Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þingmaður drepinn í Kirgistan Kirgiskur þingmaður var drepinn á fangasjúkrahúsi í Kirgistan fyrir stundu. Hann var fyrr í dag tekinn sem gísl ásamt tveimur úr fylgdarliði sínu þegar hann heimsótti fangelsið sem er skammt norðvestur af höfuðborginni, Bishkek. 20.10.2005 00:01
Ostborgarafrumvarpið samþykkt Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt lagafrumvarp sem kemur í veg fyrir að fólk geti höfðað mál á hendur skyndibitakeðjum og krafið þær um skaðabætur vegna offituvandamála sem fólkið glími við. 20.10.2005 00:01
Vilja draga úr tryggingum Stærstu tryggingafélög heims á sviði flugmála íhuga að hætta að tryggja flugfélög fyrir árásum á farþegaflugvélar þar sem notuð eru efnavopn og geislavirk efni. Láti þau verða af þessu þurfa Evrópuríki væntanlega að gangast í ábyrgðir fyrir flugfélögin líkt og þau gerðu eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. 20.10.2005 00:01
Sýknað af bótakröfu Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Flugleiðir í dag af átta og hálfrar milljóna króna skaðabótakröfu fyrrverandi starfsmanns fyrirtækisins, sem slasaðist við vinnu á Keflavíkurflugvelli 1. desember 1999. 20.10.2005 00:01
Verða að berjast gegn hryðjuverkum Palestínska heimastjórnin verður að fordæma hryðjuverk og berjast gegn þeim ef friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs á að ganga upp. Þetta sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti eftir fund með Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, í Washington rétt í þessu. 20.10.2005 00:01
Tvö ár fyrir kynferðisbrot 37 ára gamall karlmaður, Ólafur Eggert Ólafsson var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur, fyrir margvísleg kynferðisleg brot gegn þremur fimmtán ára stúlkum á árunum 2001 og 2002. 20.10.2005 00:01
Wilma veikist nokkuð Fellibylurinn Wilma er hefur veikst nokkuð og er nú orðinn fjórða stigs fellibylur. Sérfræðingar vara þó við að Wilma gæti átt eftir að styrkjast á nýjan leik. Bandaríska fellibyljamiðstöðin í Miami staðfesti í gær að Wilma hefði náð meiri styrk en nokkur annar fellibylur á Atlantshafi þegar kraftur hennar var sem mestur. 20.10.2005 00:01
Laun verða að hækka Laun verða að hækka meira en sem nemur verðbólgu, segja forystumenn ETUC, heildarsamtaka sextíu milljóna launþega í ríkjum Evrópusambandsins. Þeir segja engu skipta þó stjórnendur Seðlabanka Evrópu láti að því liggja að þeir bregðist við launahækkunum umfram verðbólgu með því að hækka vexti. 20.10.2005 00:01
Grunuðum hryðjuverkmönnum sleppt Fjórir menn frá Norður-Afríku sem bíða þess að vera vísað frá Bretlandi vegna gruns um aðild að hryðjuverkum verða leystir úr haldi lögreglu gegn tryggingu. Sérstakur dómstóll sem fjallaði um mál mannanna ákvað þetta í dag en neitaði fimm um lausn og máli eins var frestað. 20.10.2005 00:01
Býður almenningi á ball Haraldur Noregskonungur hefur ákveðið að bjóða fimm hundruð og fimmtíu þegnum sínum, víðs vegar að úr Noregi og úr öllum stéttum, til dansleiks í næsta mánuði. Haraldur, sem hefur átt til rölta um götur Oslóar og líta í verslanir án þess að mikið sé um sýnilega öryggisgæslu, telur dansleikinn tækifæri til að auka enn tengsl sín við landsmenn. 20.10.2005 00:01
Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi Tvítugur piltur var dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar í Hæstarétti í dag. Hann var fundinn sekur um manndráp af gáleysi með því að hafa bakkað bíl sínum út úr stæði og á gangstétt þar sem hann bakkaði á eldri konu sem lést af völdum áverka sem hún hlaut. 20.10.2005 00:01
Fræðsla um kynferðisofbeldi Menntaráð Reykjavíkur hefur ákveðið að fela menntasviði borgarinnar að efna til umræðu við fagfólk ogt foreldrasamtök um hlutverk skólanna í umræðu og fræðslu um kynferðisofbeldi gegn börnum. 20.10.2005 00:01
Misnotaði tólf ára stúlku Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir karlmanni sem misnotaði dóttur sambýliskonu sinnar kynferðislega á sex ára tímabili. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa fyrst haft samræði við stúlkuna þegar hún var tólf ára, aftur nokkrum sinnum þegar stúlkan var þrettán til fjórtán ára og að lokum þegar hún var átján ára. 20.10.2005 00:01
David keppir við David Tveir menn með sama fornafn berjast um leiðtogaembættið hjá breska Íhaldsflokknum. David Cameron og David Davis fengu flest atkvæði í kjöri þingmanna flokksins um hverjir skyldu fá að vera í framboði þegar 300 þúsund félagar í Íhaldsflokknum velja sér leiðtoga. 20.10.2005 00:01
Forsetahjónin í Hafnarfjörð Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff forsetafrú fara í opinbera heimsókn til Hafnarfjarðar í dag. Heimsókninni lýkur klukkan átta í kvöld. 20.10.2005 00:01
Lífið í vinnunni hjá ASÍ Á ársfundi ASÍ, sem lýkur í dag, er lagt til að hrint verði af stað átaki til að efla umfjöllun um lífið í vinnunni og vinnuverndarstarf í fyrirtækjum. 20.10.2005 00:01
Álit um framtíðarhlutverk Starfshópur sem vinnur að úttekt á framtíðarhlutverki Íbúðalánasjóðs skilar að öllum líkindum af sér áfangaáliti um framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs fyrir lok mánaðarins. 20.10.2005 00:01
Segja hátt gengi ekki skila sér Forsætisráðherra og þingmenn úr nær öllum flokkum gagnrýndu að hátt gengi íslensku krónunnar hefði ekki haft áhrif til lækkunar á matarverði. Þingmaður Samfylkingarinnar spurði hvort það væri almenn skoðun alþingismanna að íslenskir verslunareigendur væru hyski. 20.10.2005 00:01
Lýsisneysla mæðra hjálpar börnum Lýsisneysla móður í upphafi meðgöngu getur haft jákvæð áhrif á heilsufar barnsins á lífsleiðinni. Þær konur sem taka lýsi fæða stærri börn. Þetta kemur fram í rannsókn á vegum Lýðheilsustöðvar, Háskóla Íslands og Mæðraverndar. 20.10.2005 00:01
Helmingi betri horfur Lyf, sem notað er í baráttunni við brjóstakrabbamein eykur batahorfur um helming ef það er gefið strax í upphafi meðferðar. Fögnuðurinn í læknastéttinni er slíkur að helsti sérfræðingurinn á Íslandi á þessu sviði man ekki eftir öðru eins. 20.10.2005 00:01
Björn segist ekki vanhæfur Dómsmálaráðherra telur sig ekki vanhæfan til að skipa nýjan saksóknara í Baugsmálinu. Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar spurði dómsmálaráðherra á þingi hvort ekki væri óheppilegt að hann viki ekki sæti þegar kæmi að því að skipa nýjan saksóknara í ljósi yfirlýsinga hans og annarra forystumanna í Sjálfstæðisflokknum um Baugsmálið. 20.10.2005 00:01
Tugþúsundir í bráðri hættu Tugir þúsunda eru í bráðri hættu og deyja á næstu dögum verði ekki gripið til víðtækra aðgerða þegar í stað. Þetta er mat yfirmanna Sameinuðu þjóðanna sem tóku óvenju djúpt í árinni í dag þegar þeir lýstu hörmungarástandinu í Kasmír. 20.10.2005 00:01
Davíð byrjaður í Seðlabankanum Davíð Oddsson hóf störf sem seðlabankastjóri í dag. Honum var vel tekið af öðrum stjórnendum bankans en helsti fjandvinur hans úr pólitíkinni, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, notaði daginn til að hætta í bankaráði Seðlabankans. 20.10.2005 00:01
Vonsvikinn með hvernig miðar Utanríkisráðherrra var krafinn svara á Alþingi í dag um ástæður þess að slitnaði upp úr viðræðum um varnarsamninginn við Bandaríkjamenn og fullyrðingar þess efnis að formlegar viðræður væru ekki hafnar. Hann sagði vonbrigði að ekki hefði miðað meira áfram í viðræðum. 20.10.2005 00:01
Allrahanda uppfylltu ekki skilyrði Aðstoðarvegamálastjóri segir fyrirtækið Iceland Excursions Allrahanda ekki hafa uppfyllt skilmála útboðs um sérleyfisakstur á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. Það sé ástæða þess að samið var við fyrirtæki sem átti tilboð sem var tugum milljóna króna óhagstæðara en tilboð Allrahanda. 20.10.2005 00:01
Gripið til víðtækra ráðstafana Í dag lést tæplega fimmtugur Taílendingur úr fuglaflensu. Í Indónesíu virðist heil fjölskylda hafa smitast sem vekur ótta um stökkbreytingu vírussins. Bretar ætla að kaupa bóluefni fyrir hvern einasta íbúa Bretlandseyja. Austurríkismenn og Þjóðverjar hafa bannað lausagöngu alifugla. 20.10.2005 00:01
Full ástæða til að safnast saman Hjól atvinnulífsins hægja verulega á sér upp úr hádegi á mánudag næstkomandi, þegar konur ganga út af vinnustöðum sínum og þramma niður á Ingólfstorg. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti, segir fulla ástæðu fyrir konur til að safnast saman og berjast fyrir rétti sínum. 20.10.2005 00:01
63 prósent vilja Vilhjálm Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, nýtur mun meira fylgis en Gísli Marteinn Baldursson, mótframbjóðandi hans í fyrsta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup. 20.10.2005 00:01
Vilhjálmur Þ. með forystuna Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur forystu í kapphlaupinu um fyrsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í borginni í vor ef marka má skoðanakönnun sem IMG Gallup hefur gert fyrir stuðningsmenn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. 20.10.2005 00:01
Dæmdir fyrir rán Maður um tvítugt var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í tveggja mánaða fangelsi fyrir að ræna verslunina 10/11 í Engihjalla í Kópavogi í apríl. Þar að auki hlaut hann og félagi hans í ráninu sex mánaða skilorðsbundinn dóm til þriggja ára. 20.10.2005 00:01
Skólastefnu og kvenfrelsi ber hæst Endurskoðun stjórnmálaályktunar þar sem Vinstrihreyfingin - grænt framboð er skilgreind sem flokkur kvenfrelsis og viðamikil menntastefna eru meðal þess sem ber hæst á flokksþingi Vinstri-grænna sem hefst í dag að mati, Steingríms J. Sigfússonar, formanns flokksins. 20.10.2005 00:01
20 þúsund enn í neyðarskýlum Enn er ekki ljóst hvernig koma á upp heimilum fyrir þá einu milljón manna, kvenna og barna sem misstu heimili sín þegar fellibylurinn Katrína reið yfir suðurríki Bandaríkjanna fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan. 20 þúsund manns hafast enn við í neyðarskýlum. 20.10.2005 00:01
Vindurinn úr Wilmu Nokkuð hefur dregið úr vindhraða fellibylsins Wilmu. Engu að síður hafa þúsundir yfirgefið heimili sín í Flórída og í ríkjum Mið-Ameríku. 20.10.2005 00:01
Laug til um árásina Anne-Lise Jønch Pedersen, frambjóðandi danska Framfaraflokksins í héraðskosningum á Sjálandi, er í vondum málum eftir að upp komst að hún laug því að hópur innflytjenda hefði ráðist á sig. 20.10.2005 00:01
Tugþúsundir enn í hættu Ríki heims hafa einungis reitt fram einn áttunda hluta af þeirri neyðaraðstoð sem Sameinuðu þjóðirnar fara fram á. Óttast er að með útbreiðslu farsótta og versnandi veðri muni tala látinna á hamfarasvæðunum hækka enn frekar. 20.10.2005 00:01
200 milljónir fram úr heimildum Útlit er fyrir að sérfræðilæknar fari um 200 milljónir fram yfir fjárheimildir gildandi samnings við Tryggingastofnun, að sögn formanns samninganefndar lækna. Mest er aukning á þjónustu hjartasérfræðinga, eða 25 prósent. 20.10.2005 00:01
Flest lyf standa í stað „Einhver lyf lækka, önnur hækka, en flest lyf standa í stað," segir Páll Guðmundsson lyfsali hjá Lyfjum og heilsu í Kringlunni um andstæðar fullyrðingar vegna lækkunar lyfjaverðs í heildsölu. 20.10.2005 00:01
Drógu gula ýsu „Menn rak bara í rogastans enda aldrei séð svona lagað áður," segir Ingvar Pétursson, skipstjóri á trillunni Hlökkur frá Hólmavík, en áhöfnin dró einn gulan á dögunum. Það er varla í frásögu færandi að draga þann gula en þá er venjulega átt við þorsk. Menn þurfa þó að endurskoða þá málvenju því sá guli að þessu sinni var ýsa. 20.10.2005 00:01
Börn gerast heimsforeldrar "Við erum skátar og skátar eiga að hjálpa öðrum jafnvel þó þeir séu svona langt í burtu," segir Óskar Þór Þorsteinsson skáti úr Garðabæ og meðlimur í Ljósálfasveitinni Muggar. Sú sveit hefur nú tekið að sér það hlutverk að vera heimsforeldrar Önnu Karínu sem er tíu ára fátæk stúlka í El Salvador. 20.10.2005 00:01
Kosið milli Camerons og Davis Keppinautum um flokksleiðtogastólinn í breska Íhaldsflokknum fækkaði í gær niður í tvo. Á næstu sex vikum skera almennir flokksmenn úr um hvor þeirra skuli leiða flokkinn í næstu þingkosningum. 20.10.2005 00:01
ASÍ vill ekki lækka tekjuskatt Forseti Alþýðusambandsins segir ríkisstjórnina ekki bregðast með fullnægjandi hætti við þeirri ógn sem verðbólgan er kjarasamningum. Skattalækkanir eiga að vera til tekjujöfnunar, sagði forsetinn á ársfundi ASÍ sem hófst í gær. 20.10.2005 00:01
Ágreiningur um varnarsamninginn Utanríkisráðherra segir Íslendinga og Bandaríkjamenn greina á um grundvöll viðræðna um varnarsamninginn. Formaður Vinstri grænna segir stjórnvöld biðja Bandaríkjamenn um tilgangslaus hernaðarumsvif peninganna vegna. 20.10.2005 00:01
Norðmenn sækja ekki um ESB-aðild Utanríkisráðherra Noregs segir nýja atlögu að því að koma landinu í Evrópusambandið ekki á dagskrá á kjörtímabilinu. Áfram verði byggt á EES-samningi. 20.10.2005 00:01
Heitur vetur framundan „Núna þarf að breyta" er yfirskrift landsfundar Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs sem hefst á Grand hóteli í dag. Nýjar áherslur eru á kvenfrelsi í tillögum sem fyrir fundinum liggja. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, segir flokkinn betur undir það búinn en nokkru sinni fyrr að fara í ríkisstjórn. 20.10.2005 00:01
Fleygði börnunum sínum í sjóinn Bandarísk kona hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt öll þrjú börnin sín. Lashaun Harris, 23 ára gömul kona búsett í Oakland, játaði sök skömmu eftir að hún var handtekin. Lögreglan hefur upplýst að konan hafi sagst hafa fleygt börnunum fram af bryggjunni eftir að raddir í höfði hennar höfðu sagt henni að gera það. 20.10.2005 00:01