Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Barnæskan hörmuleg lífsreynsla Barnæskan er hörmuleg lífsreynsla fyrir helming barna á jörðinni. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 9.12.2004 00:01
Búið að brenna hræin Búið er að brenna hræin af hrossunum fjórum sem drápust úr miltisbrandi á jörð Sjónarhóls á Vatnsleysuströnd. Ekki er enn vitað hvernig miltisbrandur barst í hrossin. Starfsmenn frá embætti yfirdýralæknis hafa verið að taka sýni af vatni á jörð Sjónarhóls og verða þau notuð til þess að finna hvar miltisbrandurinn átti upptök sín. 9.12.2004 00:01
Athvarf fyrir heimilislausar konur Athvarf fyrir heimilislausar konur verður formlega opnað í Reykjavík á morgun, 10. desember, á 80 ára afmæli Rauða kross Íslands. Deildir félagsins fagna afmælinu á margvíslegan hátt, sumar með því að hafa opið hús undir yfirskriftinni „Byggjum betra samfélag.“ 9.12.2004 00:01
Mótmæla hækkun bifreiðagjalda Félag íslenskra bifreiðaeigenda mótmælir harðlega hækkun bifreiðagjalda um fjörutíu og fimm prósent umfram verðlagsþróun. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um að hækka bifreiðagjöld og er í frumvarpinu sagt að það sé í takt við verðlagsþróun. Runólfur Ólafsson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda er ekki allskostar sammála því. 9.12.2004 00:01
Lífeyrisþegum hefur fjölgað um 46% Lífeyrisþegum fjölgar langt umfram mannfjölda, samkvæmt staðtölum frá Tryggingastofnun ríkisins fyrir 2003. 9.12.2004 00:01
Ný hvalategund í Kyrrahafi? Hvalur sem hefur rödd ólíka öllum öðrum hvölum hefur svamlað um Kyrrahafið undanfarin tólf ár. Bandarískir vísindamenn segja að hvalurinn sé einn á ferð en þeir hafa enga hugmynd um af hvaða tegund hvalurinn er. 9.12.2004 00:01
Evrópa axli sinn hlut í Írak Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, sagði á fundi með utanríkisráðherrum bandalagsins í dag að tengslin við Bandaríkin væru undir því komin að Evrópuríki axli sinn hlut í öryggismálum í Írak og Afganistan. </font /></font /> 9.12.2004 00:01
Olíu leitað við Ísland Norskir og skoskir aðilar hafa stofnað félag til þess að leita að olíu við Ísland. Félagið heitir Geysir Petroleum og segir framkvæmdastjóri þess að um leið og lögum verði breytt á Íslandi verði send umsókn til iðnaðarráðuneytisins um leyfi til olíuleitar. 9.12.2004 00:01
Kvennalisti stofnaður í Svíþjóð? Femínistar í Svíþjóð íhuga að stofna Kvennalista fyrir næstu kosningar sem fara fram árið 2006. Líklegur formaður flokksins er Gudrun Schyman sem vék formannssæti í Vinstri flokknum á síðasta ári eftir að hún hafði verið saksótt fyrir skattsvik. 9.12.2004 00:01
Vill ganga frá stjórnarmyndun Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hvatti flokksmenn sína í Líkúd-bandalaginu til þess í dag að greiða atkvæði með stjórnarsamvinnu Líkúd og Verkamannaflokksins. Ef þeir gera það ekki verður að efna til kosninga með hraði og það gæti gert að engu áætlanir hans um að flytja ísraelska landnema frá Gasasvæðinu. 9.12.2004 00:01
Hindruðu hryðjuverkaárás á London Breska leyniþjónustan hefur komið í veg fyrir árás á London sem átti að vera svipuð þeirri sem gerð var á járnbrautalestarnar í Madríd í mars á þessu ári. Tæplega tvöhundruð manns létu lífið í þeirri árás. Yfirvöld í Bretlandi segjast ekki geta gefið frekari upplýsingar um hina fyrirhuguðu árás í London að sinni af lagalegum ástæðum. 9.12.2004 00:01
Líkja eftir Mars í miðri Moskvu Rússneskir vísindamenn leita nú að sex sjálfboðaliðum sem eru reiðubúnir að láta loka sig af í sérsmíðaðri vísindastofu í Mosvku í 500 daga án þess að stíga nokkurn tíma út meðan á dvölinni stendur. Þar á að líkja eftir skilyrðum sem geimfarar á Mars þyrftu að kljást við og er tilraunin hugsuð sem undirbúningur að slíkri ferð. 9.12.2004 00:01
Hjónabönd samkynhneigðra leyfð Hæstiréttur Kanada hefur gefið ríkisstjórn landsins grænt ljós á að leyfa hjónabönd samkynhneigðra en gekk ekki svo langt að segja að hún væri skyldug til þess vegna ákvæða í stjórnarskrá landsins. 9.12.2004 00:01
Fjórir myrtir á skemmtistað Fimm létu lífið og tveir særðust þegar maður hóf skothríð á skemmtistað í Ohio í fyrrinótt. Annar þeirra særðu er lífshættulega slasaður. 9.12.2004 00:01
Fleiri lifa sár sín af en áður Dánartíðni særðra bandarískra hermanna hefur aldrei verið lægri en í stríðinu í Írak. Í Persaflóastríðinu og Víetnamstríðinu lést fjórði hver hermaður sem særðist en núna er það hlutfall komið niður í tíunda hvern hermann, að því er fram kom í frétt Washington Post. 9.12.2004 00:01
Fátækt og stríð hjá milljarð barna Annað hvert barn í heiminum þjáist af fátækt, stríðsátökum eða alnæmisfaraldrinum að því er fram kemur í ársskýrslu Barnahjálpar sameinuðu þjóðanna. Þetta þýðir að meira en milljarður barna á um sárt að binda. 9.12.2004 00:01
Kveikt í íbúðarhúsi í Saurbæ Maður á fimmtugsaldri gekk berskerksgang á sveitabæ í Saurbæ í Dölum í dag og reyndi að aka niður sýslumann Dalasýslu, lögreglumann og þriðja mann, sem voru í lögreglubíl á bæjarhlaðinu. Hann er einnig talinn hafa kveikt í íbúðarhúsinu á staðnum. 9.12.2004 00:01
Hjúkrunarfræðingar heiðarlegastir Hjúkrunarfræðingar eru heiðarlegastir og hafa best siðferði allra starfsstétta að mati Bandaríkjamanna. Bílasalar njóta hins vegar minnsta traustsins. Þetta eru niðurstöður nýrrar Gallup-könnunar í Bandaríkjunum sem birtust í gær. 9.12.2004 00:01
80 kindur féllu ofan í kró 80 kindur féllu ofan í kró í fjárhúsi í Reynihlíð í Mývatnssveit nú síðdegis. Björgunarsveit er á staðnum og vinnur að því að koma fénu til bjargar. 9.12.2004 00:01
Samgöngur til Vestmannaeyja Á Alþingi hafa þingmenn lýst yfir áhyggjum yfir versnandi samgöngum við Vestmannaeyjar, en strandsiglingum Eimskips lauk 1. desember. Óskar Stefánsson, formaður Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis, segist trúa að það sé þess virði að kanna hugmyndir um jarðgöng til Vestmannaeyja nánar. 9.12.2004 00:01
Konukot opnað á afmælinu Haldið er upp á 80 ára afmæli Rauða kross Íslands í dag. Í tilefni dagsins verður m.a. opnað formlega svonefnt Konukot, en það er næturathvarf fyrir heimilislausar konur. 9.12.2004 00:01
Baráttan gegn fátækt í fyrirrúmi Eitt af meginverkefnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) snýr að því að útrýma fátækt og hungri í heiminum. Við upphaf fundar framkvæmdastjórnar stofnunarinnar í Reykjavík voru kynnt svonefnd þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna, en WHO er ein stofnana Sameinuðu þjóðanna og vinnur að þeim markmiðum til að stuðla að bættu heilsufari fólks. 9.12.2004 00:01
Viðbúnaður WHO vegna fuglaflensu "Við sjáum vísbendingar um að yfirvofandi sé heimsfaraldur skæðrar inflúensu," sagði Lee Jong-wook, forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), á blaðamannafundi sem haldinn var í byrjun fundar framkvæmdastjórnar stofnunarinnar í Reykjavík í gær og áréttaði að stofnuninni væri mjög umhugað um málið. 9.12.2004 00:01
Mikilvægur fundur hjá WHO Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir mikla þýðingu hafa fyrir landið að fundur framkvæmdastjórnar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) skuli haldinn hér á landi. 9.12.2004 00:01
Guði sé lof fyrir Kárahnjúka Gjaldþrot norska fyrirtækisins Promex, sem fyrirhugaði starfsemi í Mývatnssveit, olli vonbrigðum fyrir norðan. Atvinnumálin hafa samt glæðst síðustu daga. 9.12.2004 00:01
Leyniþjónusta í lamasessi Miklar breytingar eru framundan í bandarísku leyniþjónustunni en þær stofnanir sem annast leynilega upplýsingaöflun hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að hafa ekki séð fyrir atburði á borð við 11. september. 9.12.2004 00:01
NATO mikilvægt vegna varna Davíð Oddsson utanríkisráðherra sat utanríkisráðherrafund Norður-Atlantshafsbandalagsins. NATO, í Brussel í dag. Á fundinum áréttuðu ráðherrarnir mikilvægi Atlantshafstengslanna og bandalagsins sem grundvöll sameiginlegra varna og vettvangs samráðs milli Evrópu og Norður-Ameríku um öryggismál. 9.12.2004 00:01
Stuðmaður á þing Jakob Frímann Magnússon, tónlistar- og kvikmyndagerðarmaður lagðist til svefns undir morgun á fimmtudagsmorgni. Á dauða sínum átti hann von en ekk því að eftir sex tíma svefn myndi hann undirrita hátíðlegt drengskaparheit um að virða stjórnarskrá lýðveldisins sem alþingismaður. 9.12.2004 00:01
Lygabrygsl á þingi Þingmenn vændu hvern annan um ósannindi í umræðum á Alþingi í gær þegar Össur Skarphéðinsson, Samfylkingu gerði að umtalsefni orð Geirs H. Haarde, fjármálaráðherra í sjónvarpsþætti á Stöð 2. Hafði Össur eftir Geir að hann hefði staðfest að Framsóknarflokkurinn stæði gegn lækkun matarskattar. 9.12.2004 00:01
Vistvæn jól Lambakjöt í stað svínakjöts og vistvænar jólagjafir sem pakkað er inn í endurnýtanlegan maskínupappír eru meðal hugmynda Landverndar að vistvænum jólum. Hægt er að fylgja þessum hollráðum án þess að draga úr jólagleðinni. 9.12.2004 00:01
Feluskattar vega upp skattalækkun Pétur H. Blöndal, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, sagði að það yrði mikill hamingjudagur þegar tekju- og eignaskattsfrumvarp ríkisstjórnarinnar yrði samþykkt á Alþingi, þegar hann mælti fyrir nefndaráliti ríkisstjórnarflokkanna í gær. "Þetta er mikill hamingjudagur því verið er að móta þjóðfélagið til framtíðar. Fólki er umbunað fyrir dugnað og um leið er furmvarpið félagslega réttlátt." 9.12.2004 00:01
Stjórnmálaflokkar spilltastir Íslenskir stjórnmálaflokkar eru spilltustu stofnanir íslenska samfélagsins. Þetta eru niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar könnunar. Stjórnmálaflokkar eru taldir spilltasta aflið í sex af hverjum tíu löndum sem þátt tóku í könnuninni. Hér á landi er viðskiptalífið talið næstspilltasti geiri samfélagsins og fjölmiðlar eru í þriðja sæti. 9.12.2004 00:01
WHO fundar hér á landi Margir þekktir vísindamenn sitja nú fund framkvæmdastjórnar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, hér á landi en formaður hennar er Davíð Á. Gunnarsson. Þar er fjallað um framtíðarhorfur í heilbrigðiseftirliti og hvernig þróunin gæti orðið á næstu tíu árum. 9.12.2004 00:01
Hæstiréttur staðfesti fangelsisdóm Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja ára fangelsisdóm yfir þremur mönnum fyrir að hafa kveikt í húsi við Suðurlandsbraut í Reykjavík í fyrrasumar og stefnt lífi þriggja íbúa í hættu. Mennirnir kveiktu í húsinu eftir að einn þeirra sparkaði gat á útidyrahurð og hellti þar inn tíu lítrum af bensíni. 9.12.2004 00:01
Guðlaugi Þór svarað Guðmundur Þóroddsson, formaður Orkuveitu Reykjavíkur fullyrðir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær að Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarmaður í Orkuveitunni hafi farið með rangt mál í frétt í Fréttablaðinu á fimmtudag. 9.12.2004 00:01
Nýr matfiskur við strendur Íslands Nýr matfiskur af kolaætt er kominn að ströndum Íslands. Hann heldur sig mest á grunnsævi og virðist kunna best við sig við ósa Ölfusár. 9.12.2004 00:01
Miltisbrandssýkt hross brennd Hræ fjögurra hrossa sem greindust með miltisbrand við eyðibýlið Sjónarhól á Vatnsleysuströnd voru brennd í gær. Tíu manns hafa fengið læknismeðferð vegna hugsanlegrar miltisbrandssýkingar. Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir á sóttvarnarsviði Landlæknis, segir fólkið ekki vera veikt en það fái sýklalyf í skamman tíma sem fyrirbyggjandi meðferð. 9.12.2004 00:01
Frumleg lausn byggðavanda Það er frumleg nálgun hjá sveitastjórum í sjávarbyggðum að leggja til að veiðigjald á kvóta renni til byggðanna og að skuldir þeirra í félagslega íbúðakerfinu verði afskrifaðar. Þetta segir Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarmanna, eftir fund með sveitastjórunum í fyrradag. 9.12.2004 00:01
Á batavegi eftir hálkuslys Ung kona sem datt í hálku við bæ í Hrunamannahreppi í fyrrakvöld, og var flutt meðvitundarlaus með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Fossvogi, er á batavegi. 9.12.2004 00:01
Áhugi á olíuleit á Íslandi glæðist Áhugi á olíuleit í íslenskri lögsögu ætti að glæðast mjög eftir að risastór olíulind fannst á mörkum breskrar og færeyskrar lögsögu. Talið er að allt að því fimm hundruð milljónir tunna af olíu sé þar að finna. 9.12.2004 00:01
Fór ekki niður af svölum hússins Maður sem komst út úr brennandi húsi við Bárustíg á Sauðárkróki á laugardag hefur fengið réttarstöðu grunaðs manns. Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir manninn ekki grunaðan um að hafa kveikt í húsinu enda liggi eldsupptök ekki fyrir. 9.12.2004 00:01
Sýknaður af netaveiði Maður hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands eystra af ákæru um brot á lax- og silungsveiði. Hann var ákærður fyrir að hafa lagt net í Ólafsfjarðarvatn um tuttugu metra frá ósi Fjarðarár. 9.12.2004 00:01
Þrír í tveggja ára fangelsi Hæstiréttur staðfesti tveggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir þremur mönnum sem kveiktu í íbúðarhúsi í Laugardal í júlí á síðasta ári. Húsráðendur, maður og kona, voru inni í íbúðinni þegar kveikt var í. 9.12.2004 00:01
Falsaði skuldabréf í fangelsi Hæstiréttur hefur staðfest tveggja og hálfs árs fangelsi yfir Þórhalli Ölveri Gunnlaugssyni fyrir skjalafals. Fölsunin átti sér stað inni á Litla-Hrauni en hann situr inni fyrir morð. Bréfin falsaði hann með nafni þess sem hann myrti. 9.12.2004 00:01
Velti lögreglubíl með hjólaskóflu Maður gjöreyðilagði lögreglubíl með hjólaskóflu og er grunaður um að hafa reynt að kveikja í íbúðarhúsi sínu í Saurbæjarhreppi í Dölum um klukkan tvö í gær. Sýslumaður, lögmaður og lögregla voru stödd á bænum vegna uppboðs sem halda átti á eigninni. Ekki varð manntjón vegna berserksgangs mannsins. 9.12.2004 00:01