Lagning nýs vegar hefst í vikunni 7. mars 2005 00:01
Lagning nýs vegar um Svínahraun hefst í þessari viku. Megintilgangur framkvæmdarinnar er að losna við hin hættulegu Þrengslagatnamót en þar varð banaslys í gær. Þetta var annað banaslysið á fimm árum á þessum gatnamótum en þarna hafa orðið harðir árekstrar nánast á hverju ári. Þannig slösuðust þarna tveir menn alvarlega í fyrra. Þessi gatnamót áttu raunar að hverfa síðastliðið haust því til stóð að bjóða verkið út fyrir ári síðan og vinna það síðastliðið sumar. Verkið tafðist hins vegar, einkum vegna kröfu Ölfushrepps um að ný gatnamót yrðu mislæg, og fékk sveitarfélagið því framgengt. Vegagerðin bauð verkið svo loks út um síðustu áramót og fyrir tíu dögum var samið við lægstbjóðanda, KNH á Ísafirði, sem bauðst til að vinna verkið fyrir 277 milljónir króna. Framkvæmdastjóri KNH, Sigurður Óskarsson, segir að fyrstu vinnuvélar verði komnar á svæðið á morgun og stefnt sé að því að vegagerðin hefjist fyrir helgi. Samkvæmt útboðsskilmálum skal verkinu að fullu lokið fyrir septemberlok í haust. Önnur slysagildra sem kostað hefur mannslíf hverfur einnig með nýja veginum, hin varasama beygju neðan Skíðaskálabrekkunnar, því vegurinn mun halda beint af augum yfir Svínahraun. Þannig fæst um leið eins kílómetra stytting sem er þýðingarmikið á svo fjölförnum vegi.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira