Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Chirac réttir fram sáttahönd Jacques Chirac Frakklandsforseti rétti þjóð sinni sáttahönd í sjónvarpsávarpi í gærkvöld. Ávarpsins hafði verið beðið með nokkurri eftirvæntingu því fyrr um daginn hafði Chirac stokkað upp í ríkisstjórn sinni. 31.5.2005 00:01
Ákvörðunin hafði ekki tekið gildi Samkeppnisstofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki beri að rannsaka kvartanir Landssíma Íslands á hendur 365 - ljósvakamiðlum þar sem ákvörðunin sem kvörtunin nær til hefur ekki tekið gildi. 31.5.2005 00:01
Deep Throat gefur sig fram W. Mark Felt, fyrrverandi aðstoðarforstjóri bandarísku alríkislögreglunnar FBI, hefur viðurkennt að vera hinn dularfulli Deep Throat. 31.5.2005 00:01
Bush vísar gagnrýni Amnesty á bug George W. Bush Bandaríkjaforseti vísar gagnrýni mannréttindasamtakanna Amnesty International á bandarísk stjórnvöld á bug og segir hana fáránlega. 31.5.2005 00:01
Almenningur vill dauðadóm Jalal Talabani, forseti Íraks, lýsti því yfir í viðtali við sjónvarpsstöðina CNN í gær að réttarhöldin yfir Saddam Hussein myndu hefjast innan tveggja mánaðar. 31.5.2005 00:01
Flöskuskeytið bjargaði þeim 86 farþegum á skipi sem reikaði stjórnlaust um Karíbahaf var bjargað í vikunni eftir að flöskuskeyti sem þeir köstuðu útbyrðis fannst á nálægri eyju. 31.5.2005 00:01
Sjíar gengu berserksgang Múgæsing greip um sig í Karachi, stærstu borg Pakistans, eftir að sjálfsmorðssprengjuárás var gerð í sjíamosku. 12 manns liggja í valnum. 31.5.2005 00:01
Stjórnvöld óska skýringa Umhverfisráðherra hefur óskað eftir nákvæmum skriflegum upplýsingum frá breskum stjórnvöldum um lekann á geislavirkum vökva í endurvinnslustöðinni í Sellafield í vetur. 31.5.2005 00:01
1450 prósenta verðmunur á gulrótum Mjög mikill verðmunur var á milli matvöruverslana í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði um land allt miðvikudaginn 25. maí síðastliðinn. 31.5.2005 00:01
Kæruleysi að hætti Hómers Simpson Breskir ráðamenn líta lekann á hágeislavirkum efnum í Thorp-kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield sem uppgötvaðist í apríl mjög alvarlegum augum. Vera má að dagar stöðvarinnar séu taldir. 31.5.2005 00:01
Geitungastofninn hruninn Útlit er fyrir að íslenski geitungastofninn hafi hrunið síðastliðið sumar að sögn Erlings Ólafssonar, skordýrafræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. 31.5.2005 00:01
21 milljarður í landfyllingar Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kynnti hugmyndir sínar um framtíðarskipulag í Reykjavík á blaðamannafundi síðastliðinn fimmtudag. Samkvæmt tillögunum er kveðið á um 350 hektara landfyllingu milli Örfiriseyjar og Akureyjar og frá Sæbraut í áttina að Engey. 31.5.2005 00:01
Frakkar höfnuðu stjórnarskránni Frakkar höfnuðu nýrri stjórnarskrá Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær með fimmtíu og fimm prósent atkvæða. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar niðustöður voru tilkynntar. 30.5.2005 00:01
Breytingar á ríkisstjórninni Jean Pierre-Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, sagði í morgun að breytinga væri að vænta á ríkisstjórn landsins. Hann fór ekki nánar út í þau mál en fyrir kosningarnar um stjórnarskrá Evrópusambandsins var því gert skóna að Raffarin þyrfti að biðjast lausnar yrði stjórnarskráin felld, eins og nú hefur komið á daginn. 30.5.2005 00:01
Samningaviðræðum slitið Starfsmannafélög Hafnarfjarðar, Kópavogs og Akraness hafa slitið samningaviðræðum við launanefnd sveitarfélaganna. Launanefndin hafði gert félögunum tilboð sem félögin töldu of lágt og í engu samræmi við hækkanir sem aðrar stéttir hafa fengið, eins og kennarar. Næstu skref í kjaradeilunni verða ákveðin á næstu dögum. 30.5.2005 00:01
Ekki marklaust plagg Evrópskir leiðtogar hafa lýst því yfir að þrátt fyrir að stjórnarskránni hafi verið hafnað í Frakklandi eigi önnur Evrópuríki ekki að láta deigan síga og halda ferlinu áfram. Stjórnarskráin sé ekki marklaust plagg. 30.5.2005 00:01
Minningarathöfn í Fossvogi Minningarathöfn um bandaríska hermenn sem látist hafa við skyldustörf á Íslandi verður haldin í Fossvogskirkjugarði klukkan ellefu. Talið er að 239 Bandaríkjamenn hafi fallið við skyldustörf hér á landi í Seinni heimsstyrjöldinni og var 201 þeirra grafinn í Fossvogskirkjugarði. 30.5.2005 00:01
Frestar umræðunni í Noregi Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, segir niðurstöðuna í Frakklandi fresta umræðunni um inngöngu Noregs í Evrópusambandið. Norðmenn hafa í tvígang hafnað því að sækja um inngöngu í sambandið, 1972 og 1994. 30.5.2005 00:01
21 látinn, 34 særðir Tuttugu og einn týndi lífi og þrjátíu og fjórir særðust í sjálfsmorðsárás í Hilla í Írak í morgun. Tveir menn sprengdu sjálfa sig í loft upp, annar þeirra við læknamiðstöð þar sem lögreglumenn fara í læknisskoðun og skömmu síðar sprengdi annar sig upp í hópi lögreglumanna sem safnast höfðu saman til að mómæla lágum launum. 30.5.2005 00:01
Flugskeytaárás á flóttamannabúðir Ísraelski herinn skaut flugskeytum á flóttamannabúðir á Gasasvæðinu í morgun þar sem herskáir Palestínumenn undirbjuggu sprengjuárás á nálæga gyðingabyggð. Þrír Palestínumenn særðust í árásinni. 30.5.2005 00:01
ESB: Óvíst hvað Bretar gera Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir enga ákvörðun hafa verið tekna um það hvort að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá Evrópusambandsins í Bretlandi. Jack Straw utanríkisráðherra gaf í skyn í morgun að ákvörðun um slíkt yrði tilkynnt í næstu viku. 30.5.2005 00:01
Fimm særðust í sprengingu í Kabúl Fimm særðust þegar sprengja sprakk í vegkanti í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun. Fólkið sem særðist var í leigubíl á eftir bifreið sem var full af hermönnum frá NATO og er talið að sprengjan hafi verið ætluð þeim. 30.5.2005 00:01
Kínverjar í hart? Kínverjar segja að ef ekki takist að leysa deilu þeirra við Bandaríkin og Evrópusambandið um innflutning á vefnaðarvörum muni þeir fara með málið fyrir Alþjóða viðskiptastofnunina. 30.5.2005 00:01
Harmleikur í Ohio Sex manns, þar af tvö börn, fundust látin á tveimur sveitabæjum nálægt bænum Bellefontaine í Ohio í gær. Þá fannst kona alvarlega særð að sögn lögreglunnar. Ekki er ljóst hvað gerðist en talið er að einn hinna látnu hafi verið árásarmaðurinn. Málið er í rannsókn. 30.5.2005 00:01
Ekki áhrif á stækkun ESB Talsmaður Evrópusambandsins segir að framkvæmdastjórnin vilji ekki að fall stjórnarskrár sambandsins í kosningunum í Frakklandi í gær hafi áhrif á stækkun þess. Jacques Chirac Frakklandsforseti hefur gefið í skyn að hann kunni að reka Jean-Pierre Raffarin forsætisráðherra í kjölfar niðurstöðunnar. 30.5.2005 00:01
Eiginmaðurinn missti stjórn á sér Sálfræðingur sagðist í Héraðsdómi Reykjaness rétt fyrir hádegi að hann teldi að Magnús Einarsson, sem varð konu sinni að bana á heimili þeirra í Hamraborg, hafi ekki undirbúið morðið heldur hafi hann misst stjórn á sér. 30.5.2005 00:01
Ákvörðunar að vænta frá Bauhaus Byggingavöruverslanarisinn Bauhaus tekur í næstu viku ákvörðun um hvort byggð verður verslun hér á landi. Undanfarna mánuði hefur farið fram víðtæk úttekt á íslenskum byggingavörumarkaði og nú munu niðurstöður þeirrar úttektar liggja fyrir. 30.5.2005 00:01
Kona næsti kanslari Þýskalands? Kristilegir demókratar í Þýskalandi tilkynntu í dag að Angela Merkel, formaður flokksins, yrði kanslaraefni þeirra í þingkosningunum sem væntanlega verða haldnar í september. Ef flokkurinn fer með sigur af hólmi verður Merkel fyrsta konan sem gegnir embætti kanslara í Þýskalandi. 30.5.2005 00:01
Ekki mikil áhrif fyrir Íslendinga Höfnun Frakka á stjórnarskrá Evrópusambandsins hefur engin sérstök áhrif fyrir Íslendinga. Þetta segir Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands. 30.5.2005 00:01
Sleppti syni sínum úr gíslingu Faðir fimmtán ára drengs, sem tók hann í gíslingu á barnageðdeild Blekinge-sjúkrahússins í Svíþjóð í gærmorgun og hótaði að kveikja bæði í drengnum og sjálfum sér, hefur nú sleppt syni sínum. 30.5.2005 00:01
Vilja að R-listinn starfi áfram Vinstri grænir í Reykjavík vilja áframhaldandi samstarf í R-listanum, en að það verði að byggjast á jafnræði. Flokkurinn harmar afstöðu Alfreðs Þorsteinssonar til sjónarmiða Vinstri grænna í orkumálum. 30.5.2005 00:01
Þotugnýr yfir Reykjavík Þotugnýr buldi yfir Reykjavík á tólfa tímanum þegar fallinna Bandaríkjamanna á Íslandi var minnst. Talið er að 239 Bandaríkjamenn hafi fallið við skyldustörf á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni. 30.5.2005 00:01
Vinna gegn óréttmætum launamun Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst lýsir vilja til að vinna gegn óréttmætum launamun kynjanna með Samtökum atvinnulífsins og lætur sér í léttu rúmi liggja þótt framkvæmdastjórinn gagnrýni launakönnun háskólans harðlega. 30.5.2005 00:01
Skólastjórinn í 2 ára fangelsi Jón Árni Rúnarsson, fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt og skjalafals á árunum 1994 til 2001 í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Jón Árni var ákærður fyrir að hafa dregið sér tæpar 29 milljónir króna. 30.5.2005 00:01
Samvinna við Indverja í vísindum Opinber heimsókn forseta Indlands, dr. Abdul Kalam, hófst í morgun þegar forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Doritt Moussaief, tóku á móti honum á Bessastöðum. Forsetinn lagði áherslu á samvinnu landanna á vísindasviði. 30.5.2005 00:01
Stöðva ekki kjarnorkuáform Írana Fyrrverandi yfirmaður ísraelska flughersins segir að ekki verði hægt að stöðva kjarnorkuáform Írana, en það sé hins vegar hægt að seinka því að þeir smíði kjarnorkusprengjur. 30.5.2005 00:01
Skipin enn að veiðum Flugvél Landhelgisgæslunnar er komin á svæðið suður af Reykjanesi þar sem sjö sjóræningjaskip fundust á föstudag og mun vélin sveima yfir svæðinu í dag. Skipin eru enn að veiðum. 30.5.2005 00:01
Vantar heimild fyrir 80 nemendur Heimildir fyrir 80 nemendur við Menntaskólann á Ísafirði vantar í forsendur fjárlaga að mati Ólínu Þorvarðardóttur skólameistara. Á vef Bæjarins besta segir að Ólína hafi greint frá þessu á laugardag þegar skólanum var slitið í 35. skipti. 30.5.2005 00:01
Eldur í húsi að Mánagötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Mánagötu í Reykjavík á fjórða tímanum vegna elds í húsi við götuna. Kona með ungabarn var á heimilinu en þau komust bæði út heil á húfi. 30.5.2005 00:01
Sýknaður af tilraun til manndráps Rúmlega fertugur maður var í Héraðsdómi í dag sýknaður af ákæru fyrir tilraun til manndráps en dæmdur til öryggisvistar á réttargeðdeildinni að Sogni. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa stungið mann þrisvar sinnum með hnífi á heimili sínu í nóvember í fyrra. 30.5.2005 00:01
Mál hunds til úrskurðanefndar Lögfræðingur hundsins Taraks, Jón Egilsson, ætlar að kæra niðurstöðu Umhverfisráðs í máli hans til úrskurðarnefndar um hollustuhætti og mengunarvarnir. 30.5.2005 00:01
Enn vegalaus hjá Geðhjálp Pólitískur flóttamaður, Aslan Gilaev, dvelur enn í húsnæði Geðhjálpar, ríkisfangslaus og algjörlega vegalaus. 30.5.2005 00:01
Farþegum fækkaði um 9% Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fækkaði úr rúmlega 130 þúsund í apríl 2004 í tæplega 119 þúsund farþega nú, eða um tæp níu prósent. Fækkun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum sjö prósentum milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um rúm 16 prósent. 30.5.2005 00:01
Tólf gæðastyrkir veittir Tólf gæðastyrkir voru veittir heilbrigðisstarfsmönnum . Það var Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sem veitti þá. 30.5.2005 00:01
Útgerðir verði sviptar veiðileyfum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill að útgerðir sem brjóta reglur sambandsins um fiskveiðikvóta verði sviptar veiðileyfum þar sem sektir dugi ekki til þess að halda aftur af þeim. 30.5.2005 00:01