Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Telja að Ratzinger verði páfi Þýski kardínálinni Joseph Ratzinger þykir líklegastur til þess að setjast í stól páfa samkvæmt breskum og írskum veðmöngurum. Líkurnar á að hinn 77 ára gamli Ratzinger verði páfi eru 4-1 samkvæmt William Hill veðbankanum í Bretlandi. Írski veðbankinn Paddy Power metur líkurnar enn meiri, eða 3-1, en flestir sem veðja leggja fé við eldri kardínála fremur en þá yngri og telja að kardínálarnir velji ekki mann sem sitji ekki mjög lengi. 15.4.2005 00:01
Skal fá aðgang að heimtaugum Póst- og fjarskiptastofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landssímanum hafi verið óheimilt að synja Og Vodafone um aðgang að heimtaugum í grunnneti. Fyrirtækið hefur síðastliðna þrjá mánuði leitast við að fá afgreiddar beiðnir um aðgang að heimtaugum vegna viðskiptavina Margmiðlunar, en Og Vodafone og Margmiðlun sameinuðust í október 2004. 15.4.2005 00:01
Verðlaunahestur kemur í heiminn Á Ítalíu er verðlaunahestur kominn í heiminn. Hvernig geta menn verið vissir um það? Jú, þetta folald er afkvæmi verðlaunahests. Skyldleikinn er töluvert meiri en alla jafna þar sem þetta folald er klónað. Faðirinn var verðlaunakappreiðahestur og það sem meira er: Hann er geldingur. Folaldið var klónað úr húðfrumu. 15.4.2005 00:01
Kofi slær til baka Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sneri vörn í sókn í gær þegar hann sagði að Bandaríkin og Bretar bæru talsverða ábyrgð á að Saddam Hussein hagnaðist um milljarða króna á olíusmygli á meðan viðskiptaþvinganir SÞ voru í gildi. 15.4.2005 00:01
Vopnasölubann áfram í gildi Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna náðu ekki samkomulagi um að aflétta vopnasölubanni til Kína á fundi sínum í Lúxemborg í gær. Málinu hefur því verið frestað um sinn og líklegast verður það ekki tekið upp á ný fyrr en árið 2006. 15.4.2005 00:01
Hvatt til sakaruppgjafar Háttsettur klerkur úr hópi súnnía hvatti í gær Jalal Talabani, forseta Íraks, að beygja sig ekki undir þrýsting Bandaríkjamanna heldur láta íraska uppreisnarmenn lausa úr fangelsum. 15.4.2005 00:01
Rainier borinn til grafar Rainier III Mónakófursti var jarðsunginn í gær og fór útförin fram í sömu kirkju og hann gekk að eiga Grace Kelly á sínum tíma. Þau hvíla nú hlið við hlið í grafhýsi fjölskyldunnar. 15.4.2005 00:01
Reykháfurinn reistur Verkamenn í Páfagarði settu í gær upp reykháf á Sixtínsku kapelluna en upp úr honum mun hvítur eða svartur reykur streyma á mánudaginn. 15.4.2005 00:01
Skotið út í geiminn Þremur geimförum var skotið út í himingeiminn frá Baikonur í Kasakstan í gærmorgun. Förinni var heitið í alþjóðlegu geimstöðina sem sveimar á sporbaug um jörðu. 15.4.2005 00:01
Tuttugu fórust í eldsvoða Tuttugu manns týndu lífi í eldsvoða á hóteli í París í fyrrinótt og rúmlega fimmtíu slösuðust. Hópur flóttamanna frá Afríku bjó á hótelinu svo og ferðamenn víðs vegar að úr heiminum. 15.4.2005 00:01
Tuttugu fórust í eldsvoða í París Tuttugu manns týndu lífi í eldsvoða á hóteli í París í fyrrinótt og rúmlega fimmtíu slösuðust. Hópur flóttamanna frá Afríku bjó á hótelinu svo og ferðamenn víðs vegar að úr heiminum. 15.4.2005 00:01
Chirac í kröppum dansi Jacques Chirac, forseti Frakklands, rær nú öllum árum að því að sannfæra landa sína um að leggja blessun sína yfir stjórnarskrá Evrópusambandsins. 15.4.2005 00:01
Kaupa Símann út á landi "Sveitarstjórnir landsins ættu að láta þau skilaboð ganga til íbúa sinna að ef þeir kaupi hlut í Símanum að þá muni sveitarfélag hans setja sömu upphæð til slíkra hlutarbréfafékaupa." Þetta er mat Hauks Más Sigurðssonar fyrrum forseta bæjarstjórnar Vesturbyggðar og núverandi varamanns í bæjarstjórn. </font /> 15.4.2005 00:01
Ætlaði ekki að bana Sæunni Magnús Einarsson sem ákærður er fyrir að hafa orðið eiginkonu sinni og barnsmóður, Sæunni Pálsdóttur, að bana með því að kyrkja hana mætti fyrir Héraðsdóm Reykjaness í gærmorgun þegar málið var þingfest. Magnús játaði að hafa orðið eiginkonu sinni að bana en sagði það ekki hafa verið ásetning sinn. 15.4.2005 00:01
Hafi tíma til að skila inn tilboði Forsætisráðherra telur einsýnt að almenningssímafélagi Agnesar Bragadóttur og fleiri vinnist tími til að skila inn tilboði í Landssímann, fresturinn verði rýmri en talið var. Agnes gekk ásamt félögum sínum á fund í stjórnarráðinu í hádeginu. 15.4.2005 00:01
Hvalfjarðargöng lokuð á morgun Hvalfjarðargöngin verða lokuð á morgun frá klukkan átta til þrjú síðdegis vegna almannavarnaæfingar. Hægt verður að aka fyrir Hvalfjörðinn eins og aðra daga. 15.4.2005 00:01
Enginn neyðarútgangur á hóteli Tíu börn eru meðal þeirra sem fórust þegar hótel í París brann til kaldra kola í nótt. Enginn neyðarútgangur var á hótelinu og eldurinn læsti sig í stigaganginn svo fjöldi fólks hafði enga undankomuleið. 15.4.2005 00:01
Samfylkingin: Félögum fjölgar ört Félögum í Samfylkingunni hefur að líkindum fjölgað um tæpan þriðjung í aðdraganda formannskosninganna, en kjörskrá var lokað klukkan sex. Formaður kjörstjórnar óttast ekki að stuðningsmenn annarra flokka hafi skráð sig í stórum stíl til að hafa áhrif á kosningarnar. 15.4.2005 00:01
Versnandi staða mannréttinda Staða mannréttinda hefur versnað í heiminum eftir að stríðið gegn hryðjuverkum hófst. Þetta kom fram í máli Mary Robinson, fyrrum forseta Írlands og mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðana, í Hátíðarsal Háskólabíós í gær 15.4.2005 00:01
Brotið gegn samningi Félagsdómur segir Útgerðafélagið Sólbak brjóta gegn kjarasamningi við Vélstjórafélagið með tryggja tveimur vélstjórum ekki 30 tíma hafnarfrí. Vélstjórarnir tveir og forstjóri útgerðarfélagsins eru ósáttir. Formaður Vélstjórafélagsins er kátur. 15.4.2005 00:01
Braut lög en var sýknuð af kröfum Vegagerðin braut lög með því að hafna öllum tilboðum í Héðinsfjarðargöng árið 2003, samkvæmt Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Vegagerðin var hins vegar sýknuð af bótakröfu Íslenskra aðalverktaka sem áttu lægsta boð í verkið þar sem fyrirtækinu hafði ekki tekist að sýna fram á tjón. Lögmaður Íslenskra aðalverktaka segir dóminn marka tímamót. Dóminum verður að öllum líkindum áfrýjað. 15.4.2005 00:01
Gjörbreytt starf með hitamyndavél Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja tóku í notkun í dag sérstaka hitamyndavél sem er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Einnig var tekið í notkun nýtt æfingahúsnæði sem er byggt úr gámaeiningum. 15.4.2005 00:01
Leitað til erlends vinnuafls Hundruð starfa eru auglýst hjá Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins en það er erfitt að fá Íslendinga til að vinna þessi störf. Forstöðumaður vinnumiðlunarinnar telur að með tilkomu erlendra starfsmannaleiga muni útlendingar í auknum mæli inna þessi störf af hendi. 15.4.2005 00:01
Brot á útlendingalögum Ákæra á hendur Jóni Guðmundssyni fyrir brot á lögum um útlendinga, atvinnuréttindi útlendinga og almennum hegningarlögum, var þingfest hjá Héraðsdómi Suðurlands á föstudag. 15.4.2005 00:01
Vilja fella niður fyrningafrest Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna skora á allsherjarnefnd að hleypa frumvarpi um niðurfellingu fyrningarfrests í kynferðisafbrotamálum gegn börnum út úr nefndinni enda hafi frumvarpið legið óafgreitt í nefndinni í tvö ár. 15.4.2005 00:01
Íslendingar hækka kvóta Aflaheimildir íslenskra skipa í norsk-íslenskri síld verða 14 prósentum hærri í ár en þegar samningar voru í gildi um stjórn veiða úr stofninum. Ástæðan er sú að Norðmenn hafa ekki viljað fallast á skiptingu heildarmagnsins og krafist þess að fá stærri hlut en þeir hafa haft. 15.4.2005 00:01
Börn hjálpa börnum Íslensk börn rétta indverskum jafnöldrum sínum nú hjálparhönd með því að safna fyrir skólabyggingu handa þeim. Meðal þeirra fyrstu verka var að fara að Bessastöðum þar sem forseti Íslands tók þeim fagnandi og gaf í marga söfnunarbauka. 15.4.2005 00:01
Vonarstjarna almennra flokksmanna Helle Thorning-Schmidt er fyrsta konan til að leiða danska jafnaðarmannaflokkinn og um leið fyrsta konan í sögu danskra stjórnmála sem á raunhæfan kost á að verða forsætisráðherra. Hún hyggst færa stefnu flokksins nær miðju.</font /></b /> 15.4.2005 00:01
Þörf á ungliðum í forystusveit Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður býður sig fram til varaformanns Samfylkingarinnar. Ákvörðun sína tilkynnti hann opinberlega í gær og tók þar með áskorun framkvæmdastjórnar Ungra jafnaðarmanna. 15.4.2005 00:01
Annasamur afmælisdagur Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, fagnaði 75 ára afmæli sínu í gær og er óhætt að segja að hún hafi haft í nógu að snúast. 15.4.2005 00:01
Landburður af nýjum félögum Talið er að allt að 4.000 nýir félagar hafi skráð sig í Samfylkinguna, en frestur til skráningar fyrir formannskjörið rann út klukkan sex í gærkvöld. "Það er landburður af nýjum félögum," segir Flosi Eiríksson formaður kjörstjórnar Samfylkingarinnar. 15.4.2005 00:01
Hótaði að stinga stúlkuna á hol Lögreglan í Kópavogi leitar enn tveggja manna, líklega um tvítugt, sem rændu peningum í verslun við Engihjalla síðdegis í gær. Annar þeirra rak skrúfjárn í maga afgreiðslustúlku og hótaði að stinga hana á hol ef hún afhenti honum ekki allt reiðufé, sem hún gerði. 14.4.2005 00:01
Grátbað um að lífi sínu yrði þyrmt Að minnsta kosti ellefu manns létust og um tuttugu særðust þegar tvær bílsprengjur sprungu í námunda við græna svæðið í Bagdad um klukkan sex í morgun. Sjónvarpsstöðin al-Jazeera birti í gær myndir af bandarískum ríkisborgara sem írakskir uppreisnarmenn rændu á mánudaginn. Hann grátbað um að lífi sínu yrði þyrmt 14.4.2005 00:01
Samstarf við kínverskan háskóla Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, mun undirrita samning um víðtækt samstarf við Háskólann í Shanghaí í opinberri heimsókn forseta Íslands til Kína nú í maí. 14.4.2005 00:01
Beita neitunarvaldi gegn Ratzinger Meirihluti bandarísku og þýsku kardinálanna sem mega kjósa nýjan páfa munu beita neitunarvaldi gegn því að Joseph Ratzinger, þýski kardinálinn sem rekið hefur Vatíkanið undanfarin ár, verði næsti páfi. Þetta segir ítalska dagblaðið <em>La Repubblica</em>. 14.4.2005 00:01
Grafa þarf úrganginn ómeðhöndlaðan Grafa þarf nánast allan sláturúrgang ómeðhöndlaðan í jörð, þegar Kjötmjölsverksmiðjunni í Hraungerðishreppi verður lokað. Framkvæmdastjóri verksmiðjunnar segir þróunina vera bakslag sem ekki ætti að þekkjast hjá siðmenntuðum þjóðum. 14.4.2005 00:01
Ökumaður bifhjóls slasaðist Ökumaður bifhjóls slasaðist í Keflavík á tólfta tímanum í gærkvöldi þegar hann skall í götuna við það að koma í veg fyrir árekstur við bíl. Hann slasaðist ekki alvarlega en var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðrunesja til aðhlynningar og rannsóknar. 14.4.2005 00:01
Rassía hjá þýsku lögreglunni Þýska lögreglan gerði húsleit í þrjátíu byggingum í morgun í leit að íslömskum hryðjuverkamönnum og stuðningsmönnum þeirra. Ekki verður gefið upp fyrr en á hádegi hver árangurinn var en í svipaðri aðgerð í janúar voru 22 handteknir fyrir ýmis konar stuðning við hryðjuverkahópa. 14.4.2005 00:01
Dregið úr umsóknum í dag Dregið verður úr umsóknum um 30 einbýlishúsalóðir við Lambasel í Breiðholti fyrir luktum dyrum hjá Sýslumanninum í Reykjavík klukkan fjögur í dag og fá umsækjendur og fjölmiðlar ekki að fylgjast með útdrættinum. 14.4.2005 00:01
Átta fótboltabullur handteknar Átta stuðningsmenn ítalska liðsins Juventus voru handteknir í gær eftir að hafa ráðist með hafnaboltakylfu á stuðningsmann enska liðsins Liverpool. Þá reyndu stuðningsmenn ítalska liðsins einnig að ráðast að rútu sem í voru Englendingar á leið á leikinn. 14.4.2005 00:01
Chirac reynir að sannfæra Frakka Jacques Chirac Frakklandsforseti mun í kvöld taka þátt í sjónvarpskappræðum með áttatíu frönskum ungmennum þar sem fjallað verður um stjórnarskrá Evrópusambandsins. Chirac mun reyna að koma þeim skilaboðum til þjóðarinnar að hún verði að samþykkja stjórnarskrána í lok maí. 14.4.2005 00:01
Borgin látin kaupa kampavínsbörur Borgarstarfsmenn voru látnir kaupa og sendast með þrjár hjólbörur undir vín í fimmtugsafmæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Ekki var gerður reikningur. Rekstrarstjóri hjá gatnamálasviði segir börurnar hafa nýst síðar í hverfisstöð. Til marks um velvild starfsmanna í sinn garð að mati Ingibjargar Sólrúnar sem telur ekkert óeðlilegt við málið. 14.4.2005 00:01
Þaulskipulagt tyggjósjálfsalarán Harla óvenjulegt, en að því er virðist þaulskipulagt rán, var framið í anddyri verslunar í Njarðvík um kvöldmatarleytið í gærkvöldi þegar tveir ungir menn undu sér þar inn, slitu fullan tyggjósjálfsala af standinum og hlupu með hann út. 14.4.2005 00:01
Páfi í dýrlingatölu? Kaþólikkar í Póllandi róa nú að því öllum árum að reyna að koma Jóhannesi Páli páfa II í dýrlingatölu. Síðan páfinn lést hefur Vatíkaninu borist þúsundir bréfa frá Póllandi þar sem fullyrt er að hann hafi búið yfir óvenjulegum lækningamætti. Höfundar bréfanna rekja í þeim fjölda dæmisagna af kraftaverkum páfans. 14.4.2005 00:01
Jarðvatn flæddi inn hjá Marel Minnstu munaði að verulegt tjón hlytist af þegar jarðvatn fór að flæða inn í kjallarageymslu í húsi Marels við Molduhraun í Garðabæ í nótt. Þegar slökkviliðið var kallað á vettvang var þriggja sentímetra djúpt vatn á þúsund fermetra stóru gólfinu en svo vel vildi til að allt sem geymt var í kjallaranum var á vörubrettum og vatnið náði ekki upp á þau. 14.4.2005 00:01