Tuttugu fórust í eldsvoða í París 15. apríl 2005 00:01
Tuttugu manns fórust í eldsvoða í París þegar hótel brann til kaldra kola aðfaranótt föstudagsins. Ríflega fimmtíu slösuðust í brunanum sem er einn sá versti í sögu borgarinnar á síðari tímum. Hotel Paris-Opera er einnar stjörnu hótel í níunda hverfi höfuðborgarinnar. Það er á sex hæðum og höfðu borgaryfirvöld leigt nokkur herbergi fyrir flóttamenn frá Afríku sem biðu þess að komast í betri húsakynni. Laust eftir klukkan tvö í fyrrinótt kom upp eldur á fyrstu hæð hótelsins og er talið að hann hafi kviknað í eldhúsi þar sem framreiða átti morgunverð. Logarnir breiddust út á svipstundu og vöknuðu margir gestanna upp við vondan draum þegar þeir urðu reyks og hitans varir. Mikil skelfing greip um sig og gripu margir til þess ráðs að stökkva út um glugga en einhverjir flúðu upp á þak. Maður sem býr í næsta húsi við hótelið sagðist hafa vaknað við hróp og síðan sá hann þrjá stökkva út um glugga, þar á meðal konu og barn. "Þau lágu bara á gangstéttinni og hreyfðu sig ekki. Allir voru að æpa og fólk lá í götunni." Slökkvilið kom fljótlega á vettvang og tók það rúma klukkustund að ná tökum á eldinum. 250 slökkviliðsmenn voru á staðnum þegar mest var og höfðu þeir í nógu að snúast. Einn þeirra vann hetjudáð þegar hann óð inn í eldhafið og bjargaði ungabarni sem grét þar fyrir innan. Í dögun var ljóst að tuttugu manns hefðu beðið bana í brunanum og rúmlega fimmtíu hefðu slasast, þar af ellefu alvarlega. Ekki er vitað um þjóðerni hinna látnu en mörg börn eru þeirra á meðal. Í hópi hinna slösuðu eru Frakkar, Bandaríkjamenn, Senegalar, Túnisar og Úkraínumenn. Að sögn fréttaritara BBC í París hafa spurningar þegar vaknað um öryggismál hótelsins. Aðeins einn útgangur er á byggingunni og þar er engan brunastiga að finna enda er slíkur búnaður ekki skylda í gömlum húsum. Jacques Chirac, Frakklandsforseti og fyrrverandi borgarstjóri í París, sagðist harmi sleginn vegna atburðarins og Dominique de Villepin innanríkisráðherra heimsótti brunastaðinn í gærmorgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira