Fleiri fréttir

Sharon segir af sér

Ariel Sharon forsætisráðherra Ísraels hefur sagt af sér og krafist þess að þing verði rofið. Þetta gerði hann á fundi með Moshe Katsav, forseta landsins nú í morgun.

Tveir ölvaðir og próflausir teknir í nótt

Lögreglan í Reykjavík tók tvo ölvaða ökumenn úr umferð í nótt, sem vart væri í frásögu færandi, nema hvað búðið var að svifta þá báða ökuréttindum áður, og báða ævilangt. Það er því viðbúið að refsingin fyrir þessi brot nái inn á næsta tilverustig mannanna. Hvorugur þeirra hafði valdið óskunda í umferðinni þegar þeir voru teknir í nótt.

Peningafalsarar handteknir í Kólumbíu

Kólumbíska lögreglan réðst inn á starfsemi peningafalsara, handtók fimm manns og gerði þrjár milljónir dollara í fölsuðum peningaseðlum upptæka. Handtakan var afleiðing ítarlegrar rannsóknar af hálfu kólumbískra yfirvalda og leyniþjónustu Bandaríkjamanna. Talið er að fjörutíu prósent falsaðra seðla sem eru í gangi í heiminum séu framleiddir í Kólumbíu

Sýnir umburðarlyndi fólks

"Þetta eru stórkostlegar tölur en við höfum ekki haft neina beina vitneskju um hver afstaða Íslendinga væri í þessu máli," sagði Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Samtakanna '78, þegar hún var innt eftir viðbrögðum við niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins, sem sýna að rúm 82 prósent eru því fylgjandi að lesbíur í sambúð fái að eignast börn með gjafasæði.

Mikill stuðningur við rétt til tæknifjóvgunar

Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins styðja rúm 82 prósent Íslendinga rétt lesbía í sambúð til að gangast undir tæknifjóvgun með gjafasæði. Konur eru því hlynntari en karlar.

Umdeildar kosningar í Kenýa

Umdeildar kosningar fara fram í Kenýa í dag, þegar kosið er um nýja stjórnarskrá í landinu sem mun styrkja stöðu forsetans. Forsetinn, Mwai Kibaki, hefur kallað kosningarnar sögulegt tækifæri en stjórnarandstæðingar vilja að forseti deili valdinu með lýðræðislega kjörnum forsætisráðherra. Miklar óeirðir hafa átt sér stað að undanförnu vegna kosninganna þar sem níu manns hafa látist.

Samþykkt að slíta samstarfi við Likud-bandalagið

Miðstjórn Verkamannaflokksins í Ísrael samþykkti í dag að slíta stjórnarsamstarfi við Likud-bandalagið sem Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, fer fyrir. Er þetta í samræmi við yfirlýsingar formanns Verkamannaflokksins, Amirs Peretz, sem bar óvænt sigur af Shimoni Peres í formannskosningunum á dögunum.

Bush hvatti kínversk stjórnvöld til að auka frelsi

George Bush, forseti Bandaríkjanna, hvatti í dag kínversk yfirvöld til að auka frelsi á sviði stjórnmála, félagsmála og trúmála, en hann er nú í heimsókn í Kína. Bush ræddi við Hu Jintao, kínverskan starfsbróður sinn, en auk fyrrgreindra mála ræddu þeir viðskipti Kína og Bandaríkjanna.

Ólafur Guðmundsson læknir fékk viðurkenningu Barnaheilla

Viðurkenning Barnaheilla fyrir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra voru afhent í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Í þetta sinn var hún veitt Ólafi Guðmundssyni, yfirlækni á Barna- og unglingeðdeild, fyrir að hafa um margra ára skeið verið ötull talsmaður barna og unglinga sem þurfa á geðheilbrigðisþjónustu að halda.

Vaxandi hálka víða á vegum

Á Vestfjörðum er éljagangur og vaxandi hálka er á vegum, einkum á heiðum. Á Hrafseyrarheiði er færð farin að spillast, þar er þæfingsfærð. Kólnandi veður er um allt land og vaxandi hálka er mjög víða á vegum.

Alvarlegt slys ofan Sveinatungu

Alvarlegt umferðarslys varð í Norðurárdal í Borgarfirði nú á þriðja tímanum þegar fólksbíll hafnaði út í Norðurá, skammt ofan Sveinatungu. Lögregla og sjúkralið eru á vettvangi.

Avion tekur við framsækniverðlaunum

Avion Group hlaut í gær viðurkenningu fyrir að vera annað framsæknasta fyrirtæki Evrópu árið 2005. Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, tók við verðlaununum í Barcelona fyrir hönd fyrirtækisins.

Schröder kvaddur í Hannover

Kveðjuathöfn var haldin fyrir Gerhard Schröder, fráfarandi kanslara Þýskalands, í heimabæ hans Hannover í gærkvöld. Mikið var um dýrðir þar sem bæði hermenn báru kyndla honum til heiðurs og herlúðrasveit lék lög sem eiginkona kanslarans hafði valið.

Bíll út í Norðurá í Borgarfirði

Þyrla Landhelgisgæslunnar og köfunarmenn voru fyrr í dag kölluð út vegna bíls sem lent hafði ofan í Norðurá í Borgarfirði. Beiðni um hjálp var hins vegar afturkölluð en læknir, sjúkrabíll og lögregla munu vera komin á vettvang. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hversu margir voru í bílnum og hvert ástand þeirra er.

Löng bið hjá Greiningarstöð ríkisins

Grunnskólabörn þurfa að bíða í um og yfir tvö ár eftir greiningu hjá Greingar- og ráðgjafarmiðstöð ríkisins. Forstöðumaður stofnunarinnar segir ástandið ekki viðunandi og horfir fram á vanda næstu árin. Styrktartónleikar fyrir Greiningarmiðstöðina verða haldnir í Landakotskirkju í dag klukkan fjögur.

Albert formlega tekinn við völdum í Mónakó

Albert fursti af Mónako hefur nú formlega tekið við völdum í furstadæminu eftir íburðarmikla krýningarhátíð í gær. Um 800 boðsgestir mættu til hátíðahaldanna, en eini þjóðhöfðinginn sem sá sér fært að fara til Mónakó að samfagna Alberti fursta var Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.

Vatnstjón í fjölbýlishúsi á Akureyri

Slökkviliðið á Akureyri var kallað að fjölbýlishúsi í bænum í gær en þar hafði vatn flætt um húsið eftir að húsráðandi á fjórðu hæð hafði gleymt að skrúfa fyrir krana. Vatnsskemmdirnar reyndust mestar í hans eigin íbúð en einnig urðu nokkrar skemmdir á íbúðum á neðri hæðum vegna vatnsflaumsins.

Át 67 hamborgara á átta mínútum

Japanskur maður, Takeru Kobayashi, stendur uppi sem heimsmeistari í hamborgaraáti eftir að hafa torgað 67 hamborgurum. Heimsmeistarakeppni í hamborgaraáti fór fram í Chattanooga í Tennessee. Það tók hann átta mínútur að gleypa hamborgarana, en honum tókst þó ekki að slá heimsmetið, sem er 69 hamborgarar, en það á hann raunar sjálfur frá því í fyrra.

Fara á mis við skólagöngu vegna fötlunar

Fjöldi barna í Rússlandi fer á mis við skólagöngu vegna fötlunar. Þetta eru börn sem geta lært og vilja læra en skólarnir eru ekki hannaðir til þess að taka við fötluðum.

Valgerður tekur ekki sæti á listanum

Valgerður Sigurðardóttir, sem sóttist eftir fyrsta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í gær en tókst ekki ætlunarverk sitt, ætlar ekki að taka sæti á listanum.

Réðst á lögreglumenn í miðborginni

Tveir menn gistu fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík í nótt, annar fyrir ölvunarakstur en hinn fyrir ólæti. Sá síðarnefndi, sem var ölvaður, hafði þá ráðist á dyraverði skemmtistaðar í miðborginni. Þegar lögreglumenn hugðust róa hann og keyra hann heim réðst hann á þá og var hann því færður í fangageymslur þar sem hann var látinn sofa úr sér ölvímuna.

Björguðu konu af syllu eftir langa dvöl

Björgunarmenn í Kaliforníu náðu konu af klettasyllu í gær þar sem talið er að hún hafi verið í þrjá til fjóra daga. Konan var afar máttfarin og illa lemstruð eftir sextíu metra fjall af bjargbrún. Maður sem var á göngu á ströndinni fyrir neðan kom auga á konuna. Hann gerði lögreglu viðvart, sem kallaði á þyrlusveit til að ná konunni úr bjarginu.

Tveir harðir árekstrar í borginni í gær

Harður árekstur varð á mótum Kleppsvegar og Súðarvogar í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöld. Engin slys urður á fólki en ung stúlka í öðrum bílnum var flutt á sjúkrahús í losti. Þá varð harður árekstur í Kópavogi á Hafnarfjarðarvegi til móts við Kársnesbraut í gærkvöld.

Lögreglumenn pynta og drepa með rafmagnsbor

Írakskir lögreglumenn hafa drepið að minnsta kosti tvo menn og pyntað fjölda annarra með rafmagnsbor. Þessu er haldið fram í breska dagblaðinu Independent on Sunday í dag.

Haraldur Þór sigraði í Hafnarfirði

Haraldur Þór Ólason leiðir lista sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í bæjarstjórnarkosningum í vor en hann sigraði í prófkjöri í Sjálfstæðisflokksins þar í bæ sem fram fór í gær. Haraldur hlaut 921 atkvæði í fyrsta sæti en keppinautur hans um forystusætið, Valgerður Sigurðardóttir, hlaut 791 atkvæði í 1.-2. sætið.

Þær horfa til Evrópu

Í umræðu á Alþingi um utanríkismál leynast forvitnilegar yfirlýsingar. Framsóknarflokkurinn gæti verið að hallast að Evrópusambandinu og Samfylkingin að nýjum lausnum ef upp úr varnarsamstarfi slitnar við Bandaríkjamenn.

Grunaður um kynferðisglæp

Breski glysrokkarinn Gary Glitter var handtekinn á flugvelli í Ho Chi Minh borg í Víetnam í gær vegna gruns um ósæmilegt athæfi með barni. Glitter ætlaði um borð í flugvél á leið til Bangkok á Taílandi þegar hann var handtekinn.

Samruni 365 og Saga film skilyrtur

Algjörs aðskilnaðar reksturs og stjórnunar 365 ljósvakamiðla ehf. og Saga film ehf. er krafist í nýrri ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri 365, fagnar úrskurðinum og segir hann í samræmi við stefnu fyrirtækisins.

Óvissa um framhaldið

Jóna Hrönn Bolladóttir tekur við starfi sóknarprests í Garðabæ og Álftanesi þann 1. desember og lætur þá af störfum sem miðborgarprestur og segir því verkefni að ljúka.

Góðverk í stað jólaskreytinga

Íbúar í húsinu Gimli sem stendur við Miðleiti 5-7 í Reykjavík afréðu, að athuguðu máli, að sleppa því að prýða sameign hússins jólaljósum þetta árið en gefa þess í stað fimmtíu þúsund krónur til hjálpar- og uppbyggingarstarfsins í Pakistan.

Meðalverð um 30 milljónir

Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku nam 5,4 milljörðum króna og var upphæð hvers þinglýsts kaupsamnings 30,2 milljónir að meðaltali sem er metupphæð.

Kvótinn seldur til að fjármagna kaupin

Forstjóri Brims neitar því að eigendur selji aflaheimildir til þess að fjármagna kaupin á félaginu. Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að undanfarin tvö ár hafi 22 þúsund þorskígildistonn ekki nýst á Akureyri.

Haraldur Þór sigraði í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði

Haraldur Þór Ólason leiðir lista sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í bæjarstjórnarkosningum í vor en hann sigraði í prófkjöri í Sjálfstæðisflokksins þar í bæ sem fram fór í dag. Haraldur hlaut 921 atkvæði í 1. sæti en keppinautur hans um forystusætið, Valgerður Sigurðardóttir, hlaut 791 atkvæði í 1.-2. sætið. Rósa Guðbjartsdóttir varð í þriðja sæti en hún hlaut 783 í 1.-3. sæti og flest atkvæði allra.

Haraldur Þór efstur í Hafnarfirði

Haraldur Þór Ólason hefur forystu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði þegar ríflega helmingur atkvæða, eða þúsund, hafa verið talin. Haraldur Þór hefur fengið 505 atkvæði í fyrsta sæti en keppninautur hans um annað sætið, Valgerður Sigurðardóttir, hefur fengið 453 atkæði í 1. - 2. sæti.

Kjörsókn sögð góð í prófkjöri í Hafnarfirði

Prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði fer senn að ljúka og hefur kjörsókn verið góð samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn. Um klukkan fimm höfðu um 1300 manns neytt atkvæðisréttar síns og eru þar með talin utankjörfundaratkvæði.

Vinsældir Chiracs dvína eftir óeirðir

Vinsældir Jacques Chiracs, forseta Frakklands, hafa dvínað nokkuð eftir að til óeirða kom í landinu ef marka má niðurstöðu skoðanakannanar sem gerð var fyri dagblaðið Le Journal du Dimance. Samkvæmt henni eru 35 prósent ánægð með störf forsetans nú en 38 prósent voru það í síðasta mánuði.

Jarðskjálfti olli ekki flóðbylgju

Nú er ljóst að skjálftinn sem skók jörð nærri Súmötru í Indónesíu olli ekki flóðbylgju eins og óttast var í fyrstu, en skjálftinn mældist um 6,5 ár Richter. Engar fregnir hafa enn borist af slysum á fólki eða af tjóni á mannvirkjum en jörð hefur oft skolfið á svæðinu eftir risaskjálftann á annan dag jóla í fyrra sem mældsit 9,15 á Richter og kom af stað flóðbylgju sem varð 232 þúsund manns að bana.

Fimm handteknir vegna morðs í Bradford

Lögregla í í Lundúnum hefur handtekið fimm mans í tenglsum við skotárás á tvær lögreglukonur í Bradford í gær. Konurnar, sem voru óvopnaðar, höfðu brugðist við neyðarkalli um að verið væri að ræna ferðaskrifstofu. Ræningjarnir, sem voru þrír, skutu á konurnar og lést önnur þeirra en hin særðist og flýðu svo af vettvangi.

Íhugar að sækjast eftir fyrsta sæti

Óskar Bergsson, fyrrverandi varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, íhugar að gefa kost á sér í efsta sæti á lista framsóknarmanna fyrir næstu borgarstjórnarkosningar, en prófkjör flokksins fer fram snemma á næsta ári. Í samtali við NFS sagði Óskar að fjölmargir hefðu komið að máli sig og hvatt hann til að gefa kost á sér, en Óskar starfaði innan Reykjavíkurlistans á árunum 1994-2002.

Árásarmaður af skemmtistað gaf sig fram

Maðurinn sem réðst á annan mann og skar hann illa á háls á skemmtistað við Smiðjustíg í miðborginni í nótt gaf sig fram við lögreglu um hádegisbil í dag. Maðurinn braut glas og lagði til fórnalambsins sem fékk stóran skurð á háls auk nokkurra áverka annars staðar á líkamanum þar sem hann reyndi að verja sig.

Sjá næstu 50 fréttir