Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hálf milljón mótmælir í Beirút Um hálf milljón manna safnaðist saman í miðborg Beirút í gær og mótmælti afskiptum Bandaríkjamanna af Líbanon. 8.3.2005 00:01
Fini dregur skýringarnar í efa Gianfranco Fini, utanríkisráðherra Ítalíu, dregur í efa skýringar bandarískra yfirvalda um tildrög skotárásarinnar á bíl blaðakonunnar Giuliana Sgrena. 8.3.2005 00:01
Ógiftar konur greindari en giftar Ógiftar konur eru greindari en þær giftu. Það er þó ekki hjónabandið eða samlífið við karlmenn sem dregur svona úr greindinni, heldur eru karlar hræddir við gáfaðar konur. Viðamikil rannsókn sem staðið hefur í 40 ár leiðir þetta í ljós. 8.3.2005 00:01
Æfingaflug flutt á Sandskeið Æfinga- og kennsluflug verður flutt á Sandskeið. Fjárveiting liggur fyrir til að leggja þar þúsund metra langa flugbraut með bundnu slitlagi. 8.3.2005 00:01
Mælt með þeim síst hæfa Fyrrum útvarpsráðsmaður segir að fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna í útvarpsráði hafi í gær mælt með þeim umsækjanda í stöðu fréttastjóra Ríkisútvarpsins sem er síst hæfur, Auðuni Georg Ólafssyni. Starfsfólk RÚV skorar á útvarpsstjóra að ráða faglega í stöðuna. </font /></b /> 8.3.2005 00:01
HÍ setur 1,6 milljarð í hús Háskóli Íslands ætlar að reisa 8.500 fermetra byggingar fyrir 1,6 milljarða króna. Ingjaldur Hannibalsson, formaður byggingarnefndar Háskólatorgs, segir húsin kölluð Háskólatorg eitt og tvö. Þau eigi að vera tilbúin í desember 2007. Framkvæmdir hefjist í apríl 2006. 8.3.2005 00:01
Konur kæra múslimaleiðtoga Hópur 37 innflytjendakvenna í Danmörku hefur kært bænaformanninn Raed Hleihel og trúarsamtök múslima fyrir niðrandi ummæli og hótyrði í garð kvenna. Kæran var lögð fram á alþjóðlegum baráttudegi kvenna í gær. 8.3.2005 00:01
Undarleg vinnubrögð við frumvarp "Vinnubrögðin í málinu eru undarleg en að vísu ekki eindæmi af hálfu þessa ráðherra." segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar um frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um endurskipulagningu ríkisútvarpsins 8.3.2005 00:01
Ráðherra vill lengja fæðingarorlof Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir að þegar jafnvægi hafi náðst í fæðingarorlofskerfinu sé hugsanlegt að fæðingarorlofið verði lengt í ár. 8.3.2005 00:01
Alþýðusambandið gæti sýnt styrk Alþýðusambandið gæti sagt kjarasamningum upp í haust af pólitískum ástæðum, segir Ingi Rúnar Eðvarðsson, prófessor í stjórnun við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri. 8.3.2005 00:01
Fjörutíu á biðlista Múlalundar Fjörutíu manns eru á biðlista eftir starfi á Múlalundi sem er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsorku. Framkvæmdastjóri Múlalundar, Helgi Kristófersson, segir ekki hægt að fjölga starfsfólki umfram það sem nú sé þrátt fyrir að fyrirtækinu skorti ekki verkefni. 8.3.2005 00:01
Forsætisráðherra með ráðherraræði Einkavæðingarnefnd taldi ekki þjóna neinum tilgangi að hitta efnahags- og viðskiptanefnd vegna sölu Landsímans. Þingnefndinni var bent á að skrifa nefndinni bréf ef hún hefði einhverjar spurningar. Þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu forsætisráðherra um ráðherraræði í þinginu í dag. 8.3.2005 00:01
Leiðtogi Kosovo-Albana til Haag Forsætisráðherra Kosovo-Albana, Ramush Haradinaj, sagði af sér í gær eftir að honum var birt ákæra fyrir meinta stríðsglæpi. Í ákærunni, sem Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag gaf út, er Haradinaj sakaður um að hafa átt þátt í voðaverkum í stríði Kosovo-Albana við Serba 1998-1999. 8.3.2005 00:01
Fréttamenn RÚV gapandi hlessa Útvarpsráð vill að Auðun Georg Ólafsson verði ráðinn fréttastjóri Ríkisútvarpsins. Hann hefur minnsta reynslu sem fréttamaður af þeim tíu sem sóttu um stöðuna og var ekki einn þeirra fimm sem forstöðumaður fréttasviðs mælti með í stöðuna. Fréttamönnum á fréttastofu RÚV er brugðið og segjast - orðrétt - vera gapandi hlessa. 8.3.2005 00:01
Maskhadov sagður felldur Rússneskir sérsveitarmenn hafa fellt leiðtoga aðskilnaðarsinna í Tsetsjeníu, Aslan Maskhadov, að því er fullyrt var í rússneskum fjölmiðlum í gær. Gráskeggjað lík sem líktist Maskhadov var sýnt á NTV-sjónvarpsstöðinni, og fulltrúi Tsjetsjena í London, Akhmed Zakajev, tjáði útvarpsstöðinni Ekho Moskvy að Maskhadov væri sennilega allur. 8.3.2005 00:01
Öryrki í kjölfar fæðingar Þrítug móðir er öryrki vegna vanrækslu í kjölfar fæðingar á Landspítalanum fyrir rúmu ári. Hún hefur síðan þjáðst af miklum og stöðugum verkjum en fengið þau svör frá spítalanum að þar sé verkjameðferð að leggjast af vegna fjárskorts. 8.3.2005 00:01
Borgin kaupir lítið af Múlalundi Framkvæmdastjóri Múlalundar er ósáttur við hversu lítið Reykjavíkurborg kaupir af fyrirtækinu sem stytti biðlista á vegum borgarinnar eftir verndaðri vinnu. Hann segir að auk bættra lífsgæða megi spara tugi milljóna króna í lægri lyfjakostnaði með því að þjálfa fólk til vinnu. 8.3.2005 00:01
Tímamótasamkomulag um frítíma Sjómenn og Samherji skrifuðu undir tímamótasamkomulag um frítíma áhafna. Samningsundirritunin varð til þess að forstjóri Samherja komst ekki til London til að sjá leik Chelsea og Barcelona, en sjómannaforystan veitti honum sárabót. 8.3.2005 00:01
Nýjar starfsreglur um eftirlit Nýjar starfsreglur um eftirlit með opinberum byggingum sem tóku gildi eftir 11. september 2001 leiddu til þess að víkingasveit lögreglunnar handtók ítalskan arkitekt um helgina. Eins og Stöð 2 greindir frá í gær sást maðurinn taka myndir af alþingishúsinu og þótti grunsamlegur. 8.3.2005 00:01
Í samkeppni við sjálfa sig Samkeppnin á matvörumarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu er farin að hafa veruleg áhrif víða um land. Á Húsavík eru tvær matvöruverslanir, Samkaup-Úrval og Kaskó, en báðar eru í eigu Samkaupa. 8.3.2005 00:01
Kvartað yfir slæmri umgengni Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð hafa fengið kvartanir vegna athafnasvæðis BM Vallár á Reyðarfirði. Einkum hefur verið kvartað yfir bleytu og for á svæðinu en einnig frágangi mannvirkja. Málið hefur ítrekað komið á borð bæjaryfirvalda og var Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri BM Vallár, kallaður á fund umhverfismálanefndar. 8.3.2005 00:01
Útör leyniþjónustumannsins í Róm Útför ítalska leyniþjónustumannsins Nicola Calipari, sem féll í árás bandarískra hermanna á bíl sem flutti ítölsku blaðakonuna Júlíönu Sgrena úr haldi mannræningja á föstudag og út á flugvöll, fór fram í Róm á Ítalíu í morgun. 7.3.2005 00:01
Sextíu börn í gámi Rúmlega sextíu börn á aldrinum 5-14 ára fundust í gámi í Lagos, stærstu borg Nígeríu, í gær. Grunur leikur á að þau hafi átt að selja í þrældóm. 7.3.2005 00:01
120 farast í fangelsisbruna Í það minnsta 120 manns fórust í eldsvoða í fangelsi í Dóminíkanska lýðveldinu í gær. Tildrög eldsvoðans voru átök á milli glæpagengja um hverjir fengju að annast sölu á fíkniefnum og tóbaki innan fangelsins 7.3.2005 00:01
Stjórnarmyndun í skugga ofbeldis 31 týndi lífi í Írak í hryðjuverkaárásum víðs vegar um landið og tugir manna særðust. Á meðan halda stjórnarmyndunarviðræður áfram af fullum krafti. 7.3.2005 00:01
Hunsa boð Rússa Forsetar Eistlands og Litháen hafa ákveðið að hunsa boð rússneskra stjórnvalda um að taka þátt í hátíðahöldum í Moskvu í maí vegna loka síðari heimsstyrjaldarinnar. Forseti Lettlands hefur hins vegar þegið boðið. 7.3.2005 00:01
Óvíst um endanlegt brotthvarf Forsetar Sýrlands og Líbanons tilkynntu í gær að Sýrlendingar myndu safna hersveitum sínum í Líbanon saman í Bekaa-dalnum sem er við landamæri ríkjanna fyrir lok mánaðarins. 7.3.2005 00:01
Vilja banna blótsyrðin Munnsöfnuður enskra knattspyrnumanna þykir svo ljótur að uppeldisfrömuðir vilja láta banna útsendingar frá knattspyrnuleikjum á þeim tímum sem börn eru að horfa á sjónvarp svo að þau læri ekki blótsyrðin af fyrirmyndum sínum. 7.3.2005 00:01
Lögreglan náði listaverkaþjófum Bíræfnir þjófar stálu þremur myndum eftir Edvard Munch í Noregi á sunnudagskvöldið. Norska lögreglan náði þjófunum innan við sólarhring eftir að þeir stálu myndunum. Þetta var í annað skipti á tæpu hálfu ári sem verkum eftir meistarann er rænt. 7.3.2005 00:01
Hjúkrunarfræðingur smitast Greint hefur verið frá því að víetnamskur hjúkrunarfræðingur hafi smitast af fuglaflensunni. Grunur leikur á að hann hafi smitast af sjúklingum sem hann annaðist en það er þó ekki talið öruggt. 7.3.2005 00:01
Gamalt morðmál tekið upp Lögregluyfirvöld í Ástralíu hafa hafið rannsókn að nýju á morði á ónefndum Englendingi, 162 árum eftir að hann var myrtur. 7.3.2005 00:01
Skuggi yfir samstarfi bandamanna Ítalski leyniþjónustumaðurinn sem bandarískir hermenn skutu í Írak á föstudag var borinn til grafar með viðhöfn í Róm í gær. Mikil reiði ríkir á Ítalíu vegna atviksins. 7.3.2005 00:01
Vöruviðskipti DAS í fortíðinni Lög um happdrætti eru í endurskoðun dómsmálaráðuneytisins sem fór ekki að ráðleggingum Samkeppnisstofnunar um að enda ójafnræði happdrætta í landinu árið 2000. Happdrætti DAS gagnrýnir stjórnvöld. 7.3.2005 00:01
Fleiri Íslendingar á hótelum Íslendingum sem gista á hótelum víða um land í nýliðnum janúar fjölgaði um rétt tæp nítján prósent frá sama tíma í fyrra. Það er umtalsvert meiri fjölgun en meðal erlendra ferðamanna sem fjölgaði um ellefu prósent. 7.3.2005 00:01
Óvenju björt norðurljós Meðalsterkur segulstormur sem kemur frá sólinni er ástæða norðurljósa sem árvökulir landsmenn hafa séð síðustu daga, að sögn Óla Þórs Árnasonar veðurfræðings. 7.3.2005 00:01
Brottflutningur hefst innan skamms Stjórnvöld Sýrlands og Líbanons náðu samkomulagi í dag um að Sýrlendingar hefji brottflutning hersveita sinna frá Líbanon þegar í þessum mánuði. Forsetar ríkjanna, Bashar al-Assad og Emil Lahoud, hittust á fundi í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, í dag. 7.3.2005 00:01
Lagning nýs vegar hefst í vikunni Lagning nýs vegar um Svínahraun hefst í þessari viku. Megintilgangur framkvæmdarinnar er að losna við hin hættulegu Þrengslagatnamót en þar varð banaslys í gær. 7.3.2005 00:01
Þrjú sjálfsvíg á fáum dögum Þrír ungir karlmenn frömdu sjálfsvíg á innan við viku. Landlæknir segir sjálfsvígum ungra karla fara fjölgandi og hvetur fólk til að fylgjast grannt með sínum nánustu. </font /></b /> 7.3.2005 00:01
Skannar í alla bíla Persónuvernd hefur ákveðið að skoða lögmæti þess að setja skanna í alla bíla í því skyni að ökumenn greiði eftir notkun samgöngumannvirkja. Þessari hugmynd er hreyft í nýrri skýrslu um gjaldtöku vegna umferðarmannvirkja sem unnin var fyrir samgönguráðuneytið. 7.3.2005 00:01
Skýr vilji Alþingis um flugvöllinn Mjög erfitt er að ímynda sér að Reykjavíkurflugvöllur verði rekinn með aðeins einni flugbraut. Þetta sagði samgönguráðherra í umræðum á Alþingi í dag en hann sagði þingið hafa sýnt skýran vilja til að tryggja miðstöð innanlandsflugs í Reykjavík. 7.3.2005 00:01
Einstaklingar gefi bönkum leyfi Fjármálaráðherra telur til greina koma að einstaklingar geti sjálfir heimilað bönkum að senda skattyfirvöldum rafrænar upplýsingar til að einfalda skattframtöl. 7.3.2005 00:01
Fischer losni eftir tvo daga Lögfræðingur Bobbys Fischers bindur vonir við að Fischer losni úr fangelsi og geti yfirgefið Japan á afmælisdaginn sinn, eftir tvo daga. Hún fékk vegabréf hans í hendur í dag og Sæmundur Pálsson, vinur Fischers, segir að Davíð Oddsson og íslenska ríkisstjórnin hafi veitt Fischer stórkostlega aðstoð. 7.3.2005 00:01
Sálgæsla allra fanga efld "Sjálfsvíg eru eðlilega öllum aðstandendum erfið og margir þurfa aðstoð og hjálp þegar slíkt á sér stað," segir Þórarinn Viðar Hjaltason, sálfræðingur hjá Fangelsisstofnun. Gæsluvarðhaldsfangi á Litla-Hrauni fyrirfór sér aðfaranótt laugardags og efla hefur þurft alla sálgæslu fyrir aðra fanga og starfsmenn síðan þá. 7.3.2005 00:01
Fangelsi fyrir gróft kynferðisbrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær mann til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir gróf og ítrekuð kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Áttu brotin sér stað á þrettán ára tímabili, frá því stúlkan var sjö ára fram til tvítugs. 7.3.2005 00:01
Hætta á kjötskorti "Eftirspurnin hefur aukist til muna á sama tíma og öll framleiðsla hefur dregist saman," segir Sindri Sigurgeirsson, bóndi að Bakkakoti í Borgarfirði. 7.3.2005 00:01