Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Efling vegagerðar með veggjöldum Gerð verður úttekt á kostum til að auka fjárfestingar í vegagerð með veggjöldum ef þingsályktunartillaga Einars K. Guðfinnssonar og Halldórs Blöndal, þingmanna Sjálfstæðisflokksins, verður samþykkt. 27.1.2005 00:01
Skaðabætur vegna slyss Reykjavíkurborg verið gert að greiða konu 2,5 milljónir króna með vöxtum vegna tjóns sem hún varð fyrir árið 2002 þegar skyggni við Ingólfstorg féll niður og á konuna þar sem hún var viðstödd Gay Pride hátíðahöldin. 27.1.2005 00:01
Reyna að hindra kosningar í Írak Fimmtán Írakar og bandarískur hermaður liggja í valnum eftir átök dagsins í Írak. Uppreisnarmenn þar eru staðráðnir í að koma í veg fyrir kosningarnar á sunnudaginn með öllum ráðum. 27.1.2005 00:01
Framtíð Íraks veltur á al-Sistani Framtíð Íraks veltur að stórum hluta á einum manni. Sá nefnist æjatolla Ali al-Sistani og er talinn áhrifamesti maður Íraks. 27.1.2005 00:01
Auður og Halldór verðlaunuð Auður Jónsdóttir og Halldór Guðmundsson hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin 2004. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti þeim verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. 27.1.2005 00:01
Fékk bætur fyrir líkamstjón Hæstiréttur dæmdi Reykjavíkurborg í dag til að greiða ungri konu tvær og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir á Hinsegin dögum árið 2002. Konan varð undir skyggni sem féll á hóp hátíðargesta á Ingólfstorgi. Tugir manna urðu undir skyggninu, þar á meðal konan sem fékk höfuðhögg og skurð á höfuðið, auk þess að togna í hálsi og baki. 27.1.2005 00:01
Dæmdur fyrir nokkur ofbeldisbrot Tæplega tvítugur maður var dæmdur til 15 mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir nokkur ofbeldisbrot. Maðurinn var dæmdur fyrir vopnað rán í Hringbrautarapóteki í september í fyrra, fyrir að hafa hótað öðrum manni með haglabyssu og fyrir að hafa ógnað afgreiðslumanni bensínstöðvar með hnífi. 27.1.2005 00:01
Níu áratugir átaka Afskipti erlendra stjórnvalda, innlendir einræðisherrar og núningur ólíkra þjóðarbrota og trúarhópa hefur leitt til þess að saga Íraks hefur að miklu leyti einkennst af átökum. Átökin í landinu verða því að sumu leyti að skoðast í ljósi sögunnar sem hefur á köflum verið blóði drifin. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Búið að lagfæra girðingu Búið er lagfæra girðingu á lóð fyrirtækisins Ásgeirs Sigurðssonar við Síðumúla 35 að kröfu Umhverfis- og heilbrigðisstofu. Fyrirtækið fullyrðir að umbúðir hættulegra efna sem voru á lóð fyrirtækisins í gær hafi verið tómar og á leið til áfyllingar hjá birgjum þann sama dag. 27.1.2005 00:01
Ekki endastöð heldur upphaf Írösku kosningarnar eru upphafið að stjórnmálaferli sem ljúki með sátt um uppbyggingu íraska stjórnkerfisins. Margar hættur eru þó enn fyrir hendi og jafnvel möguleiki á að kosningarnar og eftirleikur þeirra leiði til enn verra ástands en nú er. </font /></b /> 27.1.2005 00:01
Átak í uppeldismálum <em>Verndum bernskuna</em> er yfirskrift átaks í uppeldismálum sem efnt verður til næsta haust. Það er liður í að bæta stöðu barna í samfélaginu og styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu. Þetta er samstarfsverkefni forsætisráðuneytisins, þjóðkirkjunnar og Velferðarsjóðs barna. 27.1.2005 00:01
Segir NCC ekki hafa gert áætlun Árni Johnsen er með þriggja síðna kostnaðarmat á gerð jarðganga til Vestmannaeyja frá starfsmanni verktakafyrirtækisins NCC. Yfirmaður NCC í Noregi ítrekar aftur á móti yfirlýsingar sínar sem komu fram í fréttum Stöðvar 2 í gær um að NCC hafi enga kostnaðaráætlun gert. 27.1.2005 00:01
Vilja flýta landsfundi enn frekar Tveir þingmanna Samfylkingarinnar segja að flýta eigi landsfundi flokksins enn frekar svo að langur slagur um formannsembættið skaði ekki flokkinn. Formannsefnin gefa ekki upp hvað þeim finnst um þessi áform. 27.1.2005 00:01
Krossanesborgir friðlýstar Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra undirritaði í fyrradag auglýsingu um friðlýsingu Krossanesborga við Akureyri. Markmiðið er að vernda svæðið og auka gildi þess til útivistar fyrir almenning, náttúruskoðunar og fræðslu. 27.1.2005 00:01
Segir við orkufyrirtækin að sakast Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir verðhækkanir á raforku í kjölfar nýrra raforkulaga bersýnilega stafa af því að orkufyrirtækin hafi notað tækifærið til að bæta hag sinn. Þetta kom fram á Alþingi í dag. Þar boðaði ráðherrann jafnframt auknar niðurgreiðslur ríkissjóðs til að milda verðhækkanir í strjálbýli þannig að þær færu ekki upp fyrir tíu prósent. 27.1.2005 00:01
Segja úrskurð staðfesta grun Ættingjar manns á níræðisaldri, sem lést í kjölfar byltu á Hrafnistu, segja bráðabirgðaúrskurð landlæknis staðfesta grun sinn um að meðferð og aðhlynning á dvalarheimilinu hafi ekki verið með eðlilegum hætti. Ættingjarnir sætta sig ekki við ósamræmi í vitnisburði starfsmanna og læknis Hrafnistu. 27.1.2005 00:01
Sársaukafullur samdráttur Vegna bágrar fjárhagsstöðu Ólafsfjarðarbæjar er ekki gert ráð fyrir neinum fjármunum til framkvæmda í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs. Að sögn Jónu Vilhelmínu Héðinsdóttur, formanns bæjarráðs, eru engar uppsagnir áformaðar en stytting á vinnutíma, hagræðing í rekstri og samdráttur í þjónustu einkennir fjárhagsáætlunina. 27.1.2005 00:01
Helfararinnar minnst Fjölmargir gyðingar sem lifðu af helför nasista í seinni heimsstyrjöldinni komu saman í útrýmingarbúðunum Auschwitz-Birkenau í gær til að minnast þess að 60 ár voru liðin síðan sovéskir hermenn frelsuðu gyðinga úr búðunum. Sex milljónir gyðinga létust í helförinni. 27.1.2005 00:01
Sinnuleysi gagnvart Afríku Fátæktin í Afríku er sem "ör á samvisku heimsins." Þetta sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, á Alheimsráðstefnunni um efnahagsmál sem haldin er í Davos í Sviss. 27.1.2005 00:01
Frelsunar úr Auschwitz minnst Einhver nöturlegasti staður á jörðu er án efa Auschwitz, útrýmingabúðir nasista í Póllandi. Í dag var þess minnst að sextíu ár eru frá því að fangarnir þar voru frelsaðir. 27.1.2005 00:01
Abbas bannar vopnaburð Palestínsk stjórnvöld hafa bannað almenningi að bera vopn og þykir ákvörðunin bera vitni um herta afstöðu stjórnarinnar gagnvart ofbeldi gegn Ísraelum. 27.1.2005 00:01
Dómsmál til kjaraleiðrétting Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er reiðubúið að höfða dómsmál á hendur vinnuveitanda sínum, íslenska ríkinu, í því skyni að leiðrétta þann kynbundna launamun sem stéttin þarf að þola. 27.1.2005 00:01
Trúnaðarupplýsingar ræddar í dag Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman til fundar í dag. Stjórnarandstæðingar hafa ítrekað óskað eftir því að trúnaði verði aflétt á fundargerðum utanríkismálanefndar. 27.1.2005 00:01
Sýknað af kröfu um laun Hæstiréttur sýknaði í dag VSÓ ráðgjöf af rúmlega milljónar króna kröfu náttúrufræðings, vegna vinnu við matsskýrslu um umhverfisáhrif Norðlingaölduveitu. Áður hafði héraðsdómur komist að þveröfugri niðurstöðu. 27.1.2005 00:01
Sakar stjórnvöld um sofandahátt Sofandaháttur stjórnvalda hefur skapað gróðrarstíu fyrir ófyrirleitnar starfsmannaleigur sem grefur undan samfélagsgerðinni, sagði formaður Samfylkingarinnar í umræðu á Alþingi í dag um félagsleg undirboð á vinnumarkaði. Stjórnarliðar lýstu einnig áhyggjum af þróun mála. 27.1.2005 00:01
Fréttamaður á Stöð 2 segir upp Róbert Marshall, fréttamaður á Stöð 2, hefur sagt upp störfum. 27.1.2005 00:01
Tólf ár að malbika til Ísafjarðar Tólf til fjórtán ár tekur að setja bundið slitlag á leiðina milli Ísafjarðar og Reykjavíkur, sé miðað við samgönguáætlun stjórnvalda, segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ. 27.1.2005 00:01
Tónlistarfólk segir já um kjörin <font face="Helv"> Almennir félagsmenn Félags tónlistarkennara hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við sveitarfélögin með 93,5 prósentum greiddra atkvæða. Félag íslenskra hljómlistarmanna samþykkti hann einnig með 92,7% greiddra atkvæða. </font> 27.1.2005 00:01
Ráðist á bandaríska bílalest Bílsprengja sprakk í morgun á vegi sem liggur að að alþjóðaflugvellinum í Bagdad. Bandarísk bílalest var á veginum og er talið að árásin hafi beinst að henni. Ekki hafa borist fregnir af mannfalli enn sem komið er. 26.1.2005 00:01
Spáð enn meiri hallla Fjárlagahallinn í Bandaríkjunum á næsta ári verður um 25 þúsund milljarðar íslenskra króna. Þessu spáir fjárhagsskrifstofa Bandaríkjaþings í árlegri úttekt sinni. Jafnframt er því spáð að uppsafnaður fjárlagahalli næstu tíu ára muni nema nærri 80 billjónum íslenskra króna. 26.1.2005 00:01
Viðbúnaðarstigi aflétt Viðbúnaðarstigi vegna snjóflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum var aflétt undir kvöld í gær, en laust fyrir hádegi var hættuástandi aflétt á Bíldudal. Viðbúnaðarstigi var lýst á öllum Vestfjörðum á sunnudag en því aflétt um norðanverða firðina í fyrradag. Áfram verður fylgst með snjóalögum en mikil bráðnun hefur verið síðustu sólarhringa. 26.1.2005 00:01
Erfið staða barna í Suðaustur-Asíu Börn í löndunum sem verst urðu úti í hamförunum annan dag jóla búa sig nú undir að hefja skólagöngu á nýjan leik. Á Srí Lanka eru milljón börn enn án heimilis og ekkert útlit fyrir að það breytist í bráð. Þau hafast við í bráðabirgðaskýlum og þiggja mat frá hinu opinbera. 26.1.2005 00:01
Banni á viðræður við Abbas aflétt Ariel Sharon, forætisráðherra Ísraels, hefur aflétt banni á friðarviðræður við Mahmoud Abbas, nýjan leiðtoga Palestínumanna. Bannið var sett á eftir að sex Ísraelsmenn létu lífið í fyrirsát palestínskra uppreisnarmanna við Gasaborg fyrir um það bil tveim vikum. 26.1.2005 00:01
Norðurárdalslína komin í lag Viðgerðarmönnum tókst að koma Norðurárdalslínu endanlega í lag rétt fyrir miðnætti þannig að allir raforkunotendur komust í samband. Rétt fyrir klukkan hálfátta í gærkvöldi rofnaði línan þegar verktaki var að sprengja í efnistökunámu vegna vegaframkvæmda rétt ofan við Munaðarnes. 26.1.2005 00:01
Slökkvitækjum stolið úr göngum Maður stal slökkvitækjum úr Vestfjarðagöngum um sexleytið í gær og komst undan. Vegfarandi, sem sá til hans á grænum fólksbíl, lét lögregluna vita og er þjófsins nú leitað. Lögreglan lítur þetta mjög alvarlegum augum þar sem slökkvitæki í jarðgöngum geta skipt sköpum ef eldur kviknar í bíl því það getur valdið snöggri hitamyndun og súrefnisskorti. 26.1.2005 00:01
Líklegri til að verða of feit Börn of feitra mæðra eru fimmtán sinnum líklegri en önnur börn til þess að þjást af offitu strax við sex ára aldur, samkvæmt niðurstöðum nýrrar bandarískrar rannsóknar. Frá þriggja ára aldri fer að koma fram afgerandi munur á holdafari barna sem eiga mæður í kjörþyngd og þeirra sem eiga of feitar mæður. 26.1.2005 00:01
Handtekinn fyrir hryðjuverkagabb Bandaríska alríkislögreglan hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa logið því að lögregluyfirvöldum fyrir helgina að fjórir Kínverjar hyggðust fremja hryðjuverk í Boston. Öryggisgæsla var hert til muna í nágrenni borgarinnar í lok síðustu viku af ótta við hryðjuverk og ríkisstjórinn í Masachusetts sneri heim af embættistöku George Bush Bandaríkjaforseta vegna málsins. 26.1.2005 00:01
Borgarísjaki í Húnaflóa Stór borgarísjaki, sem hefur verið á reki í Húnaflóa í nokkra daga, er nú strandaður neðan við bæinn Hvalsá við sunnanverðan Steingrímsfjörð á Ströndum og bráðnar nú ört. Hann var mjög tignarlegur fyrst þegar sást til hans og minnti helst á þau tígurlegu fjöll Drangaskörð við utanverðan flóann. 26.1.2005 00:01
Gripnir með amfetamín og hass Lögreglan á Akranesi gerði nokkuð magn fíkniefna upptækt þegar hún stöðvaði bifreið í nótt við umferðareftirlit. Í bifreiðinni voru þrír ungir menn og þótti hegðun þeirra einkennileg. Ákveðið var að skoða nánar hvað þarna var á ferð og var gerð lausleg leit á vettvangi. Fundust þá fjögur grömm af ætluðu amfetamíni sem einn þeirra hafði látið falla á jörðina. 26.1.2005 00:01
Danska verði eina opinbera málið Danski þjóðarflokkurinn vill binda í lög að danska verði eina málið í opinberum gögnum í stað þess að upplýsingar til íbúa verði á mörgum tungumálum. Samt eru tíu erlend tungumál notuð til að kynna málstað flokksins á heimsíðu hans. 26.1.2005 00:01
Skriður kominn á friðarferlið Skriður virðist kominn á friðarferlið í Miðausturlöndum. Báðum megin borðsins virðist vilji til að vinna að friðsamlegri lausn deilna Ísraela og Palestínumanna og það að því er virðist sem fyrst. 26.1.2005 00:01
Rétt að fá álit nefndar Sigurður Líndal lagaprófessor segir að sér finnist að rétt hefði verið að fá álit utanríkismálanefndar vegna Íraksmálsins en vill ekkert fullyrða um lögbrot í því sambandi. 26.1.2005 00:01
Fórnarlamba minnst við Indlandshaf Mánuði eftir flóðbylgjuna í Indlandshafi var þeirra sem fórust minnst í morgun, en víða er ástandið enn svo bágborið að engar athafnir fóru fram. Reynt er eftir fremsta megni að koma lífinu í gang á ný, en milljóna sem hafast við í tjaldbúðum bíður óviss framtíð. 26.1.2005 00:01
Börn í 33 ríkjum þarnast hjálpar Neyð barnanna á hamfarasvæðunum í Asíu er mikil, en það á því miður við víðar. Samkvæmt skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, þarf 48 milljarða króna til að hjálpa börnum í 33 löndum þar sem neyðarástand ríkir og þar sem lífi barna er ógnað fjarri athygli almennings. Af þessum 33 löndum sem nefnd eru í skýrslunni eru tveir þriðju í Afríku. 26.1.2005 00:01
Fjármunir til reiðu í uppbyggingu Tveir íslenskir sendifulltrúar á vegum Rauða kross Íslands eru á förum til hamfarasvæðanna við Indlandshaf til viðbótar þeim fimm sem fyrir eru á svæðinu. Verulegir fjármunir eru handbærir til uppbyggingarstarfs í framtíðinni. 26.1.2005 00:01
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent