Fleiri
Fjölmenn mótmæli eldri borgara og öryrkja við Alþingishúsið 9.12.2005 22:29 Sólveig Pétursdóttir segir stjórnvöld geta dregið lærdóm af Falun Gong málinu Umboðsmaður Alþingis telur að annmarkar hafi verið á þeirri ákvörðun stjórnvalda að synja meintum iðkendum Falun Gong landgöngu á sínum tíma. Sá lagagrundvöllur sem íslensk stjórnvöld hafi vísað til hafi ekki veitt þeim fullnægjandi heimildir. 9.12.2005 22:28 Nýjustu launahækkanir Reykjavíkurborgar eru atlaga að íslensku samfélagi, segir bæjarstjóri Kópavogs 9.12.2005 22:25 Desembermánuður annamesti tími ársins fyrir starfsfólk kirkjugarða 9.12.2005 22:15 Félagsmálaráðherra neitar að tjá sig efnislega um dóm Hæstaréttar Árni Magnússon félagsmálaráðherra neitar að tjá sig efnislega um dóm Hæstaréttar í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur gegn ríkinu. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-grænna gagnrýndi ráðherran harðlega á Alþingi í dag. 9.12.2005 21:51 Eldsupptök í tauklæddum stól í stofu Rannsókn á eldsupptökum í eldsvoðanum á Ísafirði á mánudaginn var er nú lokið. Ljóst er að eldurinn kom upp í tauklæddum stól í stofu, út frá opnum eldi. Einn maður lést í eldsvoðanum en maðurinn fannst í stofunni skammt frá staðnum þar sem eldurinn kom upp. Réttarkrufning hefur farið fram og í ljóst kom að maðurinn lést af völdum reyks sem myndaðist í eldsvoðanum. 9.12.2005 17:36 Mjólkurverð breytist um áramótin Samkomulag hefur náðst um breytingar á verði mjólkur og mjólkurvara um næstu áramót. Verð til bænda hækkar um 2,9%, eða um 1,28 krónur lítrinn, og því samhliða mun heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða einnig breytast. 9.12.2005 17:34 Ekið á konu í Hafnarfirði Ekið var á fullorðna konu á bílaplaninu við Samkaup í Hafnarfirði fyrr í dag. Konan, sem er íbúi í þjónustuíbúðum aldraðra í Miðvangi, var á gangi eftir bílaplaninu þegar bíll keyrði á hana. Konan hlaut minniháttar áverka. 9.12.2005 17:10 Bandarísk stjórnvöld viðurkenna að hafa í haldi fanga sem mannréttindasamtök hafa ekki aðgang að Bandarísk stjórnvöld hafa viðurkennt að þau haldi föngum sem mannréttindasamtök fá ekki aðgang að. Rauði Krossinn fær ekki aðgang að öllum föngum sem Bandaríkjamenn hafa í haldi. Þetta viðurkenndu stjórnvöld í Washington í fyrsta skipti í gær. 9.12.2005 16:46 Dagur genginn í Samfylkinguna Dagur B. Eggertsson, hefur skráð sig í Samfylkinguna samkvæmt heimildum fréttastofu. Í samtali við fréttastofuna rétt í þessu vildi Dagur sjálfur þó ekki staðfesta þetta, en neitaði því ekki heldur. 9.12.2005 15:29 Ekki dugar að dusta af hvítflibbanum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir dóminn sem féll í gær gegn Árna Magnússyni, félagsmálaráðherra, mjög alvarlegan. Ráðherran verði að gefa greinagóð svör um hvað hann ætli að gera í framhaldinu og ekki dugi nú að dusta málið af eins og kusk á hvítflibbanum. 9.12.2005 15:18 Fyrsta skóflustungan að nýrri íbúabyggð á Olíutankasvæðinu á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði Fyrsta skóflustungan verður tekin á morgun að nýrri íbúabyggð á Olíutankasvæðinu á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir byggingu 320 íbúða sem verða í fimm til sex hæða húsum. Þá er einnig gert ráð fyrir byggingu 120 íbúða fyrir eldri borgara ásamt samkomuhúsi. 9.12.2005 15:06 Strípuðu fjallabíl og skildu eftir við Rauðavatn Bífrænir þjófar þurftu ekki langan tíma til að strípa jeppa sem þeir þeir stálu í Árbænum á þriðjudag. Flestallt nýtilegt var hreinsað úr honum á rúmum sólarhring að líkindum til þess að nýta í aðra bíla. Eigandi bílsins segir tjónið tölvuert. 9.12.2005 14:49 Vill að málið verði tekið til efnislegrar meðferðar Baugsmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi og verjendur sakborninga kröfðust þess á ný að málinu væri vísað frá og tiltóku þrjár ástæður fyrir að slíkt ætti að gera. Settur saksóknari vísaði þeim öllum á bug og sagði kominn tíma til að taka málið til efnislegrar meðferðar. 9.12.2005 14:44 Landspítalinn stóð við sinn enda samkomulagsins Landspítali – háskólasjúkrahús segist hafa staðið við sinn enda samkomulags síns við yfirlækni í æðaskurðlæknum og því hafi uppsögn hans verið réttmæt. Í yfirlýsingu spítalans segir að í starfslýsingu sem Stefán E. Matthíasson undirritaði við ráðningu í starf yfirlæknis í æðaskurðlæknum komi skýrt fram að yfirmenn Landspítala-háskólasjúkrahúss stundi ekki sjálfstæðan atvinnurekstur. 9.12.2005 14:17 Sjá næstu 50 fréttir
Jólagleði Kramhússins í Borgarleikhúsinu í kvöld Það verður sannkölluð fjömenningarveisla á Jólagleði Kramhússins sem haldin er í Borgarleikhúsinu í kvöld. Þar munu um 160 þátttakenur stíga á stokk og sýna listir sínar en óhætt er að segja að þar leynist margir snillingar. 10.12.2005 16:57
56 fórust þegar nígerísk farþegaflugvél hrapaði í borginni Port Harcourt 56 manns fórust og sjö til átta farþegar slösuðust þegar nígerísk farþegaflugvél hrapaði í borginni Port Harcourt í dag. Enn er ekki ljóst um orsakir slyssins. Vélin var á vegum Sosoliso flugfélagsins en flugfélagið flýgur innanlandsflug milli Lagos og annarra borga í Nígeríu. 10.12.2005 16:17
Unnur Birna varla búin að átta sig á sigrinum Unnur Birna, ný krýnd Ungfrú heimur, sagði í samtali við NFS fréttastofuna rétt í þessu, að hún sé varla enn búin að átta sig á sigrinum. Unnur sagðist hafa gapað þegar úrslitin voru tilkynnt 10.12.2005 16:04
Hálka og hálkublettir víða um land Vegagerðin varar við flughálku á Eyrarfjalli, á Ströndum úr Bjarnafirði og norður í Gjögur en hálka og hálkublettir eru víðar. Á Norðurlandi er flughált á nokkrum sveitavegum í Húnavatnssýslum og á Lágheiði en hálka og hálkublettir eru nokkuð víða á Norður og Austurlandi. Þá er einnig hálka og hálkublettir á fáeinum leiðum á Suður- og Vesturlandi en einkum í uppsveitum og á heiðum. 10.12.2005 16:01
Unnur Birna í skýjunum yfir sigrinum Unnur Birna Vilhjálmsdóttir var valin Ungfrú heimur í Sanya í Kína í dag. Alls kepptu 102 stelpur frá jafnmörgum þjóðlöndum í keppninni en aðeins 15 þeirra komust í úrslit. 10.12.2005 15:08
Alþjóða kjarnorkustofnunin og framkvæmdarstjóri hennar fá friðarverðlaun Nóbels í ár Alþjóða kjarnorkumálastofnunin og framkvæmdarstjóri hennar, Mohamed ElBaradei, fá friðarverðlaun Nóbels í ár. EIBaradei og Alþjóða kjarnorkumálastofnunin fá friðarverðlaunin fyrir að hafa beitt sér gegn útbreiðslu kjarnaorkuvopna og fyrir að stuðla öruggri notkun kjarnorku. EIBaradei og Yukiya Amano, stjórnarformaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, tóku á móti verðlaununum við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu í Osló fyrr í dag. 10.12.2005 14:53
Hlíðarfjall opið í dag Skíðafólk norðan heiða ættu að geta gert sér glaðan dag í Hlíðarfjalli í dag. Skíðafæri er ágætt, flestar lyftur verða í gangi og göngubrautin er troðin. Opið er í Hlíðarfjalli til kukkan fimm í dag en skíðadegi Skíðafélags Akureyrar og Útilífs er frestað um viku ásamt vígslu snjóframleiðslukerfis. 10.12.2005 13:39
Til greina kemur að endurskoða þátttöku Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri segir koma til greina að endurskoða þátttöku í launanefnd sveitarfélaga, í kjölfar samninga sem Reykjavíkurborg gerði við starfsmenn sína. 10.12.2005 12:19
Sextán ára í tveggja ára fangelsi Hérðasdómur Reykjavíkur dæmdi í gær pilt til að sæta fangelsi í tvö ár fyrir að ræna jafnaldra sínum og neyða hann til að taka peninga út úr hraðbanka. Félagi piltsins var jafnframt dæmdur í fimm mánaða fangelsi en tveir aðrir ungir menn sýknaðir af ákæru um hlutdeild í ráninu. Pilturinn er einungis sextán ára gamall og mun væntanlega sitja af sér árin tvö á Litla-Hrauni. 10.12.2005 12:19
Fjárlagafrumvarpið í uppnámi Hvorki gengur né rekur að berja saman nýtt fjárlagafrumvarp fyrir Evrópusambandið. Forsætisráðherra Bretlands segir að náist ekki samkomulag í næstu viku, varpi það stórum skugga á Evrópusambandið. 10.12.2005 12:09
Sjö handteknir á Spáni Spænska lögreglan handtók í gær sjö menn sem talið er að hafi fjármagnað aðgerðir hryðjuverkasamtaka sem tengjast al-Kæda. Málið teygir sig víðar og búist er við fleiri handtökum í Evrópu á næstunni. 10.12.2005 12:08
Dáist að einurð Íraka Í janúar kusu Írakar stjórnlagaþing sem síðan skipaði ríkisstjórn, í október greiddu þeir atkvæði um drög að nýrri stjórnarskrá landsins og næstkomandi fimmtudag ganga þeir í þriðja sinn að kjörborðinu á tæpu ári þegar þeir kjósa nýja menn á þing samkvæmt ákvæðum nýju stjórnarskrárinnar. 10.12.2005 09:30
Hálka víða um land Vegagerðin varar við hálku og hálkublettum víða um land en á Suður- og Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á fáeinum leiðum, aðallega í uppsveitum og á heiðum. Á Vestfjörðum er flughált á Dynjandisheiði, á Eirarfjalli og á Ströndum úr Bjarnarfirði og norður í Gjögur en hálka og hálkublettir víðar. Á Norðurlandi er flughált á nokkrum sveitavegum í Húnavatnssýslum og eins á Lágheiði en hálka og hálkublettir eru nokkuð víða á Norður og Austurlandi. 10.12.2005 09:16
Vilja bæta kjör fólks í Eystrasaltsríkjunum Fyrirhugað er að hefja viðræður við atvinnurekendur eftir áramót. Þetta er liður í langtíma átaki verkalýðshreyfingarinnar á öllum Norðurlöndunum, og reyndar allri Evrópu. Markmiðið er að koma á kjarasamningum, bæta kjör íbúanna í þessum löndum þannig að þau verði á við það sem tíðkast á Norðurlöndum og efla verkalýðshreyfinguna þannig að íslenskir atvinnurekendur hafi viðsemjendur í Eystrasaltslöndunum. 10.12.2005 09:00
Krefja stjórnvöld um bætt kjör Um hundrað manns lögðu af stað frá Hallgrímskirkju klukkan hálf fimm í gær með kröfuspjöld á lofti og í takt við undirleik Skólahljómsveitar Kópavogs. Fljótlega flykktust mun fleiri í kröfugönguna, sem lauk á Austurvelli. Áætla má að rúmlega þúsund manns hafi verið þar um klukkan fimm. 10.12.2005 07:45
Þingið í jólafrí Þinghaldi á Alþingi var frestað á áttunda tímanum í gærkvöldi til 17. janúar. Sólveig Pétursdóttir, forseti þingsins, þakkaði samstarf og lipurt verklag við að ljúka þingstörfum á tilsettum tíma. Hún bað þingmenn að taka bruna í rafmagnstöflu þingsins í vikunni sem tákn um að þingmenn skyldu ekki vinna fram á nótt eins og gert hafði verið kvöldið áður en bilunin varð. 10.12.2005 07:15
Stjórnendur sagðir leggja fólk í einelti Hluti starfsmanna Landmælinga Íslands segist hafa orðið fyrir einelti af hendi stjórnenda stofnunarinnar. Svört skýrsla tveggja sálfræðinga á samskiptum yfirmanna og undirmanna er í höndum umhverfisráðherra. 10.12.2005 07:00
Kallar eftir ávítum og sekt Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Jóns Ólafssonar athafnamanns, fer fram á að héraðsdómur ávíti Hannes Hólmstein Gissurarson prófessor og Heimi Örn Herbertsson lögmann hans og ákveði þeim réttarfarssekt. Þetta gerir hún í greinargerð sem hún lagði fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 10.12.2005 06:45
Fengu ekki að hitta alla fanga Háttsettur embættismaður í bandaríska utanríkisráðuneytinu hefur staðfest að fulltrúum Rauða krossins hafi ekki verið veittur aðgangur að öllum þeim föngum sem eru í haldi Bandaríkjamanna, grunaðir um aðild að hryðjuverkum. Frá þessu greindi forseti Alþjóða Rauða krossins (ICRC) í gær. 10.12.2005 06:30
Gagnrýnd úr öllum áttum Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, varpaði þeirri skoðun fram á leiðtogafundi íslamskra ríkja í Mekka í Sádi-Arabíu í fyrradag að sakbitnar Evrópuþjóðir ættu frekar að láta gyðinga hafa landsvæði í eigin álfu undir ríki sitt en að koma vandanum yfir á Mið-Austurlönd. 10.12.2005 06:15
Konunum var fyrst sagt upp Kvenkyns stjórnendur voru fyrst látnir fara frá fjarskiptafyrirtækinu Ericsson þegar harðnaði á dalnum fyrir nokkrum árum. Ericsson hélt þá eftir karlmönnum þar sem þeir voru frekar taldir þora að taka erfiðar ákvarðanir. 10.12.2005 06:15
Hvatt til bólusetningar Hettusóttartilfellum fjölgaði verulega í nóvember, samkvæmt Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. Nítján greindust með hettusótt í mánuðinum. Í Farsóttafréttum fyrr á þessu ári var fjallað um hettusótt sem greinst hafði hér á landi á árinu 2005. Talið var að faraldurinn hefði náð hámarki í júlí og ágúst og myndi dvína seinni hluta ársins. 10.12.2005 06:15
40% stjórnarmanna norskra fyrirtækja skulu vera konur frá og með áramótum Fjórir af hverjum tíu stjórnarmönnum norskra fyrirtækja skulu vera konur frá og með áramótum. Gangi það ekki eftir mega fyrirtæki búast við sektum eða að vera hreinlega lokað. 9.12.2005 22:53
Óskuðu eftir niðurfellingu málsins Verjendur í Baugsmálinu svokallaða óskuðu eftir niðurfellingu málsins við þinghald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Settur saksóknari vísaði þeim kröfum á bug og óskaði eftir efnislegri meðferð málsins og að menn hættu að karpa um formsatriði. Dómari kvað niðurstöðu um þessi atriði að vænta í næstu viku. 9.12.2005 22:48
Rauðu strætisvagnarnir teknir af götum London Hann er stór, rauður og jafn breskur og te og drottningin. En nú er hann horfinn, heyrir hann sögunni til og fæst fyrir slikk. Hver kannast ekki við þessi vinalegu hljóð, þetta mal sem heyrst hefur í hundruðum kvikmynda og á tepptum götum Lundúnaborgar í áratugi? Routemaster heitir hann, frægasti strætisvagn sögunnar og en vél getur verið þjóðsagnapersóna þá er hann það. 9.12.2005 22:48
25 ár eru liðin frá því að John Lennon var myrtur Það eru tuttugu og fimm ár frá því að John Lennon var myrtur og aðdáendur hans komu saman í skammt frá heimili Lennons í New York í gærkvöldi til að minnast hans. Fólkið safnaðist saman í hluta Central Park sem kallast Strawberry Fields, og þangað kom einnig ekkjan Yoko Ono og skildi eftir hvít blóm. 9.12.2005 22:41
Myndir birtar af nýja norska prinsinum Í Noregi voru birtar myndir í dag sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu. Það eru þessar myndir af prinsinu Sverri Magnúsi, syni þeirra Hákons krónprins og eiginkonu hans, Mette-Marit. Sverrir fæddist á laugardaginn var og er annað barn þeirra hjóna, en fyrir á Mette-Marit soninn Maríus. 9.12.2005 22:37
Vetrarveður í Chicago olli töluverðum vandræðum Vitlaust veður á bandarískan mælikvarða olli töluverðum vandræðum víða vestan hafs í gær. Frost og allt að 25 sentimetra jafnfallinn snjór voru til vandræða en alvarlegasta atvikið var án efa þegar Boeing 737 farþegaþota með 90 manns innanborðs brunaði út af flugbraut í lendingu í Chicago. 9.12.2005 22:35
Íslendingar á förum frá Afganistan Íslendingar eru á förum frá Afganistan er Norðmenn ætla að fjölga í liði sínu. Tilgangurinn er að veita friðargæsluliðum aukna vörn, en Stoltenberg sagði ekki hversu margar þotur yrðu sendar. 9.12.2005 22:33
Tekjur af stimpilgjöldum fasteignaviðskipta rjúka upp Tekjur ríkissjóðs af stimpilgjöldum vegna fasteignaviðskipta hafa rokið upp. Árið 2003 voru þær rúmir 3,7 milljarðar en í fyrra rúmir 6,4 milljarðar. Fyrstu tíu mánuði þessa árs námu þær 7,6 milljörðum króna. 9.12.2005 22:30
Sólveig Pétursdóttir segir stjórnvöld geta dregið lærdóm af Falun Gong málinu Umboðsmaður Alþingis telur að annmarkar hafi verið á þeirri ákvörðun stjórnvalda að synja meintum iðkendum Falun Gong landgöngu á sínum tíma. Sá lagagrundvöllur sem íslensk stjórnvöld hafi vísað til hafi ekki veitt þeim fullnægjandi heimildir. 9.12.2005 22:28
Nýjustu launahækkanir Reykjavíkurborgar eru atlaga að íslensku samfélagi, segir bæjarstjóri Kópavogs 9.12.2005 22:25
Félagsmálaráðherra neitar að tjá sig efnislega um dóm Hæstaréttar Árni Magnússon félagsmálaráðherra neitar að tjá sig efnislega um dóm Hæstaréttar í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur gegn ríkinu. Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-grænna gagnrýndi ráðherran harðlega á Alþingi í dag. 9.12.2005 21:51
Eldsupptök í tauklæddum stól í stofu Rannsókn á eldsupptökum í eldsvoðanum á Ísafirði á mánudaginn var er nú lokið. Ljóst er að eldurinn kom upp í tauklæddum stól í stofu, út frá opnum eldi. Einn maður lést í eldsvoðanum en maðurinn fannst í stofunni skammt frá staðnum þar sem eldurinn kom upp. Réttarkrufning hefur farið fram og í ljóst kom að maðurinn lést af völdum reyks sem myndaðist í eldsvoðanum. 9.12.2005 17:36
Mjólkurverð breytist um áramótin Samkomulag hefur náðst um breytingar á verði mjólkur og mjólkurvara um næstu áramót. Verð til bænda hækkar um 2,9%, eða um 1,28 krónur lítrinn, og því samhliða mun heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða einnig breytast. 9.12.2005 17:34
Ekið á konu í Hafnarfirði Ekið var á fullorðna konu á bílaplaninu við Samkaup í Hafnarfirði fyrr í dag. Konan, sem er íbúi í þjónustuíbúðum aldraðra í Miðvangi, var á gangi eftir bílaplaninu þegar bíll keyrði á hana. Konan hlaut minniháttar áverka. 9.12.2005 17:10
Bandarísk stjórnvöld viðurkenna að hafa í haldi fanga sem mannréttindasamtök hafa ekki aðgang að Bandarísk stjórnvöld hafa viðurkennt að þau haldi föngum sem mannréttindasamtök fá ekki aðgang að. Rauði Krossinn fær ekki aðgang að öllum föngum sem Bandaríkjamenn hafa í haldi. Þetta viðurkenndu stjórnvöld í Washington í fyrsta skipti í gær. 9.12.2005 16:46
Dagur genginn í Samfylkinguna Dagur B. Eggertsson, hefur skráð sig í Samfylkinguna samkvæmt heimildum fréttastofu. Í samtali við fréttastofuna rétt í þessu vildi Dagur sjálfur þó ekki staðfesta þetta, en neitaði því ekki heldur. 9.12.2005 15:29
Ekki dugar að dusta af hvítflibbanum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir dóminn sem féll í gær gegn Árna Magnússyni, félagsmálaráðherra, mjög alvarlegan. Ráðherran verði að gefa greinagóð svör um hvað hann ætli að gera í framhaldinu og ekki dugi nú að dusta málið af eins og kusk á hvítflibbanum. 9.12.2005 15:18
Fyrsta skóflustungan að nýrri íbúabyggð á Olíutankasvæðinu á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði Fyrsta skóflustungan verður tekin á morgun að nýrri íbúabyggð á Olíutankasvæðinu á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir byggingu 320 íbúða sem verða í fimm til sex hæða húsum. Þá er einnig gert ráð fyrir byggingu 120 íbúða fyrir eldri borgara ásamt samkomuhúsi. 9.12.2005 15:06
Strípuðu fjallabíl og skildu eftir við Rauðavatn Bífrænir þjófar þurftu ekki langan tíma til að strípa jeppa sem þeir þeir stálu í Árbænum á þriðjudag. Flestallt nýtilegt var hreinsað úr honum á rúmum sólarhring að líkindum til þess að nýta í aðra bíla. Eigandi bílsins segir tjónið tölvuert. 9.12.2005 14:49
Vill að málið verði tekið til efnislegrar meðferðar Baugsmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi og verjendur sakborninga kröfðust þess á ný að málinu væri vísað frá og tiltóku þrjár ástæður fyrir að slíkt ætti að gera. Settur saksóknari vísaði þeim öllum á bug og sagði kominn tíma til að taka málið til efnislegrar meðferðar. 9.12.2005 14:44
Landspítalinn stóð við sinn enda samkomulagsins Landspítali – háskólasjúkrahús segist hafa staðið við sinn enda samkomulags síns við yfirlækni í æðaskurðlæknum og því hafi uppsögn hans verið réttmæt. Í yfirlýsingu spítalans segir að í starfslýsingu sem Stefán E. Matthíasson undirritaði við ráðningu í starf yfirlæknis í æðaskurðlæknum komi skýrt fram að yfirmenn Landspítala-háskólasjúkrahúss stundi ekki sjálfstæðan atvinnurekstur. 9.12.2005 14:17