Húsin standa við Dísarland og Traðarland, efst í hlíðum Traðarhyrnu. Göturnar sem um ræðir eru efst í bænum og hefur oft þurft að rýma þar hús áður vegna snjóflóðahættu. Ekki er lengur búið í öllum húsunum þar sem Ofanflóðasjóður hefur keypt upp hús í götunum til þess að þetta svæði tæmist varanlega.

Síðasta vígið fallið

Fuglaflensa af H5-stofni hefur greinst í dauðum svani í Fife í Austur-Skotlandi, að því er kemur fram í vefriti BBC. Nær allir íslenskir farfuglar koma við á Bretlandseyjum og sérstaklega á Skotlandi og hafa yfirvöld því ekki viljað fara á viðbúnaðarstig 2 fyrr en sjúkdómurinn greinist á Bretlandseyjum. Ef kemur í ljós að veiran er af H5N1-stofni sem berst í menn verður þess líklega ekki langt að bíða.

Fyrsti dökki þingmaðurinn á Ítalíu?

Hörundsdökkur þingmaður gæti í fyrsta sinn náð þingsæti á Ítalíu og það sem meira er, þingmannsefnið er líka kona. Auglýsingar Aminötu Fofana stinga nokkuð í stúf í öllu auglýsingafarganinu sem fylgir síðustu dögunum fyrir þingkosningarnar. Hún er konungborin og fæddist í Gíneu í Afríku.

Hús rýmd í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu

Verið er að rýma 8 hús í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu og á það að verða búið fyrir klukkan 21:00. Þessi hús standa við Dísarland og Traðarland, sem er það svæði á Bolungarvík sem er hvað oftast rýmt vegna snjóflóðahættu. Fólkið gistir flest hjá ættingjum og vinum.

Fékk nærri fjórar milljónir til sjóntækjakaupa

Átta ára drengur sem fæddist með gallaða augasteina og önnur börn í svipaðri stöðu sjá fram á betri tíma. Sjónstöð Íslands fékk í dag stjórgjöf til tækjakaupa eftir umfjöllun drenginn í fréttaskýringaþættinum Kompás.

Bækur til varnar

Bandaríkjamenn gáfu Íslendingum í dag fjölda bóka um varnarmál. Sendiherra Bandaríkjanna vonar að bækurnar hjálpi Íslendingum að byggja upp sérþekkingu á varnarmálum sem utanríkisráðherra hefur sagt skorta hér á landi. Forstöðumaður meistaranáms HÍ í alþjóðasamskiptum segir gjöfina ekki sárabót fyrir brottför hersins.

Vill vitnavernd í íslensk lög

Jón Gerald Sullenberger átti ekki von á því að vera ákærður í Baugsmálinu. Hann segir brotalöm í íslenskum lögum þar sem vanti vitnavernd. Þá vill hann að einn dómari í málinu víki en dómarinn taldi Jón Gerald ótrúverðugt vitni þegar málið var fyrst tekið fyrir í Héraðsdómi.

Bjuggu til fyrirtæki

Bandaríska leyniþjónustan hefur kerfisbundið notfært sér tilbúin fyrirtæki sem ekkert er á bakvið til að halda leynd yfir fangaflugi. Þetta kemur fram í fyrstu niðurstöðum rannsókna Amnesty International á fangafluginu.

Mun kalla þekkta viðskiptamenn til vitnis í Baugsmálinu

Jón Gerald Sullenberger átti ekki von á því að vera ákærður í Baugsmálinu. Hann segir brotalöm í íslenskum lögum þar sem vanti vitnavernd. Þá vill hann að einn dómari í málinu víki en dómarinn taldi Jón Gerald ótrúverðugt vitni þegar málið var fyrst tekið fyrir í Héraðsdómi.

Snjóflóð féll á björgunarmenn

Einn maður slasaðist nokkuð þegar hann klemmdist á milli bíla á Súðarvíkurvegi rétt eftir klukkan þrjú í dag. Maðurinn var við björgunarstörf á vegum Landsbjargar þegar slysið varð. Bílar höfðu lokast inni á milli tveggja snjóflóða sem fallið höfðu á Súðavíkurveg og var maðurinn ásamt öðrum björgunarsveitarmönnum að bjarga fólki úr einum bílnum

Fleiri taka þátt í setuverkfalli

Starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi og á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum, hafa bæst í hóp þeirra starfsmanna sem ætla að mótmæla lélegum kjörum með setuverkfalli á morgun og á föstudag. Hópur þessa starfsfólks mun koma saman í Alþingishúsinu á morgun klukkan eitt, til að afhenda fjármálaráðherra undirskriftarlista, þar sem skorað er á stjórnvöld að bregðast við ástandinu á dvalar- og hjúkrunarheimilum landsins.

Prestur grunaður um misnotkun á 20 börnum

Lögreglan á Ítalíu handtók í dag prest sem grunaður er um að hafa, í um áratug, misnotað yfir tuttugu börn úr sókninni hans. Saksóknarar hafa safnað vitnisburði um eitthundrað tilfelli frá um tuttugu drengjum. Þeir halda því fram að presturinn hafi misnotað þá kynferðislega á árunum 1993 - 2004. Verði presturinn, sem er 43 ára, fundinn sekur má hann búast við allt að 10 ára fangelsi.

Ljóðasafn Sigurðar Pálssonar er komið út á búlgörsku

Ljóðasafn Sigurðar Pálssonar er komið út á búlgörsku og er það bókaútgáfan Nov Zlatorog sem gefur ljóðasafnið út. Nov Zlatorog tók til starfa 1990 og er eitt virtasta útgáfufyrirtæki Búlgaríu. Henni var upphaflega komið á fót á sovéttímanum sem neðanjarðarfyrirtæki Kiril Kadiiski sem er eitt fremsta skáld Búlgaríu en hann fékk nýlega frönsku Max Jacob verðlaunin fyrir höfundarverk sitt.

Markaðurinn á fleygiferð

Úrvalsvísitalan hækkaði um tæp tvö prósent í dag eftir miklar lækkanir að undanförnu. Mest hækkuðu bréf Flögu eða um 24 prósent og er óhætt að segja að hlutabréfamarkaðurinn hafi verið á fleygiferð að undanförnu, aðallega þó niður á við eftir neikvæða umræðu erlendra banka um íslenskt efnahagslíf. Í gær sendi matsfyrirtækið Moody's síðan frá sér tvær skýrslur þar sem lánshæfismat ríkisins annars vegar, og stóru bankanna þriggja hins vegar, er staðfest.

Björgunarskip í viðbragðsstöðu

Björgunarskip Landsbjargar á Ísafirði og á Patreksfirði voru sett í viðbragðsstöðu eftir hádegið í dag, að beiðni Vaktstöðvar siglinga, eftir að 3 bátar lentu í miklum sjó út af Arnarfirði. Mjög slæmt veður var á þessum slóðum. Bátarnir komust í var inn á Dýrafjörð heilu og höldnu og beiðnin afturkölluð skömmu síðar.

Málsókn gegn Norðmönnum eina leiðin

Málsókn gegn Norðmönnum virðist eina leiðin til að binda endi á ofríki þeirra við Svalbarða sagði utanríkisráðherra á Alþingi í dag. Ekki er þó ljóst hvenær af málsókn verður.

Framboðslisti Samfylkingar og óháðra í Ölfusi

Samfylkingin og óháðir í Ölfusi hafa sent frá sér framboðslista vegna komandi sveitarstjórnarkosninga sem fram fara 27. maí næstkomandi. Fyrsta sætið skipar Dagbjört Hannesdóttir, viðskiptafræðingur, í öðru sæti er Hróðmar Bjarnason, framkvæmdarstjóri og í því þriðja er Elín Björg Jónsdóttir.

Vilja endurskoðun á verkferlum á Kárahnjúkum

Rafiðnaðarsamband Íslands, Starfsgreinasamband Íslands, Samiðn og Alþýðusamband Íslands segja aukna tíðni slysa og veikinda við Kárahnjúka á undanförnum mánuðum kalla á endurskoðun á öllum verkferlum hvað varðar framkvæmd eftirlits með öryggismálum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem landsamböndin hafa sent frá sér.

Hart deilt á utanríkisráðherra

Stjórnarandstæðingar deildu á utanríkisráðherra við upphaf þingfundar í dag fyrir að hafa ekki nægilegt samráð um gang mála í varnarviðræðum við Bandaríkin. Utanríkisráðherra sagði að það mætti ef til vill saka sig um margt en ekki þó það að hafa ekki nægilegt samráð við þingnefndir.

Bílvelta við Landakot

Bíll valt við Landakotsspítalann í Reykjavík rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Engi slys urðu á fólki en bílstjórinn var einn í bílnum. Sjúkrabíll var sendur á staðinn en ekki reyndist þörf á honum. Ekki er vitað hvernig slysið bar til, en bíllinn var á leið vestureftir Túngötu, þegar hann rakst utan í v egrið og valt á toppinn. Túngötunni var lokað um tíma á meðan lögregan rannsakaði vettvang.

Óshlíðarvegur og Súðarvíkurvegur lokaðir

Slæmt ferðaveður er víða um land. Á Hellisheiði og í Þrengslum eru hálkublettir og éljagangur og það er strekkingsvindur á heiðinni. Þá er óveður á Fróðárheiði og á norðanverðum Vestfjörðum er ekkert ferðaveður. Búið er að loka veginum um Óshlíð og Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu en fólk er jafnframt beðið að vera ekki á ferð milli bæjarkjarnanna í Ísafjarðarbæ, þ.e. Þingeyrar, Flateyrar og Suðureyrar.

Bílvelta við Landakot

Bílvelta varð við Landakotstún nú rétt fyrir klukkan þrjú. Að sögn lögreglu var sjúkrabíll sendur á staðinn og lögreglan er á vettvangi. Ekki er vitað að svo stöddu hvort slys urðu á fólki eða hver tildrög slyssins eru. Við segjum nánar slysinu síðar í dag.

Eldur kviknaði í íbúðarhúsi á Stokkseyri

Eldur kom upp í herbergi í íbúðarhúsi á Stokkseyri rétt fyrir klukkan tvö. Búið er að slökkva eldinn en Brunavarnir Árnessýslu komu á staðinn stuttu eftir útkall. Húsráðendur lokuðu herbergishuðinni þegar eldsins varð vart og komu þar með í veg fyrir að eldurinn næði að breiðast út áður en slökkvilið kom á staðinn.

Útlendingum í starfaleit þarf ekki að fjölga

Fólki frá Austur-Evrópu sem kemur hingað til lands að leita sér vinnu þarf ekki að fjölga þrátt fyrir að takmarkanir við för þeirra falla niður 1. maí. Þetta er mat félagsmálaráðherra og aðstoðarframkvæmdastjóra Alþýðusambands Íslands.

Þjóðverjar áhugasamir um stangveiði

Nýtt útgerðarmynstur leit dagsins ljós á Tálknafirði í gær. Það byggir á því að skipstjórarnir sitja heima í stofu og horfa á þýska ferðamenn veiða fyrir sig og borga ferðamennirnir meira að segja fyrir það.

Dómarar ósáttir um röðun umsækjenda

Meirihluti Hæstaréttar telur að Páll Hreinsson prófessor sé hæfastur þeirra fjögurra, sem sóttu um stöðu Hæstaréttardómara, en dómarar eru ekki á eitt sáttir um að raða upp umsækjendum.

Hagnaður FL Group um 12 milljarðar króna

FL Group hefur selt tæplega 17 prósenta hlut sinn í lággjaldaflugfélaginu easyJet fyrir um það bil þrjátíu milljarða króna. Félagið hagnast um 12 milljarða miðað við kaupverð bréfanna á sínum tíma.

Vandinn liggur í slakri upplýsingagjöf

Vandi íslenskra fyrirtækja er miklu frekar fólginn í slakri upplýsingagjöf en slökum stjórnarháttum, segir fjármálastjóri Danske Bank. Hann segir þann vanda engum nema stjórnendum sjálfum að kenna.

Lagt til að öryggi borgarbúa verði eflt

Miðborgargæsla um helgar og efling öryggis í hverfum borgarinnar er meðal þess sem viðræðurhópur um löggæslumálefni í Reykjavík hefur lagt til. Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, skipaði hópinn í ágúst árið 2003 sem hefur síðan þá verið samstarfsvettvangur dóms og krikjumálaráðuneytis, lögreglu og borgaryfirvalda um löggæslumál í Reykjavík.

Aðeins níu karlmenn skráðir atvinnulausir á Vestfjörðum

Aðeins níu karlmenn eru skráðir atvinnulausir á Vestfjörðum en hvergi á landinu eru eins fáir karlmenn skráðir atvinnulausir. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að í byrjun árs hafi 20 karlmenn verið skráðir en þeim hafi fækkað jafnt og þétt.

Milosevic lést af náttúrulegum orsökum

Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, lést af náttúrulegum orsökum. Þetta er niðurstaða þýsks saksóknara sem rannsakaði lát Milosevic sem segir ekkert benda til þess að dauða hans hafi borið að með saknæmum hætti.

Gistinóttum á hótelum fjölgar um 5,5% í febrúar

Gistinóttum á hótelum í febrúar fjölgaði um 5,5% milli ára samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar yfir gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 3.300 í 5.600 milli ára eða um 68%.

Gagnrýnd fyrir of háan reikning

Lene Espersen, dómsmálaráðherra Danmerkur, sætir nú gagnrýni fyrir að hafa boðið nánustu samstarfsmönnum á jólahlaðborð á kostnað ríkisins stuttu eftir að hún var skipuð í embætti árið 2001. Politiken greinir frá því að danska ríkisendurskoðunin hafi gert athugasemdir við reikninginn en Espersen bauð samstarfsmönnum sínum á veitingastaðinn Ero Oro og hljóðaði reikningurinn upp á rúm 19.000 danskra króna eða sem samsvarar tæpum 230.000 íslenskra króna.

Hálka og hálkublettir eru víða á þjóðvegum landsins.

Hálka og hálkublettir eru víða á þjóðvegum landsins. Á Hellisheiði eru hálkublettir og éljagangur. Hálkublettir eru í uppsveitum Árnessýslu og á stöku stað á Vesturlandi. Þá er hálka og hálkublettir á Vestfjörðum. Á Norður,- Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar hálka, hálkublettir, éljagangur eða skafrenningur.

Leki kom að bát í Ólafsvíkurhöfn

Slökkvilið Snæfellsbæjar var kallað út að höfninni í Ólafsvík á áttunda tímaum í morgun en leki hafði komið að bát í höfninni. Báturinn var kominn því sem næst á hliðina þegar hafnarstarfsmenn tóku eftir honum við eftirlit og kölluðu á slökkvilið.

Saddam aftur fyrir rétt

Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, mætti aftur fyrir rétt í morgun. Hann sakaði innanríkisráðuneyti Íraks um að hafa myrt og pyntað þúsundir manna. Verið er að yfirheyra Saddam um morð á sjía-múslinum á níunda áratug síðustu aldar.

Icelandair styrkir Listahátíð Reykjavíkur

Forsvarsmenn Listahátíðar og Icelandair fögnuðu í gær 25 ára starfsafmæli með undirritun nýs samstarfssamnings. Stjórnandi Listahátíðar fullyrðir að hátíðin hefði ekki komist á laggirnar ef ekki væri fyrir samstarfið.

Hiti yfir meðallagi fimmta mánuðinn í röð

Meðalhiti í Reykjavík í mars mánuði var tæplega eitt stig, sem er tæpu hálfu stigi yfir meðallagi, samkvæmt samantekt Veðurstofunnar og var mars fimmti mánuðurinn í röð, sem hitinn var yfir meðallagi. Óvenju skörp veðraskil voru í mánuðinum, þar skiptust á kuldakaflar og óvenju hlýr hlákukafli, Í heild var mánuðurinn þurrviðrasamur.

Efnt til hönnunarsamkeppni á þjónustumiðstöð

Snæfellsbær og Umhverfisstofnun hafa ákveðið að efna til samkeppni um hönnun þjónustumiðstöðvar Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls á Hellissandi og fer samkeppnin fram samkvæmt reglum Arkitektafélags Íslands.

Hálka og hálkublettir víða um land

Hálkublettir eru víða á þjóðvegum í uppsveitum Árnessýslu og á stöku stað á Vesturlandi. Hálka og hálkublettir eru einnig víða á Vestfjörðum. Á Norður-Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar hálka, hálkublettir, éljagangur eða skafrenningur.

Hörð átök milli mótmælenda og lögreglu í Frakklandi

Til harðra átaka kom milli óeirðarlögreglu og mótmælenda í Frakklandi í gær. Lögreglan telur að um ein milljón manna hafi tekið þátt í mótmælunum en verkalýðsforystan telur að sú tala sé nær þremur milljónum. Lögreglan handtók um fjögurhundruð manns.

Sjá næstu 50 fréttir