Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfir 300 milljónir fyrir umbúðirnar Fyrirtæki landsins hefja um næstu áramót greiðslu úrvinnslugjald fyrir allar, plast-, pappa- og pappírsumbúðir utan um vörur þeirra. Búist er við að gjaldið nemi um 320 til 340 milljónum króna á ári. 22.11.2005 10:00
Ríkið eitt að áfengissölu Systembolaget, sænska áfengiseinkasalan, ætlar að berjast fyrir því að ríkinu einu verði leyft að selja áfengi þar í landi. Formælandi Systembolaget segir það ekki vera áætlun Svía að segja öðrum þjóðum hvernig fara eigi með áfengi, heldur að fá Evrópusambandsþjóðir til að sætta sig við hvaða leiðir Svíar fari í þeim efnum. Evrópusambandið hefur lagt hart að stjórnvöldum í Svíþjóð að breyta fyrirkomulagi við sölu áfengis þar í landi en mikill meirihluti Svía er fylgjandi því að áfengi sé selt í verslunum á vegum ríkisins. 22.11.2005 09:36
Styrkir stöðu sína Bræðralag múslima, flokkur íslamista í Egyptalandi, hefur enn styrkt stöðu sína og fengið 25% þeirra þingsæta sem þegar hefur verið kosið um. Þó er talið víst að endaleg úrslit kosninganna muni ekki breyta því að flokkur Hosnis Mubaraks forseta sitji áfram við stjórnvölin eins og undanfarinn aldarfjórðung. Starfsemi Bræðralagsins er opinberlega bönnuð, en flokkurinn hefur þó fengið að starfa óáreittur og hafði aðeins 15 af 454 þingsætum fyrir kosningarnar. 22.11.2005 09:34
30 þúsund störf lögð niður Forstjóri General Motors tilkynnti þetta í gær. Fyrirtækið hyggst fækka verksmiðjum um tólf talsins en þær eru alls um áttatíu í landinu öllu í dag. Á fyrsta níu mánuðum ársins nam tap fyrirtækisins um fjórum milljörðum bandaríkjadala eða sem nemur 240 milljörðum íslenskra króna. Formenn verkalýðsfélaganna segja þetta gríðarlegt áfall fyrir heilu bæjarfélögin þar sem á sumum stöðum er ekki ym aðra vinnu að ræða. Stjórnendur fyrirtækisins segja þó að General Motors muni reyna að koma til móts við þá starfsenn sem sagt verður upp með bótum en ljóst sé þó að ef ekki verði ráðist í að segja upp hluta starfsmanna núna, verði fyrirtækið að segja öllum upp áður en langt um líður. Uppsagnirnar séu erfiðar en nauðsynlegar. 22.11.2005 09:32
Fleiri landnemabyggðir lagðar niður Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, útilokar ekki að fleiri landnemabyggðir Ísraela á Vesturbakkanum verði lagðar niður. (LUM) Sharon sagði þetta á blaðamannafundi í gær þar sem hann kynnti stefnu nýs miðjuflokks síns í Jerúsalem. Hann sagði að flokkurinn myndi vinna að koma á friði og ró fyrir botni Miðjarðarhafs. Skírskotaði Sharon þar til alþjóðlegrar friðaráætlunar. Hann sagði ennfremur að flokkurinn myndi beina spjótum að vandamálum í Ísrael, eins og til dæmis fátækt, glæpum og ofbeldi. 22.11.2005 09:31
Fjallar ekki um ákæruliðina átta Sérstakur saksóknari sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skipaði í Baugsmálinu hefur aðeins vald í þeim 32 ákæruliðum Baugsmálsins sem vísað var frá dómi en ekki þeim átta sem eftir standa af 40 upphaflegum ákæruliðum.. Bogi Nilsen ríkissaksóknari fer með ákæruvald í þeim liðum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp rétt rúmlega níu. 22.11.2005 09:09
Breytingartillögur á stjórnarskrá Kenýa felldar í gær Breytingartillögur á stjórnarskránni í Kenýa voru felldar í gær. Úrslitin eru áfall fyrir forseta Kenýa, Mwai Kibaki, sem barðist fyrir breytingartillögunum. Tölur sem bárust í morgun gefa til kynna að 3,2 manna hafi kosið gegn breytingartillögunum og 2,2 milljónir með henni. Þá á eftir að telja um 850.000 atkvæði. 22.11.2005 07:57
83 hafa farist í flóðum í Kólumbíu 83 hafa látist og 5 er saknað í Kólumbíu eftir tvo mánuði af stöðugum regnstraumi sem hefur valdið miklum flóðum um norð-vestur héruð landsins. Auk hinna látnu hafa um 250 þúsund manns lent illa í flóðum, aurskriðum og ám sem flæða yfir bakka sína. 22.11.2005 07:42
Lögregla rannsakar fyrirtæki á Akranesi Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir lögreglurannsókn á starfsemi fyrirtækis sem er með litháíska starfsmenn í vinnu hjá sér. 22.11.2005 07:30
Örninn besta erlenda þáttaröðin Danska sjónvarpsþáttaröðin Örninn var valin besta dramatíska erlenda dramatíska þáttaröðin á þrítugustu og þriðju Emmyhátíðinni fyrir erlenda sjónvarpsframleiðslu sem haldin var í Bandaríkjunum síðustu nótt. 22.11.2005 07:00
Minnst traust til Halldórs Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, er sá stjórmálamaður sem mests trausts nýtur meðal almennings samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Alls sögðust 22,4 prósent treysta honum best. Geir er afskaplega traustur stjórnmálamaður og sýnir það í störfum sínum. Því koma þessar niðurstöður lítið á óvart segir Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. 22.11.2005 06:45
Tundurdufl á bryggjunni á Eskifirði Óskað hefur verið eftir aðstoð sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar vegna tundurdufls sem áhöfn þýsks togara setti upp á bryggjunni á Eskifirði. TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, er nú á leið þangað með tvo sprengjusérfræðinga um borð. 22.11.2005 15:00
Fimmti hver fangi í Noregi er af erlendum uppruna Fimmti hver fangi í Noregi er af erlendum uppruna og með erlendan ríkisborgararétt. Um fjórðungur fanganna er inni fyrir fíkniefnaafbrot. 21.11.2005 23:00
Nýrnasjúklingar óttast framtíð blóðskilunardeildar Nýrnasjúklingar sem þurfa að leita til blóðskilunardeildar eru uggandi yfir þeirri stöðu sem komin er upp á blóðskilunardeild. Þeir óttast að allt stefni í óefni en allar líkur eru á að átta af sextán starfsmönnum deildarinnar láti af störfum um áramótin. 21.11.2005 22:36
Skera úr um hæfi dómsmálaráðherra á morgun Pétur Guðgeirsson héraðsdómari og tveir meðdómendur hans munu kveða upp úr um hæfi Björn Bjarnasonar dómsmálaráðherra við skipun sérstaks saksóknara í Baugsmálinu svokallaða fyrir hádegi á morgun. Verjendur sakborninga fóru fram á það við þinghald í málinu nýverið að dómarar skæru úr um hæfi Björns. 21.11.2005 22:15
Hættulegasta borg Bandaríkjanna Borgin Camden í New Jersey fylki í Bandaríkjunum er talin vera hættulegasta borg Bandaríkjanna. Þetta er annað árið sem borgin er efst á lista yfir hættulegustu borgir í Bandaríkjunum. 21.11.2005 22:00
Tekið verður harðar á þeim starfsmannaleigum sem brjóta af sér Fyrirtæki sem nýta sér starfsmannaleigur þurfa ekki að svara til ábyrgðar reynist brotið á starfsmönnum. Þetta er niðurstaða starfshóps um lagasetningu á starfsemi starfsmannaleiga. ASÍ hefur skorað á ráðherra að sú ábyrgð verði engu að síður í væntanlegum lögum. 21.11.2005 22:00
Rækjustofnar á grunnslóð í algjöru lágmarki Lítið er af rækju á hefðbundnum miðum samkvæmt niðurstöðum haustkönnunar Hafrannsóknarstofnunar. Rækjustofnar á grunnslóð mældust í algjöru lágmarki og 2005 árgangur þorks mældist sá minnsti á grunnslóð síðan árið 1991. 21.11.2005 21:00
Talið að kviknað hafi í út frá eldavélahellu Talið er að kviknað hafi í út frá eldavélahellu í heimahúsi á Ísafirði í dag. Slökkvilið á Ísafirði var kallað út rétt fyrir klukkan sex síðdegis. Íbúi í húsinu hringdi á slökkvilið sem kom á staðin og slökkti eldinn. Um minniháttar bruna var að ræða en kviknað hafi lítillega í klæðningu og í eldhúsi. 21.11.2005 20:45
Flugvélar á vegum CIA hafa flogið í danskri lofthelgi yfir Grænlandi Samgönguráðherra Dana, Flemming Hansen, hefur staðfest að flugvélar á vegum CIA hafi flogið í danskri lofthelgi yfir Grænlandi. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn frá þingmanninum Frank Aaen á danska þinginu. 21.11.2005 20:29
Litháar dæmdir fyrir að smygla tæpum fjórum kílóum af amfetamíni með Norrænu Tveir Litháar voru dæmdir í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Austurlands á föstudag fyrir að hafa smyglað tæpum fjórum kílóum af amfetamíni til landsins með Norrænu. 21.11.2005 19:51
Heilbrigð skynsemi fyrir farsímanotendur Og Vodafone ætlar á næstu dögum að hefja sölu á Simply farsímum frá Vodafone Global Plc. Simply símtæki eru sérstaklega hönnuð með þarfir viðskiptavina í huga, þeirra sem vilja einföld símtæki sem einskorðast að mestu leyti við tal og SMS. Jafnframt er í boði sérstök gjaldskrá fyrir Simply notendur. 21.11.2005 19:41
Heilbrigðisráðherra segir Alfreð hafa verið valinn vegna reynslu í að stýra byggingaframkvæmdum Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir hrókeringar í borgarstjórnarflokki Framsóknarflokksins ekki tengda skipun hans á Alfreð Þorsteinssyni í stöðu framkvæmdastjóra um byggingu hátæknisjúkrahúss. Hann vísar því sömuleiðis á bug að Orkuveituhúsið hafi verið óeðlilega dýrt. 21.11.2005 18:21
Ekki ljóst hvernig slæm staða Byggðarstofnunar verði leyst Byggðastofnun, sem á að tryggja jafnan aðgang landsbyggðafyrirtækja að fjármagni á við fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, er lömuð vegna fjárskorts. Hún er hætt að lána og fyrr á árinu var styrkveitingum og hlutafjárkaupum hætt. Valgerður Sverrisdóttir vill ekkert segja um hvernig staða stofnunarinnar verði leyst. 21.11.2005 18:12
Kaupmáttur eldri borgara minnkað um 1,6% frá 1988 Kaupmáttur eldri borgara hefur minnkað um 1,6% ef litið er aftur til 1988. Sé miðað við síðustu tíu ár hefur kaupmáttur eldri borgara vaxið lítillega en þó aðeins um einn sjötta af kaupmáttaraukningu ráðstöfunartekja í landinu. 21.11.2005 17:45
Byggðasafn Vestmannaeyja er á móti byggingu landnámsskála í Herjólfsdal yggðasafn Vestmannaeyja er mótfallið byggingu Landnámsbæjar í Herjólfsdal á meðan endurmat á mögulegum fornleifum á svæðinu hefur ekki farið fram. Hlíf Gylfadóttir, safnvörður, tekur þó fram að málið snúist ekki um að byggðasafnið sé á móti byggingu landnámsskála út af fyrir sig, heldur um verndun dalsins og hættu á skemmdum á mögulegum fornleifum. 21.11.2005 17:41
Ný starfsstöð fyrir fólk með geðraskanir tekin í notkun á morgun Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, tekur nýja starfsstöð fyrir fólk með geðraskanir í notkun á morgun. Starfsstöðin verður í Bolholti í Reykjavík og starfrækt af heilsugæslunni og Hugarafli. Þjónustan mun byggja á samstarfi fagfólks, þeirra sem njóta þjónustunnar og aðstandendum þeirra. 21.11.2005 17:18
Ófærar vegna élja og hálku Hrafnseyrarheiði og Eyrarfjall eru ófær vegna éljagangs og hálku. Él og hálka gera ökumönnum víða erfitt fyrir á Vesturlandi og á Vestfjörðum auk þess sem hálka og éljagangur er í Þrengslum og hálkublettir á Hellisheiði. 21.11.2005 17:04
Nokkur hálka og hálkublettir um allt land Nokkur hálka og hálkublettir eru víða um land. Hálka og éljagangur er í Þrengslum og hálkublettir á Hellisheiði. Þá er einnig hálka og éljagangur víða á Vesturlandi og á Vestfjörðum. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Eyrarfjalli og óveður er á Steingrímsfjarðarheiði. 21.11.2005 17:00
73 ára Norðmaður fékk lottóvinning í annað sinn á ævinni 73 ára gamall Norðmaður datt heldur betur í lukkupottinn fyrir stuttu og það í annað sinn á ævinni. Um helgina vann Friðþjófur Bodin um tíu milljónir íslenskra króna en fyrir 14 árum vann hann um 17 milljónir íslenskra króna í Lottóinu í Noregi. 21.11.2005 16:55
Verðbólga fer undir þolmörk Verðbólga fer niður fyrir efri þolmörk verðbólgumarkmiða Seðlabankans í næsta mánuði ef verðbólguspá Greiningardeildar KB-banka gengur eftir. 21.11.2005 16:46
Unglingspiltur keypti gas til að sniffa Lögreglan á Selfossi fékk í síðustu viku ábendingu um unglingspilt sem keypti gas í verslun á Selfossi í þeim tilgangi að sniffa gasið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er vitað hver pilturinn er og hafa foreldrar hans verið látnir vita. 21.11.2005 16:23
Lést í umferðarslysi Maðurinn sem lést í alvarlegu umferðarslysi í Norðurárdal í Borgarfirði í gær hét Sigurður Jóhann Hendriksson. Sigurður Jóhann var fæddur í mars árið 1946 og lætur hann eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn. Sigurður Jóhann var til heimilis að Reyrengi 32 í Reykjavík. 21.11.2005 15:30
Samgönguráðherra í opinberi heimsókn í Kína Sturla Böðvarsson samgönguráðherra er á leið til Kína ásamt hópi Íslendinga og fylgdarliði til að taka þátt í alþjóðlegri ferðasýningunni. Sturla er í opinberi heimsókn í boði kínverskra ferðamálayfirvalda. 21.11.2005 15:22
Pútín í opinberi heimsókn í Japan Vladimír Pútín, forseti Rússlands segir Rússa staðráðna í að byggja olíuleiðslu sem flytja muni hráolíu frá Síberíu til Japans og annarra þjóða við Kyrrahaf. 21.11.2005 14:38
Fjölmargir öyrkjar fá engar bætur á næstunni Vegna nýrra reglna um tekjutengingu við örorkubætur fá sextíu til áttatíu öryrkjar engar bótagreiðselur í nóvember og desember hafi þeir haft tekjur á árinu. 21.11.2005 13:57
Beitir aldrei pyntingum Forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, fullyrðir að yfirheyrslusérfræðingar stofnunarinnar fylgi alltaf lögum sem banni pyntingar en noti þó stundum nýstárlegar og óvenjulegar aðferðir við til að fá upplýsingar hjá föngum. Porter Gossi, sagði stofnunina aldrei hafa beitt pyntingum. Aðferðir þeirra hafi alltaf verið löglegar. 21.11.2005 13:17
Telur brot olíufélaganna skipta hundruðum Ríkislögreglustjóri telur að brotatilvik starfsmanna stóru olíufélaganna þriggja vegna ólöglegs verðsamráðs þeirra skipti hundruðum. Þetta kemur fram í tilkynningu Ríkislögreglustjóra í tilefni þess að hann hefur lokið rannsókn sinni vegna samaráðsmálsins, og sent niðurstöður til Ríkissaksóknara til ákvörðunar um ákærur. 21.11.2005 12:20
Með alvarleg brunasár eftir að efni sprakk í höndum þeirra Drengirnir tveir sem brenndust í Grafarvogi í gær liggja þungt haldnir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Þeir brenndust báðir illa á höndum og fótum og eru brunasárin bæði annars og þriðja stigs. Annar drengurinn brenndist á um það bil þrjátíu prósentum líkamans og er honum haldið sofandi í öndunarvél. Hinn drengurinn brenndist á tuttugu prósentum líkamans. Drengirnir eru á unglingsaldri og ekki er enn vitað hvaða eldfima efni sprakk í höndum þeirra með þessum afleiðingum. 21.11.2005 12:15
Tvö óhöpp í fljúgandi hálku Það er gríðarleg hálka í Borgarfirðinum sögðu lögreglumenn á vakt. Þeir hafa verið kallaðir út vegna tveggja umferðaróhappa í nágrenni bæjarins síðustu tæpu tvo klukkutímana en engin slys hafa orðið á fólki. 21.11.2005 11:59
Fleiri og betri störf á landsbyggðina Tvöfalt hærra hlutfall fólks á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni er með háskólamenntun. Stjórnvöld verða að grípa til að aðgerða til að snúa þessari þróun við, segir þingmaður Samfylkingarinnar. 21.11.2005 11:42
Rannsókn lögreglunnar lokið Rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á meintu ólöglegu samráði olíufélaganna er lokið. Meira um málið í fréttum NFS klukkan tólf. 21.11.2005 11:39
Byggðastofnun fjársvelt Byggðastofnun, sem á að tryggja jafnan aðgang landsbyggðafyrirtækja að fjármagni á við fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, er lömuð vegna fjárskorts. Hún er hætt að lána og fyrr á árinu var styrkveitingum og hlutafjárkaupum hætt. 21.11.2005 11:34
Yfir 40 milljónir manna hafa greinst með HIV veiruna 4,9 milljónir manna hafa greinst með HIV veiruna það sem af er þessu ári. Þar með er fjöldi HIV-smitaðra kominn upp í 40,3 milljónir um heim allan. Yfir 3,1 milljón manns hafa látist af völdum eyðni á árinu, þar af 570.000 börn. 21.11.2005 11:13
Umdeildar kosningar í Kenýa Umdeildar kosningar fara fram í Kenýa í dag, þegar kosið er um nýja stjórnarskrá í landinu sem mun styrkja stöðu forsetans. Forsetinn, Mwai Kibaki, hefur kallað kosningarnar sögulegt tækifæri en stjórnarandstæðingar vilja að forseti deili valdinu með lýðræðislega kjörnum forsætisráðherra. Miklar óeirðir hafa átt sér stað að undanförnu vegna kosninganna þar sem níu manns hafa látist. 21.11.2005 10:14