Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Um 30 flóttamenn til Reykjavíkur Allt að þrjátíu flóttamenn frá Kólumbíu eru væntanlegir hingað til lands síðla sumars eða í haust. Þeir munu væntanlega setjast að í Reykjavík, að sögn Bjarkar Vilhelmsdóttur formanns velferðarráðs Reykjavíkurborgar. 31.5.2005 00:01
Halldór: Hótaði aldrei stjórnarslitum Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir ýmislegt sem komið hefur fram í Fréttablaðinu að undanförnu um sölu bankanna ekki eiga sér neina stoð í raunveruleikanum. Í samtali við Talstöðina segir Halldór það vitleysu að hann hafi hótað stjórnarslitum vegna sölu VÍS til Samsonarfélaga. Davíð Oddsson hefði þurft að taka ákvörðun um slíkt. 31.5.2005 00:01
Húsnæði sérskóla til borgarinnar Reykjavíkurborg mun yfirtaka eignarhald á Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla, þar sem rekin er þjónusta við fötluð grunnskólabörn. 31.5.2005 00:01
Réttarhöldin handan við hornið? Jalal Talabani, forseti Íraks, telur að réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta landsins, geti líklega hafist innan tveggja mánaða. Saddam er ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu. Þetta kom fram í viðtali við Talabani á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN í dag. 31.5.2005 00:01
Bilun í netkerfi Landspítalans Bilun kom upp í netkerfi Landspítalans um hádegi í dag og hefur öll þjónusta spítalans á Netinu legið meira og minna niðri eða verið mjög hægvirk. Flest upplýsingakerfi Landspítalans hafa legið niðri en bilunin kom aðallega niður á símkerfinu; spítalinn var meira og minna símasambandslaus. 31.5.2005 00:01
Heiðarlegasti sendillinn Stefán Konráðsson sendill vekur athygli hvar sem hann fer. Hann þeysist hverfa á milli með bréf og böggla á silfurgráu hjólinu með aftanívagni. </font /></b /> 31.5.2005 00:01
Mira Markovic úr útlegð Yfirvöld í Serbíu ákváðu í dag að fella niður alþjóðalega handtökuskipun á Miru Markovic, eiginkonu Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, og heimila henni að snúa aftur til Serbíu eftir að hafa verið í útlegð í Rússlandi í tvö ár. 31.5.2005 00:01
Öllum í frystihúsinu sagt upp Öllum þrjátíu og tveimur starfsmönnum í frystihúsi Samherja á Stöðvarfirði verður sagt upp 1. september næstkomandi þegar Samherji hættir landvinnslu í bænum. 31.5.2005 00:01
Landvinnslu hætt á Stöðvarfirði "Við reynum að vinna í samstarfi við önnur sjávarútvegsfyrirtæki í bænum og á svæðunum í kring til að flestir fái önnur störf," segir Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja. 31.5.2005 00:01
140 milljónir í uppbyggingu vestra Skrifað verður undir vaxtarsamning Vestfjarða á Ísafirði í dag en honum er ætlað að styðja við bakið á uppbyggingu byggðakjarna á svæðinu. Verður það gert með því að styrkja sjálfbæran hagvöxt með markaðstengdum áherslum. 31.5.2005 00:01
Halldór á móti ljósmyndasýningunum Halldór Blöndal, forseti Alþingis, hefur sent Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra bréf þar sem hann gagnrýnir þá ákvörðun embættisins að heimila að þriðja árið í röð verði stillt upp fyrirferðamiklum og grófum steinstöplum á Austurvelli þar sem ljósmyndum verði komið fyrir. 31.5.2005 00:01
Deep Throat fundinn? Bandaríska tímaritið <em>Vanity Fair</em> greinir frá því að fyrrverandi leyniþjónustumaðurinn Mark Felt hafi sagt sig vera „Deep Throat“, manninn sem ljóstraði upp um Watergate-hneykslið til blaðsins <em>Washington Post</em> og varð til þess að Richard Nixon neyddist til að segja af sér sem forseti. 31.5.2005 00:01
Vilja minnka kolmunnaveiðar Sjávarútvegsráðherrar ríkja við norðaustanvert Atlantshaf vilja draga úr kolmunnaveiðum í Norður-Atlantshafi þegar á þessu ári. Þetta kom fram að loknum fundi þeirra í Færeyjum í gær. 31.5.2005 00:01
Vildi kynna sér fiskiðnað Indlandsforseti byrjaði gærdaginn á því að skoða frystitogara í Reykjavíkurhöfn. Einnig fundaði hann með Halldóri Ásgrímssyni, skoðaði Nesjavelli og tók sér far með vetnsisstrætisvagni. 31.5.2005 00:01
Barsebäck kjarnorkuverinu lokað Sænska kjarnorkuverinu Barsebäck var lokað á miðnætti í nótt samkvæmt áætlun stjórnvalda. Þar með lýkur 30 ára sögu þessa umdeilda kjarnorkuvers. 31.5.2005 00:01
Bæjarstjóraskipti í Kópavogi Bæjarstjóraskipti verða í Kópavogi í fyrramálið þegar Gunnar I. Birgisson tekur við embættinu af Hansínu Ástu Björgvinsdóttur en hún hefur gegnt starfinu frá því Sigurður Geirdal lést á síðasta ári. Hansína tekur við starfi formanns bæjarráðs sem Gunnar hefur gegnt samfellt frá árinu 1990. 31.5.2005 00:01
Svíar vilja þjóðaratkvæðagreiðslu Vinstri flokkurinn í Svíþjóð hótar því að hætta stuðningi við ríkisstjórn jafnaðarmanna verði ekki hætt við áform stjórnarinnar um að samþykkja stjórnarskrá Evrópusambandsins. 31.5.2005 00:01
Rökstuðningur ókominn Stjórn Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi er að ganga frá rökstuðningi fyrir ráðningu Guðjóns Guðmundssonar, fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í stöðu framkvæmdastjóra Dvalarheimilisins í byrjun mánaðarins. Guðjón var ráðinn með atkvæðum þriggja sjálfstæðismanna í stjórn dvalarheimilsins. 31.5.2005 00:01
Khodorkovskí í níu ára fangelsi Dómsuppkvaðningu yfir Mikhaíl Khodorkovskí, fyrrverandi forstjóra og aðaleiganda rússneska olíufyrirtækisins Yukos, var loks lokið í Moskvu í gær, tólf dögum eftir að hún hófst. Var hann dæmdur í níu ára fangelsi og greiðslu hárra sekta. Dómnum verður væntanlega áfrýjað en saksóknari undirbýr nýjar ákærur á hendur Khodorkovskí. 31.5.2005 00:01
Sex látnir úr hermannaveiki Sex eru nú látnir úr hermannaveikinni sem upp kom í Noregi fyrir skömmu. Staðfest hefur verið að banamein manns sem lést 19. maí á Austurvold-sjúkrahúsinu í Friðriksstað var hermannaveiki. 31.5.2005 00:01
Afsögn sveitarstjórans í Ossetíu Sveitarstjórinn í Ossetíu-héraði í Tsjetsjeníu sagði af sér í dag. Hann hafði legið undir miklu ámæli síðan síðastliðið haust eftir að 330 manns létust í gíslatöku í bænum Beslan sem staðsettur er í héraðinu. 31.5.2005 00:01
Áhugi á fríverslun við Indland Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og dr. Abdul Kamal Indlandsforseti funduðu í gær í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Á fundinum ræddu þeir um nauðsyn þess að finna leiðir til að auka viðskipti milli landanna og minntist Halldór á að áhugi væri fyrir því hér á landi að koma á fríverslun við Indland. Einnig var rætt um möguleg samstarfsverkefni í tengslum við lyfjaiðnað og sjávarútveg. Þá ræddu þeir um aukið samstarf milli vísindamanna, einkum jarðvísindamanna. 31.5.2005 00:01
Margir staðir komu til greina "Þarna varð að líta til margra þátta og margir aðrir staðir en Selfoss komu vel til greina," segir Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, en hann hefur ákveðið að fyrirhuguð Landbúnaðarstofnun, sem tekur til starfa á næsta ári, verði staðsett á Selfossi. 31.5.2005 00:01
Loftferðasamningur við Indland Samkomulag hefur náðst milli íslenskra og indverskra stjórnvalda um efni loftferðasamnings milli ríkjanna. 31.5.2005 00:01
Villepin í forsætisráðherrastól Jacques Chirac Frakklandsforseti skipaði í gær Dominique de Villepin í embætti forsætisráðherra og fól honum að fara fyrir nýrri ríkisstjórn. Með uppstokkuninni brást Chirac við niðurlægjandi ósigri málstaðar forsetans og stjórnarliða í þjóðaratkvæðagreiðslunni um stjórnarskrársáttmála Evrópusambandins. 31.5.2005 00:01
Halldór andvígur ljósmyndasýningu Halldór Blöndal, forseti Alþingis, sendi Steinunni V. Óskarsdóttir borgarstjóra í Reykjavík, í gær bréf þar sem hann mótmælir því að Reykjavíkurborg noti Austurvöll undir ljósmyndasýningu á. Halldór setti álíka mótmæli fram í fyrra. 31.5.2005 00:01
Prófraun ESB-sáttmála í Hollandi Hollenskir stjórnmálaleiðtogar gerðu í gær lokatilraun til að telja landa sína á að greiða atkvæði með staðfestingu stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins. En síðustu skoðanakannanir sem birtar voru fyrir ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsluna í dag bentu til að enn hærra hlutfall hollenskra kjósenda myndi segja "nei" en franskir. 31.5.2005 00:01
Alvarlega bilun í tölvukerfi LSH Alvarleg bilun kom upp í tölvukerfi Landsspítalans í dag og lágu öll boðskipti spítalans niðri í fjóra til fimm klukkutíma. Jóhannes Gunnarsson lækningaforstjóri segir bilunina hafa haft víðtæk áhrif á starfsemi sjúkrahússins en símakerfi og innra og ytra net lágu niðri. Hann segir bilunina hafa verið í netþjóni sem sendi frá sér boð eins og tölvuhakkarar væru á ferð. 31.5.2005 00:01
Hópslagsmál í réttarsal í Haifa Mikil hópslagsmál brutust út í réttarsal í borginni Haifa í Ísrael um helgina. Tvær fjölskyldur slógust með öllu sem hönd á festi. 31.5.2005 00:01
Hrókurinn fær styrk Samþykkt var á síðasta ríkisstjórnarfundi að veita skákfélaginu Hróknum þrjár milljónir króna í styrk vegna unglingastarfs. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu þótti eðlilegt að styðja við bakið á því góða starfi sem skákfélagið hefur haldið uppi undanfarin ár. 31.5.2005 00:01
Réttarmeinafræðingur fær styrk Eva Klonowski, íslenskur réttarmeinafræðingur af pólskum uppruna, hefur fengið tveggja milljóna króna styrk frá ríkisstjórninni vegna starfa sinna í Bosníu. Þar vinnur hún við að bera kennsl á lík fólks sem féll í styrjöldinni á tímabilinu 1992 til 1995. 31.5.2005 00:01
365 og RÚV buðu í UHF-rásir Tvö fyrirtæki, 365 ljósvakamiðlar og Ríkisútvarpið, sendu Póst- og fjarskiptastofnun tilboð í UHF-rásir fyrir dreifingu á stafrænu sjónvarpi út um allt land. Í útboði voru gerðar þær kröfur að dreifinet bjóðenda næðu að lágmarki til 40 sveitarfélaga innan árs frá úthlutun réttinda og til 98 prósenta heimila í landinu innan tveggja ára. 31.5.2005 00:01
Ræddi ekki átök og hótaði engu Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kveðst aldrei hafa hótað stjórnarslitum vegna deilna um eignarhald á Vátryggingafélagi Íslands. S-hópurinn svonefndi átti helminginn í VÍS á móti Landsbankanum en keypti hlut bankans í fyllingu tímans. S-hópurinn og VÍS urðu síðar annar af tveimur bjóðendum í hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. 31.5.2005 00:01
Sparkað í vitni Sparkað var í Reyni Traustason, fyrrverandi ritstjóra DV, þegar hann kom í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær til þess að bera vitni í máli sem höfðað er gegn Jóni Trausta Lútherssyni, fyrir ógnanir og líkamsmeiðingar sem áttu sér stað í höfuðstöðvum DV í Skaftahlíð í fyrra. 31.5.2005 00:01
Fær góða einkunn fyrir laxeldi Ísland fær góða einkunn hjá World Wildlife Fund og regnhlífasamtökum laxveiðifélaga fyrir hvernig er staðið að ræktun á eldislaxi. Í nýrri skýrslu þessara tveggja samtaka fær Ísland 9,6 stig af tíu mögulegum fyrir það sem gert er til að koma í veg fyrir að eldislax blandist villtum laxi og mengi stofninn. Meðal annars er minnst á að bannað sé að stunda laxeldi í fjörðum og ám þar sem villtur lax gengur. 31.5.2005 00:01
Hótaði aldrei stjórnarslitum Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra neitar því algerlega að af greinarflokki Fréttablaðsins um einkavæðingu ríkisbankanna megi ráða að hann og Davíð Oddsson utanríkisráðherra hafi handstýrt sölu þeirra til kaupenda sem þeir höfðu velþóknun á. 31.5.2005 00:01
Aðalmeðferð lýkur í dag Málflutningi í Dettifossmálinu, sem er umfangsmesta fíkniefnasmyglmál sem komið hefur upp hér á landi, lýkur í dag 31.5.2005 00:01
Ótti og óvissa á Stöðvarfirði Ótti og óvissa ríkir á Stöðvarfirði eftir að öllu starfsfólki frystihúss Samherja var sagt þar upp í dag, alls 32. Talsmaður Samherja segist hafa fulla trú á að allir finni vinnu fljótlega, nóg sé að gera á Mið-Austurlandi. 31.5.2005 00:01
Fundu bílsprengjuverksmiðjur Írakski herinn hefur handtekið fjölda manna og fundið nokkrar bílsprengjuverksmiðjur í herferð sinni gegn hryðjuverkamönnum í Bagdad. Margir hinna handteknu eru erlendir ríkisborgarar. 31.5.2005 00:01
Samið um flug milli landa Utanríkisráðuneyti Íslands og Indlands taka upp samstarf og greitt var fyrir flugsamgöngum og vöruflutningum milli landanna með samþykktum sem gerðar voru í opinberri heimsókn Indlandsforseta í dag. 31.5.2005 00:01
Orkuveitan reisir 600 bústaði Orkuveita Reykjavíkur ætlar að vera með í félagi um byggingu allt að sex hundruð sumarbústaða í landi Úlfljótsvatns ásamt Íslandsbanka. Hlutafé verður allt að þrjú hundruð milljónir. Framkvæmdir gætu hafist á árinu 2007. 31.5.2005 00:01
Borgarstjóraefni í áttunda sæti Vangaveltur eru uppi um að áttunda sæti Reykjavíkurlistans verði skipað borgarstjóraefni listans. Nafn núverandi borgarstjóra hefur verið nefnt en hvorugur borgarfulltrúa hafa ákveðið hvort þau fari fram. Samfylkingin heldur prófkjör við val á fulltrúum sínum. 31.5.2005 00:01
Vilja fornleifagarð í stað heimila Borgaryfirvöld í Jerúsalem vilja rífa 88 hús Palestínumanna og reisa þar stóran fornleifagarð. Íbúarnir mótmæla. 31.5.2005 00:01
Landsspítalinn sambandslaus Landsspítali Háskólasjúkrahús var símasambandslaus frá því um ellefuleytið til klukkan þrjú í gær. Einnig lágu öll tölvukerfi Spítalans niðri en bilun kom upp í aðalnetkerfi sjúkrahússins með þeim afleiðingum að innra tölvu- og símkerfið datt að mestu leyti út. 31.5.2005 00:01
Stjórnarslit hafi ekki verið nærri Forsætisráðherra segir að aldrei hafi legið nærri stjórnarslitum vegna sölunnar á ríkisbönkunum. Hann segir úttekt Fréttablaðsins á einkavæðingunni innihalda rangfærslur sem hefði mátt leiðrétta með einu símtali, en aldrei hafi verið leitað eftir upplýsingum úr ráðuneytinu. 31.5.2005 00:01