Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þungt haldinn af hermannaveiki Miðaldra Íslendingur liggur þungt haldinn á Landspítalanum með hermannaveiki. Maðurinn var á ferðalagi í Róm með hópi Íslendinga á vegum ferðaskrifstofunnar Heimsferða en hópurinn kom heim í síðustu viku. 25.5.2005 00:01
Fischer og Spasskí leggja á ráðin Boris Spasskí kom til Íslands í gær og fór beint á fund Fischers. Talið er að þeir séu að skipuleggja stórviðburð í skákinni, þar sem teflt yrði eftir þeirri tegund sem Fischer hefur boðað. Líklegt er talið að slíkt mót yrði haldið á Íslandi. 25.5.2005 00:01
Kaspíahafsolíu dælt vestur Forsetar Aserbaídsjans, Georgíu og Tyrklands opnuðu í gær, við hátíðlega athöfn í Sangachal suður af Bakú, fyrir flutning jarðolíu um nýja leiðslu frá olíulindunum við Kaspíahaf til útflutningshafnar á Miðjarðarhafsströnd Tyrklands. 25.5.2005 00:01
Grænfriðungar gæða sér á hrefnu "Ég er að selja 30 til 40 kíló af hval á viku," segir Úlfar Eysteinsson kokkur og meðeigandi á veitingastaðnum Þrír frakkar. Hann hefur boðið upp á hvalkjöt frá árinu 1989. "Ég hef tekið eftir því að fólk kemur hingað beint úr hvalaskoðun til að gæða sér á hvalkjöti. 25.5.2005 00:01
Íranar fallast á kröfur ESB Fulltrúar Íransstjórnar endurnýjuðu í gær heit sitt um að stefna ekki að því að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Evrópuríkin höfðu þrýst mjög á Írana að lýsa þessu yfir og í viðræðum tengslahóps Evrópusambandsins, skipuðum utanríkisráðherrum mestu þungavigtarríkja þess, við fulltrúa Írans í Genf í gær fékkst þessi niðurstaða. 25.5.2005 00:01
Öll starfsemin undir eitt þak Nú er unnið hörðum höndum að því að rífa hús KB banka í Borgartúni 17. Í framhaldinu verða núverandi höfuðstöðvar í Borgartúni 19 stækkaðar þannig að öll starfsemin verði undir einu þaki. Einnig er fyrirhugað að ýmsum deildum sem hafa aðstöðu víða um borgina verði komið fyrir í nýju húsakynnunum. 25.5.2005 00:01
Reyndu að búa til geislasverð Tveir aðdáendur Stjörnustríðsmyndanna í Bretlandi, tvítugur piltur og 17 ára stúlka, liggja stórslasaðir á sjúkrahúsi eftir að hafa reynt að smíða sér geislasverð. Innblásið af ævintýrum Loga geimgengils og Svarthöfða ákvað parið að smíða sér geislasverð með því að fylla hylki af flúorljósaperum með bensíni. 25.5.2005 00:01
Yfirdráttarlán hækka enn Einkaneysla hefur aukist mikið að undanförnu og yfirdráttarlánin hækkað. Forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans segir þetta endurspegla bjartsýni fólks á að endurgreiða lánin. Óvíst sé að um varanlega aukningu sé að ræða. 25.5.2005 00:01
Kröfurnar kynntar Frestur sem gefinn var til að setja fram kröfur um eignarréttindi vegna meðferðar þjóðlendumála á Norðausturlandi er runninn út. Kynning á kröfum fjármálaráðherra sem og annarra sem gert hafa kröfur eða gagnkröfur um eignarréttindi er hafin á vegum óbyggðanefndar hjá sýslumanninum á Seyðisfirði og Húsavík. 25.5.2005 00:01
Schröder vill keyra á persónukjör Í fyrsta blaðaviðtalinu sem Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, veitti eftir að hann lýsti því yfir að hann vildi flýta kosningum til Sambandsþingins segist hann vilja "mjög persónumiðaða" kosningabaráttu. 25.5.2005 00:01
Létust í umferðarslysi á Írlandi Fimm skólastúlkur létu lífið í árekstri skólabíls og tveggja fólksbíla á Írlandi í gær. Alls voru 50 börn í rútunni og eru sex þeirra talin lífshættulega slösuð en einungis eitt barn slapp óslasað úr skólabílnum sem valt á hliðina. Lögreglan segir að stúlkurnar sem létust hafi verið á aldrinum þrettán til sextán ára en orsök slyssins eru ekki kunn þó mikil rigning hafi eflaust átt sinn þátt í að slysið hafi orðið. 24.5.2005 00:01
Davíð ásamt nefnd til Japans Davíð Oddsson utanríkisráðherra mun fara fyrir viðskiptasendinefnd til Japans í september næstkomandi. Á vef Útflutningsráðs segir að ferðin sé sniðin bæði að þeim fyrirtækjum sem séu þegar í viðskiptum á svæðinu og þeim sem vilji hefja samstarf eða markaðssókn inn á þennan markað. 24.5.2005 00:01
Alvarlegasta tilfellið í mörg ár Hermannaveikin sem komin er upp í Noregi er alvarlegasta tilfellið á Norðurlöndum í mörg ár. Óttast að tvöfalt fleiri eigi eftir að veikjast innan fárra daga og þeim sem deyja af völdum veikinnar eigi eftir að fjölga um helming. Nú hafa 93 verið lagðir inn á Östfold-sjúkrahúsið í Fredrikstad vegna gruns um lungnabólgu og staðfest er að 29 þeirra eru með hermannaveikina. Af þeim eru fimm dánir. 24.5.2005 00:01
Aflaverðmæti eykst um 14 prósent Á fyrstu tveimur mánuðum ársins nam aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 12,6 milljörðum króna samanborið við 11 milljarða á sama tímabili 2004. Aflaverðmætið hefur því aukist um 14 prósent á milli ára eða um nærri 1,6 milljarða króna. Athygli vekur að verðmæti skel- og krabbadýraafla var aðeins 12 milljónir króna en á sama tímabili í fyrra var það tæpar 177 milljónir króna. 24.5.2005 00:01
Einn blóðugasti dagurinn í Írak Írakskir borgarar upplifðu einn blóðugasta dag í tæpt ár í gær en að minnsta kosti 50 Írakar létu lífið í sprengjutilræðum víðs vegar um landið. Rúmlega 600 manns, þar af 50 bandarískir hermenn, hafa fallið í landinu frá því uppreisnarmenn blésu til sóknar í kjölfar myndunar nýrrar ríkisstjórnar landsins í apríl síðastliðnum. 24.5.2005 00:01
Bláa lóninu úthúðað í The Times Bláa lónið fær harkalega útreið í breska stórblaðinu <em>The Times</em>. Þar segir að í ótal auglýsingum sé því lýst sem sælustað fyrir líkama og sál en veruleikinn sé allur annar. Blaðamaður blaðsins byrjar á því að lýsa búningsklefunum. Þar hafi verið mikil þrengsli og táfýla og álíka viðkunnalegt og í líkamsræktarstöð. 24.5.2005 00:01
Hugðist selja al-Qaida sprengiefni 68 ára gamall Bandaríkjamaður hefur verið handtekinn fyrir að reyna að selja, að hann hélt, félaga í al-Qaida sprengiefni. Sá síðari reyndist þó vera fulltrúi frá alríkislögreglunni þar í landi og var maðurinn sem fyrr segir handtekinn. Ef maðurinn verður sakfelldur gæti hann átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi og sekt upp á 15 milljónir króna. 24.5.2005 00:01
Bush og Jintao funda á árinu George Bush Bandaríkjaforseti og Hu Jintao, leiðtogi Kína, munu heimsækja hvor annan á þessu ári. Bush hefur ekki verið vinsæll hjá kínverskum yfirvöldum til þessa en í upphafi fyrra kjörtímabilsins síns sagði hann að hann myndi gera allt til að hjálpa Taívan til að verjast ágangi Kína í baráttu sinni til sjálfstæðis. 24.5.2005 00:01
Staðfestir brottför Sýrlandshers Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur staðfest að sýrlenskir hermenn og leyniþjónustumenn séu farnir frá Líbanon. Annan tilkynnti þetta á blaðamannafundi í morgun. Annan sagði fréttamönnum að hann gæti staðfest að brottflutningnum væri lokið alls staðar í landinu og að það ætti einnig við um landamærahéruð ríkjanna. 24.5.2005 00:01
Skjálftahrinu ekki alveg lokið Skjálftahrinunni suður af landinu er ekki alveg lokið þótt verulega hafi dregið úr henni. Á sjöunda tímanum í morgun urðu tveir skjálftar suður af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg, sá öflugri mældist 2,8 á Richter. Um tugur skjálfta hefur mælst frá miðnætti, flestir norður af landinu en einnig á hálendinu. 24.5.2005 00:01
Flóð í suðurhluta Kína Mikil rigning hefur verið í suðurhluta Kína að undanförnu með tilheyrandi flóðum. Björgunarsveitir hafa verið uppteknar við að hjálpa fólki víðs vegar um svæðið en samgöngur hafa gengið brösuglega vegna flóðanna sem enn hafa þó ekki haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Búist er við áframhaldandi rigningu á næstu dögum og undirbúa yfirvöld sig fyrir að ástandið versni. 24.5.2005 00:01
Annir vegna hraðaksturs Lögreglan í Hafnarfirði hafði í nógu að snúast vegna hraðaksturs í gærkvöldi og nótt, en ellefu ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók var á 139 kílómetra hraða en hinir óku litlu hægar. Annars var nóttin róleg hjá lögreglu víðast hvar um landið, reyndar svo róleg að lögreglan í Reykjavík hafði varla fengið símtal í alla nótt. 24.5.2005 00:01
Ekki þörf á frekari aðgerðum Samkvæmt nýju snjóflóðahættumati sem unnið hefur verið vegna byggðar í Súðavík er ekki þörf á frekari aðgerðum til að tryggja öryggi íbúa á hættusvæðum. Þetta kemur fram á vef <em>Bæjarins besta</em>. Samkvæmt matinu eru öll hús í nýju byggðinni nema tvö utan hættusvæða. 24.5.2005 00:01
Nýrrar Grímseyjarferju að vænta Ný Grímseyjarferja er væntanleg. Ríkiskaup hafa óskað eftir ferju sem leysa á Sæfara, núverandi ferju, af hólmi. Tilboð eiga að berast fyrir 20. júní. Meðal skilyrða sem settu eru er að ný ferja verði ekki eldri en fimmtán ára, hún geti flutt bíla, gáma og vinnuvélar og að veitingasalur verði um borð. Þá eru gerðar strangar kröfur um öryggisatriði. 24.5.2005 00:01
Niðurgeiða Viagra fyrir glæpamenn Um 200 dæmdir kynferðisafbrotamenn í New York ríki í Bandaríkjunum hafa fengið stinningarlyfið Viagra sér að kostnaðarlausu. Mennirnir, sem allir eru taldir líklegir til að brjóta af sér á nýjan leik, hafa nýtt sér Medicaid-kerfið sem virkar á þann veg að skattborgarar greiða niður lyf fyrir þá sem minna mega sín. 24.5.2005 00:01
Gunnar tekur við bæjarstjórastarfi Gunnar Einarsson tók nú klukkan ellefu við starfi bæjarstjóra Garðabæjar af Ásdísi Höllu Bragadóttur. Ásdís Halla er sem kunnugt er að taka við forstjórastarfi BYKO. Gunnar var áður íþrótta- og tómstundafulltrúi Garðabæjar. Fyrsta verk Gunnars sem bæjarstjóra verður að tilkynna um samþykkt bæjarstjórnar í morgun um umtalsverðar breytingar á gjaldskrám vegna þjónustu dagforeldra og einkarekinna leik- og grunnskóla. 24.5.2005 00:01
Óttast að tvöfalt fleiri látist Hermannaveikin, sem blossað hefur upp í Noregi á síðustu sólarhringum, er alvarlegasta tilfelli veikinnar á Norðurlöndum í mörg ár. Óttast er að fjöldi látinna og veikra tvöfaldist á næstu dögum. 24.5.2005 00:01
