Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Borgarafundi frestað til kl. 21 Borgarafundi um jarðgöng milli lands og Eyja, sem halda átti í Vestmannaeyjum klukkan átta í kvöld, hefur verið frestað til klukkan níu. Frestunin er vegna leiks Íslands og Kúveits á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Túnis. Það er Árni Johnsen sem boðar til fundarins sem verður haldinn í Höllinni í Eyjum. 26.1.2005 00:01
Krefjast 100 milljóna Ræningjar sænska auðkýfingsins Fabians Bengtssons hafa krafið fjölskyldu hans um sem svarar 100 milljónum íslenskra króna. Bengtsson, sem er þrjátíu og tveggja ára gamall, var rænt mánudaginn 17. janúar þegar hann var á leið til vinnu, en hann er aðstoðarforstjóri fjölskyldufyrirtækisins Siba. 26.1.2005 00:01
Gosminjar grafnar upp í Eyjum Ákveðið hefur verið að byrja í vor að grafa upp gosminjar í Vestmannaeyjum. Ferðamálaráð hefur ákveðið að veita fimm milljóna króna styrk til verkefnisins sem gengur undir nafninu <em>Pompei norðursins</em>. Grafin verða upp nokkur hús sem standa undir vikurlagi og útbúið sýningarsvæði með upplýsingum um gosið. 26.1.2005 00:01
Þriðja versta afkoma ríkissjóðs Fjárlög fyrir árið 2006 verða lögð fram á bandaríska þinginu 7. febrúar. Þar er gert ráð fyrir fjárlagahalla upp á rúma 16.700 milljarða. En fáir trúa að við það verði staðið. Frá 1962 hefur ríkið oftar verið rekið með halla, en ekki. 26.1.2005 00:01
Þrískipt Írak er möguleiki Kúrdar gætu haft framtíð Íraks í sínum höndum en margir þeirra geta vel hugsað sér að landið verði eingöngu lauslegt ríkjasamband eða að það verði jafnvel brotið niður í þrjú sjálfstæð ríki 26.1.2005 00:01
Rússum fækkar ört Dauðsföll í Rússlandi eru umtalsvert fleiri en fæðingar og hefur Rússum fækkað um fimm milljónir á síðustu tíu árum. Íbúar Rússlands eru nú rúmlega 143 milljónir en ef heldur fram sem horfir gætu þeir verið orðnir 100 milljónir árið 2050. 26.1.2005 00:01
Kortið gefur ekki rétta mynd "Ég lít á þetta kort sem áróður. Hann getur í sjálfur sér verið réttur eða rangur en hann er fyrst og fremst pólitískur en ekki fræðilegur og það finnst mér einkenna þetta kort," segir Ragnheiður Ólafsdóttir, umhverfisstjóri Landsvirkjunar, um Íslandskortið "Ísland örum skorið" en tíu náttúruverndarsamtök stóðu að útgáfu þess. 26.1.2005 00:01
Spurning um stjórnarskrá ESB kynnt Barátta Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, fyrir því að fá stjórnarskrá Evrópusambandsins samþykkta í landinu hófst í dag þegar greint var frá því hvaða spurningar Bretar verða spurðir í þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrána. Hún er svohljóðandi: Á Stóra-Bretland að samþykkja samninginn sem staðfestir stjórnarskrá Evrópusambandsins? 26.1.2005 00:01
Þrír teknir með 160 grömm af hassi Þrír menn voru handteknir með 160 grömm af hassi og nokkur grömm af amfetamíni við Hvalfjarðargöngin um tvöleytið aðfaranótt miðvikudags. Að sögn lögreglunnar á Akranesi þótti lögreglumönnum ástæða til að stöðva bílinn þegar hann kom úr göngunum og við leit í honum fundust fíkniefnin en talið er að þau hafi verið ætluð til sölu. 26.1.2005 00:01
Sigldi trillu drukkinn Maður á fimmtugsaldri var handtekinn fyrir að sigla trillu undir áhrifum áfengis við Árskógsströnd á þriðjudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Dalvík barst henni tilkynning um klukkan 17.30 um einkennilega siglingu trillu úti fyrir ströndinni. 26.1.2005 00:01
Segja auðgun úrans óviðunandi Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hafa sagt Írönum að það sé óviðunandi að þeir viðhaldi áætlun sinni auðgun úrans þar sem hægt sé að nota það til að smíða kjarnorkuvopn. Íranar hættu tímabundið að auðga úran en segja nú að það sé réttur þeirra sem sjálfstæðrar þjóðar að framleiða eldsneyti fyrir kjarnorkuver og þeir muni aldrei hætta því. 26.1.2005 00:01
Ofbeldismenn yfirgefi heimilið Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, lagði fram frumvarp til laga á Alþingi um að auka heimildir lögreglu til að vísa manni af heimili sínu ef hann beitir eða hótar öðru heimilisfólki ofbeldi í gær. 26.1.2005 00:01
Rúm hálf milljón manna fær aðstoð Hjálparstarf Rauða krossins hefur nú náð til fleiri en 500,000 manna í þeim löndum sem urðu illa úti í flóðbylgjunni í desember. 26.1.2005 00:01
Trassa að tilkynna aukaverkanir Íslenskir læknar standa sig ekki í að tilkynna aukaverkanir lyfja til Lyfjastofnunar, að sögn Rannveigar Gunnarsdóttur forstjóra. Aðeins þrjár tilkynningar bárust um hið illræmda Vioxx-gigtarlyf á árunum 2000 til 2004. </font /></b /> 26.1.2005 00:01
Nær 500 milljónir vegna Vioxx Íslendingar notuðu gríðarlega mikið af svokölluðum coxhib-lyfjum á árunum 2000 - 2004, samkvæmt tölum frá Tryggingastofnun ríkisins. 26.1.2005 00:01
Hóta að rjúfa vopnhlé Al-Aqsa herdeildirnar, sem tilheyra Fatah-hreyfingu Mahmouds Abbbas, forseta Palestínu, hóta að rjúfa vopnhlé ef ísraelski herinn hætti ekki að elta uppi félaga í herdeildunum innan sólarhrings. Þessi yfirlýsing kom í kjölfar þess að óeinkennisklæddir ísraelskir hermenn skutu félaga í herdeildunum og særðu 14 ára vegfaranda í áhlaupi á borgina Qalqilya á Vesturbakkanum í dag. 26.1.2005 00:01
Stefnir í sigur Rasmussens Nýjustu skoðanakannanir í Danmörku benda til þess að samsteypustjórn Anders Foghs Rasmussens muni vinna stórsigur á jafnaðarmönnum í kosningunum í næsta mánuði. Samkvæmt þeim munu ríkisstjórnarflokkarnir fá 100 þingmenn kjörna, en 179 sæti eru á danska þinginu. Í síðustu kosningum, árið 2001, fengu stjórnarflokkarnir 98 þingsæti. 26.1.2005 00:01
Níu létust í lestarslysi í L.A. Að minnsta kosti níu létu lífið og rúmlega hundrað slösuðust þegar farþegalest fór út af sporinu og ók á aðra farþegalest og flutningalest í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag. Samkvæmt CNN-fréttastofunni virðist sem farþegalestin hafi ekið á bíl sem var á teinunum, farið út af sporinu og rekist í aðra farþegalest og svo klesst á flutningalest. 26.1.2005 00:01
Verðhækkanir komu á óvart Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að fullyrt hafi verið á þingi að raforkuverð myndi ekki hækka svo nokkru næmi. Nú sé annað að koma í ljós. Þingmaður Frjálslyndra segir hækkanir allt að 75 prósent. </font /></b /> 26.1.2005 00:01
Vísað úr landi vegna aldurs Jórdaninn Said Hasan uppfyllti ekki skilyrði til að fá dvalarleyfi hér á landi, að sögn Hildar Dungal, setts forstjóra Útlendingastofnunar. Ásthildur Albertsdóttir, eiginkona Said Hasan, hefur gagnrýnt stjórnvöld fyrir að vísa honum úr landi. Maðurinn á að auki barn hér á landi. 26.1.2005 00:01
Fasteignaverð hækkar áfram Þess má vænta að fasteignaverð eigi eftir að hækka nokkru meira á næstunni samkvæmt endurskoðaðri efnahagsspá fjármálaráðuneytisins fyrir árin 2005 til 2010. Búist er við því að verðið hækki þar til að framboð á nýju húsnæði jafnast á við eftirspurn. 26.1.2005 00:01
Vill skatt til baráttu gegn alnæmi Jacques Chirac, forseti Frakklands, lagði í dag til að lagður yrði á alþjóðlegur skattur til þess að berjast gegn alnæmi í heiminum. Slíkan skatt væri til dæmis hægt að leggja á milliríkjaviðskipti og einnig á eldsneyti fyrir skip og flugvélar og á flugfarseðla. Franski forsetinn sagði að með slíkum skatti væri hægt að öngla saman tíu milljörðum dollara á ári. 26.1.2005 00:01
Geti sett á sölubann á veiðibráð Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn frumvarp til laga um breytingu á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu er sagt að í frumvarpinu sé lagt til að umhverfisráðherra verði heimilt að takmarka veiðar við ákveðna daga og ákveðinn tíma sólarhringsins og að ráðherra geti við tilteknar aðstæður bannað sölu á veiðibráð. 26.1.2005 00:01
Fólk ætti að fá að brugga Leyfa verður fólki að framleiða léttvín og líkjöra, sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, á þingfundi Alþingis í gær. 26.1.2005 00:01
Mengunarkvótar skapa skriffinsku Ekki er ástæða til að setja mengunarkvóta á losunarheimildir fyrirtækja á innanlandsmarkaði, sagði Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra á þingfundi Alþingis í gær. 26.1.2005 00:01
Starfsfólki Landmælinga fækkar Landmælingum Íslands verður úthlutað fjórtán milljónum til uppfærslu stafrænna landakorta sinna. Það er sextán milljónum minna en í fyrra. 26.1.2005 00:01
Nægir kvótar til að menga Lítil hætta er á að farið verði fram úr heimildum Kyoto-bókunarinnar á losun gróðurhúsalofttegunda á fyrsta skuldbindingartímabilinu frá 2008 til 2012. 26.1.2005 00:01
Eiturefni utan við hús í Síðumúla Kútar og gámar með hættulegum og eldfimum efnum standa fyrir utan fyrirtæki við Síðumúla 35 þar sem hver sem er getur nálgast þau. Nágrannar hafa ítrekað kvartað og bæði Eldvarnareftirlitið og heilbrigðisyfirvöld hafa haft afskipti af eigendunum. 26.1.2005 00:01
Rannsókn við Kárahnjúka enn ólokið Lögreglurannsókn á banaslysi í mars í fyrra við Kárahnjúka er enn ólokið. Nokkrir hafa verið yfirheyrðir með réttarstöðu grunaðra. Lögregluyfirvöld fyrir austan sendu málið til ríkissaksóknara í október en fengu það endursent þar sem ýmsum spurningum þótti ósvarað. 26.1.2005 00:01
Á listann fyrir ríkisstjórnarfund Ísland var komið á lista hinna viljugu áður en ríkisstjórnarfundur var haldinn þann 18. mars 2003. Forsætisráðherra sagði í yfirlýsingu á dögunum að ákvörðun um að styðja innrásina hefði verið tekin í kjölfar fundarins. 26.1.2005 00:01
Kannast ekki við kostnaðaráætlun Verktakafyrirtækið NCC þvær hendur sínar af Árna Johnsen og fullyrðingum hans um að fyrirtækið telji kostnað við jarðgöng til Vestmannaeyja aðeins helminginn af því sem Vegagerðin áætlaði. 26.1.2005 00:01
Árásahrina í Írak í dag Allt logaði í Írak í dag. Hrina árása kostaði ekki færri en sjö lífið og fjöldi særðist. Áætlað er að stíðsreksturinn kosti Bandaríkjamenn um hálfan milljarð á klukkustund. 26.1.2005 00:01
Leyniþjónusta á Íslandi Björn Bjarnason dómsmálaráðherra staðfesti á Alþingi í dag að öryggislögreglu- og leyniþjónustustarfsemi færi fram á vegum Ríkislögreglustjóra og sagði að umfang hennar hefði aukist í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum þann 11. september 2001. 26.1.2005 00:01
Börn í Asíu þurfa mikla hjálp Yngstu fórnarlömb hamfaranna í Asíu þurfa mikla hjálp, bæði andlega og líkamlega. Áhersla er lögð á að koma þeim til hjálpar en að gleyma ekki tugmilljónum annarra barna um allan heim, sem búa við bág kjör. Í 33 löndum er líf milljóna barna í bráðri hættu. 26.1.2005 00:01
Brennisteinn fluttur út á 14. öld Umfangsmikil vinnsla á brennisteini var stunduð að Gásum í Eyjafirði á 14. öld. Þetta sýna fornleifarannsóknir sem þar standa yfir og eru þetta því elstu minjar um iðnað á Íslandi. Brennisteinninn var einkum seldur í byssupúður og virðast Íslendingar því snemma hafa tengst hergagnaframleiðslu. 26.1.2005 00:01
Verkamenn borga fyrir yfirvinnu Jón Ólafur Jónsson og Jóhann Valgeir Jónsson, fyrrum starfsmenn Impregilo við Kárahnjúkavirkjun, fullyrða að yfirmaður hjá Impregilo hafi krafið þá um greiðslu fyrir að fá að vinna um helgar. 26.1.2005 00:01
Enn tíu ár til stefnu Tíu ár munu líða áður en Tyrkland er í stakk búið að gerast aðili að Evrópusambandinu, sagði Ali Babacan, efnahagsmálaráðherra tyrknesku ríkisstjórnarinnar, á fundi um efnahagsmál sem haldinn er í Davos í Sviss. 26.1.2005 00:01
Tekinn með hass í Svíþjóð 24 ára Íslendingur var tekinn með tvö kíló af hassi í Malmö í Svíþjóð á þriðjudaginn í síðustu viku. Hann var að koma frá Danmörku þegar hann var tekinn með hassið falið í bíl sínum. Í kjölfarið var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald og er hann enn í haldi sænsku lögreglunnar. 26.1.2005 00:01
Vill hefja viðræður 2007 "Það verður mjög mikilvægt að hefja viðræður um samskiptin við Evrópusambandið árið 2007," sagði Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu. Hann sagði aðild að Evrópusambandinu mikilvægan valkost fyrir land sitt en hélt opnum þeim möguleika að samskiptin yrðu með öðrum hætti. 26.1.2005 00:01
Mannskæðasta þyrsluslysið í Írak 31 bandarískur hermaður lét lífið þegar stór flutningaþyrla hrapaði í slæmu veðri í vesturhluta Íraks. Slysið er mannskæðasta þyrluslys Bandaríkjahers frá því að innrásin í Írak hófst fyrir tæpum tveimur árum. 26.1.2005 00:01
Rice orðin utanríkisráðherra Öldungadeild Bandaríkjaþings staðfesti í gær skipun Condoleezza Rice í embætti utanríkisráðherra. 85 þingmenn greiddu atkvæði með skipun Rice en þrettán á móti. Það hefur ekki gerst frá lokum seinni heimsstyrjaldar að svo margir þingmenn hafi greitt atkvæði gegn skipan utanríkisráðherra. 26.1.2005 00:01
Vill útrýma klámiðnaðinum Matt Bartle, þingmaður repúblikana á ríkisþingi Missouri, hefur lagt fram frumvarp sem á að ganga af klámiðnaðinum dauðum í ríkinu. Áður hefur ríkisþingið samþykkt bann við veggspjöldum sem gera út á kynþokka og því að stúlkur undir nítján ára aldri vinni við nektardans. 26.1.2005 00:01
Tímamótajafnréttisdómur Nýjasti dómur Hæstaréttar í máli gegn Akureyrarbæ er varðar mismunun vegna kynbundins launamunar markar tímamót. Þetta segir Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður. 26.1.2005 00:01
Hvíta húsið með yfirlýsingu Davíðs Í yfirlýsingu Davíðs Oddssonar frá 18. mars 2003, sem finna má á vef Hvíta hússins, vísar hann til yfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar um deilurnar í Írak. Ekki var hægt að fá uppgefið frá ráðuneytum hvaða yfirlýsingu var verið að vísa til. </font /></b /> 26.1.2005 00:01
Maður í sjálfsvígshug banaði tíu Tíu létu lífið þegar maður í sjálfsvígshugleiðingum ók í veg fyrir lest í úthverfi Los Angeles. Sjálfur hætti maðurinn hins vegar við sjálfsvígið á síðustu stundu, fór út úr bílnum rétt áður en lestin lenti á honum og slapp því lifandi. 26.1.2005 00:01
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent