Innlent

Manhunt var tekinn úr verslunum

Fjöldi verslana í Lundúnum tók tölvuleikinn Manhunt, sem fjallað var um í fréttum í gær, úr sölu eftir hryllilegt morð sem talið var að tengdist spilun leiksins. Lítið mál er að nálgast leikinn hér á landi. Leikurinn er ætlaður fullorðnu fólki en brögð eru að því að ung börn hafi spilað leikinn sem gengur út á murka lífið úr andstæðingnum á sem allra grófastan hátt. Þeim mun hryllilegri sem aftakan er þeim mun betur gengur þeim sem spilar. Á síðasta ári komst þessi leikur í hámæli í Bretlandi eftir morð á fjórtán ára dreng, en félagi hans barði hann ítrekað með klaufhamri og stakk hann margoft með hnífi. Foreldrar hins látna vitnuðu um að morðinginn hafi verið heltekinn af leiknum og í kjölfarið drógu margar verslanir á aðalverslunargötum Lundúna leikinn úr sölu. Tony Blair forsætisráðherra blandaði sér í málið og lýsti því yfir að vernda þyrfti börn fyrir svona leikjum. Morðinginn hlaut lífstíðarfangelsi. Full ástæða er fyrir foreldra að vera vakandi fyrir merkingum á tölvuleikjum og hafa í huga að sumir tölvuleikir eru bara ætlaðir fullorðnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×