Fleiri fréttir

Stöðumælarnir burt á Akureyri

Frá og með morgundeginum verður frítt að leggja bílum á Akureyri. Bæjaryfirvöld þar hafa ákveðið að treysta bæjarbúum til að virða tímamörk og stilla klukku í stað þess að borga í mæla. Þá verður skorin upp herör gegn ófötluðum sem leggja í stæði fyrir fatlaða.

Sláturhúsið aftur í gagnið

Verið er að leggja lokahönd á breytingar í sláturhúsinu í Búðardal. Dalaland, nýtt félag í eigu sveitarfélagsins hefur tekið við rekstri sláturhússins, en þar var ekkert slátrað síðasta haust. Ráðist var í breytingar á húsinu til að það fengi staðist ákvæði reglugerðar um sláturhús.

Haldnir til styrktar Björgu

Fjöldi tónlistarmanna kemur fram á tónleikum sem haldnir verða í Kerinu í Grímsnesi klukkan tvö á morgun til styrktar björgunarsveitinni Björg á Eyrarbakka. Röð báta á vatni sprengigígsins myndar svið fyrir listamennina, en gestir tylla sér í gróna hlíð Kersins.

Vilja skýrslu dregna til baka

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn gagnrýna skýrslu innri endurskoðunar borgarinnar um Stjörnubíósreitinn og telja borgarstjóra geta hafa pantað álit. Borgarstjóri segir þetta fordæmislausa árás á embættismann borgarinnar.</font /></b />

Reksturinn nálægt jafnvægi

79 milljóna króna halli var á rekstri Landspítala - háskólasjúkrahúss fyrstu sex mánuði ársins. Uppsafnaður rekstrarhalli fyrri ára gerir greiðslustöðu Landspítalans erfiða, að því er fram kemur í hálfsársuppgjöri spítalans. Fyrsta hálfsársuppgjör Landspítalans var birt í gær.

Hraðakstur við grunnskóla

Lögeglan í Keflavík hélt uppi eftirliti við grunnskóla á skólatíma í gær. Á Skólavegi voru fjórir kærðir fyrir hraðakstur þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Sá sem hraðast ók mældist á 70 kílómetra hraða.

Bandaríkjamanns leitað á hálendinu

Björgunarsveitir frá Höfn í Hornafirði og Egilsstöðum leituðu í nótt á hálendinu að bandarískum ferðamanni sem skilaði sér ekki til byggða á tilætluðum tíma. Að sögn lögreglu á Höfn var maðurinn á leið frá Snæfelli, en ætlaði að koma niður af hálendinu á Lónsöræfum við Illakamb um klukkan tvö í gær.

Sjúkraliðalaust á sumum vöktum

Svo mikill skortur er á fólki í umönnunarstörf að dæmi eru um að stofnanir sem sinna hjúkrun aldraðra geti ekki mannað allar vaktir sínar með sjúkraliðum, segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.

Bónuspakk og bankastjórahyski

Sigmundur Sigurgeirsson, svæðisstjóri Ríkisútvarpsins á Suðurlandi, vinnur ekki framar fréttir fyrir útvarpið vegna ummæla sem hann lét falla á bloggsíðu sinni, www.skeljafell.blogspot.com.

Skoða kosti hvers möguleika

Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar og skipulags- og byggingarsvið borgarinnar hefja á næstunni athugun á mögulegri styttingu flugbrauta Reykjavíkurflugvallar og hugsanlegum flutningi flugvallarins á aðra staði á höfuðborgarsvæðinu.

200 manns sagt upp á tveimur árum

Um 200 manns hefur verið sagt upp hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli á síðustu tveimur árum. Í gær var síðast tilkynnt um uppsagnir þrettán starfsmanna. Í <em>Víkurfréttum</em> kemur fram að ellefu starfsmannanna komi úr snjóruðningsdeild vallarins, en mjög hefur fækkað í þeirri deild að undanförnu vegna uppsagna.

37 látnir eftir flugslys í Perú

Að minnsta kosti 37 létu lífið þegar farþegaflugvél af gerðinni Boeing 737 brotlenti í frumskógi í Perú í gærkvöld. Þá slösuðust 57 manns í slysinu að sögn José Ortiz, samgönguráðherra Perú. Alls voru 100 farþegar um borð í vél flugfélagsins Tans auk átta manna áhafnar. Slysið varð skammt frá bænum Pucallpa en óveður skall á skömmu áður en flugvélin átti að lenda.

Má ekki breyta flaki í klakstöð

Ekki má breyta flaki Guðrúnar Gísladóttur í klakstöð, en talið var að verkefnið myndi kosta um 400 milljónir íslenskra króna næstu 5 árin. Fram kom í norska ríkisútvarpinu að sjávarútvegsráðuneytið þar í landi telji verkefnið of kostnaðarsamt. Það eru því allar líkur á því að flak Guðrúnar hvíli í votri gröf til frambúðar, en Guðrún sökk í júní 2002 eftir að það skeytti á skeri við Lófót í Norður-Noregi.

Skaut tíu ára systur sína

Móðir í Miami í Bandaríkjunum var í gær ákærð fyrir vanrækslu eftir að þriggja ára sonur hennar fann byssu á heimilinu og skaut 10 ára systur sína á mánudag. Stúlkan liggur nú á sjúkrahúsi og er í lífshættu.

Lausn Arons hugsanlega í sjónmáli

Lausn Arons Pálma Ágústssonar gæti verið í sjónmáli innan mjög skamms tíma, en nafn hans er að finna á lista yfir fanga sem löggjafarþing fylkisins hefur lagt til að verði látnir lausir. Verður listinn lagður fyrir ríkisstjórann til staðfestingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Einari S. Einarssyni, einum forsvarsmanna stuðningsnefndar Arons Pálma, en hópurinn hefur undanfarið unnið að framsali hans til Íslands.

Mikil flóð í Mið--Evrópu

Hundruð manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín í suðurhluta Þýskalands sem og í Austurríki og Sviss vegna flóða og hafa björgunarsveitir og herinn haft í nógu að snúast. Tala látinna vegna flóðanna í löndunum þremur er komin í sex en tveggja til viðbótar er saknað í Sviss. Úrhelli hefur verið í Ölpunum norðanverðum á síðustu dögum og hafa ár flætt yfir bakka sína.

Khodorkovskí í hungurverkfall

Rússinn Míkhaíl Khodorkovskí, stofnandi olíufyrirtækisins Yukos, hefur hafið mótmælasvelti til að vekja athygli á slæmri meðferð rússneskra fangelsisyfirvalda á viðskiptafélaga hans og honum sjálfum. Segja lögfræðingar Khodorkovskís hann hafa hvorki þegið vott né þurrt á síðustu dögum.

15 milljónasta plantan gróðursett

Fimmtán milljónasta Landgræðsluskógaplantan var gróðursett í Smalaholti í Garðabæ við norðanvert Vífilsstaðavatn í gær. Það var Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sem gróðursetti plöntuna, en í ár eru liðin 15 ár frá því Skógræktarfélag Íslands hóf mikið skógræktarverkefni undir heitinu Landgræðsluskógar í samvinnu við skógræktarfélög, sveitarfélög, Landgræðsluna og landbúnaðarráðuneytið.

Gerir lítið úr orðum Robertsons

Bandaríkjastjórn gerði í gærkvöld lítið úr ummælum sjónvarpsprédikarans Pats Robertsons sem hvatt hefur til að Hugo Chavez, forseti Venesúela, verði drepinn. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði ummæli Robertsons hafa verið óviðeigandi en hann væri óháður einstaklingur og skoðanir hans endurspegluðu ekki stefnu Bandaríkjanna.

Þrír ráðnir til LHÍ

Rektor Listaháskóla Íslands hefur ráðið þá Gunnar Kvaran sellóleikara, Kjartan Ólafsson tónskáld og Árna Heimi Ingólfsson tónlistarfræðing sem kennara við tónlistardeild háskólans. Gunnar verður prófessor í kammertónlist og strengjaleik, Kjartan verður prófessor í tónsmíðum og Árni Heimir dósent í tónlistarfræðum. Sérskipaðar dómnefndir fjölluðu um hæfi umsækjenda og var ráðning gerð á grundvelli mats þeirra.

Öfgamönnum vísað strax úr landi

Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands, hefur birt nýjar reglur um brottvísun einstaklinga sem ekki eru breskir ríkisborgarar og grunaðir eru um að hvetja til hryðjuverka. Þeir sem eru taldir ógna þjóðaröryggi með því að styðja hryðjuverkastarfsemi, vegsama hana eða upphefja með einhverju móti, geta nú átt von á því að verða sendir tafarlaust úr landi.

Toyota sakað um lífsstílsfasisma

Reykingamenn verða ekki ráðnir til starfa í verksmiðjum Toyota í Asker og Bærum í Noregi. Í heilsíðuauglýsingu frá fyrirtækinu í norskum blöðum þar sem auglýst er eftir starfsfólki er tekið fram að reykingamenn geti sleppt því að sækja um. Yfirmaður Toyota í Noregi segir þetta gert vegna þess að starfsrýmin séu mjög opin og þar eigi reykingamenn hreinlega ekki heima.

Gaf milljón til þurfandi í Níger

Laufey H. Helgadóttir, 82 ára Þingeyingur sem er búsett í Borgarnesi, gaf á dögunum eina milljón króna til hjálparstarfs Rauða krossins í Níger þar sem hungursneyð ríkir. Óttast er um afdrif allt að átta milljóna manna í Níger og nálægum löndum í Afríku ef ekkert er að gert, einkum vegna mikils næringarskorts meðal barna.

Játaði á sig morð við Hverfisgötu

Sá sem grunaður er um að hafa orðið ungum manni að bana í íbúð við Hverfisgötu á laugadagsmorgun hefur játað verknaðinn fyrir lögreglu.

Mannréttindasamtök lítt hrifin

Útlendingar sem eru taldir ógna þjóðaröryggi Breta með því að hvetja til hryðjuverka, vegsama þau eða upphefja með einhverju móti geta nú átt von á því að verða sendir tafarlaust úr landi, samkvæmt nýjum reglum sem Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands, birti í dag. Mannréttindasamtök eru ekki hrifin.

Píanómaðurinn sagður geðsjúkur

Píanómaðurinn svonefndi, sem fannst á gangi á strönd í Kent á Englandi fyrir fjórum mánuðum, á við geðsjúkdóm að stríða og gerði sér ekki upp sjúkdómseinkenni. Þetta segja lögmenn mannsins sem þagði í fjóra mánuði áður en hann rauf loks þögnina síðastliðinn föstudag og sagðist vera Þjóðverji. Hann var útskrifaður af geðsjúkrahúsi á Englandi og fór til Þýskalands á laugardag.

Jarðarbúar níu milljarðar 2050

Indverjar verða orðnir fleiri en Kínverjar árið 2050, samkvæmt nýjustu skýrslu Mannfjölgunarráðs, sem hefur rannsakað mannfjölgun í 75 ár. Nær öll fjölgun jarðarbúa næstu áratugina verður í þróunarríkjunum, en spáð er að mannkynið verði orðið níu milljarðar eftir 45 ár.

Opna þráðlaust net í Kringlunni

Stærsta þráðlausa netsvæði fyrir almenning var opnað nú í hádeginu í Kringlunni. Og Vodafone og Kringlan standa straum af kostnaði við þjónustuna sem nær yfir um 20 þúsund fermetra svæði. Netsvæðið nær yfir öll veitinga- og kaffihús svo og alla ganga Kringlunnar.

Átak gegn hundaskít í Búdapest

Borgaryfirvöld í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, ætla að eyða 65 milljónum króna í herferð til að draga úr hundaskít í borginni. Talið er að um 400 hundruð þúsund hundar séu í Búdapest og að þeir skilji eftir sig 14.600 tonn af hundaskít árlega. Mest af honum lendir á gangstéttum og í almenningsgörðum borgarinnar, vegfarendum til mikils ama og jafnvel heilsutjóns.

Segir símtal ekki tengjast morði

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir símtal til neyðarlínu tæpum klukkutíma fyrir morðið á Hverfisgötu á laugardagsmorgunn ekki tengjast morðinu eða þeim sem þar komu við sögu á nokkurn hátt.

Aron gæti komið í september

Líklegt þykir að Aroni Pálma Ágústssyni verði sleppt úr fangelsi í Texas á næstunni. Þing Texas hefur samþykkt lausnarbeiðnina sem bíður nú undirskriftar ríkisstjórans. Ef allt gengur að óskum kemur Aron Pálmi til Íslands í september.

Allnokkrir ótryggðir og óskoðaðir

Það er nokkuð algengt að í umferðinni séu ökutæki sem eru hvorki tryggð né hafa farið í gegnum skoðun. Þetta segir upplýsingafulltrúi Umferðarstofu.

Ekki kunnugt um frekari uppsagnir

Um tvö hundruð manns hefur verið sagt upp stöfum hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli á síðustu tveimur árum. Þrettán starfsmönnum flugþjónustudeildar verður sagt upp um mánaðamótin og taka starfsmenn flughersins við þeirra störfum. Upplýsingafulltrúi varnarliðsins segir að sér sé ekki kunnugt um frekari uppsagnir hjá varnarliðinu.

Stóriðja nýti 80% af raforku 2009

Raforkunotkun til stóriðju á næstu árum mun aukast um 7.300 gígavattsstundir og vera um 80 prósent af allri raforkunotkun á landinu árið 2009. Þetta kemur fram í nýrri raforkuspá Orkustofnunar en slík spá var síðast gefin út árið 1997. Spá um almenna notkun hefur staðist vel á undaförnum árum en þó hefur notkunin allra síðustu ár aukist heldur hraðar en ráð var fyrir gert enda hefur hagvöxtur verið mun meiri en búist var við í síðustu spá.

Borgin tryggi starfsfólk í umönnun

Stjórn Vinstri - grænna í Reykjavík skorar á borgaryfirvöld að meta umönnunarstörf í verki og tryggja að starfsfólk fáist til þeirra starfa. Lýsa vinstri - grænir yfir áhyggjum af ástandi sem skapast hefur á frístundarheimilum og leikskólum borgarinnar vegna manneklu.

Vakta staði vegna hættu á eitrun

Hafin er vöktun á nokkrum stöðum við landið vegna svifþörunga sem geta valdið skelfiskseitrun. Vinsældir skelfisks hafa farið vaxandi á undanförunum árum og er hann ræktaður á nokkrum stöðum. Eins er algengt að fólk tíni sér krækling til matar í fjöru en það getur verið hættulegt.

Nýr formaður Vestnorræna ráðsins

Henrik Old, þingmaður á færeyska lögþinginu, var í gær kosinn nýr formaður Vestnorræna ráðsins á fundi þess sem fram fer á Ísafirði og lýkur í dag. Old tekur við formannsstarfinu af Birgi Ármannssyni þingmanni.

RÚV fari ekki af auglýsingamarkaði

Samband íslenskra auglýsenda er andsnúið þeirri hugmynd að RÚV hvefi af auglýsingamarkaði. Bendir sambandið á að Ríkisútvarpið og sjónvarpið séu öflugir miðlar sem höfða til stór hóps neytenda. Því sé hugmyndin andstæð hagsmunum bæði auglýsenda og neytenda.

Fleiri farast í flóðum í Rúmeníu

Sjö hafa fundist látnir og átta er saknað eftir mikil flóð í Mið-Rúmeníu í gærkvöld. Rúmenar hafa ekki farið varhluta af mikilli úrkomu í Mið- og Austur-Evrópu síðustu daga en úrkoman hefur leitt til þess að ár hafa flætt yfir bakka sína og ætt yfir bæi og borgir með tilheyrandi mann- og eignatjóni.

Vilja prófkjör 4. og 5. nóvember

Á fundi stjórnar Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í dag, var lögð fram tillaga um að prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík verði haldin 4. til 5. nóvember næstkomandi.

Segja sóknarfæri í Rússlandi

Uppbygging stórmarkaða í Rússlandi er ónýtt tækifæri í útflutningi til Rússlands að því er fram kemur á síðunni <em>interseafood.com</em>. Rússar eru sólgnir í síld og eru duglegir við vöruþróun síldarafurða. Norðmenn telja að um gríðarleg tækifæri sé að ræða á þessum markaði. Þar sé stórmörkuðum að fjölga og eru nú þegar orðnir áberandi í Moskvu og Pétursborg, en að auki séu ellefu milljónaborgir til viðbótar í landinu.

Áfram í gæsluvarðhaldi

Lögreglan í Kópavogi hefur farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Phu Tién Nguyen sem handtekinn var í vor grunaður um morðið á Vu Van Phong í íbúð þess síðarnefnda þann 17. maí.

Svarar Campbell vegna hvalveiða

Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur sent Ian Campell, umhverfisráðherra Ástralíu, bréf þar sem hann fræðir hann um nokkrar staðreyndir hrefnuveiða. Ástæðan er bréf sem Campell sendi Árna þar sem hann hnýtti í vísindaveiðar Íslendinga og sagði þær óþarfar. Í svarbréfinu upplýsir Árni Campell um stofnstærð hrefnunnar hér við land og bendir á að veiðarnar hafi engin áhrif þar á.

Björn bestur í hrútaþukli

Eftir harða keppni hrósaði Björn Þormóður Björnsson, bóndi og kjötmatsmaður á Ytra-Hóli í Vindhælishreppi, sigri á Meistaramótinu í hrútadómum í Sævangi á Ströndum á sunnudag. Hann hlaut meðal annars 15 skammta af hrútasæði í verðlaun. </font /></b />

Smygildi og skorðuð alhæfing

Nýtt Tölvuorðasafn, hið fjórða í röðinni, kom út í gær. Er það mikið að vöxtum og geymir 7.700 íslensk heiti og 8.500 ensk heiti á 6.500 hugtökum. Íslenskt Tölvuorðasafn kom fyrst út 1983 og voru í því tæp 1.000 íslensk heiti á um 700 hugtökum.

Sjá næstu 50 fréttir