Kemst upp um barnaníðinga á Ítalíu Lögreglan á Ítalíu hefur yfirheyrt 186 manns, þar á meðal þrjá presta, eftir að upp komst um vefsíðu barnaníðinga á Netinu. Þar voru vistaðar myndir sem sýna börn á aldrinum fjögurra til átta ára pyntuð og beitt kynferðislegu ofbeldi. Auk þriggja presta kaþólsku kirkjunnar eru borgarstjóri, kennari og læknir meðal þeirra sem nýttu sér aðgang að síðunni. 24.5.2005 00:01
Mannvíg halda áfram í Bagdad Tveir Írakar létust í morgun þegar bílasprengja reið af við fjölfarna götu í Bagdad. Að minnsta kosti átta liggja sárir. Rúmlega 600 manns, þar af fimmtíu bandarískir hermenn, hafa fallið í landinu frá því uppreisnarmenn blésu til nýrrar sóknar í kjölfar myndunar nýrrar ríkisstjórnar landsins í síðasta mánuði. 24.5.2005 00:01
Lífslíkur íslenskra karla batna Lífslíkur íslenskra karla hafa batnað mun meira en kvenna á síðustu áratugum, en þeir verða nú karla elstir í heiminum. Konurnar eru hins vegar dottnar niður í sjötta sæti. 24.5.2005 00:01
Frestur borgar felldur úr gildi Reykjavíkurborg fær ekki lengri frest til að ákveða hvernig rekstri Upplýsingamiðstöðvar ferðamála verður háttað. Samkeppnisráð hafði veitt borginni frest fram í október, en áfrýjunarnefnd hefur fellt úrskurðinn úr gildi. 24.5.2005 00:01
Flensa berist varla með farfuglum Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, telur hverfandi líkur á að fuglaflensa berist hingað til lands með farfuglum. Hann segir að berist fregnir af því að flensan sé farin að smitast manna á milli, verði viðbragðsáætlun strax sett í gang. 24.5.2005 00:01
Hækka niðurgreiðslur með börnum Gunnar Einarsson hefur tekið við starfi bæjarstjóra í Garðabæ. Ásdís Halla Bragadóttir, fráfarandi bæjarstjóri og forstjóri BYKO, afhenti Gunnari lyklana við hátíðlega athöfn á bæjarstjórnarskrifstofunum klukkan ellefu í morgun. Fyrsta verk nýs bæjarstjóra var að tilkynna nýja samþykkt bæjarráðs sem felur í sér mikla hækkun niðurgreiðslna með börnum hjá dagforeldrum og á einkareknum leikskólum. 24.5.2005 00:01
Unnið að leiðréttingum á umfjöllun Bláa lónið er meðal ofmetnustu ferðamannastaða heims, segir blaðamaður breska stórblaðsins <em>Sunday Times</em> eftir heimsókn í lónið. Honum fannst það skítugt, alltof troðið af fólki og óaðlaðandi á allan hátt. Framkvæmdastjóri lónsins er mjög ósáttur við umfjöllunina og segir unnið að leiðréttingum. 24.5.2005 00:01
Handtóku mannréttindafrömuð Stjórnvöld í Úsbekistan hafa handtekið mannréttindafrömuð sem greindi fréttamönnum frá því þegar úsbekskar hersveitir skutu á og drápu mótmælendur í borginni Andijan um miðjan mánuðinn. Frá þessu greina mannréttindasamtökin Huma Rights Watch og krefjast þess að manninum verði sleppt tafarlaust. Samtökin segja að yfirvöld í Úsbekistan reyni með þessu hindra að umheimurinn fái nákvæmar lýsingar á því sem gerðist 13. maí í Andijan. 24.5.2005 00:01
Auka framlög til þróunarmála Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu í dag að auka framlög sín til þróunarmála til þess að styðja við baráttu Sameinuðu þjóðanna gegn fátækt í heiminum. Fimmtán eldri aðildarþjóðirnar stefna að því að verja að minnsta kosti 0,51 prósenti af þjóðartekjum til hjálparstarfs árið 2010 og 0,7 prósentum af tekjunum fimm árum síðar, en Danir, Svíar, Hollendingar og Lúxemborgara hafa þegar náð þessum markmiðum. 24.5.2005 00:01
Hafa áhyggjur af hrefnuveiðum Sendiherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands sendu í dag frá sér yfirlýsingu um hvalveiðar Íslendinga til utanríkisráðuneytisins. Segir þar að sendiherrarnir lýsi yfir áhyggjum sínum vegna tillögu Hafrannsóknarstofnunar til ríkisstjórnar Íslands um veiðar á 39 hrefnum á þessu ári í vísindaskyni. 24.5.2005 00:01
Varar við ofnhitnun í efnahagslífi Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir efnahagslífið á Íslandi vera að ofhitna. Ríkið verði að draga úr útgjöldum og vextir að hækka til að koma í veg fyrir að verðbólgan fari úr böndunum. Annars sé hætta á kreppuástandi þegar gengi krónunnar fer að lækka og dregur úr áhrifum stóriðjuframkvæmda. 24.5.2005 00:01
Sjö hermenn falla í Írak Sjö bandarískir hermenn féllu í Írak í dag í tveimur sprengjuárásum. Í fyrri árásinni létust þrír hermenn á eftirlitsferð í miðborg Bagdad þegar bílsprengja sprakk nærri ökutæki þeirra. Skömmu síðar var greint frá því að fjórir hermenn hefðu látist í árás í bænum Haswa suður af höfuðborginni. 24.5.2005 00:01
Sæðisþóknun verði ekki skattskyld Rekstaraðilar sæðisbankans Cryos í Árhúsum í Danmörku hafa skorað á Kristian Jensen, fjármálaráðherra, að afturkalla kröfu danskra skattayfirvalda um að sæðisgjafar þurfi að greiða skatt af þóknuninni sem þeir fá fyrir framlag sitt. Bankastjórarnir óttast að þetta verði til þess að mun færri sæðisgjafar fáist, ekki bara vegna peninganna heldur ekki síður vegna þess að margir vilja gefa nafnlaust og það er ekki hægt ef skattayfirvöld þurfa að fá allar upplýsingar um gjafana. 24.5.2005 00:01
Ræddi bara við suma umsækjenda Ættleiðingarnefnd ræðir við suma umsækjendur í málum sem koma fyrir nefndina, aðra ekki. Hún er ekki í samvinnu við viðkomandi barnaverndarnefnd, að sögn Margrétar Hauksdóttur formanns ættleiðingarnefndar. </font /></b /> 24.5.2005 00:01
Vill skima alifugla og vatnafugla Embætti yfirdýralæknis hefur sótt um fjárveitingu til stjórnvalda til að láta fara fram svokallaða skimun á alifuglum og vatnafuglum hér á landi. 24.5.2005 00:01
Segir samfélagið framleiða öryrkja Góð menntun, há laun, glæsilegt útlit og lífsgæði. Þetta eru kröfur samfélagsins í dag. Þeir sem ekki standa undir þeim lenda utan garðs og enda sem öryrkjar. Úrræði skortir og yfiriðjuþjálfi á geðsviði Landspítalans segir starfsfólkið vera að gefast upp. </font /></b /> 24.5.2005 00:01
Morgunganga á vegum FÍ alla vikuna Ferðafélag Íslands stendur þessa vikuna fyrir morgungöngum alla daga vikunnar. Gengið er alla morgna klukkan 6 á fjöll í nágrenni Reykjavíkur. Í gær var gengið á Helgafell, í morgun á Vífilsfell og í fyrramálið verður gengið á Trölladyngju. Síðan eru það Úlfarsfell á fimmtudagsmorgun og að lokum Esjuganga á föstudag. Öllum morgunhönum sem treysta sér í fremur létta göngu er heimil þátttaka. 24.5.2005 00:01
Tekur ekki þátt í R-listaviðræðum Dagur B. Eggertsson fulltrúi óháðra í borgarstjórn Reykjavíkur á ekki aðild að viðræðum R-listaflokkanna um áframhaldandi samstarf þeirra í borgarstjórn. Hann telur eðlilegt að flokkarnir ljúki viðræðum sín á milli um framhaldið og segist ekki hafa áhyggjur af því að ekki verði hugað að stuðningi óflokksbundinna við listann. 24.5.2005 00:01