Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Breytingar í ríkisstjórninni Davíð Oddsson utanríkisráðherra lætur af embætti á ríkisráðsfundi, sem haldinn verður á Bessastöðum klukkan tvö í dag. Geir H. Haarde fjármálaráðherra tekur við embætti utanríkisráðherra af Davíð, en hann hefur verið ráðinn seðlabankastjóri til næstu sjö ára og tekur við því embætti 20. október næstkomandi. 26.9.2005 00:01
Ísland er einkabílasamfélag Auka á gjaldtöku fyrir bílastæði í borginni, dreifa vinnutíma fólks og ekki á að stækka vegakerfið frekar. Verkfræðingar, sem hafa skoðað samgöngur í Reykjavík í alþjóðlegu samhengi, segja að þetta myndi stórbæta umferðarmenningu í borginni. 26.9.2005 00:01
Lögreglan á margt eftir ólært Atli Gíslason lögmaður, telur yfirlýsingu lögreglunnar í Reykjavík vegna nauðgunarmáls sem aldrei var ákært í, sýna að lögreglan eigi margt eftir ólært í rannsóknum á kynferðisbrotamálum. Í yfirlýsingu frá lögreglustjóranum í Reykjavík segir að lögreglan hafi gert allt sem í hennar valdi stóð til að upplýsa hópnauðgun sem framin var um verslunarmannahelgina árið 2002. 26.9.2005 00:01
Taka 70 töflur af parkódíni á dag Neysla parkódíns hér á landi er margfalt meiri en í Danmörku. Lyfin verða tekin úr lausasölu hér vegna misnotkunar. Fleiri og fleiri leita sér aðstoðar vegna lyfjaneyslunnar. 26.9.2005 00:01
Svikafyrirtæki eykur umsvifin hér Svikafyrirtækið European City Guide er enn að auka umsvif sín hér á landi. Forráðamenn fyrirtækja eru gabbaðir til að samþykkja skráningu í gagnabanka án endurgjalds en síðan rukkaðir um tugi þúsunda. 26.9.2005 00:01
Björgunarsveitir aðstoða fólk Björgunarsveitir eru nú að aðstoða hundruð manna sem þurftu að leita skjóls á þökum húsa sinna í suðurhluta Louisiana vegna flóða sem fylgdu fellibylnum Rítu. Veðrið er nú gengið niður en yfirvöld í Texas og Louisiana hvetja flóttafólk til þess að vera ekkert að flýta sér heim meðan verið er að gera við flóðgarða sem rofnuðu í óveðrinu. 25.9.2005 00:01
Allir sitji sem fastast Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skrifar í pistli á heimasíðu sinni að hann sjái ekki nokkuð athugavert við aðkomu Styrmis Gunnarssonar að undirbúningi Baugsmálsins. Engin ástæða sé fyrir Styrmi, Björn sjálfan, eða nokkurn annan ef því er að skipta, til að segja sig frá störfum. 25.9.2005 00:01
Ökumenn í vandræðum Fjöldi ökumanna á vegum norðanlands hefur lent í vandræðum frá því í gærkvöldi vegna hálku á þjóðvegum. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki er glærahálka og hafa bílar verið að fljúga út af. Þá hefur snjóað mikið og er nú tíu til fimmtán sentímetra jafnfallinn snjór í Skagafirði. 25.9.2005 00:01
Enn pólitískar þreifingar í Noregi Verkamannaflokkurinn í Noregi ætlar að hefja stjórnarmyndunarviðræður við Sósíalistaflokkinn og Miðflokkinn. Síðarnefndu tveir flokkarnir fengu áttatíu og sjö þingsæti í þingkosningunum en á norska þinginu sitja eitt hundrað sextíu og níu þingmenn. 25.9.2005 00:01
200 handteknir á Vesturbakkanum Ísraelar handtóku yfir tvö hundruð grunaða hryðjuverkamenn á Vesturbakkanum í morgun og vöruðu Palestínumenn við harkalegum hefndaraðgerðum vegna eldflaugaárása frá Gaza-svæðinu. Tvær vikur eru liðnar frá því Ísraelar fluttu landnemabyggðir og alla hermenn sína frá Gaza. 25.9.2005 00:01
Sigraði á sterku alþjóðlegu móti Skákmaðurinn Róbert Harðarson sigraði í gær á sterku alþjóðlegu skákmóti í Ungverjalandi og náði jafnframt áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. 25.9.2005 00:01
Atlantsolía færir út kvíarnar Fyrsta skóflustungan að nýrri bensínstöð Atlantsolíu verður tekin í dag að Bíldshöfða 20 á lóð Húsgagnahallarinnar. Áætlaður byggingatími stöðvarinnar er rúmir tveir mánuðir. Í fyrsta sinn á Íslandi notaðar sérhannaðar forsteyptar einingar undir beníndælur sem eykur hagkvæmni og flýtir byggingatíma. 25.9.2005 00:01
ETA grunuð um bílsprengingu Bílsprengja sprakk á iðnarsvæði í Avila-héraði á Norður-Spáni í gærkvöld. Enginn særðist í sprengingunni en viðvörun barst tveimur dagblöðum um hálftíma áður en sprengingin átti sér stað. Talið er að ETA, hin herskáu aðskilnaðarsamtök Baska, hafi staðið fyrir ódæðinu. 25.9.2005 00:01
Fjögur verk eignuð Rembrandt Fjögur málverk, sem hingað til voru talin hafa verið máluð af börnum hollenska listmálarans Rembrandts, hafa nú verið eignuð honum sjálfum. Hið sanna kom í ljós þegar verið var að undirbúa sýningu með verkum Rembrandts í Amsterdam. 25.9.2005 00:01
Bruni í bát í Grindavík Tilkynnt var um reyk sem kom frá bátnum Sigurvin er lá í höfninni í Grindavík um hálfeittleytið í nótt. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Keflavík hafði kabyssa í lúgar bátsins ofhitnað og lagði talsverðan reyk frá henni. 25.9.2005 00:01
Úrslitaáhrif fjármálaráðherra? Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og Jónína Benediktsdóttir sendu gögn varðandi Baug sem þau höfðu fengið frá Jóni Geraldi Sullenberger til tollstjórans í Reykjavík og til skattrannsóknarstjóra. Hann aðhafðist ekki frekar, en svo er að sjá sem Styrmir hafi búist við að fjármálaráðherra hefði úrslitaáhrif á það hvort farið yrði í skattrannsókn. 25.9.2005 00:01
Þjófnaður á póstinum verður kærður Jónína Benediktsdóttir segir að þjófnaður á persónulegum tölvupósti hennar verði kærður til lögreglu í dag. Fyrirtækið Og Vodafone hýsi tölvupóst hennar en hún kunni engar skýringar á því hvernig hann komst í hendur fjölmiðla. 25.9.2005 00:01
Herinn má beita stórskotaliði Ríkisstjórn Ísraels hefur gefið hernum heimild til þess að beita stórskotaliði til þess að stöðva eldflaugaárásir Palestínumanna frá Gaza-svæðinu. Þess eru varla fordæmi að ríkisstjórn hafi gefið leyfi til þess að beita stórskotaliði nánast innan eigin landamæra. 25.9.2005 00:01
Alhvít jörð fyrir norðan og vestan Jörð er nú alhvít á Norðurlandi og flughált á götum í byggð sem og á þjóðvegum. Fyrsti alvöru snjórinn féll í gærkvöld og í nótt og er nú 5-10 sentímetra jafnfallinn snjór á Akureyri. Á norðanverðum Vestfjörðum er einnig alhvít jörð. 25.9.2005 00:01
Engin tímatafla um brottflutning Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur hafnað kröfum um að setja tímatöflu um brottflutning breskra hermanna frá Írak. Vaxandi mannfall í breskum hersveitum í Írak hefur vakið upp nýja mótmælaöldu í Bretlandi. 25.9.2005 00:01
Vegurinn um Víkurskarð lokaður Bílar hafa verið að festast á veginum um Víkurskarð í dag og vill lögreglan á Akureyri koma því á framfæri að veginum hefur verið lokað vegna færðarinnar en verður hugsanlega opnaður síðar í dag. Veghefill er á leiðinni þangað til að ryðja veginn. 25.9.2005 00:01
Líbönsk sjónvarpskona særðist Líbönsk sjónvarpskona særðist mjög alvarlega þegar sprengja sprakk í bifreið hennar skammt norður af Beirút í dag. Konan var flutt í skyndi á sjúkrahús en ekki liggur fyrir hvort hún sé í lífshættu. 25.9.2005 00:01
Eldur varð laus í Grafarholti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt fyrir klukkan eitt í dag vegna elds í timbri og plastgeymum við byggingarsvæði í Grafarholti. Mikinn svartan reyk lagði frá eldinum og höfðu íbúar í nágrenninu áður reynt að slökkva hann en án árangurs. 25.9.2005 00:01
Ræddi við Ingibjörgu og Stefán Jón Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, staðfesti við fréttastofuna í dag að Jónína Benediktsdóttir hafi sagt sér miður fagrar sögur af forsvarsmönnum Baugs, líkt og Jónína greindi frá í hádegisfréttum Bylgjunnar, og að Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi hafi einnig verið viðstaddur. 25.9.2005 00:01
Vísar fullyrðingum Jónínu á bug Og Vodafone vísar fullyrðingum Jónínu Benediktsdóttur, sem fram komu í hádegisfréttum Bylgjunnar um meðferð á tölvupósti, alfarið á bug. Hún hafi með orðum sínum vegið harkalega að fyrirtækinu með ómaklegum hætti, auk þess sem hún ásaki starfsmenn fyrirtækisins um brot á lögum. Fyrirtækið muni því skoða réttarstöðu sína og starfsmanna frekar. </font /></font /> 25.9.2005 00:01
Vopnahléinu lokið? Vopnahlé Ísraelsmanna og Palestínumanna, sem staðið hefur frá því snemma á þessu ári, virðist endalega vera að líða undir lok. Tveir Palestínumenn létust nú síðdegis í loftárás ísraelska hersins á bifreið sem þeir voru í. Fjórir eru sárir að sögn vitna. 25.9.2005 00:01
Formaðurinn veitti ekki viðtal Stefán Pétur Eggertsson, formaður stjórnar Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, vildi ekki veita fréttastofu Stöðvar 2 viðtal þegar eftir því var leitað í dag en hann sagðist telja að Styrmir Gunnarsson ritstjóri nyti fyllsta trausts stjórnarinnar. 25.9.2005 00:01
Bárust frá nafnlausum sendanda Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, segir að tölvubréfin sem blaðið hafi byggt umfjöllun sína um helgina á hafi borist honum frá nafnlausum sendanda. Hann hafi rætt við lögmenn blaðsins og í framhaldi af því tekið ákvörðun um að birta fréttirnar. 25.9.2005 00:01
Breytir líklega ekki neinu Jóhannes Jónsson, einn eigenda Baugs og sakborningur í Baugsmálinu, segir að fréttir helgarinnar hafi fært honum heim sanninn um að rætur Baugsmálsins séu pólitískar. Hann er þó ekki viss um að þetta breyti neinu fyrir framvindu málsins. 25.9.2005 00:01
Ríta: 500 milljarða tjón Talið er að fellibylurinn Ríta hafi valdið um fimm hundruð milljarða króna tjóni í suðurríkjum Bandaríkjanna. En þótt tjónið sé mikið létti mönnum við það að ekki urðu miklar skemmdir á olíuhreinsunarstöðvum og öðrum tengdum mannvirkjum. 25.9.2005 00:01
Elliðaárdal sökkt árlega Hluta Elliðaárdals var sökkt undir vatn í vikunni. Þetta gerist reyndar á hverju hausti þegar virkjunin í dalnum er ræst til raforkuframleiðslu. Það er hins vegar engin umræða hjá borgaryfirvöldum um að leggja af virkjunina. 25.9.2005 00:01
Íþróttamót múslimakvenna í Íran Alþjóðlegt íþróttamót múslimakvenna hófst í Íran um helgina. Íþróttakonur frá Bandaríkjunum taka nú þátt í fyrsta sinn og eru snyrtilega klæddar, eins og stallsystur þeirra. 25.9.2005 00:01
Afvopnun IRA lokið Alþjóðlegir vopnaeftirlitsmenn munu í dag tilkynna að þeir hafi fylgt eftir til fullnustu afvopnun Írska lýðveldishersins. Að afvopnun hinna herskáu samtaka, sem hafa verið burðarásinn í vopnaðri baráttu lýðveldissinna gegn breskum yfirráðum á Norður-Írlandi, sé sannreynd er mikill áfangi í friðarferlinu sem hófst fyrir tólf árum. 25.9.2005 00:01
Milljónir sem flúðu Ritu snúa heim Ríkisstjórar Texas og Louisiana flugu í gær hvor fyrir sig yfir svæðin sem verst urðu úti af völdum fellibylsins Ritu um helgina. Björgunarsveitarmenn í Suður-Louisiana leituðu hundruða íbúa á svæðinu sem talið var að væru innlyksa í kaffærðum húsum. Allt að þrjár milljónir manna, sem flúið höfðu undan fellibylnum, streymdu til síns heima í gær. 25.9.2005 00:01
Bölvun fyrir Palestínumenn Óformlegt vopnahlé Ísraela og Hamas-samtakanna er í hættu eftir að samtökin skutu eldflaugum á Ísrael og þeim árásum var svarað af mikilli hörku. Varaforsætisráðherra Ísraels, Shimon Peres, segir Hamas-samtökin bölvun fyrir Palestínumenn, ógnun við friðinn og vandamál fyrir Ísraelsmenn. 25.9.2005 00:01
Hægriflokkar sigra í Póllandi Fyrstu tölur í þingkosningunum sem fram fóru í Póllandi í gær bentu til að spár gengju eftir um afgerandi sigur tveggja hægriflokka, sem hafa boðað stjórnarsamstarf. Vinstriflokkarnir, sem sigruðu stórt í síðustu þingkosningum fyrir fjórum árum, biðu afhroð. 25.9.2005 00:01
Skotbardagi við herskáa sjíta Byssumenn hollir herskáa sjíaklerknum Muqtada al-Sadr veittu íröskum hermönnum á eftirlitsferð fyrirsát í austurhluta Bagdad í gærmorgun. Bandarískir hermenn komu til liðs við þá írösku í skotbardaga sem stóð í einn og hálfan tíma. Um átta árásarmannanna voru felldir. 25.9.2005 00:01
Pólverjar kjósa á Íslandi Pólverjar búsettir á Íslandi höfðu kost á að kjósa í utankjörstaðakosningu í Alþjóðahúsinu vegna pólsku þingkosninganna. Af þeim rúmlega 2000 Pólverjum sem búsettir eru hérlendis höfðu 53 skráð sig á kjörskrá. Kjörsóknin var góð eða rúmlega 81prósent. 25.9.2005 00:01
Sviss opnar fyrir frjálsa för Svisslendingar samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær að borgurum hinna tíu nýju aðildarríkja Evrópusambandsins yrði heimilt að leita sér að vinnu í Sviss, samkvæmt sömu skilmálum og aðrir borgarar Evrópska efnahagssvæðisins njóta. 25.9.2005 00:01
Rannsóknarsetur á Bifröst Fyrsti fundur stjórnar Rannsóknarseturs vinnuréttar og jafnréttismála var haldinn á laugardag. Setrið starfar á grundvelli samstarfssamnings á milli félagsmálaráðherra og Viðskiptaháskólans. 25.9.2005 00:01
Cheney heim úr skurðaðgerð Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, haltraði út af sjúkrahúsi í Washington í gær, daginn eftir að hafa gengist undir skurðaðgerð þar sem æðagúlpar voru fjarlægðir úr hnésbótum hans. 25.9.2005 00:01
Reynt að myrða líbanska fréttakonu Þekktur fréttamaður líbanskrar sjónvarpsstöðvar sem er andsnúin sýrlenskum áhrifum í landinu særðist lífshættulega í gær er sprengja sprakk í bíl hans. Fórnarlambið, May Chidiac, er einn stjórnenda vinsæls stjórnmálaspjallþáttar á sjónvarpsstöðinni LBC. 25.9.2005 00:01
Þjóðminjasafnið tilnefnt Þjóðminjasafn Íslands hefur verið tilnefnt til Evrópsku safnaverðlaunanna árið 2006. Sextíu söfn víðs vegar um Evrópu eru tilnefnd og er Þjóðminjasafnið komið áfram í matsferli Evrópska safnaráðsins. 25.9.2005 00:01
Ný bensínstöð Atlantsolíu Skóflustunga var tekin að nýrri bensínstöð Atlantsolíu í gær. Þetta verður sjötta bensínstöð Atlantsolíu og er áætlað að hún verði opnuð innan þriggja mánaða. 25.9.2005 00:01
Gekk nakinn um göturnar Stjórnmálamaðurinn Keith Locke gaf kjósendum það vafasama kosningaloforð að hann myndi afklæðast og ganga nakinn um götur Auckland á Nýja-Sjálandi ef hann tapaði fyrir stjórnmálaandstæðingi sínum, Rodney Hide. Locke stóð við loforð sitt og brá á það ráð að klæðast eingöngu nærbuxum og láta mála líkama sinn eins og hann væri klæddur jakkafötum. </font /> 25.9.2005 00:01