Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kallaði Baugsfjölskyldu skítapakk Forstöðumaður svæðisstöðvar Ríkisútvarpsins á Suðurlandi, Sigmundur Sigurgeirsson, hefur á bloggsíðu sinni beðist afsökunnar á skrifum sínum þar sem hann var mjög orðljótur í garð Baugsfjölskyldunnar. Þar kallaði hann Jóhannes Jónsson og börn hans skítapakk og hét hann því að stíga aldrei fæti inn í verslanir þeirra í framtíðinni. 25.8.2005 00:01
Áhyggjur af manneklu á leikskólum Samþykkt var samhljóða á fundi borgarráðs, sem lauk eftir hádegi í dag, að hætta við að hækka leikskólagjöld hjá börnum námsmanna. Eins var rædd mannekla á leikskólum borgarinnar þar sem allir borgarfulltúrar lýstu yfir miklum áhyggjum yfir stöðunni. 25.8.2005 00:01
Reynt að ráða ráðherra af dögum Ibrahim Malsagov, forsætisráðherra Ingúsetíu í Suður-Rússlandi, særðist í dag þegar sprengja sprakk nærri bifreið hans í bænum Nazran í héraðinu. Einn lífvarða forsætisráðherrans lést í tilræðinu og þá særðust tveir til viðbótar. 25.8.2005 00:01
Sigurður formaður stjórnar ÞSÍ Utanríkisráðherra skipaði í dag Sigurð Helgason, fyrrverandi forstjóra Icelandair, formann stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands til fjögurra ára. Sigurður tekur við af Birni Inga Hrafnssyni, aðstoðarmanni forsætisráðherra, sem að eigin ósk hefur látið af því starfi. Þróunarsamvinnustofnunin var stofnuð með lögum árið 1981 og er ætlað að vinna að tvíhliða samstarfi Íslands við þróunarlönd. 25.8.2005 00:01
Lögreglumenn látast við leit Tveir egypskir lögreglumenn létust í dag þegar tvær jarðsprengjur sprungu á svæði á Sínaískaga þar sem lögregla leitar þeirra sem stóðu að sprengjutilræði í Sharm el-Sheikh í síðasta mánuði. Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem jarðsprengja springur á svæðinu en í gær skemmdist brynvarinn bíll og þrír lögreglumenn særðust í leit sinni að hryðjuverkamönnunum. 25.8.2005 00:01
Vilja áfram flug til Narsarsuaq Vestnorræna ráðið hvetur ríkisstjórnir Vestur-Norðurlanda til að tryggja nú þegar að nýr samningur verði gerður um flugsamgöngur milli Narsarsuaq og Reykjavíkur. Ráðið leggur jafnframt til að samningur um flugsamgöngur milli Narsarsuaq og Reykjavíkur verði gerður til fleiri ára, en núverandi samkomulag milli Grænlands og Íslands rennur út þann 31. desember 2005. 25.8.2005 00:01
Unnið að breytingum á gatnamótum Slökkt verður á umferðarljósum á gatnamótum Kringlumýrar- og Miklubrautar á sunnudaginn kemur frá kl. 8 um morguninn og fram eftir degi vegna breytinga á gatnamótnum. Þá verða ljósin einnig slökkt í um þrjá tíma eftir morgunumferð á mánudeginum vegna enduruppsetningar á stjórnbúnaði. Lögregla mun sjá um umferðarstjórn á gatnamótunum á meðan á þessu stendur en á meðan umferð er handstýrt verður lokað fyrir vinstribeygjustrauma. 25.8.2005 00:01
Lögfræðingur RÚV fer yfir skrif Markús Örn Antonsson útvarpssjóri segir lögfræðing stofnunarinnar fara yfir skrif Sigmundar Sigurgeirssonar, forstöðumanns svæðisútvarpsins á Suðurlandi, á bloggsíðu sína. Hann vildi að örðu leyti ekki tjá sig um skrif starfsmannsins. Sigmundur, sem starfað hefur við svæðisútvarpið um nokkurt skeið, hefur á bloggsíðu sinni beðist afsökunnar á skrifum sínum þar sem hann var mjög orðljótur í garð Baugsfjölskyldunnar. 25.8.2005 00:01
Ósáttir við skýrslu um reit Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru ósáttir við skýrslu innri endurskoðnar borgarinnar um lóðarkaup á Stjörnubíólóðinni og segja vinnubrögðin óvönduð. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir forsendur til grundvallar skýrslunni að miklu leyti rangar. Þar sé miðað við markaðsvirði lóðarinnar eins og það var árið 2003 en lóðin var keypt í júlí 2002, en húsnæðisverð hefur verið í örum vexti. 25.8.2005 00:01
Fundu 36 lík í skurði í Írak Lögreglan í Írak fann í dag lík af 36 mönnum sem teknir höfðu verið af lífi með skoti í höfuðið í skurði nærri bænum Kut. <em>BBC</em> hefur eftir talsmanni lögreglunnar að fólkið hafi verið á aldrinum 25-35 ára og hafði það allt verið handjárnað með hendur fyrir aftan bak. Þá bendir ástand líkanna til þess að það hafi verið drepið fyrir fjórum til fimm dögum. 25.8.2005 00:01
Kókabændur myrtir Skæruliðar myrtu að minnsta kosti fjórtán bændur, þrettán karla og eina konu, sem voru við að tína uppskeru af kókarunnum í Norðvestur-Kólumbíu í gær. Skæruliðarnir eru meðlimir í samtökum sem kalla sig Byltingarher Kólumbíu. 25.8.2005 00:01
Tilræði við ráðherra Tvær sprengjur sprungu við vegkant í borginni Nazran í múslimafylkinu Ingushetia í Rússlandi í gær þegar forsætisráðherra fylkisins var ekið hjá. Fylkið á landamæri að Téténíu. Bílstjóri forsætisráðherrans lést í tilræðinu og forsætisráðherran sjálfur ásamt tveimur öðrum slasaðist nokkuð við sprenginguna. 25.8.2005 00:01
Svíakóngur í árekstri Karl Gústaf Svíakonunungur lenti í árekstri á silfurlitaðri BMW-bifreið sinni í gær. Hann ók aftan á bláan Volvo utan við hamborgarastaðinn Max í miðborg Norrköping skömmu fyrir hádegið. 25.8.2005 00:01
Löglega boðað til kosninganna Hæstiréttur Þýskalands úrskurðaði í gær að fyrirhugaðar þingkosningar mættu fara fram 18. september eins og ráðgert hafði verið. Tveir þingmenn höfðu lagt fram kvörtun þar sem þeir efuðust um lögmæti þess hvernig Gerhard Schröder boðaði til kosninganna í sumar. 25.8.2005 00:01
Olíuverð hækkar enn Heimsmarkaðsverð á hráolíufatinu fór upp í 68 Bandaríkjadali í gær og hefur aldrei verið hærra. 25.8.2005 00:01
Gagnrýnir þátttöku í ráðstefnu Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir þátttöku stjórnarskrárnefndar í fyrirhugaðri ráðstefnu Lögfræðingafélags Íslands um þjóðaratkvæðagreiðslur. Ástæðuna segir hann vera að einungis sé gert ráð fyrir að kynnt verði viðhorf lögfræðinganefndar ríkisstjórnarinnar sem komið var á fót eftir að forseti synjaði fjölmiðlalögunum staðfestingar. 25.8.2005 00:01
Varað við gylliboðum í Karíbahaf Talsmaður neytenda varar Íslendinga við gylliboðum um ferðavinninga til Karíbahafsins sem birtast neytendum á Netinu og berast símleiðis. Norrænir neytendaumboðsmenn hafa sent bandaríska viðskiptaeftirlitinu sameiginlegt bréf vegna tíu fyrirtækja þar í landi sem náð hafa sambandi við neytendur á Norðurlöndum. 25.8.2005 00:01
Athuga ný flugvallarstæði Borgarráð fól í dag framkvæmdasviði borgarinnar og skipulags- og byggingarsviði að hafa forgöngu um athugun á styttingu núverandi flugbrauta í Vatnsmýrinni og hugsanlegum nýjum flugvallarstæðum í samvinnu við stýrihóp um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar. Tillaga þessa efnis var samþykkt einróma í borgarráði í dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá borgarstjórn. 25.8.2005 00:01
Hjón reisa 400 íbúða hverfi Mosfellsbær hefur gert samkomulag við eigendur landsins Leirvogstungu í Mosfellsbæ um uppbyggingu 400 íbúða næstu fjögur árin. Samningurinn er nýmæli því um einkaframkvæmd að öllu leyti er að ræða og uppbyggingin sveitarfélaginu alveg að kostnaðarlausu. 25.8.2005 00:01
Ofbeldisbrotum fækkar í miðbænum Skráðum ofbeldisverkum í miðborg Reykjavíkur fækkaði um 40 prósent frá árinu 2000 til loka ársins 2004 samkvæmt úttekt sem gerð var fyrir lögregluna í Reykjavík og kynnt var í gær. Þykir lögregluyfirvöldum þetta sýna að umtalsverður árangur hefur náðst og þakka það helst öryggismyndavélum og breyttum opnunartíma skemmti- og veitingastaða. 25.8.2005 00:01
Mestu dýraflutningar sögunnar Yfirvöld í Kenía hófu í dag að flytja 400 fíla af friðlýstu svæði í landinu við strendur Indlandshafs vegna plássleysis. Um 600 fílar eru í Shimba Hills á svæði sem aðeins ber 200 fíla, en fílarnir hafa að undanförnu valdið nokkrum búsifjum hjá bændum á svæðinu. Fílarnir eru fyrst svæfðir en ætlunin er að flytja eina fjölskyldu á dag á sérstyrktum vörubílum í Tsavo East þjóðgarðinn sem er sá stærsti í landinu. 25.8.2005 00:01
Takmarka innflutning litarefnis Umhverfisstofnun hefur takmarkað enn frekar innflutning á matvælum sem innihalda litarefnið súdan en það er talið krabbameinsvaldandi. 25.8.2005 00:01
Sakar lögfræðing um ærumeiðingar Fasteignasali í Reykjavík hefur kært lögfræðing Húseigendafélagsins til Ríkislögreglustjóra fyrir ærumeiðingar og brot á friðhelgi einkalífs. Kæran kemur í kjölfar kæru Húseigendafélagsins á hendur fasteignasalanum fyrir að misnota aðstöðu sína og selja syni sínum íbúð í Hlíðunum. 25.8.2005 00:01
Ekki treyst til að skrifa fréttir Yfirmenn frétta á Ríkisútvarpinu treysta ekki lengur forstöðumanni svæðisútvarpsins á Suðurlandi til að skrifa fréttir eftir að hann úthúðaði forsvarsmönnum Baugs og bankastjórum KB banka á bloggsíðu sinni. Lögfræðingur Ríkisútvarpsins er að fara yfir málið. 25.8.2005 00:01
Erlendir eftirlitsmenn í Noregi Norðmenn hafa boðið eftirlitsmönnum frá ýmsum ríkjum þar sem lýðræði hefur staðið völtum fótum til að fylgjast með framkvæmd norsku þingkosninganna. 25.8.2005 00:01
Vilja lækka álögurnar Áfengismál eru á meðal þess sem norskir stjórnmálamenn karpa um þegar rétt rúmur hálfur mánuður er til kosninga. 25.8.2005 00:01
Hefði getað farið verr Alls komust 58 manns lífs af úr flugslysinu í Perú í vikunni. Kraftaverki þykir ganga næst að ekki fór verr. 25.8.2005 00:01
Ójöfnuðurinn eykst stöðugt Ójöfnuður er meiri í heiminum í dag en fyrir áratug og stór hluti heimsbyggðarinnar er fastur í gildru fátæktar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. 25.8.2005 00:01
Úttekt nefndar SÞ fagnað "Mér líst mjög vel á skýrsluna," segir Margrét Steinarsdóttir lögfræðingur Alþjóðahússins. "Tillögur þær sem settar eru fram í skýrslunni eru að miklum hluta atriði sem Alþjóðahúsið hefur líka bent á." Hún segir skýrsluna almennt jákvæða í garð aðstæðna hér þótt þar séu birtar athugasemdir og tillögur að úrbótum hér á landi. 25.8.2005 00:01
Allt að 100 þúsund fyrir fermetra Hesthúsaeigendum í Glaðheimum hafa undanfarið verið boðnar 80.000 eða 100.000 krónur á fermetrann fyrir hesthús sín sem er hærra fermetraverð en fæst fyrir góð einbýlishús víða á landsbyggðinni, en til að mynda fæst jafnvel tvöfalt hærra verð fyrir hesthúsin en íbúðarhús í Vestmannaeyjum eða Höfn í Hornafirði. 25.8.2005 00:01
Karlmenn 85% prófessora Samkvæmt úttekt Hagstofu Íslands á starfsfólki á Háskólastiginu eru karlmenn afgerandi fjölmennari en konur í stöðum rektora, prófessora og dósenta og einnig eru þeir fjölmennari meðal aðjúnkta og stundakennara. Fleiri konur eru hins vegar lektorar og í sérfræðistörfum ýmiss konar. 25.8.2005 00:01
Flóðin eru heldur í rénun Flóðin í Mið-Evrópu sem hafa dregið í það minnsta 42 manns til dauða eru heldur í rénun. Í Bern, höfðuborg Sviss, þurfti aftur á móti að rýma fjölda húsa þegar áin Aare flæddi yfir bakka sína. 25.8.2005 00:01
Fjölgað í herliðinu í Írak Aukið verður við herafla Bandaríkjamanna í Írak á næstu mánuðum, þegar kosningar fara fram í landinu. George W. Bush Bandaríkjaforseti segir óðs manns æði að kalla herinn heim þar sem það muni bjóða hættunni á hryðjuverkum heim. 25.8.2005 00:01
Óljóst með stjórnarskrá Íraks Enn er ekki ljóst hvort samkomulag hafi náðst um stjórnarskrá Íraks. Fulltrúar sjíta og Kúrda voru búnir að koma sér saman um öll aðalatriði, þar á meðal að Írak skyldi verða sambandsríki. Súnnítar hafa hins vegar lýst því yfir að þeir muni aldrei samþykkja það fyrirkomulag svo stálin stinn hafa mæst undanfarna daga þar sem stjórnarskrárnefndin hefur reynt að ná samkomulagi. 25.8.2005 00:01
Fimm teknir af lífi Róstusamt hefur verið fyrir botni Miðjarðarhafs síðustu daga eftir að fimm manns voru skotnir á Vesturbakkanum. 25.8.2005 00:01
Enn er allt í hnút Ekkert varð af því að íraska þingið legði blessun sína yfir drög að framtíðarstjórnarskrá landsins í gær en þá rann frestur þess til þess út. Lík 36 Íraka fundust í gær en þeir voru teknir af lífi fyrir nokkrum árum. 25.8.2005 00:01
Anna stefnir á efsta sætið Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, mun að öllum líkindum bjóða sig fram í efsta sæti listans fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Verið er að safna liði í kringum hana til að fella Alfreð Þorsteinsson sem hefur verið oddviti flokksins í borgarstjórn til fjölda ára. 25.8.2005 00:01
Ofbeldisverkum í miðborg fækkar Ofbeldisverkum í miðborg Reykjavíkur hefur fækkað um 40 prósent frá árinu 2000 samkvæmt nýrri rannsókn. Stór hluti skýringarinnar er eftirlitsmyndavélar, frjáls afgreiðslutími skemmtistaða og það að ferðir næturvagna SVR voru aflagðar. 25.8.2005 00:01
Flóð á meginlandi Evrópu í rénun Flóðin í Mið- og Austur-Evrópu virðast loks í rénun. Að minnsta kosti fjörutíu og tveir hafa farist í hamförunum og eignatjón er gríðarlegt. 25.8.2005 00:01
Stefnir í neyðarástand Neyðarástand er að myndast á elliheimilum landsins vegna manneklu. Ástæðan er einföld. Launin eru of lág og leita menn í auknum mæli í önnur störf. Hjúkrunarforstjóri Eirar segir þörf á úrlausnum og það strax. 25.8.2005 00:01
Senda börn heim vegna manneklu Foreldrar barna í leikskólanum Klettaborg í Grafarvogi þurfa að vera með börnin sín heima tvo daga næstu tvær vikurnar sökum manneklu í leikskólanum. Leikskólastjórinn segist vita til þess að ástandið sé svipað í fleiri leikskólum. 25.8.2005 00:01
Einkafyrirtæki byggir hús og skóla Einkafyrirtæki mun, ef allt gengur eftir, byggja 400 íbúða hverfi í Mosfellsbæ. Það mun einnig leggja þar götur, byggja skóla og leikskóla. 25.8.2005 00:01
Sýndu fjölmiðlum þorp í N-Kóreu Norðurkóresk yfirvöld hafa hleypt fréttamönnum inn í þorp sem svo gott sem eyðilagðist í mikilli sprengingu í vor. 161 fórst og 8.000 heimili eyðilögust. 25.8.2005 00:01
Lítið gert við athugasemdum Svo virðist sem lítið sem ekkert sé að gert þótt Persónuvernd geri athugasemdir við notkun öryggismyndavéla. Til dæmis hefur lögreglan ekki gengið úr skugga um að búið sé að fjarlægja myndavél úr búningsklefa líkamsræktarstöðvarinnar World Class. 25.8.2005 00:01
Borgin leigir útilistaverk Semja á við Sigurjón Sighvatsson um að leigja listaverkið Blind Pavillion eftir Ólaf Elíasson til tveggja ára. Sigurjón hefur enn ekki keypt verkið, en ef úr verður fær hann milljón á ári. Á að bæta ímynd Viðeyjar segir formaður Menningarmálaráðs 25.8.2005 00:01