Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrsta kvenkyns árekstrardúkkan Svíar eru hanna dúkku sem líkist kvenmanni til að nota í árekstrarprófum. Fram að þessu hafa allar dúkkur sem notaður hafa verið í slíkum prófum verið í karlmannsmynd eða barnsmynd og því hafa niðurstöður slíkra prófa ekki getað sagt til um hvaða áhrif árekstrar hafa á kvenlíkama. 11.1.2006 17:36
Landspítalinn skaðabótaskyldur gagnvart konu Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að Landspítalinn væri skaðabótaskyldur gagnvart fimmtugri konu vegna læknismeðferðar hjá spítalanum. 11.1.2006 17:28
KLH rannsóknastofa öðlast faggildingu Klínísk lífefnafræðistofa Holtasmára, eða KLH hefur tekið við vottorði frá SWEDAC, faggildingarstofnun Svíþjóðar, því til staðfestingar að algengustu mælingar KLH væru faggildar. KLH er fyrsta íslenska rannsóknastofa á heilbrigðissviði sem öðlast faggildingu. 11.1.2006 17:04
Þrettán þúsund undirskriftir hafa safnast Um þrettánd þúsund manns hafa skráð nafn sitt í undirskriftasöfnun á vegum ungliðafylkinga stjórnmálaflokkanna og nokkurra annarra aðila þar sem skorað á blaðamenn og ritstjóra DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína. 11.1.2006 16:51
Arnaldur Indriðason á útlánamet bókasafnanna síðasta ár Enginn slær Arnaldi Indriðasyni við í útlánum hjá bókasöfnum landsins. Hann er efstur líkt og undanfarin ár samkvæmt útlánatölum frá Landskerfi bókasafna. Landskerfi bókasafna hefur tekið saman lista yfir þær bækur sem mest voru lánaðar út í bókasafnskerfinu Gegni á síðastliðnu ári. Í ljós kom að Arnaldur Indriðason á 7 útlánahæstu titlunum í flokki íslenskra skáldsagna. 11.1.2006 16:12
Formenn þingflokka hvetja til endurskoðunar á ritstjórnarstefnu DV Formenn þingflokka á Alþingi taka undir ályktun ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna þar sem því er beint til ritstjórnar DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá formönnunum. 11.1.2006 15:45
Færeyskur togari staðinn að ólöglegum veiðum Áhöfn Sýnar, flugvélar Landhelgisgæslunnar, stóð færeyskan togara að meintum ólöglegum veiðum í íslensku efnahagslögsögunni í lok síðustu viku. Togarinn var gripinn rétt innan við miðlínuna milli Íslands og Færeyja en deilur hafa staðið um legu hennar. 11.1.2006 15:30
Vörubíl ekið aftan á annan vörubíl á Krísuvíkurvegi Vörubíl var ekið aftan á annan vörubíl á Krísuvíkurvegi upp við Vatnsskarð á fjórða tímanum. Lögregla og sjúkrabíll eru á vettvangi en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Hafnarfirði eru ökumenn vörubílanna ekki alvarlega slasaðir og þykja hafa sloppið mjög vel. Vörubílinn sem ekið var aftan á hinn er mikið skemmdur en ekki er talið að tafir verið á umferð um Krísuvíkurveg af þessum sökum. 11.1.2006 15:30
Ótækt að DV starfi ekki eftir siðareglum Blaðamannafélagsins. Blaðamannafélag Íslands harmar þann atburð sem leitt hefur til umræðu um vinnubrögð og ritstjórnarstefnu DV. Þetta segir í álytkun frá stjórninni og jafnframt leggur stjórnin leggur áherslu á það að í siðareglum Blaðamannafélagsins stendur að blaðamenn skuli sýna fyllstu tilitsemi í vandasömum málum, forðast allt sem valdið geti saklausu fólki eða fólki sem á um sárt að binda óþarfa sársauka eða vanvirðu. 11.1.2006 15:12
Vill lögfestingu rammaáætlunar um virkjanaframkvæmdir Kristinn H. Gunnarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í umhverfisnefnd Alþingis, segist reiðubúinn að beita sér fyrir lögfestingu rammaáætlunar um virkjanaframkvæmdir hér á landi. Þá líst honum ekki á að ráðast í gerð fjögurra stórra álvera á næstu sjö árum eins og rætt hefur verið um að gera 11.1.2006 15:00
Landsbjörg sjósetur tvö ný björgunarskip Slysavarnafélagið Landsbjörg sjósetti í gær tvö ný ARUN-björgunarskip sem félagið festi kaup á frá breska sjóbjörgunarfélaginu RNLI. Munu þau koma í stað eldri skipa á Vopnafirði og Siglufirði. Skipin eru 18 ára gömul en voru endurbyggð fyrir um 3 árum og eru því nánast eins og ný. 11.1.2006 14:30
Mál DV rætt á stjórnarfundi Dagsbrúnar á föstudag Stjórn Dagsbrúnar, móðurfélags 365 miðla sem gefa út DV, mun ræða þá umfjöllun sem átt hefur sér stað um frétt DV á áður boðuðum stjórnarfundi á föstudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórdísi Sigurðardóttur, stjórnarformanni Dagsbrúnar. 11.1.2006 14:07
Spá áframhaldandi hækkun Úrvalsvísitölunnar Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands heldur áfram að hækka á árinu 2006 og mun hækka um 20% á árinu að mati greiningadeildar Íslandsbanka. 11.1.2006 13:56
Aukin framlög til þróunaraðstoðar Framlög úr ríkissjóði til þróunaraðstoðar verða aukin jafnt og þétt næstu ár. Þetta kemur fram kemur í ársskýrslu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands fyrir árið 2004. 11.1.2006 13:45
Skorað á fulltrúa á Launamálaráðstefnu Samflot bæjarstarfsmannafélaga skorar á fulltrúa á Launamálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður þann 20. janúar næstkomandi að tryggja að sambærileg og jafnverðmæt störf verði launuð á sama hátt, óháð kynferði eða búsetu þess er starfinu gegnir. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi formanna samflotsfélaganna í gær. 11.1.2006 13:30
Mikilvægast að losa koltvíoxíð úr andrúmsloftinu Wallace S. Broecker, sem talinn er með einum fremstu vísindamönnum heims í rannsóknum á umhverfis- og loftslagsbreytingum jarðarinnar, telur mikilvægast að losa koltvíoxíð úr andrúmsloftinu til að sporna gegn gróðurhúsaáhrifunum. Hann flytur fyrirlestur um gróðurhúsaáhrifin í Öskju, Náttúruvísindahúsi Háskóla Íslands á föstudag. 11.1.2006 13:15
Glæpum fækkar í Ísrael Glæpum hefur fækkað um meira en helming í Ísrael eftir að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, var fluttur á sjúkrahús í Jerúsalem í síðustu viku vegna alvarlegs heilablóðfalls. Segir lögreglan skýringuna vera þá að glæpamenn, líkt og aðrir, sitji límdir við sjónvarpsskjáinn og fylgist með líðan forsætisráðherrans. 11.1.2006 13:00
Mótmæla því að Vegagerðarmenn fái lögregluvald Landssamband lögreglumanna mótmælir harðlega fyrirliggjandi frumvarpi til breytinga á umferðarlögum þar sem starfsmönnum Vegagerðarinnar er veitt víðtækt lögrelgluvald. 11.1.2006 13:00
Íranar ætla að halda áfram með kjarnorkuáætlanir sínar Ríkisstjórnir Evrópusambandsríkjanna og Bandaríkjanna fordæma ákvörðun Íransstjórnar um halda áfram með kjarnorkuáætlanir sínar. Bandaríkjamenn hafa hvatt Sameinuðu þjóðirnar til að beita refsiaðgerðum gegn Írönum. 11.1.2006 12:47
Úrskurður um athugun á reikningum ógnar trúnaðarsambandi Formaður Lögmannafélagsins telur það ógna trúnaðarsambandi lögmanna og skjólstæðinga þeirra, að Fjármálaeftirlitið skuli með dómsúrskurði geta skoðað vörslureikninga lögmanna. Stjórn Lögmannafélagsins ætlar að fjalla um málið á fundi í dag. 11.1.2006 12:45
Öll sveitarfélögin hafa lækkað álagningar fasteignagjalda Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa lækkað álagningargrunn fasteignagjalda fyrir þetta ár. Hafnarfjarðarbær varð í gær síðastur í röðinni til að samþykkja lækkun hans. 11.1.2006 12:30
Skora á DV að endurskoða ritstjórnarstefnu Hafin er undirskriftasöfnun á Netinu þar sem skorað er á blaðamenn, ritstjórn og útgefanda DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína og sýna ábyrgð og virðingu í umfjöllun um menn og viðkvæm málefni. Áskorunin kemur til vegna fréttar blaðsins í gær um grunaðan kynferðisofbeldismann á Ísafirði, en maðurinn svipti sig lífi eftir að blaðið kom út. 11.1.2006 12:15
Blaðamannafélagið fundar í hádeginu Stjórn Blaðamannafélags Íslands kemur saman til fundar í hádeginu til að ræða umfjöllun DV um mál manns sem blaðið sagði grunaðan kynferðisofbeldismann en maðurinn svipti sig lífi eftir að blaðið kom út í gær. 11.1.2006 12:07
Segja lítinnn áhuga á olíufélögum Fjármálasérfræðingar segja að lítill áhugi virðist vera á því að kaupa olíufélagið Esso og Skeljungur mun hafa verið falur um hríð, án þess að fjárfestar hafi sýnt áhuga. 11.1.2006 12:00
Essó hækkaði bensín um 2 krónur og dísilolíu um 50 aura Olíufélagið Essó hækkaði bensínlítrann um tvær krónur á miðnætti og hefur þá hækkað bensínið um þrjár krónur og 50 aura frá áramótum. Dísilolían var hækkuð um 50 aura. Á heimasíðu félagsins segir að hækkunina megi rekja til hækkunar á heimsmarkaði. 11.1.2006 11:08
22 gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi Tuttugu og tveir gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fer 4. febrúar næstkomandi. Tveir gefa kost á sér í fyrsta sæti, Guðríður Arnardóttir framhaldsskólakennari og Jón Júlíusson íþróttafulltrúi. 11.1.2006 10:45
Tveir létust í Kína af völdum fuglaflensu Tveir í viðbót hafa látist í Kína af völdum fuglaflensunnar, að því er Alþjóða heilbrigðisstofnunin greinir frá, en þeir létust í síðasta mánuði. Þá var sex ára gamall drengur fluttur alvarlega veikur á sjúkrahús í Hunan-héraði í Kína í fyrradag og var fullyrt að veikindin stöfuðu af fuglaflensuveirunni. 11.1.2006 10:30
Ítalir skammast sín meira fyrir fitu en framhjáhald Ítalir skammast sín meira fyrir að fitna en að halda fram hjá. Þetta er niðurstaða könnunar ítalsks sálfræðitímarits þar sem eitt þúsund manns á aldrinum 25 til 55 ára voru spurðir hvað vekti hjá þeim mesta sektarkennd. 11.1.2006 10:15
Stærsta farþegaflugvél heims í heimsreisu Stærsta farþegaflugvél heims, Airbus A380, lenti í norðausturhluta Kólumbíu í gær en vélin er í reynsluflugi um þessar mundir og flýgur til hinna ýmsu staða í heiminum. Flugvélin er gríðarlega stór, yfir 70 metrar á lengd en ekki þó eins löng og vængirnir sem eru um 80 metrar á lengd. 11.1.2006 10:00
Stjórn BÍ kannar hugsanlegan þátt DV í sjálfsvíginu Arna Schram, formaður Blaðamannafélagsins, segir á vefsíðu félagsins að stjórn þess muni kanna hvort eða hvaða þátt DV átti í því að karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi á Ísafirði í gær. 11.1.2006 09:34
Vatnsskortur yfirvofandi í Frakklandi Umhverfisráðherrar Frakklands og Spánar hafa áhyggjur af breytingum á loftslagi, þurrkum, gróðureldum og vatnsskorti á svæðinu. Vatnsstaðan í Frakklandi hefur verið erfið eftir hitabylgju árið 2003 og litla úrkomu árin 2004 og 2005. 11.1.2006 09:21
Réttað yfir kanadískum táningi á Guantanamo Réttarhöld hefjast í dag yfir kanadískum táningi sem haldið er í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu en hann er meðal annars sakaður um að hafa drepið bandarískan hermann í Afganistan. 11.1.2006 08:50
150 kíló af kókaíni um borð í skútu Lögreglan í Venesúela fann um það bil 150 kíló af kókaíni um borð í seglskútu við Margarítu-eyju í gær, um 320 kílómetra norðaustur af Karakas, höfuðborg landsins. Eigandi eiturlyfjanna var Þjóðverji sem sigldi undir belgískum fána. 11.1.2006 08:15
Sharon ekki lengur í bráðri lífshættu Ísraelar bíða nú í ofvæni eftir fréttum af líðan Ariels Sharons, forsætisráðherra landsins, sem haldið hefur verið sofandi eftir að hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudag í síðustu viku. Sharon er ekki lengur talinn í bráðri lífshættu og segja læknar hann hafa sýnt skýr merki um bata er hann hreyfði vinstri hönd sína í gær. 11.1.2006 08:00
Of snemmt að segja hvort loðnustofninn sé hruninn Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar segir of snemmt að kveða upp úr um það hvort loðnustofninn sé hruninn. Hann hefur engu að síður áhyggjur af því að engin loðna hafi fundist og segir að verulegt magn þurfi að finnast af henni til þess að hægt sé að mæla með veiðum. 11.1.2006 08:00
Nýr kjarasamningur stætóbílstjóra undirritaður Fulltrúar strætóbílstjóra í Reykjavík og Strætó undirrituðu nýjan kjarasamning í gær sem borinn verður undir atkvæði bílstjóranna á næstunni. Samningurinn er sagður á sömu nótum og borgin samdi nýverið um við Starfsmannafélag borgarinnar. 11.1.2006 07:58
Yfir 2000 kjúklingar drepast á Trínidad Yfir tvö þúsund kjúklingar hafa drepist á karabísku eyjunni Trínidad á síðustu fimm dögum. Mikil skelfing hefur gripið um sig meðal íbúa eyjunnar. 11.1.2006 07:54
Íbúinn kveikti sjálfur í Íbúi í íbúðinni sem eyðilagðist í eldi í fjölbýlishúsi í Lómasölum í Kópavogi í fyrrinótt kveikti sjálfur í. Hann gaf sig fram við lögregluna og játaði verknaðinn án skýringa. Faðir mannsins er skráður eigandi íbúðarinnar. Líklegt má telja að maðurinn verði ákærður bæði fyrir eignaspjöll og að hafa stofnað lífi nágranna í hættu. 11.1.2006 07:13
Evrópuþjóðir og Bandaríkjamenn fordæma ákvörðun Írana Ríkisstjórnir Evrópusambandsríkjanna og Bandaríkjanna hafa margar hverjar fordæmt ákvörðun Íransstjórnar um að halda áfram með kjarnorkurannsóknir sínar. Vöruðu þær Írana við að Sameinuðu þjóðirnar gætu refsað stjórnvöldum með einhverjum hætti. 11.1.2006 07:03
Síðbúnar þrettándabrennur í kvöld Þrettándanum var fagnað með þremur brennum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld, en ekki var hægt að kveikja í þeim á föstudaginn var vegna veðurs. Seltirningar kveiktu í brennu á Valhúsahæð og lögðu fjölmargir leið sína þangað þrátt fyrir nokkurn kulda. Safnast var saman við Mýrarhúsaskóla og þaðan gengið fylktu liði undir lúðrablæstri upp á hæðina. 10.1.2006 23:30
Fjórir slösuðust í sprengingu Fjórir slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar gassprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Utrecht í Hollandi í dag. Sprengingin varð í mannlausri lyfjaverslun. 10.1.2006 23:00
Íranir rufu innsiglin Kjarnorkuáætlun Írana er komin af stað á nýjan leik, Bandaríkjamönnum og Evrópusambandinu til mikillar gremju. Vesturlönd óttast að Íranar ætli að þróa kjarnavopn en þeir sverja og sárt við leggja að vinnslan sé í friðsamlegum tilgangi. 10.1.2006 22:30
Nýr samningur hjá Strætó Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Strætó bs. hafa skrifað undir nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk Strætós. Fram kemur á heimasíðu Strætós að nýi samningurinn sé í öllum meginatriðum sambærilegur og áþekkur samningi Reykjavíkurborgar og starfsmannafélagsins, en aðilar hafa þó litið til sérstöðu starfseminnar og aðlagað samninginn að því. 10.1.2006 22:30
Lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga 12 vikna barni Fertugur karlmaður, sem nauðgaði 12 vikna barni með hjálp kærustu sinnar sem átti að gæta barnsins, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Nítján ára unnusta hans hefur verið dæmd til fimm ára fangelsisvistar. 10.1.2006 22:24
Seinheppinn bankaræningi Seinheppinn ræningi í Salt Lake City í Bandaríkjunum skipulagði rán illa og uppskar í samræmi við það. 10.1.2006 22:20