Anna stefnir á efsta sætið 25. ágúst 2005 00:01
Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, mun að öllum líkindum bjóða sig fram í efsta sæti listans fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Verið er að safna liði í kringum hana til að fella Alfreð Þorsteinsson sem hefur verið oddviti flokksins í borgarstjórn til fjölda ára. Atlaga að Alfreð Þorsteinssyni, oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavíkurborg, er í undirbúningi fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að fjöldi fólks vinni nú að því að safna liði í kringum Önnu Kristinsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, sem íhugar að gefa kost á sér í efsta sæti listans. Anna er talin einna líklegust til að geta sigrað Alfreð Þorsteinssyni, forseta borgarráðs. Alfreð hefur setið í borgarstjórn í fjölda ára og hefur leitt lista flokksins lengi í borginni. Alfreð vildi lítið tjá sig um málið þegar réttastofan hafði sambandi við hann og sagðist hann ekkert vita um málið eða hafa heyrt um það. Í ályktun sem stjórn félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík norður hefur sent frá sér eru stjórnir beggja kjördæmissambandanna í Reykjavík hvattar til að greiða leið ungs og hæfileikaríks fólks í Reykjavík sem sé tilbúið að axla þá ábyrgð að vera í forsvari fyrir framsóknarflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Ekki náðist í Önnu fyrir fréttir en hún er stödd erlendis.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira