Fleiri fréttir

Ökumaður bifhjóls slasaðist

Ökumaður bifhjóls slasaðist í Keflavík á tólfta tímanum í gærkvöldi þegar hann skall í götuna við það að koma í veg fyrir árekstur við bíl. Hann slasaðist ekki alvarlega en var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðrunesja til aðhlynningar og rannsóknar.

Rassía hjá þýsku lögreglunni

Þýska lögreglan gerði húsleit í þrjátíu byggingum í morgun í leit að íslömskum hryðjuverkamönnum og stuðningsmönnum þeirra. Ekki verður gefið upp fyrr en á hádegi hver árangurinn var en í svipaðri aðgerð í janúar voru 22 handteknir fyrir ýmis konar stuðning við hryðjuverkahópa.

Dregið úr umsóknum í dag

Dregið verður úr umsóknum um 30 einbýlishúsalóðir við Lambasel í Breiðholti fyrir luktum dyrum hjá Sýslumanninum í Reykjavík klukkan fjögur í dag og fá umsækjendur og fjölmiðlar ekki að fylgjast með útdrættinum.

Átta fótboltabullur handteknar

Átta stuðningsmenn ítalska liðsins Juventus voru handteknir í gær eftir að hafa ráðist með hafnaboltakylfu á stuðningsmann enska liðsins Liverpool. Þá reyndu stuðningsmenn ítalska liðsins einnig að ráðast að rútu sem í voru Englendingar á leið á leikinn.

Chirac reynir að sannfæra Frakka

Jacques Chirac Frakklandsforseti mun í kvöld taka þátt í sjónvarpskappræðum með áttatíu frönskum ungmennum þar sem fjallað verður um stjórnarskrá Evrópusambandsins. Chirac mun reyna að koma þeim skilaboðum til þjóðarinnar að hún verði að samþykkja stjórnarskrána í lok maí.

Borgin látin kaupa kampavínsbörur

Borgarstarfsmenn voru látnir kaupa og sendast með þrjár hjólbörur undir vín í fimmtugsafmæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Ekki var gerður reikningur. Rekstrarstjóri hjá gatnamálasviði segir börurnar hafa nýst síðar í hverfisstöð. Til marks um velvild starfsmanna í sinn garð að mati Ingibjargar Sólrúnar sem telur ekkert óeðlilegt við málið.

Þaulskipulagt tyggjósjálfsalarán

Harla óvenjulegt, en að því er virðist þaulskipulagt rán, var framið í anddyri verslunar í Njarðvík um kvöldmatarleytið í gærkvöldi þegar tveir ungir menn undu sér þar inn, slitu fullan tyggjósjálfsala af standinum og hlupu með hann út.

Páfi í dýrlingatölu?

Kaþólikkar í Póllandi róa nú að því öllum árum að reyna að koma Jóhannesi Páli páfa II í dýrlingatölu. Síðan páfinn lést hefur Vatíkaninu borist þúsundir bréfa frá Póllandi þar sem fullyrt er að hann hafi búið yfir óvenjulegum lækningamætti. Höfundar bréfanna rekja í þeim fjölda dæmisagna af kraftaverkum páfans.

Jarðvatn flæddi inn hjá Marel

Minnstu munaði að verulegt tjón hlytist af þegar jarðvatn fór að flæða inn í kjallarageymslu í húsi Marels við Molduhraun í Garðabæ í nótt. Þegar slökkviliðið var kallað á vettvang var þriggja sentímetra djúpt vatn á þúsund fermetra stóru gólfinu en svo vel vildi til að allt sem geymt var í kjallaranum var á vörubrettum og vatnið náði ekki upp á þau.

Fundu mikið magn af hassi

Lögreglan á Akureyri handtók í gær þrjá menn vegna fíkniefnamáls. Mennirnir voru á leið frá Reykjavík til Akureyrar og fundust um 300 grömm af hassi í fórum þeirra. Þetta er eitt mesta magn af hassi sem lögreglan á Akureyri hefur lagt hald á í einu.

Höfuðborgarsvæðið rafmagnslaust

Stærstur hluti höfuðborgarsvæðisins varð rafmagnslaus í nokkrar mínútur á tólfta tímanum þegar einni aðflutningsleið Landsvirkjunar til borgarinnar sló út. Við það urðu níu af tólf aðveitustöðvum Orkuveitu Reykjavíkur spennulausar.

Styrkja kjarnorkuvarnir sínar

Norður-Kórea segist ætla að styrkja kjarnorkuvarnir sínar vegna fjandsamlegrar afstöðu Bandaríkjanna til landsins, að sögn Itar-Tass fréttastofunnar.

Eina stjórnarandstaðan í Bretlandi

Frjálslyndir demókratar í Bretlandi hófu kosningabaráttu sína í dag með því að lýsa því yfir að þeir væru eina raunverulega stjórnarandstaðan í landinu. Demókratarnir voru einir stóru flokkanna á móti innrásinni í Írak.

Mikil spenna vegna geimskotsins

Mikil spenna ríkir hjá Geimferðastofnun Bandaríkjanna vegna fyrirhugaðrar ferðar geimferjunnar Discovery um miðjan næsta mánuð. Geimskot hennar verður fyrsta mannaða geimferð Bandaríkjanna síðan Kólumbía fórst í lendingu árið 2003.

Sérhæfð meðferð fyrir geðsjúka

Stofnað hefur verið svokallað vettvangsteymi og sérhæfð meðferðardeild fyrir langveika geðsjúka sem þjást af geðrofs- og fíkniefnasjúkdómum og hafa rekist illa innan kerfisins. 

Grænn flekkur í Eyjafirði

Margir Akureyringar ráku upp stór augu í dag þegar ljósgrænn flekkur sást breiða úr sér í sjónum langt út eftir Eyjafirði. Töldu sumir að mengunarslys hefði orðið en svo reyndist ekki vera, heldur var það heilbrigðiseftirlit Norðurlands sem setti litarefni út í gegnum skólpkerfið til að fylgjast með dreifingunni.

Vilja ekki hækka leikskólagjöld

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að fallið verði frá hækkunum á leikskólagjöldum sem R-listinn samþykkti fyrir fjórum mánuðum. Tillöguna lögðu þeir fram á fundi borgarráðs í dag og vilja að hækkunin verði aflögð frá 1. maí nk. Tillögunni var vísað til afgreiðslu menntaráðs.

Fjarstödd í vetur á fullum launum

Halla Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, fær full laun frá bænum þótt hún hafi verið erlendis í allan vetur. Gunnar I Birgisson, formaður bæjarráðs, segist ekki hafa getað krafist þess af Höllu að hún tæki launalaust leyfi þegar hún hafi fylgt bónda sínum utan. Eiginmaður Höllu er bæjarverkfræðingur í Kópavogi. Hann er í námsleyfi.

Skortir skýra stefnu

Mjög vantar upp á að íslensk fyrirtæki hafi mótað sér skýrar reglur hvað varðar misnotkun áfengis og annarra vímuefna meðal starfsmanna sinna en ekki er talin þörf á hertum lögum hvað þessi mál varðar. Þetta er meðal þess sem fram kom á málþingi um áfengis og vímuvarnir á vinnustöðum sem Vinnueftirlitið stóð fyrir í gær.

Dæmdur fyrir árásina í Atlanta ´96

Hægrisinnaður öfgamaður í Bandaríkjunum viðurkenndi í gær fyrir dómi að hafa staðið fyrir sprengjuárás á Ólympíuleikunum í Atlanta árið 1996, auk þriggja annarra árása á árunum 1996-1998. Tveir létust í árásunum og meira en eitt hundrað manns særðust.

Íslensk alþjóðleg skipaskrá óþörf

Skipafélög í millilandaflutningi þurfa ekki fjárhagslegan stuðning, sagði Geir H. Haarde í utandagskrárumræðum á Alþingi. Íslensk alþjóðleg skipaskrá væri því óþörf.

Rúmlega 40 ríkisfangslausir

Rúmlega 40 einstaklingar eru með lögheimili hér á landi en án ríkisfangs. Einkum er um að ræða "kvótaflóttamenn" og fólk frá Eystrasaltsríkjunum. Þá eru átta manns á svokallaðri utangarðsskrá, samkvæt upplýsingum Hagstofunnar. </font /></b />

Sterk króna grefur undan útveginum

"Nákvæmar tölur höfum við ekki tekið saman en fyrir liggur að róðurinn er orðinn afar erfiður mörgum fyrirtækjum í sjávarútvegi," segir Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva.

Tæp 10 þúsund skora á stjórnvöld

Tæplega tíu þúsund manns hafa undirritað áskorun til stjórnvalda um afnám fyrninga sakar þegar kynferðisbrot er framið gagnvart barni undir 14 ára aldri, að sögn Svövu Björnsdóttur verkefnisstjóra hjá Blátt Áfram sem er forvarnarverkefni gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum

Um 30 þúsund kort á ári

Bráðlega verður hægt að sækja um evrópskt sjúkratryggingakort á heimasíðu Tryggingastofnunar ríkisins, eða frá og með 1. maí .

Hyggja ekki á hernaðaraðgerðir

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur tjáð bandarískum embættismönnum að Ísraelar hyggi ekki á hernaðaraðgerðir gegn Írönum til að koma í veg fyrir að þeir eignist kjarnorkuvopn.

Svefnaðstaða fyrir 800 drengi

Í árlegri söfnun ABC barnahjálpar verður að þessu sinni safnað fyrir stórri byggingu á Heimili litlu ljósanna á Indlandi, þar sem verður svefnaðstaða fyrir 800 drengi. Áætlaður byggingarkostnaður er tæplega 10 milljónir króna.

Stofna hóp fyrir geðklofa

Geðhjálp hefur ákveðið að stofna hóp fyrir fólk með geðklofa. Markmiðið er að bæta líðan þátttakenda á þann hátt, að þeir deili reynslu sinni með öðrum og læri af því sem aðrir hafa gert til að ná betri heilsu. Umfram allt á þátttaka í hópnum að vera uppbyggileg þó svo að málefnið sé á stundum erfitt.

Framlögin hafa rúmlega tvöfaldast

Framlög ríkisins til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafa meira en tvöfaldast á síðustu sjö árum, úr 3,3 milljörðum króna árið 1998 í 7,1 milljarð 2005. Þetta kemur fram í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins.

Samgönguáætlun gagnrýnd

Höfuðborgarsvæðið og Reykjavíkurborg sérstaklega fara verulega varhluta af fyrirhuguðum framkvæmdum ríkisins í samgöngumálum að mati borgarráðs. Er ný fjögurra ára samgönguáætlun Sturla Böðvarssonar gagnrýnd þar sem innan við tíu prósent framkvæmdafjár fari til höfuðborgarbúa þar sem 40 prósent landsmanna búa.

Framkvæmdir á eftir áætlun

"Framkvæmdirnar eru aðeins á eftir áætlun en við stefnum ótrauð að því að opna sem fyrr á þessu ári," segir Stefán Haraldsson, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar.

10 þúsund undirskriftir komnar

Yfir tíu þúsund undirskriftir hafa nú safnast í undirskriftasöfnun Blátt áfram þar sem alþingismenn eru hvattir til að samþykkja lagafrumvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um afnám fyrningarfresta í kynferðisafbrotum gegn börnum.

1,4 milljarðar vegna Helfararinnar

Alríkisdómstóll í New York dæmdi í gær svissneskan banka til að greiða fjórtán ættingjum tveggja fórnarlamba Helfararinnar 1,4 milljarða króna eftir áralöng málaferli.

Samfylkingin mótmælir vítinu

Þingflokkur Samfylkingarinnar mótmælir því harðlega að orð Lúðvíks Bergvinssonar, sem Halldór Blöndal vítti hann fyrir í gær, hafi verið af því tagi að beita ætti vítum. Lúðvík sagði: „Forseti, ég hef orðið.“

Landamæraeftirlit ESB í Póllandi

Höfuðstöðvar Landamæraeftirlits Evrópusambandsins verða í Póllandi. Þetta verður fyrsta Evrópusambandsstofnunin með höfuðstöðvar í einu hinna tíu nýju ríkja sambandsins.

Sættir náðust á síðustu stundu

Meirihlutasamstarfi í sveitarstjórn Skagafjarðar hefur verið bjargað fyrir horn á elleftu stundu. Sættir náðust innan Sjálfstæðisflokks eftir hatrammar deilur. Gísli Gunnarsson oddviti Sjálfstæðismanna mun ekki sækjast eftir að leiða flokkinn í sveitarstjórnarkosningunum að ári.

Neyðarfundur á Ítalíu

Ríkisstjórn Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, er í kreppu. Neyðarfundur var haldinn í dag en ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu miklu fylgi í héraðskosningum í síðustu viku.

Samstarf við háskóla í Kína

Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst mun undirrita samstarfssamning við Háskólann í Shanghai í opinberri heimsókn forseta Íslands til Kína í næsta mánuði

Eftirlit og þjónusta skilin að

Stýrihópur samgönguráðherra leggur til að starfsemi Flugmálastjórnar verði skipt upp í tvö fyrirtæki. Er það í samræmi við erlendar og innlendar kröfur.

Líkið af Norrænum manni

Ekki hefur enn tekist að bera kennsl á karlamannslík sem fannst sundurhlutað í miðborg Stokkhólms fyrir skemmstu. Það er talið vera af norrænum manni.

Erlend tímarit á lægra verði

Office 1 hefur hafið sölu á erlendum tímaritum á mun lægra verði en áður hefur tíðkast. Fjölvar Darri Rafnsson framkvæmdastjóri segir ástæðuna vera þá að fyrirtækið hafi náð að semja við dreifingaraðila erlendis sem vilji selja þeim, því þeir geti ekki keypt beint af útgefendum þar sem Penninn hafi samið við þá um dreifingu hérlendis.

Stolin forrit fyrir milljarða

Sjö menn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar í Danmörku fyrir stórfelldan stuld á tölvuforritum. Er talið að þeir hafi hagnast um milljarða króna.

Hermennirnir saklausir?

Bandarísku hermennirnir sem skutu ítalska leyniþjónustumanninn Nicola Calipari til bana og særðu blaðakonuna Giuliönu Sgrena, bera ekki ábyrgð á því hvernig fór. Þetta hefur bandaríska sjónvarpsstöðin NBC eftir heimildarmönnum að sé niðurstaða ítalsk-bandarískrar rannsóknarnefndar sem er í þann mund að ljúka störfum.

Með 300 gr. af hassi á leið norður

Þrír menn 19 til 25 ára voru handteknir við Blönduós með 300 grömm af hassi. Þeir gista fangageymslur og hefur lögreglan óskað eftir því að þeir verði settir í gæsluvarðhald.

Útlendingarnir eru forsendan

Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur að umræðan um erlent vinnuafl sé neikvæð miðað við þær ofþensluaðstæður sem Íslendingar búi við. Erlenda vinnuaflið sé forsenda fyrir því að Íslendingar eigi ekki eftir að upplifa ofþenslukollhnís með tilheyrandi kjarahruni.

Sjá næstu 50 fréttir