Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tæplega 400 milljóna króna tap "Miðað við þann fjölda fyrirspurna og beiðna sem okkur berast er Byggðastofnun ekki ofaukið enn sem komið er," segir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri, en í ársreikningi stofnunarinnar sem birtur var í gær varð 385 milljón króna tap á rekstri hennar á síðasta ári. 7.3.2005 00:01
Fóstbræður í Royal Albert Hall Karlakórinn Fóstbræður ætlar að verða við beiðni Sameinuðu þjóðanna um að koma fram á tónleikum í Royal Albert Hall í Lundúnum þann 16. október. 7.3.2005 00:01
650 milljón skotvopn í umferð Skýrsla mannréttindasamtakanna Amnesty International um áhrif skotvopna á líf kvenna var kynnt í gær. Þar er reynt að sýna fram á áhrif smávopna í líf kvenna í heiminum. 7.3.2005 00:01
Fatlaðar konur beittar misrétti Forvígismenn Öryrkjabandalags Íslands ætla að setja á laggirnar sérstaka kvennahreyfingu innan bandalagsins og er stofnfundur hennar í kvöld. Markmið hreyfingarinnar er að bæta hag kvenna sem eiga við fötlun að stríða og beita sér fyrir sérstakri úttekt á högum þeirra. 7.3.2005 00:01
Skemmd á vegi þar sem slys varð Skemmd er á Suðurlandsveginum skammt frá þeim stað þar sem banaslys varð síðastliðinn sunnudag. Um það bil fjögurra sentimetra breið rás er á miðjum vegi og tvær litlar holur þar ofan í. 7.3.2005 00:01
Slysalaust fram undir lok febrúar Umferðin hefur tekið sinn toll síðustu vikurnar en hvert banaslysið á fætur öðru hefur orðið á vegum landsins á örskömmum tíma. Banaslys hafa orðið í vélsleðaslysi við Veiðivötn, á Snorrabraut, Kópaskeri og það síðasta varð á Suðurlandsvegi nú um helgina. 7.3.2005 00:01
Akureyringar fá nýjan strætó Sex tilboð bárust í nýjan strætisvagn fyrir Strætisvagna Akureyrar (SVA) og átti Kraftur lægsta tilboðið, rúmar 17 milljónir króna. 7.3.2005 00:01
Dyraverðir dæmdir Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt tvo dyraverði á skemmtistað á Akureyri í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi. Voru mennirnir dæmdir fyrir að ráðast með höggum og spörkum að tveimur gestum staðarins sem þeir voru að vísa út vegna slagsmála. 7.3.2005 00:01
Alger endurnýjun á Austurstræti 17 Miðbæjarmyndin mun taka nokkrum breytingum á næstu vikum og mánuðum með algerri endurnýjun á suðurhlið hússins við Austurstræti 17. Á allri suðurhlið hússins, sem snýr að Austurstrætinu, verður skipt um gler og glugga. Þá verður gert við steypuskemmdir og steyptir fletir hússins málaðir. Loks verður hluti hússins álklæddur. 7.3.2005 00:01
Eldur í togaranum Breka í gærkvöld Talsverður eldur kom upp í togaranum Breka KE í Njarðvíkurhöfn á níunda tímanum í gærkvöldi. Miklar skemmdir urðu vegna eldsins í svokallaðri stakkageymslu eða þar sem yfirhafnir áhafnar eru geymdar. Allt tiltækt lið Brunavarna Suðurnesja var kallað út og tókst reykköfurum að ráða niðurlögum eldsins á skömmum tíma. 28.2.2005 00:01
Mótmæla banni við mótmælum Þúsundir manna söfnuðust saman á götum úti í Beirút, höfuðborg Líbanons, í nótt til þess að mótmæla fyrirhuguðu banni stjórnvalda við opinberum mótmælum. Bannið, sem á að taka gildi í dag, var ákveðið eftir að ljóst var að andstæðingar og stuðningsmenn stjórnvalda höfðu boðað til mótmæla á sama tíma og sama stað í höfuðborginni. 28.2.2005 00:01
Fagna nýrri stefnu varðandi ESB Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður fagnar því að stefna flokksins í Evrópumálum hafi verið endurskoðuð á flokksþingi Framsóknarflokksins sem lauk í gær. Ungir framsóknarmenn telja þetta mikilvægan áfanga í átt að nánara sambandi Íslands við Evrópusambandið og þeir segja líklegt að jákvæð afstaða Framsóknarflokksins verði til þess að Ísland hefji aðildarviðræður við ESB á næsta kjörtímabili. 28.2.2005 00:01
Fagna eflingu jafnréttis Landssamband framsóknarkvenna telur að djúp spor hafi verið mörkuð í sögu framsóknarkvenna og þar með sögu flokksins með ákvörðun um að efla jafnrétti innan flokksins. Framsóknarkonur telja að þau skref muni án efa leiða Framsóknarflokkinn áfram til aukinna áhrifa og framgöngu í íslenskum stjórnmálum. 28.2.2005 00:01
Samskipti við ferðamenn í lágmarki Starfsmönnum í ferðaþjónustu á Kúbu hefur verið skipað að halda samskiptum sínum við erlenda ferðamenn í lágmarki. Ferðamálaráð Kúbu hefur sent frá sér ályktun þar sem starfsmenn þess eru hvattir til þess að minnka samskipti sín við erlenda ferðamenn. 28.2.2005 00:01
Kynna skuldbreytingar námslána Menntamálaráðherra og Lánasjóður íslenskra námsmanna hafa boðað til blaðamannafundar í dag til að kynna rétt lánþega til skuldbreytingar námslána í samræmi við lög sem samþykkt voru á Alþingi í desember síðastliðnum. Samkvæmt upplýsingum frá LÍN er rétturinn til að skuldbreyta láni afmarkaður við ákveðinn hóp lánþega, samtals tæplega 27 þúsund manns. 28.2.2005 00:01
Mannskæð sjálfsmorðsárás í Írak Að minnsta kosti tuttugu og fimm manns létust þegar bílsprengja sprakk sunnan við Bagdad í Írak snemma í morgun. Maður ók bíl sínum að hópi fólks sem var að sækja um vinnu hjá ríkinu og sprengdi sjálfan sig í loft upp. 28 eru sagðir slasaðir eftir árásina, þar af nokkrir lífshættulega. 28.2.2005 00:01
Sýrlendingar gripu bróður Saddams Það voru yfirvöld í Sýrlandi sem handtóku Sabawi Ibrahim Hasan, hálfbróður Saddams Husseins, og afhentu hann yfirvöldum í Írak. Þetta þykir til marks um það að Sýrlendingar séu tilbúnir til samvinnu við Bandaríkjastjórn sem hefur leynt og ljóst haldið því fram að þarlend yfirvöld hafi skotið skjólshúsi yfir uppreisnarmenn í Írak. 28.2.2005 00:01
Bera fram vantrauststillögu Stjórnarandstaðan í Líbanon hyggst freista þess á þingi í dag að fá samþykkta vantrauststillögu á hendur ríkisstjórninni vegna deilna í tengslum við morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Mikil óánægja er með ríkisstjórnina, sem er höll undir Sýrlendinga, og hefur stjórnarandstaðan haldið því fram að Sýrlendingar hafi staðið á bak við morðtilræðið fyrir tæpum tveimur vikum. 28.2.2005 00:01
Mannskæðasta árás frá kosningum Nú er ljóst að að minnsta kosti 33 létust og 76 særðust í sjálfsmorðsárás í bænum Hilla suðaustur af Bagdad í Írak í morgun. Maður ók bíl sínum inn í hóp fólks, sem var að sækja nafnskírteini vegna starfa á vegum ríkisins, og sprengdi bílinn í loft upp. Þetta er mannskæðasta árás í Írak eftir kosningarnar 30. janúar síðastliðinn en árásin átti sér stað nærri fjölförnu torgi og jók það á tölu látinna og særðra. 28.2.2005 00:01
Ólga vegna uppsagna Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri hefur boðað til blaðamannafundar í Þjóðleikhúsinu í dag, en mikil ólga er meðal leikara sem starfa þar vegna fyrirhugaðra uppsagna tíu leikara frá og með morgundeginum, 1. mars. Leikarar í Þjóðleikhúsinu segja það óverjandi að verðlauna leiksigra með uppsögnum en þjóðleikhússtjóri segir búið að skapa fordæmi fyrir auknum hreyfanleika í yngsta kjarna leikhússins. 28.2.2005 00:01
Býst við innrás Bandaríkjamanna Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, telur að Bandaríkjamenn hyggist ráðast á landið þar sem stjórnvöld í Washington beiti sér nú á svipaðan hátt gagnvart sýrlenskum yfirvöldum og þau gerðu gagnvart Írökum í aðdraganda innrásarinnar í Írak. 28.2.2005 00:01
Yfir 100 létust í sprengjuárás 105 létust og 130 særðust í sjálfsmorðsárás í bænum Hilla suðaustur af Bagdad í Írak í morgun. Maður ók bíl sínum inn í hóp fólks, sem var að sækja nafnskírteini vegna starfa á vegum ríkisins, og sprengdi bílinn í loft upp. Þetta er mannskæðasta árás í Írak frá því að Saddam Hussein var komið frá völdum en hún átti sér stað nærri fjölförnu torgi og jók það enn á tölu látinna og særðra. 28.2.2005 00:01
Forsætisráðherra til Danmerkur Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra fer í dag í opinbera heimsókn til Danmerkur í boði Anders Foghs Rasmussens, forsætisráðherra Danmerkur. Í heimsókninni mun Halldór hitta marga málsmetandi Dani og einnig forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja í Danmörku. Heimsókn forsætisráðherra til Danmerkur lýkur á miðvikudag. 28.2.2005 00:01
Lifði af tvö skot í höfuðið Þrjátíu og sex ára gamall maður í Danmörku lifði það af að fá tvö byssuskot í ennið. Maðurinn var á heimili sínu þegar skotið var á hann í gegnum gluggarúðu og gardínu. Lögreglan segir að fyrirstaðan hafi verið nógu mikil til þess að draga úr afli kúlnanna. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem kúlurnar voru fjarlægðar. Lögreglan segist hafa grun um hver skotmaðurinn sé og er hans nú leitað. 28.2.2005 00:01
Samkeppnisyfirvöld geti áfrýjað Neytendasamtökin telja að breyta eigi dómsmeðferð samkeppnismála á þann veg að samkeppnisyfirvöld geti áfrýjað dómum líkt og í Svíþjóð. Þar voru í síðustu viku fimm sænsk olíufélög dæmd í sænska markaðsdómstólnum til að greiða tæpan milljarð íslenskra króna fyrir ólöglegt samráð. Markaðsdómstóllinn, æðsta dómsstig Svía í samkeppnismálum, hækkaði þær sektir sem kveðnar höfðu verið upp í undirrétti um ríflega helming. 28.2.2005 00:01
Legókubbur stóð í dreng Drengur á sjötta ári varð fyrir því síðdegis á laugardag að gleypa legókubb sem stóð í hálsi hans og olli honum öndunarörðugleikum. Ekki tókst að losa um kubbinn og því var drengurinn fluttur með hraði á slysadeild Landspítalans. 28.2.2005 00:01
Leikarar verði verkefnaráðnir Óánægju gætir meðal leikara Þjóðleikhússins eftir að Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri tilkynnti á fundi í morgun með þeim um uppsagnir tíu fastráðinna leikara af 33. Markmiðið er að verkefnaráða leikara frekar framvegis. Þeim sem skemmst hafa starfað við leikhúsið verður sagt upp. 28.2.2005 00:01
Bryndís hættir á þingi 1. ágúst Bryndís Hlöðversdóttir ætlar að hætta þingmennsku til að taka við stöðu deildarforseta lagadeildar Viðskiptaháskólans í Bifröst. Gert er ráð fyrir að hún hætti þingstörfum 1. ágúst. Næsti maður inn á þing er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. 28.2.2005 00:01
Forseti Íslands fær heiðursorðu Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verður í dag sæmdur heiðursorðu rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, orðu heilags Valdimars konungs. Alexei II patríarki ákvað þann 17. febrúar að Ólafur Ragnar skyldi fá orðuna fyrir stuðning sinn við starf safnaðar rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi og baráttu fyrir því að hér verði byggð kirkja. 28.2.2005 00:01
Gjaldskrá hækkar ef ekki semst Gjaldskrá sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara hækkar um þúsundir króna náist ekki nýir samningar við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið fyrir kvöldið. Deilt er um svokallað afsláttarþak sem sjúkraþjálfarar segja að hafi lamandi áhrif á starfsemina. 28.2.2005 00:01
Segir blað brotið í sögu flokksins Formaður Landssambands framsóknarkvenna segir brotið blað í sögu Framsóknarflokksins með ákvörðun um að efla jafnrétti kynjanna innan flokksins. Samkvæmt henni skuli hlutur hvors kyns ekki vera lægri en 40 prósent við skipan í trúnaðar- og ábyrgðarstöður. 28.2.2005 00:01
Bjartsýnni á lausn Fischer Sæmundur Pálsson hélt áleiðis til Japans í morgun ásamt fríðu föruneyti til að sækja Bobby Fischer. Hann segist bjartsýnni en áður um að Fishcer verði látinn laus og ætlar að gefa sér tíu daga til að vinna að því í Japan. 28.2.2005 00:01
Fjölmiðlanefnd skilar áliti í mars Nefnd menntamálaráðherra, sem á að gera tillögur að frumvarpi um fjölmiðla, stefnir að því að skila áliti sínu seint í mars. Til stóð að skila álitinu 1. febrúar en strax þá var ljóst að það gengi ekki. Karl Axelsson, formaður nefndarinnar, sagði að nefndinni hefði verið ætlaður of naumur tími til verksins og tímasetningin hefði verið óraunhæf. Karl segir nú að verkið gangi vel og vonandi verði því lokið um eða eftir páska. 28.2.2005 00:01
Páfi sagður á góðum batavegi Jóhannes Páll páfi annar er á góðum batavegi eftir aðgerð sem hann gekkst undir á hálsi í síðustu viku. Hana þurfti páfi að fara í vegna þess að hann átti í erfiðleikum með að anda eftir að skæð flensa, sem herjaði á hann snemma í mánuðinum, tók sig upp. Í yfirlýsingu frá Vatíkaninu segir að páfi sé nú í endurhæfingu m.a. til þess að hann geti talað aftur og andað eðlilega. 28.2.2005 00:01
Drukknuðu við skírnarathöfn Fimm Suður-Afríkumenn drukknuðu í gær í skírnarathöfn við strendur borgarinnar Durban í Suður-Afríku. Einn mannanna mun hafa snúið aftur til sjávar eftir að hafa tekið skírn þar sem hann sagðist vera heltekinn af heilögum anda. Reyndu þá hinir fjórir að bjarga honum í miklu ölduhafi með fyrrgreindum afleiðingum. 28.2.2005 00:01
Sjávarútvegsakademía opnuð í dag Norræna sjávarútvegsakademían var formlega opnuð í dag. Stofnunin á að verða samnefnari fyrir norrænar rannsóknir á auðlindum sjávar en hún hefur ekki ákveðið aðsetur heldur er um að ræða samvinnuverkefni sem stjórnað verður frá Háskólanum í Björgvin. 28.2.2005 00:01
Tryggur kjarni viðskiptavina Verðstríð stórmarkaðanna hefur lítil sem engin áhrif á viðskipti hjá þeim smákaupmönnum sem enn lifa. Þetta segir Gunnar Jónasson kaupmaður í versluninni Kjötborg í Vesturbænum. 28.2.2005 00:01
Blöndun og sekkjun hætt í Gufunesi Öllum starfsmönnum Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi sem störfuðu við blöndun og sekkjun áburðar hefur verið sagt upp störfum. Blöndun og sekkjun áburðar hér á landi leggst af í vor og fer alfarið fram í Eistlandi undir eftirliti Áburðarverksmiðjunnar og eftir uppskriftum hennar. Þaðan verður áburðurinn fluttur hingað til lands. 28.2.2005 00:01
Fá endurgreitt vegna Vioxx Lyfjafyrirtækið Merck Sharp & Dohme á Íslandi greiðir 4,5 milljónir króna til Tryggingastofnunar ríkisins. Greiðslan er vegna kostnaðar sem féll á stofnunina vegna niðurgreiðslu gigtarlyfsins Vioxx til sjúklinga. 28.2.2005 00:01
Vara við skaðsemi ljósabekkja Norrænar geislavarnastofnanir hafa gefið út sameiginlega viðvörun til fólks um skaðsemi ljósabekkja. Tíðni húðkrabbameins hefur aukist mjög á síðustu áratugum á Norðurlöndum. Mælt er gegn allri notkun ljósabekkja í fegrunarskyni og bent á að starfsfólk sólbaðsstofa þurfi að hafa þekkingu á geislun til að leiðbeina viðskiptavinum. 28.2.2005 00:01
Kvartað yfir eftirlitsmyndavélum Dæmi eru um að eftirlitsmyndavélar þjóni ekki hlutverki sínu vegna þess að þær eru ranglega staðsettar eða rangt stilltar. Þá eru einnig dæmi um að ekki hafi verið kveikt á eftirlitsmyndavélunum þegar á þurfti að halda. 28.2.2005 00:01
Á móti styttingu stúdentsprófs Félag framhaldsskólakennara leggst gegn styttingu náms til stúdentsprófs eins og hún er hugsuð nú og telur þörf á að endurskoða allt skólakerfið sem heild. Aðalfundur félagsins var haldin fyrir helgi og í ályktun segir að félagið gagnrýni menntamálaráðherra harðlega fyrir að hafa ekki efnt til umræðu við skólasamfélagið og almenning um nám allt frá upphafi skólaskyldu til stúdentsprófs. 28.2.2005 00:01
125 látnir í tilræðinu í Hilla Tala látinna í sprengjutilræðinu í bænum Hilla í Írak í morgun hefur nú hækkað upp í 125 og 130 eru sárir. Bíl var ekið inn í hóp fólks, sem beið eftir að komast til augnlæknis vegna umsóknar um starf í íröksku lögreglunni, og hann sprengdur í loft upp. Vitni segja tvo menn hafa verið í bílnum en annar þeirra steig út út honum áður en hann sprakk. 28.2.2005 00:01
Ingibjörg tekur við af Bryndísi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, mun taka við þingmennsku af Bryndísi Hlöðversdóttur þegar hún hættir þann 1. ágúst og tekur við embætti forseta lagadeildar Viðskiptaháskólans á Bifröst. Ákvörðun Bryndísar var kynnt þingflokki Samfylkingarinnar í dag. 28.2.2005 00:01
Jóna Thuy strauk aftur Stúlkan sem lögreglan leitaði sem mest að í síðustu viku og fann loks, er strokin frá Stuðlum. Hún heitir Jóna Thuy Phuong Jakobsdóttir og er fjórtán ára. 28.2.2005 00:01