Fischer og Spasskí leggja á ráðin 25. maí 2005 00:01
Boris Spasskí sem háði heimsmeistaraeinvígið við Bobby Fischer í Reykjavík árið 1972 kom til landsins klukkan fjögur í gærdag og fór hann rakleiðis á fund Bobby Fischer á Hótel Loftleiðum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru þeir að ræða hugsanlegan stórviðburð þar sem teflt yrði eftir hinni svokallaðri random-aðferð en eins og kunnugt er hefur Fischer unnið að nýrri tegund taflmennsku þar sem hann telur atvinnutaflmennskuna hafa gengið sér til þurrðar, hún sé orðin of kerfisbundin og fyrirsjáanleg. Líklegt er talið að þessi viðburður verði hér á landi ef af honum verður. Frekari fregna er að vænta snemma í dag en Spasskí mun svo halda af landi brott síðdegis. Með Spasskí í Íslandsförinni er Joel Lautier, stofnandi Atvinnusambands stórmeistara, en hann á það sameiginlegt með Fischer að hafa gagnrýnt Alþjóðaskáksambandið harkalega. Af viðtölum við Lautier verður ekki annað séð en að hann sé Fischer sammála um að illa sé fyrir atvinnutaflmennskunni komið. "Þeir eru bara að spjalla og endurnýja kynnin," sagði Einar S. Einarsson sem tók á móti Spasskí og fylgdi honum á fund Fischers en þeir Spasskí og Fischer hafa ekki sést í ellefu ár. Einar segir að Spasskí hafi verið hress við komuna til landsins og að hann hafi lýst ánægju sinni með framtak Íslendinga við frelsun Fischers en hann taldi nokkuð víst að dauðinn hefði beðið skákmeistarans ef hann hefði verið framseldur til Bandaríkjanna. "Það er skondið að sjá kynslóðamuninn því við sem eldri erum vitum allt um Boris Spasskí en öðru máli gegnir um yngra fólkið, það sá ég greinilega þegar afgreiðslustúlka á hótelinu bað hann vinsamlegast að stafa nafnið sitt," sagði Einar kankvís. Einnig kom Alex Titomirov, stjórnarformaður líftæknifyrirtækisins Informax, með þeim Spasskí og Lautier en hann er annálaður skákáhugamaður. Helgi Ólafsson stórmeistari var einnig á fundi með köppunum á Hótel Loftleiðum í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira