Segja úrskurð staðfesta grun 27. janúar 2005 00:01
Ættingjar manns á níræðisaldri, sem lést í kjölfar byltu á Hrafnistu, segja bráðabirgðaúrskurð Landlæknis staðfesta grun sinn um að meðferð og aðhlynning á dvalarheimilinu hafi ekki verið með eðlilegum hætti. Ættingjarnir sætta sig ekki við ósamræmi í vitnisburði starfsmanna og læknis Hrafnistu. Samkvæmt bráðabirgðaúrskurði Landlæknisembættisins fékk Ólafur Gunnarsson, sem var 85 ára þegar hann lést í kjölfar byltu á Hrafnistu, ekki þá meðferð sem ætlast hefði mátt til af starfsfólki dvalarheimilisins, en níu klukkustundir liðu frá því Ólafur féll í gólfið í borðsal heimilisins þar til hann var fluttur á sjúkrahús. Sex dögum síðar lést hann án þess að komast nokkurn tímann til meðvitundar. Forsvarsmenn Hrafnistu segja að mistök hafi átt sér stað og undir það tekur Landlæknisembættið, en ekki var farið eftir vinnureglum innanhúss. Sveinn H. Skúlason, forstjóri Hrafnistu, segir að niðurstaða landlæknis hafi verið mjög í takt við það sem fram hafi komið í skýrslu stofnunarinnar og hann reikni ekki með að gerðar verði athugasemdir við hana. Sveinn segir að þegar hafi verið brugðist við með úrbótum. Skerpt hafi verið á vinnureglum og farið yfir þær með starfsfólki. Í framhaldinu hljóti það svo að vera í höndum stjórnenda vistheimilisins að gera öllum ljóst að fylgja þar vinnureglum. Það sé bara einu sinni svo að þó að starfsmaður segist hafa gert ákveðinn hlut hafi hann ekki gerst nema það sé skráð. Ættingjar Ólafs heitins segja bráðabirgðaúrskurð landlæknis staðfesta grun þeirra um að ekki hafi verið farið eftir starfsreglum og meðferð á Hrafnistu hafi ekki verið með eðlilegum hætti. Sonur Ólafs segir hins vegar að aðstandendur sætti sig ekki við ósamræmi sem sé að finna í vitnisburði starfsfólks og læknis Hrafnistu. Í úrskurði Landlæknisembættisins er haft eftir starfsfólkinu að eftir byltuna hafi Ólafur verið vankaður og hann hafi ekki svarað eða getað tjáð sig eðlilega. Vakthafandi læknir á Hrafnistu segir hins vegar að þegar hann hafi skoðað Ólaf hafi hann legið í rúminu með fullri meðvitund, svarað sér og hreyft alla útlimi og enga áverka hafi verið að sjá. Þetta vilja ættingjarnir láta skoða betur, ekki síst þar skrásetningar hafi verið með ófullnægjandi hætti. Ættingjarnir fóru á sínum tíma fram á lögreglurannsókn vegna atviksins og er það enn til skoðunar hjá lögregluembættinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira