Erlent

Beita neitunarvaldi gegn Ratzinger

Meirihluti bandarísku og þýsku kardinálanna sem mega kjósa nýjan páfa munu beita neitunarvaldi gegn því að Joseph Ratzinger, þýski kardinálinn sem rekið hefur Vatíkanið undanfarin ár, verði næsti páfi. Þetta segir ítalska dagblaðið La Repubblica. Ítölsku kardinálarnir eru að reyna að koma sér saman um hvern þeir eigi að styðja og er nafn Mílanóbiskupsins Tettamanzi helst nefnt. Kardinálarnir verða lokaðir inni til að velja nýjan páfa á mánudaginn kemur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×