Fleiri fréttir

Sjórinn gengur yfir Kolbeinsey

Kolbeinsey hefur látið töluvert á sjá á undanförnum árum eins og sjá má af þessari mynd sem Páll Geirdal, yfirstýrimaður í flugdeild Landhelgisgæslunnar, úr TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar sem var á eftirlitsflugi úti fyrir Norðurlandi í dag.

Dregið úr verðhækkunum

Dregið hefur úr verðhækkunum og þar með þenslu á fasteignamarkaði. Hækkun fasteignaverðs mun leiða til um 0,15 prósenta hækkunar á vísitölu neysluverðs. Þetta kemur fram í hálffimm fréttum Kaupþings.

ASÍ-þingi lokið

Tveggja daga þingi Alþýðusambands lauk í dag. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir að með því markverðasta eftir þingið séu ákvarðanir varðandi réttindi launþega í sjúkrasjóðum.

Vill mynda velferðarstjórn

Steingrímur J. Sigfússon ítrekaði tilboð sitt til Samfylkingar um myndun velferðarstjórnar við upphaf landsfundar Vinstri-grænna sem hófst nú síðdegis. Á fjórða hundrað fulltrúar eiga rétt til setu á landsfundinum sem er stærsti landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs til þessa.

KB-lán óbreytt

KB banki mun halda íbúðalánum sínum óbreyttum þó að fasteignaverð fari lækkandi og Landsbanki Íslands hafi lækkað lánahlutfall sitt í 80 prósent.

Íslandsbanki lækkar ekki lánin

Íslandsbanki ætlar ekki að lækka lánahlutfall sitt þó að hækkun fasteignaverðs hafi stöðvast og lækki hugsanlega á næstunni.

Finnast löngu eftir lát sitt

Nokkrum sinnum á ári finnst fólk á heimilum sínum í Reykjavík eftir að hafa legið þar látið í vikur eða jafnvel mánuði áður en einhver veitir því athygli. Fyrir tveimur mánuðum fannst einstaklingur þremur mánuðum eftir andlát hans.

Hefur vinnu á mánudag

Björn Bjarnason setti í dag Sigurð Tómas Magnússon ríkissaksóknara til að fara með þrjátíu og tvo ákæruliði Baugsmálsins. Sigurður Tómas hefur ekki fengið gögn um Baugsmálið í hendurnar en hann ætlar að hefja vinnu við það á mánudaginn. Hann vill ekki að málið dragist á langinn og stefnir að því að ákvörðun um framhaldið liggi fyrir ekki síðar en í febrúarlok.

Gefa 20 milljónir til aðstoðar

Rauði kross Íslands ætlar að leggja tuttugu milljónir króna til neyðaraðstoðar í Pakistan, úr neyðarsjóði sínum. Ekki hefur verið veitt fé úr þeim sjóði síðan snjóflóðin féllu vestur á fjörðum og er það til marks um hversu alvarlegt ástandið er í Kasmír. Rauði kross Íslands hyggst jafnframt senda tvo starfsmenn til Pakistans.

Misjafnlega vel gert við kúnnana

Bankar hér á landi verja tugum milljóna króna í ýmiss konar boðsferðir fyrir viðskiptavini sína. Það eru þó aðeins fáir útvaldir sem komast á boðslistann - hinir fá dagatal.

Áfengið veldur óbætanlegum skaða

Fólk sem byrjar að drekka áfengi fyrir tvítugt veldur sér óbætanlegu heilatjóni. Því fyrr sem drykkjan hefst, því meira skemmist heilinn.

Tveir Íslendingar til Pakistan

Tveir Íslendingar fara til hjálparstarfa í Pakistan. Sólveig Ólafsdóttir sendifulltrúi og Jón Hafsteinsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, fara þangað í næstu viku.

Segir þingmönnum sagt rangt til

Alþingismönnum hefur verið sagt rangt til um stöðu varnarviðræðna, segir Össur Skarphéðinsson, skuggaráðherra utanríkismála hjá Samfylkingunni. Geir H. Haarde utanríkisráðherra vill ekki ræða málið. </font />

Húsnæði BUGL löngu sprungið

Yfir 100 börn eru nú á biðlista eftir þjónustu Barna- og unglingageðdeild Landspítalans og er hafin söfnun fyrir stækkun undir starfsemina. Lýsing hf. mun í næsta mánuði kosta tónleika til styrktar Barna- og unglingageðdeildinni en vonir eru bundnar við að hægt verði að ráðast í byggingu fyrsta áfanga viðbyggingar á næstu 12 mánuðum.

Fuglaflensa ógnar alifuglabúum

Þegar fuglaflensan berst til landsins eru það alifuglabúin sem eru í hættu. Smitist kjúklingarnir og kalkúnarnir þarf að drepa þá alla.

Greiða bændum meira en mjólkurbúin

Forsvarsmenn ostaframleiðandans Mjólku ætla að greiða bændum sem leggja mjólk inn hjá þeim umtalsvert hærra verð en ef þeir leggja hana inn í mjólkurbú. Mjólka hefur jafnframt kært Osta- og smjörsöluna til samkeppniseftirlitsins fyrir að neita að selja fyrirtækinu undanrennuduft á iðnaðarverði.

Hafast við í neyðarskýlum

Fellibylurinn Wilma skall á Júkatan-skaga undir kvöld. Wilma er öflugasti stormur sem myndast hefur á Atlantshafi frá því mælingar hófust, en var orðin fjórða stigs fellibylur þegar hún kom að landi. Hundruð þúsunda hafa yfirgefið heimili sín auk þess sem hótel voru rýmd og ferðamönnum í þúsundatali komið fyrir í neyðarskýlum.

6 ára á mótorfák

"Fyrst varð fósturpabbi að halda við hjólið en nú fer ég alveg sjálfur," segir Heimir Johnson en hann er sennilega einn af fáum börnum í heiminum sem ekur um á bifhjóli. Gunnar Gunnarsson, fósturpabbi hans, kom færandi hendi fyrir skemmstu með fimmtíu kúbika hjól. Varð Heimi þá mjög brugðið og fór hann sér ofurhægt í fyrstu.

Dönsk ungmenni í djörfum leik

Dönsk lestarfyrirtæki segja það sífellt færast í aukana að ungmenni stundi þann lífshættulega leik að standa sem lengst á lestarteinum þegar lest kemur æðandi. Á undanförnum þremur árum hefur fjöldi tilfella þar sem næstum hefur verið keyrt á fólk meira en tvöfaldast.

Aukning í sölu nýrra bíla

Mikil aukning hefur verið í sölu á nýjum bílum á Vestfjörðum það sem af er árinu. Samkvæmt upplýsingum frá ökutækjaskrá hefur sala á nýjum bílum á landinu öllu aukist um 52%, en á Vestfjörðum um heil 74%. Vestfirðir eru þar með yfir landsmeðaltal í aukningu í fyrsta sinn síðan árið 1997. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta í dag.

Lögfræðingur tekinn af lífi

Lögmaður eins sakborninganna í réttarhöldunum gegn Saddam Hussein og félögum hans fannst myrtur á götu í Bagdad í gær. Morðið er áfall fyrir alla sem að réttarhöldunum koma.

Sýrlendingum kennt um morðið

Stjórnvöld í Sýrlandi og líbanskir bandamenn þeirra fá á baukinn í skýrslu rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna sem segir allt benda til aðildar þeirra að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í febrúar síðastliðnum.

Fá ekki lán á landsbyggðinni

"Íslenski bankinn neitaði okkur um lán því að verksmiðjan á að rísa á landsbyggðinni," segir Michael Ryan, framkvæmdastjóri írska fyrirtækisins Marigot, sem reisa mun kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal ásamt sanddælingarfyrirtækinu Björgun. „Það hefði verið auðsótt mál að fá lánið hefði verksmiðjan átt að rísa í Reykjavík," bætir hann við. 

Erfitt að tjá sig ekki

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skipaði í gær Sigurð Tómas Magnússon sem sérstakan saksóknara í Baugsmálinu. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, undrast að Björn telji sig hæfan. Ráðherrar eru pólitískir segir Sigurður.

Sífellt fleiri börn hringja í 112

Æ fleiri börn hringja í Neyðarlínuna 112 til að segja frá ofbeldisverkum á heimilum sínum. Neyðarlínan grípur inn í slík mál með tafarlausum útköllum starfsmanna Barnaverndar eða tilkynningum til viðkomandi nefndar.

Öndum að okkur verkfallslofti

Formaður Eflingar, Sigurður Bessason, telur helmingslíkur á að kjarasamningar rofni. Hann segir þjóðina standa frammi fyrir verðbólgu sem ekki hafi verið hægt að sjá fyrir við gerð síðustu samninga. Samningar eru lausir um áramót.

Allrahanda uppfylla ekki skilmála

Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri segir Iceland Excursions Allrahanda ekki hafa uppfyllt skilmála útboðs um sérleyfisakstur milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. Þess vegna hafi ekki verið samið við fyrirtækið um aksturinn þrátt fyrir að það hafi boðið hæstu greiðslu fyrir aksturinn.

Öflugasti fellibylur sögunnar

Tugþúsundir íbúa og ferðamanna í Mexíkó og Kúbu leituðu í gær skjóls undan fellibylunum Wilmu en bylurinn fer yfir Yucatan-skaga í Mexíkó í vikulokin. Bandaríska fellibyljamiðstöðin í Miami hefur staðfest að Wilma sé öflugasti  fellibylur sem sögur fara af á Atlantshafi en hann mælist nú af stærðinni fimm á Saffír-Simpson kvarða um stærð fellibylja.

Tveir skammtar af bóluefni

Bresk stjórnvöld vilja koma sér upp tveimur skömmtum af bóluefni fyrir hvern einasta landsmann. Aðeins þannig yrði hægt að verja alla þjóðina fyrir fuglaflensunni þar sem ekki er víst að einn skammtur á hvern landsmann myndi duga.

Stálu sextán gróðurhúsalömpum

Þjófar brutust inn í gróðrastöð í Hveragerði í nótt og höfðu talsverð verðmæti á brott með sér auk þess að valda nokkrum skemmdum. Þeir stálu meðal annars sextán gróðurhúsalömpum, sem vinsælir eru til kannabisræktar, og tölvubúnaði. Þjófarnir voru horfnir af vettvangi þegar innbrotsins varð vart og er þeirra nú leitað.

Ungabörn auglýst til sölu á Netinu

Lögreglan í Sjanghæ í Kína rannsakar nú mál þar sem ungabörn voru auglýst til sölu á Netinu. Auglýsingin birtist síðastliðinn sunnudag á vefsíðu sem er í eigu uppboðsvefjarins E-Bay. Að sögn lögreglu höfðu um fimmtíu manns skoðað auglýsinguna þegar málið komst upp en enginn reynt að ganga frá kaupum.

Tillögum minnihlutans hafnað

Meirihluti leikskólanefndar Kópavogs hafnaði í gær tillögum minnihlutans um sértækar aðgerðir til að bregðast við vanda á leikskólum bæjarins vegna manneklu. Börn á tveimur leikskólum í Kópavogi eru nú heima í eina viku á mánuði vegna lokunar deilda.

Palestínumenn styðja Saddam

Tugir Palestínumanna tóku þátt í mótmælagöngu til stuðnings Saddam Hussein, fyrrverandi einræðisherra Íraks, í Gaza-borg í gærdag. Mótmælendurnir segja Hussein fórnarlamb Bandaríkjamanna og að hann sé einn fárra valdamanna í heiminum sem hefur staðið þétt við bakið á Palestínu í stríðinu gegn Ísrael.

Baugsmálið tekið fyrir í dag

Baugsmálið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan korter yfir níu. Öllum ákæruliðunum fjörutíu var vísað frá dóminum í síðasta mánuði en ákæruvaldið áfrýjaði úrskurðinum til Hæstaréttar. Þar var svo öllum ákærunum nema átta vísað frá á dögunum. Ákæruliðirnir sem eftir standa varða meint brot á almennum hegningarlögum, tollalagabrot og lög um ársreikninga.

Abbas og Bush funda

Leiðtogi Palestínumanna, Mahmoud Abbas, kom til Washington í gær til að eiga fund með George Bush Bandaríkjaforseta en í enn eitt skiptið á að reyna að finna leiðir svo friður geti orðið á milli Ísraels og Palestínu. Abbas vill að Bush pressi á Ísraela til að hörfa frá öllum landnemasvæðum og að Palestínumenn fái að halda frjálsar kosningar.

Öryrkjar mótmæla kjararýrnun

Öryrkjabandalag Íslands fagnar þeirri ákvörðun stjórnvalda að leggja til að hluta þeirra fjármuna sem fengust fyrir Landsímann skuli varið til uppbyggingar úrræða fyrir geðfatlaða. Á hinn bóginn sé á engan hátt hægt að fallast á að sú efling feli í sér um leið kjararýrnum lífeyrisþega eins og kemur fram í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.

Óttast að hætta skapist

Steinnunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir tilmæli sín vegna kvennafrídags miðast að því að þjónusta verði ekki skert þannig að hætta skapist. Hún lýsir yfir stuðningi við að konur leggi niður störf, sæki börnin sín á leikskóla og frístundaheimili og taki þátt í aðgerðunum.

Baugsmálið ekki tekið fyrir

Baugsmálið verður ekki tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkurí dag eins og greint var frá á Vísi í morgun. Vegna formgalla einhvers konar var villa í útsendum gögnum frá dóminum þar sem kom fram að málið yrði tekið fyrir nú fyrir hádegi. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi.

Lausir úr prísundinni

Norsku srandgæslumennirnir tveir, sem var haldið hefur verið nauðugum um borð í rússneksum togaranum Electron, voru fluttir um borð í norskt skip í morgun að sögn rússneskra fjölmiðla. Öll skipin eru nú á Barentshafi skammt frá Kólaskaga. Norðmenn stóðu togarann að ólöglegum veiðum við Svalbarða á laugardag en skipstjóri togarans lagði á flótta með norsku varðskipsmennina innanborðs.

Þróa bóluefni gegn flensuveirum

Danskir vísindamenn segjast hafa fundið fljótvirka aðferð til að þróa bóluefni gegn flensuveirum hvers konar. Þeir vonast til að hægt verði að nota þessa aðferð til að þróa bóluefni gegn fuglaflensunni áður en kemur til faraldurs. Þetta kemur fram í grein í <em>Berlingske Tidende</em>.

Éta það sem býðst

Því meiri matur sem fólki er boðið upp á þeim mun meira borðar það, nema maturinn sé grænmeti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu bandarískra vísindamanna sem leita leiða til að draga úr offitu.

Kjarasamningar í uppnámi

Kjarasamningar eru í uppnámi, skattur á tekjum undir 175 þúsund krónum á að verða 14,75 prósent, og ef til vill stendur lítið íslenskt myntsvæði og óstöðugt efnahagslíf vaxtalækkunum fyrir þrifum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í ályktanadrögum ársfundar Alþýðusambands Íslands.

Skorið úr um málið í Haag

Samtök norska sjávarútvegsins eru óvænt fylgjandi því að alþjóðadómstóllinn í Haag verði látinn skera úr um rétt Norðmanna til að stjórna einhliða fiskveiðum á fjölþjóðlega hafsvæðinu við Svalbarða. Undirbúningur íslenskra stjórnvalda fyrir málshöfðun á hendur Norðmönnum fyrir dómstólnum er nú á lokastigi. 

Dánartalan gæti tvöfaldast

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir dánartölu vegna jarðskjálftanna í Pakistan og Indlandi tvöfaldast á næstunni, verði hjálp til fórnarlamba hamfaranna ekki aukin. Nú þegar hafa 80 þúsund látist.

Gríðarlegur niðurskurður?

Niðurskurðarhugmyndir Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli eru slíkar að umsvifin þar yrðu álíka lítil og fyrir rúmri hálfri öld. Nánar tiltekið er átt við árin 1946 til 51, þegar u.þ.b. 150 hermenn voru í stöðinni og um 300 Íslendingar, en um sjö hundruð Íslendingar eru þar nú eftir mikinn niðurskurð á síðustu misserum.

Sjá næstu 50 fréttir