Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samstarfi við Icelandair slitið Forstjóri SAS segir í viðtali við danska viðskiptablaðið <em>Börsen</em> í morgun að öllu samstarfi við Icelandair um flug innan Skandinavíu verði slitið ef FL Group, móðurfélag Icelandair, kaupi Sterling-flugfélagið. 15.9.2005 00:01
Sjö menn handteknir í Bretlandi Breska lögreglan réðst í morgun inn í nokkur íbúðarhús í London og Manchester og handtók sjö menn. Ekki hefur verið gefið upp fyrir hvað mennirnir voru handteknir en breskir fjölmiðlar ýja að því að þeir tengist hryðjuverkasamtökum. 15.9.2005 00:01
Slapp ótrúlega vel úr bílveltu Ökumaður jeppa slapp ótrúlega lítið meiddur þegar hann missti stjórn á jeppa sínum á Strandarheiði á Reykjanesbraut laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn valt út af veginum. Klippa þurfti manninn úr bílnum. 15.9.2005 00:01
Flugrisar nærri gjaldþroti Tvö af fjórum stærstu flugfélögum Bandaríkjanna fengu í gær greiðslustöðvun samkvæmt bandarískum lögum um gjaldþrot til að freista þess að vinna sig út úr fjárhagsörðugleikum og koma í veg fyrir gjaldþrot. 15.9.2005 00:01
Íslendingar með þeim stoltustu Íslendingar, Austurríkismenn og Lúxemborgarar eru lang stoltastir Evrópubúa af þjóðerni sínu samkvæmt könnum sem Gallup vann í tuttugu og þremur Evrópulöndum fyrir breska ríkisútvarpið, BBC. 15.9.2005 00:01
50 þúsund manns án rafmagns Fellibylurinn Ófelía skall á Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í gærkvöldi og hefur þegar valdið töluverðum usla. Fimmtíu þúsund manns eru án rafmagns á svæðinu, mörgum skólum hefur þegar verið lokað og fjöldi fólks hefur þurft að yfirgefa heimili sín. 15.9.2005 00:01
Vélhjóli ekið á 13 ára pilt Þrettán ára piltur hlaut opið fótbrot þegar jafnaldri hans ók á hann á vélhjóli við sveitabæ í Rangárvallasýslu í gær. Þrír jafnaldrar höfðu verið þar að leik á tveimur óskráðum vélhjólum, og að sjálfsögðu réttindalausir, sem endaði með þessum hætti. 15.9.2005 00:01
Írak: Meira en 20 látnir í morgun Meira en tuttugu manns biðu bana og aðrir tuttugu særðust í sjálfsmorðsárás í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Flestir þeirra sem létust voru lögreglumenn. Tilræðismaðurinn keyrði bíl hlöðnum sprengiefni inn í hlið lítils flutningabíls sem í voru lögreglumenn. 15.9.2005 00:01
Leitað á saklausum nemendum Lögreglumenn og fíkniefnahundur biðu á Akureyrarflugvelli þegar leiguflugvél, sem flutti væntanlega útskriftarnemendur Menntaskólans á Akureyri heim úr skemmtiferð frá Tyrklandi í gær, og var leit gerð á farþegum og í farangri. En ekki komust þeir í feitt í þetta sinn. 15.9.2005 00:01
Leiðtogarnir undirbúa samninga Margir leiðtoganna hundrað og fimmtíu, sem sækja afmælisfund Sameinuðu þjóðanna, hafa notað tækifærið til að undirbúa tvíhliða samninga um hin ýmsu málefni. Í gær funduðu til að mynda Pútín Rússlandsforseti og Jalal Talabani, forseti Íraks, og eins átti Ariel Sharon fund með Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. 15.9.2005 00:01
Milljónir á leyndum reikningum Evrópskir vopnaframleiðendur lögðu milljónir dollara inn á leynilega bankareikninga sem Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, hafði aðgang að. Þetta hefur komið fram í rannsókn á fjárreiðum einræðisherrans sem nú stendur yfir. 15.9.2005 00:01
Olíuríki auka framleiðslu sína Samtök olíuframleiðsluríkja hafa lofað að auka framleiðslu sína um fimm hundruð þúsund föt á dag til þess að mæta aukinni eftirspurn eftir olíu. Ólíklegt er þó talið að þetta verði til þess að lækka heimsmarkaðsverðið að einhverju ráði. 15.9.2005 00:01
Höfuðborg án skuldbindinga Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að flestir borgarfulltrúar í Reykjavík álíti að borgin sé höfuðborg án skuldbindinga. Þetta kemur fram í nýjum pistli sem hann skrifar á heimasíðu sinni. 15.9.2005 00:01
Aðrar kosningar í Þýskalandi? Verða kosningar strax að loknum kosningunum í Þýskalandi? Það er meðal þess sem þarlendir stjórnmálamenn velta fyrir sér enda bendir flest til þess að niðurstöður kosninganna næstkomandi sunnudag verði einmitt þær sem enginn þeirra vill sjá. 15.9.2005 00:01
Lögregla gefur ekkert upp Lögregla hefur yfirheyrt þá sem komust lífs af úr sjóslysinu á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugardags. Lögreglan vill þó ekkert gefa út um ástæður eða aðdraganda slyssins þar sem rannsókn er enn í fullum gangi. 15.9.2005 00:01
Höfða mál gegn olíufélögunum Útgerðarmenn eru farnir að undirbúa málshöfðanir gegn olíufélögunum vegna taps sem þeir telja sig hafa orðið fyrir vegna samráðs olíufélaganna. 15.9.2005 00:01
Snyrtivörur unnar úr líkum fanga Snyrtivörur með kollageni, sem unnið er úr líkum kínverskra fanga, eru seldar í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta er fullyrt í breska dagblaðinu <em>Guardian</em>. 15.9.2005 00:01
Of seint að hætta við framboðið Formaður Frjálslynda flokksins segir réttast að hætta við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Formenn Samfylkingar og Vinstri - grænna telja hins vegar of seint að hætta við. 15.9.2005 00:01
Bygging múrsins lögleg Hæstiréttur Ísraels hefur fellt þann úrskurð að bygging hins umdeilda varnarmúrs sé að hluta til ólögleg og að breyta verði legu hans á nokkrum stöðum. Ríkisstjórn landsins segir að múrinn sé nauðsynlegur til þess að hindra að hryðjuverkamenn geri árásir í borgum landsins. 15.9.2005 00:01
Leikskólabörn send heim Útlit er fyrir að senda þurfi allt að fjörutíu leikskólabörn heim daglega af leikskólanum Rjúpnahæð í Kópavogi frá og með næstu mánaðamótum. Ekkert hefur gengið að ráða starfsmenn í lausar stöður og nokkrir starfsmenn láta af störfum um mánaðamótin. 15.9.2005 00:01
Tók nauðgun upp á myndsíma Tuttugu og þriggja ára Breti hefur verið dæmdur til fjórtán ára fangelsisvistar fyrir nauðgun. Hann tók nauðgunina upp á myndsíma og sendi vinum sínum upptökuna. Nauðgarinn barði fórnarlamb sitt illilega þannig að stúlkan kjálkabrotnaði á tveimur stöðum auk þess sem tveir fingur hennar brotnuðu. 15.9.2005 00:01
Allir andvígir sameiningu Allir bæjarfulltrúar í Sandgerði eru andvígir því að sveitarfélagið sameinist Reykjanesbæ og Garði. Þetta varð ljóst eftir bæjarstjórnarfund í gær. Kjósa á um sameiningu sveitarfélaganna áttunda október. 15.9.2005 00:01
Páfa boðið til Tyrklands Tyrkir hafa formlega boðið Benedikt XVI páfa í opinbera heimsókn á næsta ári. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem utanríkisráðuneyti Tyrklands sendi frá sér í dag. Þorri Tyrkja er múslimatrúar. 15.9.2005 00:01
Fæðingarorlofið verði 15 mánuðir Karl Petter Thorwaldsson, þingmaður á sænska þinginu, hefur lagt fram frumvarp þess efnis að fæðingarorlof sænskra foreldra verði samanlagt fimmtán mánuðir. Samkvæmt frumvarpinu myndi orlofið skiptast þannig að móðir fái fimm mánuði, faðir fimm og síðustu fimm mánuðunum geti foreldrarnir skipt á milli sín eins og þeir vilja. 15.9.2005 00:01
Ólafur Ragnar á ráðstefnu í BNA Ólafur Ragnar Grímsson forseti er farinn til Bandaríkjanna þar sem hann tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu sem Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur skipulagt. Á ráðstefnunni verður fjallað um nýjar leiðir í baráttunni gegn fátækt, hættu á loftslagsbreytingum og áhrif trúar í stjórnmálum svo nokkur mál séu nefnd. 15.9.2005 00:01
Kvenfélag nefnt eftir Maggnúsi Maggnús Víkingur Grímsson skrifar Magnúsarnafnið sitt með tveimur G-um. Hann hóf starfsævina í vélsmiðju í Þorlákshöfn en áformar nú að reisa millahverfi á Flúðum. </font /></b /> 15.9.2005 00:01
Lofar góðri stemningu Það heyrir til tíðinda þegar þekktar hljómsveitir koma saman á ný eftir hlé og því má það teljast stórfrétt að Skriðjöklar frá Akureyri ætli að leika á Players í Kópavogi annað kvöld. 15.9.2005 00:01
Ný rússnesk fréttasjónvarpsstöð Ný rússnesk fréttasjónvarpsstöð hóf tilraunaútsendingar í dag. Sjónvarpsstöðin, sem sendir út allan sólarhringinn, er þó ekki send út á rússnesku heldur á ensku. Ástæðan er sú að henni er ætlað að bæta orðspor Rússlands á alþjóðavettvangi. 15.9.2005 00:01
Leikskólakennarar áhyggjufullir Stjórn félags leikskólakennara lýsir miklum áhyggjum af stöðu mála í leikskólanum Rjúpnahæð í Kópavogi. Útlit er fyrir að senda þurfi á fimmta tug leikskólabarna heim á hverjum degi frá og með næstu mánaðamótum því ekkert hefur gengið að ráða starfsmenn í lausar stöður. 15.9.2005 00:01
Töluverð aukning í sölu nautakjöts Í ágúst. varð töluverð söluaukning á nautakjöti miðað við sama tíma í fyrra og nam salan 281 tonnum miðað við 269 tonn á síðasta ári. Ef litið er til sölu síðustu tólf mánuði hefur orðið örlítil aukning í sölu miðað við sambærilegt tímabil árið á undan. 15.9.2005 00:01
Katrín: Fá að snúa heim Fyrirtækjaeigendur í franska hverfinu í New Orleans fá að huga að fyrirtækjum sínum um helgina og íbúar fá að snúa aftur til heimila sinna fljótlega eftir það. Ray Nagin, borgarstjóri í New Orleans, segir heimamenn reiðubúna að hefjast handa við enduruppbyggingu borgarinnar og takast á við lífið eftir fellibylinn Katrínu. 15.9.2005 00:01
Aukinn afli en minna verðmæti Heildarafli íslenskra skipa nam tæplega 83.000 tonnum í ágúst. Þetta er aukning um rúm 5.700 tonn frá ágúst í fyrra þegar aflinn nam 77.200 tonnum. Aflaverðmætið dróst hins vegar saman um 6,2% frá ágúst í fyrra. 15.9.2005 00:01
Meðvitundarlaus eftir vinnuslys Ökumaður stórrar vinnuvélar, svokallaðrar búkollu, var fluttur alvarlega slasaður á Landspítalann í Fossvogi eftir vinnuslys við Hellisheiðarvirkjun í dag. Ökumaðurinn var að bakka farartækinu upp brekku þegar eitthvað brast og búkollann rann um 300 metra niður brekkuna. 15.9.2005 00:01
Enn leitað eftir sjóslysið Enn leita björgunarmenn að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni sem er saknað eftir sjóslysið á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugardags. Leitað verður með neðansjávarmyndavél fram eftir kvöldi við slysstaðinn og í undirbúningi er stórleit á laugardaginn. 15.9.2005 00:01
Dóms að vænta vegna græns skyrs Næsta mánudag er dóms að vænta í máli Örnu Aspar Magnúsardóttur, en hún er ein þremenninganna sem slettu grænlituðu skyri á gesti álráðstefnu á hótel Nordica í sumar. Hún játar aðild sína en segir að ekki hafi vísvitandi verið slett á tæki eða húsmuni. 15.9.2005 00:01
Upplýst um aðdraganda sjóslyss Í dag ætlar lögregla að upplýsa um niðurstöður rannsóknar á slysi sem varð um síðustu helgi þegar skemmtibátur ók á Skarfasker á Viðeyjarsundi. Í slysinu fórst 51 árs gömul kona og 34 ára maður er talinn af, en lík hans hefur ekki enn fundist. 15.9.2005 00:01
Bænastund í stað hátíðar Stjórn smábátafélagsins Snarfara hefur fallið frá afmælishátíð í tilefni af 30 ára afmæli félagsins sem halda átti næsta sunnudag. Báturinn sem fórst á Viðeyjarsundi aðfararnótt síðasta laugardags var í félaginu og er félögum því frekar boðið til bænastundar í félagsheimili Snarfara. 15.9.2005 00:01
Sjítum sagt stríð á hendur Írakski hryðjuverkamaðurinn Al-Zarqawi hefur sagt sjítum stríð á hendur. Liðsmenn hans hafa myrt á annað hundrað þeirra á síðustu tveim sólarhringum. 15.9.2005 00:01
Fimm ráðuneyti án kvenna Af 222 forstöðumönnum ríkisins eru fimmtíu konur, jafnmargar og í febrúar 2004. Körlum hefur fækkað um þrjá. Engar konur eru forstöðumenn á vegum utanríkisráðuneytisins, landbúnaðarráðuneytisins, viðskiptaráðuneytisins, viðskiptaráðuneytisins og Hagstofu Íslands. 15.9.2005 00:01
Samningur samþykktur Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum á miðvikudag drög að samningi við Sigurjón Sighvatsson vegna Blind Pavilion. Samkvæmt samningnum verður verkið Blind Pavillion í Viðey næstu tvö árin. 15.9.2005 00:01
Fá úthlutað lóð í Vatnsmýrinni Borgarráð samþykkti í gær tillögu um að íslenska lyfjafyrirtækinu Invent Farma yrði úthlutað lóð í Vatnsmýrinni nálægt því svæði sem Háskólinn í Reykjavík hefur fengið úthlutað. Fyrirhugað er að Invent Farma setji þar upp rannsóknar- og þróunardeild. 15.9.2005 00:01
Héraðshöfðingjar strengja sín heit Forsætisráðherrar ellefu af sextán sambandslöndum Þýskalands, sem allir eru í flokki með Angelu Merkel, hétu því í gær að leggjast á eitt með henni, verði hún kanslari, við að koma nauðsynlegum efnahagsumbótaráðstöfunum í gegn um þingið. Tilgangurinn með yfirlýsingunni var að telja kjósendur á að kjósa stjórnarskipti í kosningunum á sunnudag. 15.9.2005 00:01
New Orleans að vakna af dvala Ray Nagin, borgarstjóri New Orleans, lýsti því yfir í gær að stórir hlutar borgarinnar yrðu opnaðir fyrir aðgangi íbúa í næstu viku. Gamli bærinn, Franska hverfið, yrði opnaður viku síðar. George W. Bush Bandaríkjaforseti var væntanlegur til New Orleans í gærkvöld til að flytja þaðan sjónvarpsávarp, það fyrsta frá því hamfarirnar dundu yfir. 15.9.2005 00:01
SÞ-umbætur andvana fæddar Vonir stóðu til að á sextugasta afmælisári Sameinuðu þjóðanna yrðu samþykktar víðtækar umbætur á stofnuninni. Ágreiningur um þær reyndist of mikill til að það tækist. 15.9.2005 00:01
Á móti sameiningu á Suðurnesjum Meirihluti bæjarstjórna Sandgerðis og Garðs leggst gegn því að sveitarfélögin verði sameinuð Reykjanesbæ í almennri atkvæðagreiðslu 8. október næstkomandi og hefur andstaðan verið samþykkt í báðum bæjarstjórnum. 15.9.2005 00:01
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent