Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sérhæfð meðferð fyrir geðsjúka Stofnað hefur verið svokallað vettvangsteymi og sérhæfð meðferðardeild fyrir langveika geðsjúka sem þjást af geðrofs- og fíkniefnasjúkdómum og hafa rekist illa innan kerfisins. 14.4.2005 00:01
Grænn flekkur í Eyjafirði Margir Akureyringar ráku upp stór augu í dag þegar ljósgrænn flekkur sást breiða úr sér í sjónum langt út eftir Eyjafirði. Töldu sumir að mengunarslys hefði orðið en svo reyndist ekki vera, heldur var það heilbrigðiseftirlit Norðurlands sem setti litarefni út í gegnum skólpkerfið til að fylgjast með dreifingunni. 14.4.2005 00:01
Vilja ekki hækka leikskólagjöld Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að fallið verði frá hækkunum á leikskólagjöldum sem R-listinn samþykkti fyrir fjórum mánuðum. Tillöguna lögðu þeir fram á fundi borgarráðs í dag og vilja að hækkunin verði aflögð frá 1. maí nk. Tillögunni var vísað til afgreiðslu menntaráðs. 14.4.2005 00:01
Fjarstödd í vetur á fullum launum Halla Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, fær full laun frá bænum þótt hún hafi verið erlendis í allan vetur. Gunnar I Birgisson, formaður bæjarráðs, segist ekki hafa getað krafist þess af Höllu að hún tæki launalaust leyfi þegar hún hafi fylgt bónda sínum utan. Eiginmaður Höllu er bæjarverkfræðingur í Kópavogi. Hann er í námsleyfi. 14.4.2005 00:01
Skortir skýra stefnu Mjög vantar upp á að íslensk fyrirtæki hafi mótað sér skýrar reglur hvað varðar misnotkun áfengis og annarra vímuefna meðal starfsmanna sinna en ekki er talin þörf á hertum lögum hvað þessi mál varðar. Þetta er meðal þess sem fram kom á málþingi um áfengis og vímuvarnir á vinnustöðum sem Vinnueftirlitið stóð fyrir í gær. 14.4.2005 00:01
Dæmdur fyrir árásina í Atlanta ´96 Hægrisinnaður öfgamaður í Bandaríkjunum viðurkenndi í gær fyrir dómi að hafa staðið fyrir sprengjuárás á Ólympíuleikunum í Atlanta árið 1996, auk þriggja annarra árása á árunum 1996-1998. Tveir létust í árásunum og meira en eitt hundrað manns særðust. 14.4.2005 00:01
Íslensk alþjóðleg skipaskrá óþörf Skipafélög í millilandaflutningi þurfa ekki fjárhagslegan stuðning, sagði Geir H. Haarde í utandagskrárumræðum á Alþingi. Íslensk alþjóðleg skipaskrá væri því óþörf. 14.4.2005 00:01
Rúmlega 40 ríkisfangslausir Rúmlega 40 einstaklingar eru með lögheimili hér á landi en án ríkisfangs. Einkum er um að ræða "kvótaflóttamenn" og fólk frá Eystrasaltsríkjunum. Þá eru átta manns á svokallaðri utangarðsskrá, samkvæt upplýsingum Hagstofunnar. </font /></b /> 14.4.2005 00:01
Sterk króna grefur undan útveginum "Nákvæmar tölur höfum við ekki tekið saman en fyrir liggur að róðurinn er orðinn afar erfiður mörgum fyrirtækjum í sjávarútvegi," segir Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva. 14.4.2005 00:01
Tæp 10 þúsund skora á stjórnvöld Tæplega tíu þúsund manns hafa undirritað áskorun til stjórnvalda um afnám fyrninga sakar þegar kynferðisbrot er framið gagnvart barni undir 14 ára aldri, að sögn Svövu Björnsdóttur verkefnisstjóra hjá Blátt Áfram sem er forvarnarverkefni gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum 14.4.2005 00:01
Um 30 þúsund kort á ári Bráðlega verður hægt að sækja um evrópskt sjúkratryggingakort á heimasíðu Tryggingastofnunar ríkisins, eða frá og með 1. maí . 14.4.2005 00:01
Hyggja ekki á hernaðaraðgerðir Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur tjáð bandarískum embættismönnum að Ísraelar hyggi ekki á hernaðaraðgerðir gegn Írönum til að koma í veg fyrir að þeir eignist kjarnorkuvopn. 14.4.2005 00:01
Svefnaðstaða fyrir 800 drengi Í árlegri söfnun ABC barnahjálpar verður að þessu sinni safnað fyrir stórri byggingu á Heimili litlu ljósanna á Indlandi, þar sem verður svefnaðstaða fyrir 800 drengi. Áætlaður byggingarkostnaður er tæplega 10 milljónir króna. 14.4.2005 00:01
Stofna hóp fyrir geðklofa Geðhjálp hefur ákveðið að stofna hóp fyrir fólk með geðklofa. Markmiðið er að bæta líðan þátttakenda á þann hátt, að þeir deili reynslu sinni með öðrum og læri af því sem aðrir hafa gert til að ná betri heilsu. Umfram allt á þátttaka í hópnum að vera uppbyggileg þó svo að málefnið sé á stundum erfitt. 14.4.2005 00:01
Framlögin hafa rúmlega tvöfaldast Framlög ríkisins til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafa meira en tvöfaldast á síðustu sjö árum, úr 3,3 milljörðum króna árið 1998 í 7,1 milljarð 2005. Þetta kemur fram í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins. 14.4.2005 00:01
Samgönguáætlun gagnrýnd Höfuðborgarsvæðið og Reykjavíkurborg sérstaklega fara verulega varhluta af fyrirhuguðum framkvæmdum ríkisins í samgöngumálum að mati borgarráðs. Er ný fjögurra ára samgönguáætlun Sturla Böðvarssonar gagnrýnd þar sem innan við tíu prósent framkvæmdafjár fari til höfuðborgarbúa þar sem 40 prósent landsmanna búa. 14.4.2005 00:01
Framkvæmdir á eftir áætlun "Framkvæmdirnar eru aðeins á eftir áætlun en við stefnum ótrauð að því að opna sem fyrr á þessu ári," segir Stefán Haraldsson, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar. 14.4.2005 00:01
10 þúsund undirskriftir komnar Yfir tíu þúsund undirskriftir hafa nú safnast í undirskriftasöfnun Blátt áfram þar sem alþingismenn eru hvattir til að samþykkja lagafrumvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um afnám fyrningarfresta í kynferðisafbrotum gegn börnum. 14.4.2005 00:01
1,4 milljarðar vegna Helfararinnar Alríkisdómstóll í New York dæmdi í gær svissneskan banka til að greiða fjórtán ættingjum tveggja fórnarlamba Helfararinnar 1,4 milljarða króna eftir áralöng málaferli. 14.4.2005 00:01
Samfylkingin mótmælir vítinu Þingflokkur Samfylkingarinnar mótmælir því harðlega að orð Lúðvíks Bergvinssonar, sem Halldór Blöndal vítti hann fyrir í gær, hafi verið af því tagi að beita ætti vítum. Lúðvík sagði: „Forseti, ég hef orðið.“ 14.4.2005 00:01
Landamæraeftirlit ESB í Póllandi Höfuðstöðvar Landamæraeftirlits Evrópusambandsins verða í Póllandi. Þetta verður fyrsta Evrópusambandsstofnunin með höfuðstöðvar í einu hinna tíu nýju ríkja sambandsins. 14.4.2005 00:01
Sættir náðust á síðustu stundu Meirihlutasamstarfi í sveitarstjórn Skagafjarðar hefur verið bjargað fyrir horn á elleftu stundu. Sættir náðust innan Sjálfstæðisflokks eftir hatrammar deilur. Gísli Gunnarsson oddviti Sjálfstæðismanna mun ekki sækjast eftir að leiða flokkinn í sveitarstjórnarkosningunum að ári. 14.4.2005 00:01
Neyðarfundur á Ítalíu Ríkisstjórn Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, er í kreppu. Neyðarfundur var haldinn í dag en ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu miklu fylgi í héraðskosningum í síðustu viku. 14.4.2005 00:01
Samstarf við háskóla í Kína Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst mun undirrita samstarfssamning við Háskólann í Shanghai í opinberri heimsókn forseta Íslands til Kína í næsta mánuði 14.4.2005 00:01
Eftirlit og þjónusta skilin að Stýrihópur samgönguráðherra leggur til að starfsemi Flugmálastjórnar verði skipt upp í tvö fyrirtæki. Er það í samræmi við erlendar og innlendar kröfur. 14.4.2005 00:01
Líkið af Norrænum manni Ekki hefur enn tekist að bera kennsl á karlamannslík sem fannst sundurhlutað í miðborg Stokkhólms fyrir skemmstu. Það er talið vera af norrænum manni. 14.4.2005 00:01
Erlend tímarit á lægra verði Office 1 hefur hafið sölu á erlendum tímaritum á mun lægra verði en áður hefur tíðkast. Fjölvar Darri Rafnsson framkvæmdastjóri segir ástæðuna vera þá að fyrirtækið hafi náð að semja við dreifingaraðila erlendis sem vilji selja þeim, því þeir geti ekki keypt beint af útgefendum þar sem Penninn hafi samið við þá um dreifingu hérlendis. 14.4.2005 00:01
Stolin forrit fyrir milljarða Sjö menn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar í Danmörku fyrir stórfelldan stuld á tölvuforritum. Er talið að þeir hafi hagnast um milljarða króna. 14.4.2005 00:01
Hermennirnir saklausir? Bandarísku hermennirnir sem skutu ítalska leyniþjónustumanninn Nicola Calipari til bana og særðu blaðakonuna Giuliönu Sgrena, bera ekki ábyrgð á því hvernig fór. Þetta hefur bandaríska sjónvarpsstöðin NBC eftir heimildarmönnum að sé niðurstaða ítalsk-bandarískrar rannsóknarnefndar sem er í þann mund að ljúka störfum. 14.4.2005 00:01
Með 300 gr. af hassi á leið norður Þrír menn 19 til 25 ára voru handteknir við Blönduós með 300 grömm af hassi. Þeir gista fangageymslur og hefur lögreglan óskað eftir því að þeir verði settir í gæsluvarðhald. 14.4.2005 00:01
Útlendingarnir eru forsendan Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur að umræðan um erlent vinnuafl sé neikvæð miðað við þær ofþensluaðstæður sem Íslendingar búi við. Erlenda vinnuaflið sé forsenda fyrir því að Íslendingar eigi ekki eftir að upplifa ofþenslukollhnís með tilheyrandi kjarahruni. 14.4.2005 00:01
Eignarnám hjá borgarlögmanni Eignarnám borgarinnar á landi Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, í Norðlingaholti er komið til Gunnars Eydal borgarlögmanns. 14.4.2005 00:01
Gula spjaldið á loft Halldór Blöndal, forseti Alþingis, hefur í þrígang á þremur árum vítt þingmenn. Þegar Halldór greip fyrst til gula spjaldsins hafði það legið óhreyft í 45 ár. Álíka heimildum í fundarsköpum bæjar- og sveitarstjórna hefur ekki verið beitt, eftir því sem næst verður komist. </font /></b /> 14.4.2005 00:01
Samsæri við neytendur Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi gagnrýnir borgaryfirvöld fyrir að gera samning við einkaaðila um að kaupa byggingarlóðir í Norðlingaholti "með góðu eða illu og standa að eignarnámi ef eigendur vilja ekki selja. 14.4.2005 00:01
Sami vandinn alls staðar Öll lönd Norður-Evrópu eiga við svipaðan vanda að stríða á vinnumarkaði og Ísland hvað varðar flæði á ódýru erlendu vinnuafli framhjá lögum og reglum. 14.4.2005 00:01
Veirunni eytt Rannsóknarstofur um allan heim eru nú að eyða banvænni flensuveiru sem var send til þeirra fyrir misskilning. Veiran olli heimsfaraldri árið 1957 og kostaði þá fjórar milljónir manna lífið. 14.4.2005 00:01
Skítlega eðlið ekki vítt Salome Þorkelsdóttir vítti aldrei menn í forsetatíð sinni en beitti þess í stað mildari aðferðum til að hafa hemil á orðljótum þingmönnum. "Ég benti mönnum heldur á að gæta orða sinna," segir Salome en viðurkennir að í eitt skipti hefði mátt beita vítum. "Það kom upp eitt alvarlegt atvik sem orkaði tvímælis um hvort ég hefði ekki átt að nota þetta sterka orð; vítur." 14.4.2005 00:01
Tíu þúsund bófar gómaðir Á aðeins einni viku hafa lögreglusveitir um gervöll Bandaríkin klófest 10.340 glæpamenn sem voru eftirlýstir fyrir margvísleg brot. 14.4.2005 00:01
Tíu þúsund bófar gómaðir Á aðeins einni viku hafa lögreglusveitir um gervöll Bandaríkin klófest 10.340 glæpamenn sem voru eftirlýstir fyrir margvísleg brot. 14.4.2005 00:01
Vilja skýrar reglur Verkalýðshreyfingin krefst þess af stjórnvöldum að erlendar starfsmannaleigur verði viðurkenndar hér á landi og settar verði skýrar reglur um þær, bæði til þess að samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja skekkist ekki og til að ekki sé grafið undan kjarasamningum. </font /></b /> 14.4.2005 00:01
Drottningin varar við trúaröfgum Margrét Þórhildur Danadrottning segir í nýútkominni ævisögu sinni að Danir verði að sporna við uppgangi heittrúaðra múslima í landinu. 14.4.2005 00:01
Neita sök Þingfesting var í máli tveggja Letta, GT verktaka og forsvarsmanns fyrirtækisins í Héraðsdómi Austurlands í gær. Málinu gegn verktakanum var frestað meðan verjandi aflar gagna eða til 20. apríl. Aðalmeðferð í málinu gegn Lettunum mun eiga sér stað 4. maí. 14.4.2005 00:01
Drottningin varar við trúaröfgum Margrét Þórhildur Danadrottning segir í nýútkominni ævisögu sinni að Danir verði að sporna við uppgangi heittrúaðra múslima í landinu. 14.4.2005 00:01
Í stríði gegn fóstureyðingum Dómstóll í Atlanta í Georgíuríki hefur dæmt Eric Rudolph í ferfalt lífstíðarfangelsi fyrir fjögur sprengjutilræði, þar á meðal sprengingu í almenningsgarði rétt fyrir Ólympíuleikana 1996. 14.4.2005 00:01
3.000 hjónabönd ógilt Hæstiréttur Oregonríkis í Bandaríkjunum hefur ógilt næstum 3.000 hjónabönd samkynhneigðra. 14.4.2005 00:01