Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hefur ekki áhrif á flug Sprengingarnar í Lundúnum hafa ekki áhrif á áætlunarflug Icelandair og Iceland Express. Hundruð Íslendinga eiga pantaða ferð með flugfélögunum til og frá Lundúnum í dag. 7.7.2005 00:01
Öryggisgæsla hert í Leifsstöð "Það er ekki hægt að segja að viðbúnaður hér hafi verið aukinn en það var skerpt á allri öryggisgæslu í kjölfar hryðjuverkanna í London," sagði Jóhann R. Benediktsson, Sýslumaður á Keflavíkurflugvelli. 7.7.2005 00:01
Björgunarskip kallað út Björgunarskipið Húnbjörg var kallað út ásamt Björgunarsveit Skagastrandar rúmlega fjögur í dag vegna trillu sem strandað hafði við Skagaströnd. Skipið var komið úr höfn nokkrum mínútum eftir útkallið og klukkan fimm var björgunarskipið komið á vettvang og bjargaði manninum frá borði. 7.7.2005 00:01
Hið minnsta 37 látnir Þrjátíu og sjö hið minnsta voru myrtir í hryðjuverkaárásunum í Lundúnum í dag. Tala þeirra sem fórust hefur verið mjög á reiki í dag. Reuters-fréttaþjónustan hefur heimildir fyrir því að fjörutíu og fimm hafi farist. 7.7.2005 00:01
Hóta Dönum og Ítölum sömu meðferð "Hin Leynilegu samtök heilags stríðs al-Kaida í Evrópu" sem lýst hafi sig ábyrg fyrir hryðjuverkunum í London í gær hafa hótað Dönum og Ítölum sömu örlögum styðji þessar þjóðir áfram við bakið á Bandaríkjamönnum í hernaði þeirra í Írak og Afganistan. 7.7.2005 00:01
50 látnir segir innanríkisráðherra Fimmtíu létust í árásunum í London að sögn innanríkisráðherra Bretlands, Charles Clarke. Þetta var haft eftir ráðherranum fyrir stundu. 7.7.2005 00:01
37 látnir; al-Qaida ábyrg Þrjátíu og sjö hið minnsta voru myrtir í hryðjuverkaárásum í Lundúnum í dag. Hópur tengdur al-Qaida kveðst bera ábyrgð á sjö sprengingum á fjórum stöðum í borginni. 7.7.2005 00:01
Taka árás með stillingu "Það er sérkennilegt að vera hér," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sem stödd er í London. "Það er mikil þögn yfir borginni og nánast engir bílar á ferli." 7.7.2005 00:01
Lýðræðisleg öfl hljóta að sigra "Við Íslendingar, eins og aðrar þjóðir fordæmum þessi grimmilegu hryðjuverk sem beinast gagnvart saklausum borgurum," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. 7.7.2005 00:01
Vilja listamiðstöð á Laugarvatni "Við höfum fundið fyrir miklum stuðningi við hugmyndir okkar um að hús Héraðsskólans á Laugarvatni verði gert að alþjóðlegri listamiðstöð," segir Alda Sigurðardóttir en hún fer fyrir hópi fólks sem hefur þetta að baráttumáli. 7.7.2005 00:01
Spyr um launamál borgarinnar "Ég vildi einfaldlega fá úr því skorið hvort laun þeirra sem nú eru titlaðir sem sviðstjórar hafi hækkað verulega við stjórnkerfisbreytingarnar þó svo að ábyrgðin eða umsvifin hafi ekki aukist í flestum tilfellum," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. 7.7.2005 00:01
Bænastund í Dómkirkjunni Boðað var til bænastundar í Dómkirkjunni klukkan átta í gærkvöldi vegna atburðanna í London. "Með þessu viljum við sýna vinarþjóð okkar samstöðu og þá sérstaklega fórnarlömbum þar í landi og ættingjum þeirra," segir Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur. 7.7.2005 00:01
Fögnuður varð að hryllingi Dagarnir sjötti og sjöundi júlí 2005 marka djúp spor í sögu Lundúnabúa, hvor með sínum hætti. Fyrri daginn ljómaði borgin af æstum fögnuði yfir því að hafa verið útnefnd til að hýsa Ólympíuleikana árið 2012, en morguninn eftir brast á hryllingur hryðjuverka með röð sprenginga í almenningssamgöngukerfi borgarinnar. 7.7.2005 00:01
Fánar í hálfa stöng í gær Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sendi í gær fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands samúðarskeyti til Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, vegna hryðjuverkanna í Lundúnum í gærmorgun. 7.7.2005 00:01
Forsetinn vottar samúð sína "Ég votta yður og bresku þjóðinni djúpa samúð mína, konu minnar og Íslendinga allra vegna hinna hræðilegu hryðjuverkaárása í London," segir í skeyti sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseta Íslands, sendi í gær til Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands og Elísabetar Bretadrottningar. 7.7.2005 00:01
Dæmdur fyrir flöskubrot Maður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að berja annan í höfuðið með flösku fyrir utan Félagsheimili Húsavíkur aðfararnótt sunnudagsins 6. júní í fyrra. Flaskan brotnaði og skarst sá nokkuð sem fyrir högginu varð. Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum, fullur og æstur. 7.7.2005 00:01
Öll heimili tengd árið 2011 Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur hafa skrifað undir samning um að ljósleiðaravæðingu allra heimila borgarinnar ljúki árið 2011. Sambærilegir samningar hafa verið gerðir við Akraneskaupstað og Seltjarnarnes. 7.7.2005 00:01
Veikur af vosbúð við Kárahnjúka "Minn maður liggur fárveikur eftir kulda og vosbúð á Kárahnjúkum," sagði Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Ólafs Páls Sigurðssonar, þegar gerð var tilraun til að þingfesta mál á hendur honum fyrir að sprauta grænu skyri á gesti álráðstefnu á hótel Nordica í Reykjavík um miðjan júní. 7.7.2005 00:01
Máli flugskóla vísað frá Kærumáli Flugmálastjórnar á hendur forsvarsmanna flugskóla í Reykjavík frá í apríl í fyrra var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun vikunnar. Lögregla kærði stjórnarmann félagsins fyrir brot gegn loftferðalögum og almennum hegningarlögum. 7.7.2005 00:01
Kertaljós tendruð á Lækjartorgi Kertaljós voru tendruð á mótmælafundi Amnesty International við Lækjartorg klukkan fimm. Opinberar stofnanir flögguðu í hálfa stöng og íslenskir þjóðarleiðtogar sendu Bretum samúðarkveðjur í kjölfar atburðanna í dag. Fyrirbænastund verður í Dómkirkjunni í Reykjavík klukkan átta í kvöld. 7.7.2005 00:01
Árás á alþjóðasamfélagið Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var staddur í London í gærmorgun þegar hryðjuverkaárásirnar áttu sér stað. Hann segist þó hafa verið í nokkurri fjarlægð frá þeim stöðum þar sem sprengingarnar urðu og því hafi hann ekki orðið þeirra var fyrst í stað. 7.7.2005 00:01
Múslimar harma árásirnar Ahmed Sheikh, forseti félags múslima í London fordæmir árásirnar í London og segist óttast að múslimar þurfi að gjalda fyrir hryðjuverkin. Hann segist hafa mestar áhyggjur af konum sem bera höfuðslæður og mæltist til þess við alla múslima að þeir færu varlega næstu daga og létu lítið fyrir sér fara. 7.7.2005 00:01
Full samúðar "Maður verður óttalaga máttlaus og lítill þegar slíkt gengur á," segir Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. 7.7.2005 00:01
Fordæma árásirnar Hamid Karzai, forseti Afganistans, segir hryðjuverkin í Lundúnum viðurstyggileg og hneykslanleg. Hann segir það liggja fyrir að tilgangurinn hafi verið að myrða saklausa borgara og fordæmir árásirnar harðlega. 7.7.2005 00:01
Háannatími valinn fyrir árásirnar Á tæpri klukkustund tókst hryðjuverkamönnum að valda meiri glundroða í Lundúnum en dæmi eru um síðan frá stríðslokum. Sprengjur sprungu á fjórum stöðum og í það minnsta 38 manns týndu lífi. 7.7.2005 00:01
Stríð uppræta ekki hatur "Við fordæmum þetta auðvitað," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, aðspurður um viðbrögð við hryðjuverkaárásunum. 7.7.2005 00:01
Samstaða með fórnarlömbum Íslandsdeild Amnesty International efndi til stundar á Lækjartorgi í gær til að sýna fórnarlömbum hryðjuverkaárásana í Lundúnum samstöðu og samúð. 7.7.2005 00:01
Áfallahjálp í nauð Jóhann Thoroddsen sálfræðingur þekkir vel til þess ferlis sem fer í gang þegar veita þarf áfallahjálp. 7.7.2005 00:01
Vottar fjölskyldum látinna samúð Elísabet önnur Bretadrottning sendi frá sér tilkynningu í kjölfar hryðjuverkaárásanna í gærmorgun. 7.7.2005 00:01
Samfelld byggð á strandlínunni Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögur um breytingar á deiliskipulagi við Baróns- og Skuggareit við norðurströndina í Reykjavík. Eftir að byggingar hafa risið á þessum reitum er gert ráð fyrir að samfelld byggð myndist þegar litið er á strandlínuna frá Laugarnesi. 7.7.2005 00:01
Atburðarás dagsins Skelfing og ringulreið setti mark sitt á morguninn í London þar sem lengi vel var óljóst hvað væri um að vera. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2, rekur atburðarásina. 7.7.2005 00:01
Þrjátíu og átta biðu bana Mannskæðasta árás sem Lundúnabúar hafa orðið fyrir frá stríðslokum var gerð í gær. Fjögur sprengjutilræði voru framin á háannatíma í lestum og strætisvögnum borgarinnar. Að minnsta kosti 38 biðu bana og 700 slösuðust, sumir mjög alvarlega. 7.7.2005 00:01
Fullkomið öryggi útilokað Sérfræðingar í hryðjuverkavörnum segja að aldrei verði hægt að koma algjörlega í veg fyrir árásir á borð við þær sem gerðar voru á Lundúnir í gær. Vopna- og sprengiefnaleit á hverjum einasta farþega væri alltof kostnaðar- og tafsöm til að hún væri réttlætanleg. 7.7.2005 00:01
Stálinu stappað í þjóðina Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, stappaði stálinu í þjóð sína í gær og fullyrti að hún myndi hryðjuverkaárásirnar í Lundúnum ekki láta buga sig. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar hétu stuðningi sínum við ríkisstjórnina í þessum þrengingum. 7.7.2005 00:01
Beita skal öllum ráðum Jacques Chirac Frakklandsforseti og Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, voru sammála um að berjast yrði gegn hryðjuverkum með öllum tiltækum ráðum þegar þeir fordæmdu árásirnar í samtölum við fjölmiðla í gær. Þeir vottuðu bresku þjóðinni samúð sína. 7.7.2005 00:01
Skýrar andstæður George W. Bush Bandaríkjaforseti telur að andstæðurnar á milli þjóðarleiðtoganna í Gleneagles í Skotlandi og tilræðismannanna í New York gætu ekki verið skarpari. 7.7.2005 00:01
Vestræn ríki eru ósamstiga Vladimir Pútín, forseti Rússlands, telur að árásirnar á Lundúnir í gær sýni að ríki heims séu ósamstíga og illa undir það búin að glíma við hryðjuverkaógnina. 7.7.2005 00:01
Handahófskennt fjöldamorð Ken Livingstone, borgarstjóri Lundúnaborgar, segir árásirnar í Lundúnum handahófskennt fjöldamorð hryðjuverkamanna. 7.7.2005 00:01
Sár og sorgmæddur Davíð Oddssyni utanríkisráðherra brá þegar hann heyrði að árás hefði verið gerð á Lundúnir. Hann fylgdist með fyrstu myndunum af atburðinum með bandaríska sendiherranum. 7.7.2005 00:01
Eyðileggja ekki lífsmáta okkar Hryðjuverkamenn fá ekki að eyðileggja lífsmáta okkar segir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. 7.7.2005 00:01
Eldur gaus upp í smárútu Sex menn sluppu ómeiddir þegar eldur gaus upp í smárútu á ferð á Sandskeiði um klukkan hálfsex í morgun. Ökumaður stöðvaði bílinn í skyndingu og stukku allir út. Farþegarnir náðu líka að bjarga farangri sínum en þeir voru á leið til útlanda með morgunfluginu. 6.7.2005 00:01
Dæmd fyrir kannabisrækt í haughúsi Þrír karlmenn og ein kona hafa verið dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellda kannabisrækt í haughúsi á sveitabæ á Suðurlandi. Kunnáttusamlega var staðið að verki og lagði lögregla meðal annars hald á tólf gróðurhúsalampa, hitablásara, flúorlampa, ljósaperur og ýmsan annan búnað til ræktunarinnar, að ónefndum 710 kannabisplöntum. 6.7.2005 00:01
Mótmælendur réðust á lögreglumenn Um þrjú hundruð mótmælendur réðust nú í morgunsárið á lögreglumenn nærri Gleneagles þar sem fundur leiðtoga G8-ríkjanna verður haldinn. Mótmælendurnir þrömmuðu um götur nærri fundarstaðnum og brutu rúður og létu öllum illum látum og létu svo til skarar skríða gegn lögreglumönnum, vopnaðir flöskum, steinum og járnstöngum. 6.7.2005 00:01
Fangelsaðir fyrir þagmælsku Opinber saksóknari í Bandaríkjunum mælist til þess að tveir blaðamenn verði fangelsaðir fyrir að neita að gefa upp heimildarmenn sína. Blaðamennirnir starfa fyrir <em>New York Times</em> og tímaritið<em> Time</em> og þeir neita að gefa upp heimildir sínar fyrir nafnbirtingu á starfsmanni leyniþjónustunnar. 6.7.2005 00:01
Fjórir hvalir í Keflavíkurhöfn Mikill bægslagangur er nú í höfninni í Keflavík þar sem þrjár hrefnur og einn hnúfubakur eru að næra sig og leika sér. Hvalirnir eru alls ófeimnir við umferð um bryggjuna en talið er að þeir séu meðal annars að éta síld. 6.7.2005 00:01